Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.04.2008 at 01:02 #620836
Nú veit ég ekkert hvort í stjórn séu eintómir englar eða eitthvað annað en mér finnst það ekki benda til lýðræðislegra vinnubragða að loka fyrir gagnrýni (hvort sem hún er réttmæt eða ekki).
.
Nú þekki ég málið ekki neitt og veit ekki hvort aðgangi var lokað af frumkvæði vefnefndar án þess að ráðfæra sig við stjórn eða hvort frumkvæðið hafi komið frá stjórn.
.
Með því að reyna að þagga í gagnrýnisröddum með því að fjarlægja þá í stað þess að svara henni lítur málið út eins og stjórn hafi eitthvað að fela (þó það þurfi ekki að vera). Það er allavegana hreinlegast að taka þessa umræðu frekar en að bregðast svona við.
.
Jón H. Guðjónsson
09.03.2008 at 01:12 #616928Ég var með B20B (120 hp orginal) sem ég túnaði eitthvað (annar knastás, blöndungur, elektrónísk kveikja ofl.) Þetta var í langri súkku með stálhúsi á 33" dekkjum.
.
Súkkan var að fara með í kringum 15 l/h og ég keyrði alltaf eins og bjáni (geri það reyndar ennþá en það er önnur saga……). Ég fékk nýjan Legacy lánaðann um tíma (2,0 l) og hann eyddi meiru en súkkan.
.
Ég var allavegana nokkuð ánægður með eyðsluna (verst hvað vélin fór illa með hitt dótið).
.
JHG
.
P.s. ótrúlegt hvað mann langar af og til í svona leikfang aftur þrátt fyrir að maður hafi alltaf verið ofaní húddinu og hún bilaði alltaf eitthvað smá í öllum ferðum
04.03.2008 at 21:01 #616132Ég er með
kv. Jón H. Guðjónsson
R-3244
07.02.2008 at 11:13 #613228Uss við erum ekkert betri, muna menn ekki eftir upptökunni frá Akureyri?
18.12.2007 at 13:25 #607104Ég held að það sé nauðsynlegt að hlusta á þegar þeir sem að hafa meiri þekkingu og rannsóknir á bakvið sig reyna að miðla þeim upplýsingum. Það er ekki af mannvonsku sem að umferðaverkfræðingar (allavegana þeir sem ég hef heyrt í), Vegagerðin og Umferðaráð mælir með 2+1.
.
Persónulega var ég andvígur 2+1 þangað til að ég sá rökin fyrir því og kostina borna saman.
.
Ég hallast frekar að því að taka ákvörðun eftir að menn skoði alla kosti og að sú ákvörðun sé tekin af skynsamlegum ástæðum en ekki útfrá tilfinningum.
.
Sem dæmi þá á 2+1 að anna ca. 20 þúsund bílum á sólarhring (varfærið mat, til hærra mat). Um Hellisheiði fara um 6.500 bílar á sólarhring (mesta umferð á kafla á Suðurlandsvegi er um 9.000 bílar á sólarhring).
.
Aukið umferðaöryggi með að nýta fjármagnið betur því það er hægt að laga miklu fleiri staði í vegakerfinu og styttri framkvæmdatími myndi spara mannslíf. Ég var búinn að benda á aðra kosti áður.En ég viðurkenni að 2+2 er miklu skemmtilegri og ,,flottari" kostur en eins og menn hafa verið að benda á undanfarna daga þá erum við kannski að greiða fyrir þann kost með mannslífum.
17.12.2007 at 21:08 #607096Hvalfjarðargöngin hefðu aldrei verið gerð ef þau hefðu strax átt að ráða við þá umferð sem hugsanlega væri eftir 15-20 ár. Þá hefði of mikið fjármagn legið í framkvæmdinni til að hún gæti verið arðsöm. Miðað við hve framkvæmdin var umdeild á framkvæmdastigi þá var erfitt að gera ráð fyrir að það tæki þó þetta stuttan tíma að fá þetta góða nýtingu. Hvalfjarðargöngir eru því ekki gott dæmi.
.
Fjármagn er ekki ókeypis, að liggja með milljarða í óþarfa fjárfestingu er sóun. Ef við segjum að 30-35 ár séu rangt mat, við getum stytt þann tíma um helming þá munar samt 15-17 árum. Hvort sem að þeir peningar yrðu teknir af afgangi á ríkissjóð eða að láni þá kostar þetta fé og kostnaður við fleiri milljarða í 15 ár er all mikill (í dag fæst nokkuð örugg 15% ávöxtun á ári). Það borgar því sig yfirleitt að fara ekki alltof langt framúr sér.
.
En þetta er bara hluti af ástæðunum (eins og sést ef menn skoða innlegg mitt). Eins og ég sagði áður þá finnst mér miklu skemmtilegra að keyra 2+2 og var harður á þeim kost en þegar ég fór yfir rökin þá finnst mér ekki hægt að hunsa þau af því að 2+2 er miklu skemmtilegra.
17.12.2007 at 11:55 #607084Persónulega finnst mér miklu skemmtilegra að keyra 2+2 en eftir að ræða þessi mál við ungan umferðaverkfræðing (frá Svíþjóð) þá varð ég að kaupa hans rök með 2+1.
