FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Hörður Guðjónsson

Jón Hörður Guðjónsson

Profile picture of Jón Hörður Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 3 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 360 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 03.06.2007 at 10:07 #591874
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Sá þá á Discovery í fyrra og fannst þeir mjög skemmtilegir. Þessi þáttastjórnandi hefur svo gert miklu fleiri skemmtilega þætti m.a. um Cobru, Harley, Triumph ofl. ofl.
    –
    Skoðaði þetta einhverntíma á BBC og fannst þetta full dýrt til að kaupa af þeim.





    01.05.2007 at 18:56 #589958
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég er hræddur um að einhverjir munu hætta að styðja félagið með félagsgjöldum ef hækkunin er þetta mikil. Mér hefur sínst að 5000 kr. sé svona sálfræðilegur múr sem margir vilja ekki fara yfir. Hvort það verða svo margir að öll hækkunin fari í það er svo spurning
    .
    JHG





    14.04.2007 at 00:46 #587924
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég var ekki að draga það sérstaklega í efa. Mér fannst þessi aflaukning áhugaverð en síðan gat ekkert bakkað það upp. Það benti til að þetta væri bara pissukeppni með ekkert á bakvið sig.
    .
    Ég nenni ekki lengur að leita uppi síður sem staðfesta ekki það sem var fullyrt að þær eigi að gera.
    .
    En þó að þeir hefðu náð 405 ft lb með túrbínu og intercooler og einhverjum töfrabrögðum (sem er mjög gott og getur vel verið að þeir hafi gert þó ekkert virðist bakka það upp) þá er ég með bensínvél sem skilar 425 hp og 449 ft lb án þess að blása (http://store.summitracing.com/partdetai … toview=sku), sem skilar góðu vacumi (og góðum hægagang) og get fengið blásara á hana ef ég vil meira (sem ég vil ekki). Þessi vél er ekki með háa þjöppu og á hellings tjún möguleika eftir ef menn vilja.
    .
    Það er til hellingur af allskonar kombóum sem slá mína rellu út því þó 449 ft lb séu fín (og 405 líka alveg ágæt) þá eru miklu aflmeiri dísel og bensínvélar til útum allt.
    .
    Ef menn líta í kringum sig þá er nefnilega ýmislegt annað til en Toyota (eins ágætar og þær eru) og GM.
    .
    En komum okkur uppúr sandkassanum, hvort við veljum bensín eða dísel fer mikið eftir smekk. Meðan þær koma okkur þangað sem við viljum fara (og til baka) þá skiptir engu hvað þetta er og hvað það heitir.
    .
    JHG





    14.04.2007 at 00:12 #587914
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég vitnaði bara í Safari af því að það var bent á að allar upplýsingar fengjust þar sem reyndist svo ekki rétt (hafði aldrei heyrt um það fyrirtæki áður í þessum bransa, vissi bara af Safari Snorkel).
    .
    Þegar ég googlaði Gomma diesel þá fékk ég allskonar síður sem voru greinilega ekki frá Ástralíu eða öðrum enskumælandi svæðum. Ég kíkti samt á einhverjar og þeir virðast helst vera í strigaskóm….
    .
    Ég er því jafn nær hvort Gomma viti meira um díselvélar eða skó en Safari.
    .
    JHG





    14.04.2007 at 00:05 #588208
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Menn voru eitthvað að nota 434 sbc í kvartmílunni með ágæti árangri. Ég heyrði samt eitthvað rætt um það á erlendum spjallsíðum að það væri ekki gott að fara í 434 með orginal blokk en ef það væri keypt aftermarket blokk þá væri þetta í góðu lagi.
    .
    Ef menn passa að bora steam holes í heddin sem fara á 400 block þá á ekki að vera vandamál með ofhitun (eins og ég er viss um að þið vitið því miðað við hvað þið hafið verið að gera þá eruð þið ekki nýgræðingar).
    .
    Persónulega myndi ég halda mig við small block útaf þyngdinni (þó Big block sé alltaf freistandi) en ég er líka svo nægjusamur að 500 hross myndu duga mér ágætlega í svona bíl…
    .
    En þetta er helvíti flott project hjá ykkur :)





    13.04.2007 at 23:37 #587910
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég var aldrei að segja að díselvélar væru ekki áreiðanlegar heldur að svara því þegar það var gefið í skyn að bensínvélarnar væru ekki góðar í ferðabíl heldur eingöngu í leikfang.

    Það er hægt að tjúna allt í allar áttir, hvort sem það eru bensín eða díselrellur. Menn nota nú t.d. mikið V8 bensínvélar í báta vestur í hreppum og keyra þá á mikilli gjöf í langan tíma.

    Segi það enn og aftur, bensín og dísel, þetta er hvortveggja gott, menn verða bara að velja fyrir sig og leyfa hinum að velja sjálfum.

