Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.06.2005 at 23:21 #524388
Ég held að vegalengdir séu ekki nægilega miklar til að menn fari almennt að stunda carpooling. Það væri í sjálfu sér ekki mikið mál að taka nágranna í næstu eða þarnæstu götu með mér áleiðis í vinnuna en þegar ég þyrfti að keyra nokkra kílómetra í ranga átt til að sækja einhvern sem ég þekki sem vinnur á svipuðum slóðum þá fer sparnaðurinn fyrir lítið.
Hvað smáhjólin varðar þá geta þau verið sniðug. Mér fannst þau mjög nett þegar ég fór um Ítalíu hér um árið. Þegar ég frétti svo að Ítalía hefur þann vafasama heiður að vera með hæðstu tíðni aflimana, sem rakið er til mikillar notkunar lítilla vélknúinna hjóla þá fóru nú að renna á mig tvær grímur.
En þó við sleppum að taka biðtíma og tafir (sem kosta mikið) og litum aðeins á sparnað vegna færri slysa og tjóna þá væru mislæg gatnamót um alla Miklubraut hagkvæmari en margar framkvæmdir sem farið hefur verið í.
30.05.2005 at 12:56 #523564Það er hægt að setja 15" felgur en þá verður þú að slípa af bremsudælunum. Þú ættir að skella þér á http://www.coloradok5.com en þar er þessu líst vel (er tæknigrein um efnið).
Bróðir minn var að pæla í þessu á sínum en lagði ekki í að þynna dælurnar þetta mikið. Það er samt þess virði að skoða greinina og athuga hve mikið þú þarft að taka af.
kv. Jón H.
17.05.2005 at 21:42 #522994Það er ekki spurning að Dana 60 er málið að framan. Að aftan myndi ég setja GM 14 bolta fljótandi (FF). Ef bíllinn er með GM 14 bolta SF þá myndi ég láta hana duga þó FF sé miklu sterkari.
10.05.2005 at 12:50 #522454Ég hef líklegast misst af þessu :(, kom eitthvað merkilegt fram?
09.05.2005 at 22:14 #522390Ég ætlaði varla að trúa eigin eyrum þegar ég heyrði yfirlýsingu FÍB lesna í útvarpinu. Það hafði komið svo skýrt fram að ekki var verið að mótmæla kerfisbreytingunni en samt leyfa þeir sér að halda því fram að málið hafi snúist um hana. Annaðhvort gerði talsmaður þeirra sig sekan um hreinar lygar eða svakalega vanrækslu þegar þessi tilkynning var samin.
Ég var félagi í FÍB í mörg ár. Ég hætti að borga félagsgjaldið fyrir um tveimur árum þegar ég var endanlega orðinn sannfærður um að félagsgjaldinu væri betur varið í eitthvað annað.
JHG
12.04.2005 at 17:35 #521006Þetta er eins og sína mynd af rauðhærðum akureyring og nota það sem dæmi um hinn dæmigerða akureyring.
Ég ætla að vona að það séu ekki menn útum allan heim að leita af fáránlega breyttum bílum héðan og nota það sem dæmi um hvernig íslendingar breyta sínum bílum.
Ég kannast við jeppamenn frá Bandaríkjunum sem breyta sínum bílum mjög vel. Þeim þætti eflaust margt hjá okkur vera pjatt, en þessir kappar stunda klettaklifur og láta ekki beyglir mikið á sig fá. Þessir kallar klippa mikið úr brettum (og stundum eru smíðuð ný bretti) og kalla svona breyta bíla Posera.
06.04.2005 at 09:04 #520576Mér finnst vanta að geta hakað við að muna lykilorð.
Maður er vanur því af öðrum spjöllum að þurfa ekki að skrá sig inn í hvert og eitt skipti og það væri gott ef við gætum haft sama hátt á hér.
12.03.2005 at 20:11 #518746Ég hef ekkert átt við Patrol vélar, en ef þú værir með GM þá myndi ég benda þér á að fá þér mekkanískan mæli til að vita nákvæmalega hvað er að gerast. Það hlýtur að vera hægt að koma svoleiðis dóti við Datsuninn.
Yfirleitt þegar mælar sína skrítnar mælingar þá er það mælirinn eða sendirinn sem er að stríða þér, skoðaðu það því fyrst áður en þú ferð að leggja í einhvern verulegan kostnað.
JHG
25.02.2005 at 23:17 #517920Mér þykir líklegt að hann sé orginal með 10 bolta minni og klafa að framan. Ætli það standi ekki til að skipta því út við breytinguna.