.
Það fæst nánast sama öryggi með 2+1 (með aðskildum akstursstefnum) og með 2+2.
.
2+1 kostar yfirleitt um 1/3 af 2+2, það er því hægt að leggja þrisvar sinnum lengri vegalengd af 2+1 en 2+2 (og því hægt að auka umferðaröryggi meira fyrir sömu fjárhæð).
.
Hönnunartími og framkvæmdatími miklu styttri, því förum við fyrr að njóta hagræðis og aukins umferðaöryggis.
.
2+1 á miðað við spálíkön að anna margallt þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er næstu áratugi (minnir að það hafi verið talað um 30-35 ár á leiðinni til Hveragerðis).
.
Eins og bent var á áður, það er auðvelldara að halda 2+1 auðum.
.
Svo voru einhver fleiri rök sem mæltu með 2+1 sem ég man ekki í svipinn.
.
Ég varð að viðurkenna að þó mig langi miklu meira í 2+2 þá vigta þessi rök ansi mikið.
.
JHG
28.11.2007 at 13:52 #604890Eina sem menn verða að passa er að skemma þær ekki við hreinsun. Sumir nota háþrýstisprautu en það er ekki ráðlegt. Ef það er farið eftir leiðbeiningunum þá er þetta allt í lagi.
.
Mín reynsla er í V8 blöndungsbílum og þær síðuðu vel bæði í jeppanum og fólksbílnum.
.
Ég heyrði einhverntíma að einhver umboð hér á landi (og kannski erlendis líka) hefðu kennt K&N síum um að skynjari gaf upp öndina (held að olían hafi átt að hafa valdið bilun) en ég hef ekki hugmynd um hvort það hafi verið á rökum reyst eða þvæla.
.
JHG
20.11.2007 at 13:38 #603976Ég hætti að skipta við Frumherja fyrir nokkrum árum síðan. Ég hafði oft orðið fyrir leiðinlegu viðmóti þar en þar sem að ég vildi fá bílinn vel skoðaðann fór ég oftast þangað.
.
Svo í eitt skipti fékk ég bara nóg og hef ekki skipt við þá síðan (kannski full langrækinn en samt…).
.Þá fór ég með 38" Blazer K5 í skoðun og gerði þau mistök að skilja hann eftir hjá þeim. Þegar ég kom að sækja hann þá fékk hann endurskoðun og stærsta atriðið var legur í afturhásingu. Það kom mér mikið á óvart þar sem að það var nýbúið að skipta um allt í henni í Stál og Stönsum (í boði VÍS).
.
Svo tilkynntu þeir mér að sætið væri brotið sem kom mér á óvart, þegar ég settist í bílinn þá lagðist bakið niður. Ég hef ekki hugmynd um hvort það hafi verið komið brot í sætið fyrir en það var ekki svona þegar bíllinn fór í skoðun (fékk reyndar bara munnlega athugasemd á sætið).
.
Ég rúllaði beint uppí Stál og Stansa og bíllinn fór á lyftu, ekkert að legum. Síðan fór bíllinn í gegnum skoðun í mörg ár án þess að neytt væri minnst á legur (er með sömu legur ennþá).
.
Ég var einna fúlastur útaf sætinu því þeir hljóta að hafa hamast illilega á því til að brjóta það (hafði ekki fundið að það væri skakkt eða neitt).
.
Síðan hef ég skipt við Aðalskoðun, þar fæ ég réttláta skoðun (hef fengið endurskoðun, myndi ekki skipta við þá ef þeir myndu ekki skoða vel) og viðmótið er allt annað.
.
JHG
.
P.s. ég andaði líka léttar þegar samruninn var úrskurðaður ólöglegur af samkeppnisyfirvöldum.
03.11.2007 at 22:00 #601822Mér síndist að skilgreiningin væri ansi víð þegar þetta var rætt um daginn. Margir miða við millikassann og það er oft millikassi án lágs drifs.
.
Ég á tvo sem ég kalla jeppa, slyddujeppinn sem er Jeep Grand Cherokee með millikassa en ekki lágu drifi. Hann hefur ágætis jeppaeiginleika en er einnig þægilegur á götunni. Ég myndi ekki síður treysta honum inní Þórsmörk eins og gömlu súkkunni minni hér í den nema að ég myndi ekki tíma að taka sénsinn (líka af því að ég hef annað tæki í það). Gæti nú samt alveg tekið uppá því að rúlla inní Bása.
.
Hann hefur töluvert stærri vél en gamla súkkan hafði og ég er handviss um að ég fæ meira átak á hjól þó lága skorti með rellunni í Jeep-inum en í lága með 1300 Suzuki mótor og jafnvel eftir að ég var kominn með Volvo B20B í húddið. Því er varla hægt að hengja sig í tæknilegt atriði að það vanti millikassa.
.
Hinn ,,jeppinn" minn er gamall Chevy Blazer K5, hann er með millikassa, hátt og lágt drif og ég þori að nota hann í hvað sem er. Sumir vilja meina að hann sé frekar trukkur en jeppi en ég er ekki sammála.