    JHG





    13.04.2007 at 22:56 #587904
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    ég sé að ég hef yfirskotið um 11 ft lb, best að leiðrétta það, hún er víst 449 ft lb en það breytir ekki öllu.
    .
    Þetta er vél sem er gerð til að vera notuð dagsdaglega, með nægilegt tork til að vera skemmtilegur á götunni. Það væri hægt að ná miklu meira afl útúr henni ef menn vildu.
    .
    JHG





    13.04.2007 at 22:42 #587900
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Hún var ekkert svakaleg, og hefði getað verið minni ef ég hefði verið með yfirgír. En bíllinn var á 38" með 4,88 hlutföll svo snúningurinn er full hár á krúsinu (um 2500 rpm). Eyðslan var því nokkur þangað til ég fór að keyra á 90 (en ekki 100, munaði miklu) en þá fór meðaleyðsla hjá mér í 22-24 lítra á hundraði (bæjarskjökkt inní því). Það er með edelbrock Q-jet blöndung. Nýjir stórir bensínmótorar sem slá út strokkum eftir þörfum ættu að eyða minnu.
    .
    En djöfulli var gaman að kíla pinnann í gólfið :)
    .
    JHG





    13.04.2007 at 22:13 #587896
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég fór nú mjög víða á mínum Blazer K5 með 350 kúbikka blöndungsmótor og hann fór alls ekki með fjárhaginn. Hann var þar að auki mjög áreiðanlegur og skemmtilegur. Nú er komin díselrella í bílinn og hvort fyrir sig hefur sína kosti og galla.
    .
    Ég hef átt fleiri bensínjeppa, reyndar léttari með minni vélar, og það gekk alveg upp.
    .
    Svo er ég með 425 hrossa og 460 ft lb (tölur uppgefnar frá General Motors, ekki ágiskun) 6,3 lítra small block chevy mótor í Trans AM sem væri þrælskemmtileg í jeppa þó þungur jeppi væri (já og hún er ekki þung, með álheddum og alles).
    .
    Menn geta því alveg ferðast um á þungum bílum með bensínmótora. Hvort menn vilja dísel og bensín er smekksatriði (í bland við trúarbrögð).
    .
    JHG





    13.04.2007 at 21:45 #587890
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    ok, svo þessar 550 eru ekki fengnar frá Safari. Svo þetta er ekki með því að bæta aðeins við Intercooler. Ég fór á Safari eins og mér var sagt og gat ekki fundið þessar tölur staðfestar.
    .
    Þá er brugðið á það ráð að vitna í einhver útlending (sem gefur þessu ennþá meira virði því útlendingar vita allt betur…) sem segist hafa gert góða hluti en ekkert staðfest (og það kemur ekki af síðu Safari sem virðast kunna minna á þetta en hann).
    .
    Þessar tölur gætu þessvegna verið að einhverju spallborði (og auðvitað ýkir engin né lýgur á þeim).
    .
    Ég veit ekkert hvort það er hægt að ná 550 Nm án þess að minnka áreiðanleika mikið (Safari gat það ekki en þeir þurfa greinilega að fá sér nýja tæknimenn fyrst aðrir geta gert það án þess að hafa fyrir því) en ég hef enga staðfestingu fengið á því að það sé hægt (eins og síða Safari átti að gera).
    .
    jú, ég trúi líka á jólasveininn :)
    .
    JHG





    13.04.2007 at 20:51 #587878
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Mér sínist að menn séu komnir á fullt í sandkassann. Þá er alveg upplagt að reyna að gera lítið úr náunganum, jafnvel þó menn hafi ekki neinar forsendur fyrir því. Eða er það ekki?
    –
    Þar sem að mér fannst áhugavert hve mikil aukning átti að vera á torki þá googlaði ég Safari Intercooler og fékk síðuna þeirra. Þar tala þeir um að tork aukist um 46%, fari úr 285 Nm í 425 Nm (sá reyndar líka kit sem gerðu töluvert minna). Aflið fer úr 96 kW í 140 kW. Þeir tala reyndar alltaf um Intercooled Turbo System svo það virðist ekki vera bara um Intercooler að ræða.
    –
    Svo er spurning hvort þessi söluaðili sé nokkuð að fegra sína auglýsingu en tölur frá framleiðendum eru ekki alltaf réttar.
    –
    En óháð því þá er þetta langt frá 550 Nm sem einhverjir vildu halda fram.
    –
    Þó menn trúi á sitt merki í blindni þá mega menn ekki alveg sleppa sér.
    –
    Ég ætla ekki að blanda mér í umræðuna hvort er betra, ég hef góða reynslu af bæði bensín og dísel í jeppum.
    –
    JHG





