Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.02.2003 at 13:27 #469116
Þegar ég var í björgunarsveit þá vorum við oftar en ekki að draga upp bíla (og sleða) á Mosfellsheiði. Aldrei datt okkur í hug að rukka fyrir þetta, enda borgar fólk fyrir þetta með því að kaupa flugelda, klósettpappír, happdrættismiða ofl. ofl.
JHG
06.02.2003 at 13:17 #467628Ég þekki 350 small block chevy nokkuð vel og get mælt með henni. Hún er áreiðanleg, ódýrt að kaupa í hana hluti, skilar góðu afli og eyðir ekkert svo svakalega.
Fyrir ekki löngu var verið að auglýsa 350 TBI (throttle body injection) til sölu á http://www.kvartmila.is á 100.00 kr. TBI er náttúrulega ekki eins skemmtileg og vél með TPI eða LT1 vél en hún er með töluvert einfaldara rafkerfi.
Þú getur örugglega fengið góða 350 blöndungsvél fyrir 100 þús eða minna. Ef þú ferð í small block þá hefur þú mikið val um skiptivélar því þær voru til frá 265-400 ci. Svo er spurning hvort að drifbúnaður bílsins þoli aflið.
TH700R4 skiptingar hafa verið að fara á svona 80.000 krónur.
Það hefur enginn minnst á 4,3 lítra V6 vélina frá GM en hún er einnig góður kostur. Það er ekki langt síðan ég sá vél og skiptingu til sölu (held hér á síðunum) en ég man ekki hvað hann vildi fá fyrir dótið.
JHG
05.02.2003 at 14:05 #467704Með amerískum hásingum??
29.01.2003 at 17:53 #467104Þetta er málefni sem verður örugglega seint til likta leitt. Báðir kostir hafa sínar sterku og veiku hliðar og ég held að smekkur ráði mestu um hvort menn velja.
JHG
27.01.2003 at 09:05 #467066Alveg merkilegt að díselvélin úr Barbí sé ekki komin í flesta kvartmílubíla fyrst þetta er svona 😉
Eflaust er þessi Barbí vél alveg ágæt, og ekki ætla ég að efast um að hún nái 210 hrossum (út í hjól!???). En það þarf ekki að eiga mikið við 350 til að toppa það.
Það er allavegana gott að menn eru ánægðir með bílana sína
JHG
21.01.2003 at 08:44 #466776Ég setti einu sinni vökvastýri úr Mözdu 626 í gömlu súkkuna (SJ413) mína (með B20B vél). Virkaði þrælvel
Flestir þeirra sem settu vökvastýri í Foxinn fóru sömu leið.
Kv.
JHG
15.01.2003 at 10:50 #466004Ég er nú að verða þreyttur á þessu bulli um endalausann viðgerðarkostnað amerískra. Það má ekki ræða nokkurn hlut svo einhver fari ekki að rugla um það.
Hér eru menn að ræða um púststærð og hvern andskotann kemur amerískt vs. japanskt vs hvaðsemer því við?
Ef ég nota sálfræðina þá skýrir hún þetta með minnimáttarkennd sem líklegast má rekja til áfalla í bernsku (og Freud myndi eflaust halda að þetta væri eitthvað kynferðislegt ;).
Ég á tvo ameríska, m.a. einn trukk (ef þú vilt ekki kalla annað en JEEP jeppa, annars er þetta jeppi án gæsalappa) og þeir hafa reynst mjög vel. Trukkurinn er orðinn 22 ára og hefur gert lítið að því að bila þau ár sem ég hef átt hann, samt hefur honum ekki verið hlíft. Það sem hefur bilað var startari og mótor fyrir rafmagnsrúður en ég hef svo að sjálfsögðu skipt um þetta kerti, þræði, lok, púst, legur ofl. Það var fyrst í sumar sem ég tók ventlalok af vélinni (350) en það var til að komast að númeri heddana.
Hvað kostnað varðar verða allir bílamenn (ekki bara jeppamenn) að gera sér grein fyrir því að kostnaður við breytingar/bætingar kemur aldrei til baka í endursöluverði bílsins.
Er ekki rétt að menn haldi sig við umræðuefnið (sem er 3" púst) en fari ekki um víðann völl. Mitt innlegg í umræðuna er að BJB hefur reynst mér mjög vel og ég mæli með þeim.
JHG
P.s. minn er með töföldu 3" með opnum kútum og H-pípu og að sjálfsögðu með flækjur, kannski overkill en virkar vel.
10.01.2003 at 13:40 #465600Eins og ég hef oft sagt áður þá á ég tvo ameríska. Annar er 1986 módel af Transam og hinn 1981 módel af Blazer K5.
Báðir hafa reynst mjög vel og bila svo gott sem ekki neitt þrátt fyrir að maður leggi stundum svolítið mikið á dótið.
Sem dæmi ætla ég að hafa smá sögustund.Blazerinn er á 38 tommum, hann er með GM12bolta (sem er langt frá því að vera sterkasta ameríska hásingin) að aftan, 4,88 hlutföll og tregðulæsingu.
