Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.10.2007 at 12:11 #598404
Ég er sammála þeim sem að stofnaði þennan þráð.
.
Brettakantalausir bílar sem ausa drullunni á sig og aðra geta valdið pirring sem beinist oftar en ekki að öllum þessum snarvitlausu jeppamönnum (þó flestir séu með sín mál í lagi).
.
Það eru nógu margir á því að það eigi að banna þessa bíla innanbæjar (já og sumir alfarið) og ég held að við ættum að gera sem minnst í því að fjölga í þeim hóp.
.
JHG
08.09.2007 at 17:31 #596196Ég las það útúr þessari skýrslu að hybrid bílar væru ekki eins umhverfisvænir og margir hafa haldið, og þannig væru bílar sem yfirleitt væru taldir umhverfissóðar í raun skárri en þeir sem að almennt eru taldir umhverfisvænir.
.
Það breytir því ekki að það þarf miklu minni heildarorku (búa til, reka og endurvinna) í smábíla (með hefðbundnar dísel eða bensínvélar) en jeppatröllin okkar.
.
Stóru bílarnir verða ekkert umhverfisvænni þó að einhverjir bílar komi verr út en allir héldu og ég ætla ekki að reyna að halda því fram að ég aki umhverfisvænum ökutækjum.
.
Best kemur Scion xB ($0.48 per mile), en ég held að það sé smábíll sem tengist Toyota (verð vonandi leiðréttur ef það er rangt), samanborið við Toyota Prius ($3.25 per mile).
.
Það er áhugavert að all flestir þeirra sem koma verst út eru evrópskir. Meðaltal iðnaðarins $2.28.
.
Mér sínist að margir jeppar séu á bilinu $2-3 svo að þeir standast engan samanburð við smábíla (með hefðbundnar vélar).
.
JHG, umhverfissóði með meiru
07.09.2007 at 18:29 #596186hmm, ég skil ekki alveg. Ef við gefum okkur að jeppar séu keyrðir meira almennt (sem ég efast um að sé rétt) þá skil ég ekki að sami einstaklingur myndi keyra minna ef hann væri á annarskonar bíl. Eru þá ökumenn jeppa kannski öðruvísi en ökumenn annara bíla? Spyr sá sem ekki veit.
.
Mér finnst lógískt að miða við heildarakstur ökutækjanna, því væntanlega myndi sami einstaklingur keyra jafn mikið á annarskonar bíl (nema það sé svona miklu skemmtilegra að keyra jeppa að maður keyri miklu meira…).
.
Ég myndi ekki þora að fullyrða að þetta væri keypt niðurstaða, ekki frekar en ég þori að fullyrða að þetta sé ekki keypt.
.
Þarna er nálgast viðfangsefnið á annan hátt en oft áður og teknir fleiri þættir í jöfnuna, þættir sem ég held að menn hefðu mátt taka inní fyrir löngu síðan.
.
JHG
07.09.2007 at 12:04 #596164Þeir reyndar miða líka við Range Rover sem er nú ekkert léttmeti.
.
En í greininni sem ég las fyrir allnokkru sem var um það sama þá var gerður samanburður á Hummer og Prius. Það þurfti mun meiri orku til að framleiða Prius, áætluð ending Prius er 100.000 mílur en 300.000 mílur hjá Hummer. Svo voru einhverjir fleiri þættir teknir til þegar orkuþörfin var reiknuð.
.
Að auki var bent á að þörf fyrir rafgeyma fyrir Priusin skapaði líka aukna mengun (og var vísað til Nikkelnáma í Kanada og súrs regns).
.
Ég veit ekki hvort þessar kannanir séu sanngjarnar en opnar kannski augu manna að horfa ekki bara á það sem kemur útum púströrið þegar mengun er annars vegar.
.
JHG
07.09.2007 at 11:21 #596160Ég held að megininntakið sér:
.
,,Ef reiknuð er út orkunotkun bíla og kolefnislosun frá því þeir eru keyptir og þar til þeir eru settir í brotajárn til endurvinnslu hafa stóru bensínbílarnir vinninginn."
.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur fram og í annari könnun (nema þetta sé gömul könnun sem fyrst nú er að ná eyrum manna) var talað um að Hummer væri umhverfisvænni en Prius.
.
JHG
26.08.2007 at 11:19 #595428Þú kemur 31" undir hann óbreyttan (þarft að skera aðeins úr plasthlíf)
24.08.2007 at 13:34 #595116Það er ekki sanngjarnt að bera saman vél sem var gerð fyrir almennan markað (og endingu) vs. keppnisvél sem kom töluvert síðar og líklega ekki verið gerð til að þola tugi eða hundruð þúsundna mílna akstur án upptekningar.
21.08.2007 at 19:15 #595062Var það ekki 283 cid chevy small block?
10.07.2007 at 09:48 #591962Þetta er sama vélin, mér skilst að flestar 6,2 sé ekki hægt að bora í 6,5 en yngstu 6,2 sem komu rét áður en 6,5 fór á markað (minnir að blokkarnúmerið sé 599) bjóða víst uppá það.