.
En ætli þetta hugtak sé ekki loðið og teygjanlegt, það sem að sumum finnst jeppi finnst einhverjum öðrum vera eitthvað annað.
.
Sumir segja að jeppi sé ekki jeppin nema á honum standi Jeep.
.
JHG
03.11.2007 at 17:56 #601776Ég verð seint sakaður um að vera sérstakur aðdáandi eða talsmaður Toyota en ég hef ekki sérstakar áhyggjur af þessum bílum. Þeir sem að kaupa Hilux (yfirleitt mjög þolinmótt fólk!) kaupa þá líklegast ekki til hraðaksturs.
.
Þetta minnir mig á þegar neytendasamtök í USA réðust á Suzuki Samurai (Fox) með svipuðum hætti og þeir áttu að vera stórhættulegir. Vissulega gat súkkan verið hættuleg ef menn ætluðu að keyra þær eins og Ferrari en 1000 og 1300 cc vélar komu nú í veg fyrir það.
.
Þar að auki að ef menn ætla að sveigja framhjá rollunum á íslenskum þjóðvegum þá eru þeir hvort sem er komnir útaf því breidd þjóðvega hér bíður ekki uppá neina leikfimi.
.
JHG
31.10.2007 at 21:45 #601356"Þeim finnast sumum 150 hestöfl of lítið í litlar fólksbílatíkur en eru ofsalega ánægðir með jeppa með 300 hestafla vélum, þó viðbragðið sé minna en í ’91 Hilux, bara ef hávaðinn er nægur."
.
Algjörlega ósammála. Kaninn var lengi vel í feluleik með sín hestöfl til að komast ekki í ónáð hjá yfirvöldum. Vélarnar voru þá ekki mörg hross en skiluðu aflinu neðarlega. Það dugði vel til að rífa bílinn úr kyrrstöðu og oft á tíðum heyrðist ekki mikið í þeim í orginal formi (þó margir hafi breytt því með flækjum og opnu pústi). Það eru svo mörg dæmi um að bílar hafi verið skráðir niður í hestaflatölu þó aflið hafi verið miklu meira (t.d. Turbo Transam frá 1989 sem var að fara lágar 13 til háar 12 kvartmíluna þrátt fyrir að vera aðeins skráður 250 hestöfl).
.
JHG
31.10.2007 at 21:07 #601484Valkvæðir lásar eru náttúrulega algjör snilld en menn ættu líka að skoða Torsen. Ég er með þannig í Blazer K5 og hún kom mér skemmtilega á óvart.
31.10.2007 at 19:30 #601596Mér sínist að ég geti haldið mig við að kalla hann jeppa, og ef allt annað þrýtur þá notar maður bara:
.
"It’s a Jeep thing…you wouldn’t understand"
31.10.2007 at 17:37 #601592Já og hann er með Quatra trac millikassa.
31.10.2007 at 17:25 #601590Ég vel náttúrulega þau svör sem mér hentar og tek mark á Tryggva, það skiptir öllu að á honum stendur Jeep
31.10.2007 at 15:18 #201074Ég hef yfirleitt skilgreint að jeppi þurfi að vera með hátt og lágt drif, það greini þá að frá jepplingum.
.
Nú nýverið endurnýjaði ég slyddujeppann minn og fékk mér 2007 árgerð af Jeep Grand Cherokee. Ég tók fljótlega eftir því að Jeep hafði gleymt að setja lágt drif í jeppann. Ekki að það skipti mig neinu máli því að ég setti bara einu sinni í lága á öllum þeim árum sem ég átti gamla grandinn (og ég er með annan jeppa til að nota í fjallaferðir þó sá sé ekki á skrá eins og er). Reyndar eru sumar tegundir af sama bíl með lágt drif en þessi er það ekki (er þó með fjórhjóladrif).
.
En ég verð líklegast að vera eins og Ragnar Reykás og skipta um skoðun eftir hentugleik því ég get ekki samþykkt að JEEPinn minn sé ekki jeppi!
.
Er þá ekki hentugt að bæta við undanþáguákvæði að ef það stendur JEEP á bílnum þá þurfi hann ekki að hafa lágt drif til að teljast jeppi? Get ég kannski hengt mig í það að þar sem að þessir jeppar fáist með lágu drifi þá séu þeir jeppar?
.
JHG
28.10.2007 at 19:00 #600480Ég ætla að vona að það séu Íslenskir radóiamatörar en ekki Irish Republican Army 😉
09.10.2007 at 13:29 #598954Ég myndi athuga með að versla þessa hluti frá útlöndum, t.d. frá http://www.summitracing.com eða ebay.com.
.
Eftir að ég fór að versla í útlöndum þá hryllir mér við að koma í búðir hér á landi, en það er algengt að ég þurfi að borga þrefallt verð hér miðað við að flytja inn sjálfur (og borga öll gjöld).
.
JHG
08.10.2007 at 20:51 #598972Mér var kennt að setja í converterinn áður en hann er settur í (var sagt mjög mikilvægt). Ég hef allavegana haldið mig við það.
-
AuthorReplies