Ég lenti í því fyrir nokkrum árum að smurstöð gleymdi að setja á hana olíu þegar ég var að láta skipta á drifum eftir vatnasull.
Ég keyrði jeppann í 3 mánuði (bæði styttri fjallaferðir og til og frá vinnu) með tóma hásingu.
Eftir þann tíma brotnaði legan við pinjóninn. Ekkert annað brotnaði en þar sem að allt var orðið blátt þá varð að skipta um allt.
Eflaust hef ég verið heppinn að ekkert gerðist fyrr en ég hefði getað sagt mér að eitthvað væri að gerast þegar bremsuborðarnir losnuðu á límingunum mánuði áður en að legan fór. En ég hélt að þeir hefðu bara verið lélegir, skipti um þá og hélt áfram að keyra.
Það má vera að það hefði allt hrunið við fyrstu alvöru fjallaferð þar sem að keyrt væri í fleiri klukkutíma án þess að stoppa en það reyndi ekki á það.
VÍS þurfti að borga brúsann þar sem að mér tókst að sína fram á mistök smurstöðvarinnar (og þeir borga ekki nema það séu órækar sannanir fyrir málinu) en það kostaði mikið strögl og læti og tók alltof langan tíma.
Ég held að það beri nú vott um töluverðann styrkleika búnaðarins að þola út allann þennan tíma.
Ég hef átt Blazerinn síðan ca. 1996-1997 en T/A síðan ca. 1998-1999. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi tröllatrú á amerískum búnaði eftir mína reynslu af þessum öldungum!
JHG
08.01.2003 at 14:01 #46615208.01.2003 at 13:27 #466148Mér fannst þetta borga sig en það er alltaf afstætt. Ég mun allavegana ekki viðurkenna að það hafi ekki borgað sig 😉
Ég er ekki með neinar tölur, aðeins tilfinningu. Ég ætla að vona að það hafi ekki aðeins verið sálfræðileg aukning 😉
Ég keypti þennan magnara þar sem að mér fannst hægagangurinn vera grófur (heitur ás) og bíllinn var ekki nógu skemmtilegur í gang heitur. Kveikjumagnarinn átti að leysa úr svoleiðis vandamálum. Um leið skipti ég um háspennukefli, kerti (sem voru reyndar nýleg), kveikjulok og þræði (var búið að mæla hina upp og voru í lagi). Mín vandamál hurfu allavegana við þessi umskipti.
Ég fann nokkurn mun á hröðun á lægri snúning en vélin er nokkuð heit og bíllinn (Transam) á full háum hlutföllum (~2,77) m.v. uppsetningu vélarinnar.
Ég keypti magnarann ekki vegna aflaukningar heldur vegna gangsetningar (og hafði ekki mikla trú á að margir neistar gerðu eitthvað meira þegar búið væri að kveikja í blöndunni hvort sem er) en aflaukning var bónus. Ég hef enga mælingu til að bakka þetta upp, aðeins tilfinningu.
Eyðslan hefur líklegast minnkað um ca. 1-2 lítra (ekkert svakalegt en munar samt um það). Í þá daga mældi ég ekki nákvæmlega heldur fann smá mun á eyðslu á mánuði.
Nú set ég allar tölur í Excel skjal og bíllinn fór niður í 13,8 síðasta sumar (besta mæling) sem er dágott miðað við V8 bíl með Holley blöndung. Annars er bíllinn vanalega í 14-16 lítrum á hundraði (ekki sparakstur).
Kostnaður:
Magnari. MSD6AL sem passar upp á snúning: ~25.000
Háspennukefli MSD: ~10.000
Kveikjulok MSD: ~8.000
Þræðir, MSD Superconductor, 8,5 mm: ~10.000
Kerti: eitthvað lítiðKostnaðurinn hefur því verið eitthvað um 50-60.000 krónur.
Ég hef verið með þennan magnara í bílnum í nokkur ár án vandkvæða svo að ending virðist ekki vera vandamál.
Ef bíllinn er ekki kominn með flækjur þá myndi ég byrja á því, þú færð örugglega fleiri hestöfl per krónur með flækjum en kveikjumagnara.
Svo væri ekki vitlaust að finna einhverja vefsíðu sem er fyrir F-body (fynnur örugglega marga 4th. gen linka á http://www.f-body.org) og athuga hvað menn í ameríkunni eru að gera við þessar vélar.
JHG
08.01.2003 at 09:17 #466144Ég setti MSD6AL kveikjumagnara við 305HO fyrir nokkrum árum og skilaði það mjög góðum árangri. Bíllinn var léttari í gang (blöndungsbíll), gekk mýkri hægagang (er með svolítið heitann ás) og eyðslan minnkaði. Það kom mér á óvart að ég fann nokkurn mun á afli, sérstaklega á lægri snúning, en það skýrist örugglega af þessu multi spark dæmi.
Hvað LT1 varðar þá er ég ekki viss um að það skili eins miklu. Líklegast er hún með Opti Spark sem metur þörfina á hverjum strokk fyrir sig og gefur þann neista sem þarf. Það er þá helst multi spark möguleikinn sem gæti gefið eitthvað, en spurning hvort það réttlæti kostnaðinn.