10.07.2007 at 09:44 #593444Takk fyrir þetta, ég sá að þarna voru allavegana einhverjir með verð sem eru mér að skapi (líst betur á 6500 en 9500).
–
Hvað verðlagningu varðar þá skilar það stundum betri rekstrarafkomu að vera með lægri taxta.
–
Ég efast um að hópurinn fari í þessa ferð ef niðurstaðan væri 9.500 á haus en líkurnar eru miklar ef það er 6.500 (eins og einhverjir eru með).
09.07.2007 at 22:28 #200513Seinnipart júlí á ég von á frændfólki frá Bandaríkjunum. Ég var að hugsa um að það gæti verið áhugavert fyrir þau að prófa að fara á vélsleða á jökli en finnst svolítið mikið að borga tæpar 10.000 á haus miðað við tvo á sleða í eina klukkustund.
–
Vitið þið hvar hægt er að fá eitthvað betri verð?
–
Getið þið mælt sérstaklega með einhverri vélsleðaleigu?
09.07.2007 at 11:49 #591958Þessar vélar fengust með Banks forþjöppu og svo er spurning um að taka kerfi af 6,5 GM vél.
08.07.2007 at 17:55 #593416Bróðir minn var einu sinni með 1987 Cherokee sem átti til að rjúka upp á snúning og hrynja niður. Í því tilfelli var TPS (Throttle Position Sensor) orðinn slappur. Þeir áttu það víst til að slappast og er hægt að mæla.
07.07.2007 at 14:02 #593104Þeir voru nú sumir með túrbo. Afi heitinn átti Nissan 280 með túrbó vél og hún er ef ég man rétt komin yfir 700 þús. kílómetra og ekkert að henni (var sett í gang í fyrra eftir margra ára geymslu og virkaði fínt).
–
Ég held að stór hluti af ástæðunni sé eins og nefnt var að þessi vél er í alltof þungum bíl, vél sem veldur ekki hlutverkinu endist ekki mjög lengi.
28.06.2007 at 16:03 #592916Það virðist vera rétt hjá þér skv. myndaalbúminu.
–
Ef bíllinn á einhverntíma að fara á þau dekk sem eru undir honum á myndum í albúminu þá myndi ég miklu frekar velja 14 bolta fljótandi en 12 boltann fyrst það þarf hvort sem er að henda pening í græjuna.
28.06.2007 at 13:02 #592978Þetta á ákveðið sjónarmið. Það má örugglega gera einhverja skóga en við megum ekki sleppa okkur í því, og aukning mengandi stóryðju þessvegna hlýtur að teljast mjög neikvætt.
–
Þegar ég heyrði fyrst um kolefnisjöfnun þá leyst mér vel á hugmyndina. Þegar ég heyrði að þetta væri ekki Landgræðslan eða Skógræktin heldur yrði stofnuð ný stofnun með framkvæmdastjóra og öllu sem að því fylgir þá hætti mér að lítast á blikuna. Hver ætli stjórnunarkostnaður sé hjá þessu batteríi, 10%? 20%? 30%. Ég held ég gróðursetji mín tré sjálfur (sem hefur ekki áhrif á mengunarkvóta)!
28.06.2007 at 10:03 #592912Það er svo sem rétt, á óbreyttum bíl hefur hann ekki mikið við öflugri hásingu að gera en 10 eða 12 bolta. Var bara að benda á möguleika á miklu sterkari hásingu (sem kostar örugglega ekki meira) sem kæmi sér þá vel ef bílnum yrði breytt.
27.06.2007 at 11:27 #592908Ég lenti í því einu sinni að smurstöð gleymdi að setja á 12 bolta hásingu hjá mér. Ég keyrði í ca. 3 mánuði áður en að pinjónlegan gaf sig (allt stuttir túrar). Það var reyndar allt orðið blátt í hásingunni og varð að skipta um allt. Ætli það sé ekki eins í þessu tilfelli. Ég var heppinn, það tókst að sína fram á mistök smurðstöðvarinnar og VÍS neyddist til að borga (þeir gerðu allt til að reyna að losna frá því).
–
Smurstöðina á ég ekkert sökótt við, þetta voru bara mannleg mistök sem geta komið fyrir alla en versla ekki við VÍS eftir framkomu þeirra fulltrúa (kom fram við mig eins og glæpamann).
–
Ef ég væri í sömu sporum í dag myndi ég frekar athuga með að fá 14 bolta fljótandi til að skella undir. Fyrir ca. tveimur árum keypti ég eina slíka á 15.000 og 4,88 hlutfall á eitthvað svipað (geymt í dótakassanum til betri tíma). Það er örugglega til hellingur af þessum hásingum (var allavegana þá).
–
Þó 12 boltinn sé fínn þá er hann ekki á nálægt sama leveli og 14 bolta fljótandi.
16.06.2007 at 11:44 #592372Þegar ég byrjaði að busla í ám þá fékk ég gott ráð sem hefur dugað mér fullkomlega. Það er að fara ofaní öðrum megin og uppúr hinum megin
–
JHG
05.06.2007 at 18:37 #591984Patról?
-
AuthorReplies