    03.04.2007 at 23:05 #587004
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Jamm, ég varð ekki var við að ég væri með nokkra sleggjudóma gagnvart asískum vélum, jeppum eða nokkru öðru. Það hefði kannski verið full ástæða til miðað við svör sumra. Þar sem að ég tel að margt ágætis dót komi úr þeirri áttinni (þ.e. frá asíu) þá nennti ég ekki í svoleiðis pissukeppni.
    –
    En ég hef átt bæði japanska og ameríska jeppa. Þegar ég var á súkkunni hér í den þá varð ég alltaf að gera við í eða eftir hverja ferð. Eftir að ég fór á ameríska þá breyttist það. Mínir amerísku (bæði jeppar og fólksbílar) hafa verið mjög áreiðanlegir og skilja ekki eftir sig olíupolla útum allt (eins og sumir virðast halda).
    –
    Það geta allir lent á eintökum sem bila mikið. Ég lenti í því með gömlu súkkuna mína, súkkudótið átti svolítið erfitt með að sætta sig við aukið afl í húddinu. Ég lenti líka í því að það sauð á henni, en það var við sjálfan mig að sakast að hafa ekki sett almennilegann vatnskassa í hana.
    –
    Einnig stútaði ég gírkassa í henni, en það var líka vegna eigins aulaháttar (þeir amerísku virðast þola minn aulahátt betur, eru kannski vanir slíku vestan úr hreppum…)
    –
    Við breytingar á mínum amerísku þá hef ég getað leyft mér að hafa orginal drifrás, frá vél til hásinga (er reyndar í smá breytingum núna en það passar allt í orginal festingar). Þá losnaði maður við mixið og dótið vinnur eins og það á að vinna.
    –
    En eigum við ekki að sleppa sleggjudómum, koma okkur uppúr sandkassanum og ræða um þetta á skynsamlegum nótum.





    03.04.2007 at 22:09 #586994
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    jú, það leynir sér ekki að þú talar ekki af reynslu…





    03.04.2007 at 21:55 #586990
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    akkúrat það sem ég hélt, varla væru menn að setja GM vélar í Toyotur og rífa Toyotu vélar úr nema að það væri eftir einhverju að slægjast. Kannski eru þær amerísku ekki svo slæmar eftir allt….





    03.04.2007 at 21:36 #586984
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    þetta svarar ekki afhverju Toyoturnar eru með Chevy vélum.





    03.04.2007 at 21:11 #586980
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    …en ef amerískar væru svona slæmar og Toyota svona frábærar, af hverju eru þá svona margar Toyotur með Chevrolet vélum en fáir Chevrolettar með Toyotu vélum?





    03.03.2007 at 00:05 #583134
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég myndi setja manual mæli í hann. Þá vita menn hvað er að gerast.
    –
    Það er ekkert óalgent að þegar vélar eru mikið eknar, og farnar að vera t.d. rúmar á legum að smurþrýstingur falli í lausagangi þegar olían er heit. Svo er spurning hve mikið viðkomandi vél þolir.
    –
    En það má líka vera að mælirinn eða pungurinn sé að stríða og því mjög gott að vera með manual mæli sem hægt er að treysta.





    30.01.2007 at 22:41 #578116
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég hef heyrt margar sögur af skiptingum sem eru teknar upp hér á landi og endast ekki neitt. Afhverju ætli þær endist svona miklu betur hjá kananum?
    .
    Það er mjög mikilvægt að stilla pikkbarkann á TH700. Ef það er ekki gert rétt þá skemmist hún. Einnig ef lockupið er aftengt þá hita þær sig. Í USA er verið að nota þessar skiptingar við miklu öflugri bíla en hér landi og þær endast. Hvort sem að þær eru að fara hér útaf því að þær eru ekki rétt uppteknar eða af því að pickbarkinn og lockupið er ekki í lagi hef ég ekki hugmynd um.
    .
    Þar setja þeir ekki bara shift kit þegar þeim er breytt. Ég keypti skiptingu frá Raptor (http://www.transmissioncenter.net/highperf700r4.htm) sem er með miklum breytingum, enda gefin upp fyrir 600 hp og 600 í tork.
    .
    Það er ekkert varið í að setja TH350 í þessa bíla. Að missa 0,7 yfirgír er hundleiðinlegt. Það er svo sem í lagi ef bíllinn er eingöngu kvartmílubíll en að þurfa að vera annaðhvort með mjög há hlutföll eða vera með bílinn á hvínandi snúning á krúsinu er ekki gæfulegt.





    30.01.2007 at 19:06 #578112
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Skiptingin í orginal formi er kannski ekki gerð fyrir mikil átök. Hún lifir samt góðu lífi í bílum í ameríku.
    .
    Ef menn vilja nota þetta í jeppa sem á að taka vel á þá er best að kaupa aftermarket skiptingar frá t.d. Raptor en þær geta þolað allt sem lagt er á hana. Menn hafa notað TH700 við tjúnaðar big block vélar án vandkvæða.





    14.01.2007 at 22:23 #575390
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég efast um að hann líti við svona tilboðum, ef ég ætlaði að selja mína olíu þá myndi ég ekki gera það.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 360 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.