JHG
06.01.2003 at 09:16 #466036Það hefur yfirleitt ekki verið erfitt að fá þær, verðið hefur oft verið í kringum 70.000 fyrir ágæta skiptingu.
Ég hef grun um að það sé erfitt að fá notaðar loftlæsingar hér á landi í þína hásingu (er það 10 eða 12 bolta sem þú ert með?).
JHG
06.01.2003 at 09:13 #466024Ég tók þetta nú ekki sem skot eða svívirðingu gagnvart Toyota eigendum heldur skot á markaðssetningu umboðsaðila Toyota.
JHG
09.12.2002 at 16:49 #465122Ætli Chevy og Ford menn séu ekki bara á ennþá á sínum gömlu 😉
Ég hef grun um að þetta tengist meira eigendunum en bílunum.
Ég þekki margar sem eru á besta bíl í heimi (sem ég er reyndar líka á, bara ekki sama tegund), síðan skipta þeir um og fá sér annan (jafnvel aðra tegund) besta bíl í heimi (meðan ég er ennþá á mínum gamla besta bíl í heimi). Við þetta verður fyrrverandi besti bíll í heimi sem þeir áttu óttalega lélegur, eða í besta falli ekki nógu góður. Þá hætti ég að skilja……
En er ekki fyrir mestu að þessir menn ásamt okkur sem skiljum ekki neitt og keyrum áfram á okkar gömlu jeppum séum ánægðir með okkar?
Annars eru þau mál með amerísku bílanna miklu flóknari og tengjast m.a. óheyrilegum vörugjöldum sem ég fæ hroll við að hugsa um og efast um að nokkur vilji lesa um
Enn það er alltaf gaman í sandkassanum 😀
JHG
09.12.2002 at 15:37 #465116Þetta er mjög góður punktur. Annaðhvort eru bílarnir ekki eins góðir og þeir vilja vera láta eða að hégómagirndin spilar þarna inní.
Ég hef átt minn gamla Chevrolet í allnokkur ár og hann dugir örugglega í 20 ár enn
JHG
09.12.2002 at 11:46 #464934Þó að vettur frá mengunartímanum (tala nú ekki um ef hún hefur verið með CFI) hafi verið máttlitlar þá ættu þær að hafa rúllað kvartmíluna á í hæsta lagi háum 16.
Ég efast um að Patrol leiki það eftir :/
JHG
09.12.2002 at 11:43 #464932amc258 skrifaði:
"er chevy betri já? hvernig stendur þá á því að allar chevy rellur sem maður heyrir minnst á eru nýuppteknar eða verið að fara að taka þær upp?? tilviljun"
Ég hélt að menn myndu nú fatta það að þetta komment væri spaug :/
Ég er algjörlega ósammála að chevy vélar séu drasl. Menn hafa rúllað small block chevy rosalega lengi (þekki einn sem fór yfir 400.000 mílur á sínum vinnupickup hér í den).
Ég er með tvo bíla með Chevy small block, önnur í fólksbíl hin í jeppa. Jeppinn er 1981 módel með 350 og hún hefur ekki stundað það að bila (ekki frekar en annað í þeim jeppa).
Hin vélin er 305 HO (í Transam) með rúlluundirliftum, hún virkar vel, eyðir litlu og er mjög áreiðanleg.
Ég er svo með 400 sbc sem ég er að byggja fyrir Transaminn, ekki vegna þess að fyrri vél sé slæm heldur að mig langar í meira afl til að geta rúllað kvartmíluna á góðum tíma
Þessi 400 vél dúndurvirkaði þegar hún var rifin uppúr 25 ára gömlum Blazer. Það þurfti ekki að taka hana upp, ég vil hinsvegar hærri þjöppu og þarf því aðra stimpla miðað við þau hedd sem ég ætla að nota.
Ástæða þess að Chevy rellur eru margar uppteknar er að það er hægt að taka þær upp. Vélarnar eru oft áratuga gamlar og eru teknar upp eftir nokkur hundruð þúsund kílómetra (það að skipta um knastás er ekki að taka vél upp).
Það má vera að það sé ekki hægt að gera annað við gamla AMC en að henda henni og kaupa nýja 😉 (ef þú hefur ekki fattað það þá er þetta líka SPAUG!)
JHG
07.12.2002 at 11:21 #464916Þessi umræða er að verða eins og endalausa umræðan um:
Chevy vs. FORD
Hún stóð nær alla síðustu öld og líklegast dugir þessi öld ekki til að skera úr um hvor er betri
JHG
P.s. Chevy er að sjálfsögðu miklu betri 😉
29.11.2002 at 15:00 #464556Mig minnir að það hafi ekki breysts fyrr en 1993 þegar fjórða kynslóð af F-body kom fram (og heitir þá 4L60E).
JHG
29.11.2002 at 13:20 #464552Þessi skipting hefur reyndar töluvert verið að bila fyrir vestan haf (kannski af þjösnaskap, þekki þær ekki af eigin raun).
En ef menn geta haldið hitanum niðri þá ætti þetta að vera í lagi.
Jón H.
-
AuthorReplies