En hvaða hlutföll eru best? Skiptingin er líklegast með yfirgír (TH700R4 með 30% yfirgír) svo að þú þolir alveg lægri hlutföll.
Hvað er vélin að snúast hjá þér á óbreyttum bíl á 100 km hraða? Það er ekki vitlaust að miða við að halda svipuðum snúning eftir breytingu (má kannski lækka hlutföll eitthvað en oft leiðinlegt ef þau verða of lág).
Ég myndi mæla með 4.88:1. miðað við þennan bíl, og yfirgírsskiptingu. Á 100 km hraða ætti vélin að vera að snúast tæpa 1900 snúninga sem er örugglega ágætt á þessum mótor.
Ef þú notar hinsvegar 4.56:1 þá værir vélin á um 1750 á sama hraða. Persónulega held ég að 4.88 væru skemmtilegri.
Þú gætir líka fengið lægri hlutföll, en þá hækkar snúningur á krúsinu sem veldur aukinni eyðslu og meiri hávaða (þekki það, er búinn að vera með yfirgírslausan V8 38" bíl og 4.88:1 hlutföll).
JHG
15.02.2005 at 22:15 #516946Flestar innspítingar fara í Open Loop við botngjöf.
Súrefnisskynjarar sem mæla öfgarnar hafa verið það dýrir þangað til nýlega að fæstir hafa notað þá.
Einnig eru vélarnar í Open Loop þangað til vélin er búin að ná ákveðnu hitastigi, en mælingum frá súrefnisskynjara er ekki treyst fyrr en hann hefur hitna (þessvegna eru menn stundum með "hitara" á súrefnisskynjaranum).
En tölvan les bæði MAF og MAP í Open Loop. Hún sleppir aðeins súrefnisskynjaranum. Enda er MAF og MAP notað til að mæla flæði inná vélina við breytilegt álag og gjöf, og væri tilgangslaust ef það væri aðeins notað á lægri snúning.
Við botngjöf gefur MAP um 5 volt til tölvu en við lausagang nálægt 0. Sama á við um MAF.
Við botngjöf fer tölvan þar að auki í Enrichment mode. Þegar voltmæling frá TPS fer yfir 80% af 4 voltum er blandan styrkt. Engu að síður er lesið af MAF og MAP.
Þar sem að breytingar hafa oft áhrif á vacum þá þurfa menn frekar að eiga við TPI frá 90-92 sem byggist á MAP. Þar sem að MAF (85-89) skynjarinn segir til um flæðið inn (en reiknar það ekki eins og gert er útfrá MAP mælingu) þá ræður innspíting með MAF skynjara að öllu jöfnu betur við breytingar, eins og flækjur. Ef öllum forsendum er gjörbreytt þá dugir það ekki til og menn verða að brenna kubb (það er yfirleitt sagt að ef vélin er farin að skila 325 hp+ þá verði að fara að gera eitthvað róttækt).
Ég held að TBI hafi ekki notast við MAF (sé ekki hvar hann hefði átt að vera) en TPI notaðist við báða eftir árum.
En við erum komnir laaangt útfyrir það sem þessi þráður fjallar um 😉
JHG
15.02.2005 at 10:27 #516940"Sumar rafeindastýrðar innspýtingar (t.d eldri GM) taka eingöngu mark á snúningshraða þegar skynja að þær eru "staðnar í botni" (með afstöðuskynjara á inngjöfinni) Þá skammtar tölvan magnið af bensíni eftir fyrirfram ákveðinni töflu og styðjast við vélarhita, snúning, og e.t.v lofthita í soggrein"
Hvaða gömlu GM innspítingar ertu þarna að tala um? Ég veit ekki hve Cross Fire innspítingin (CFI) var fullkomin en eldgamla innspítingin sem var notuð á sjötta áratugnun var auðvitað án skynjara.
Ég hef lítið skoðað TBI en er viss um að bæði TBI og CFI hafi verið með súrefnisskynjara en GM var farið að nota hann við blöndunga á áttunda áratugnum.
En TPI frá 85-89 er með súrefnisskynjara og loftflæðisskynjara (MAF). Frá 90-92 var MAF skipt út fyrir mælingu á vacumi (MAP). Ástæða þess var bæði til að spara kostnað og að MAF skynjarinn sem var notaður hamlaði loftflæði (innspítingin var upphaflega hönnuð fyrir 305 cid en var einnig notuð á 350 cid og virkaði vel þar ef vélinni var ekki mikið breytt) þegar mikið var tekið útúr vélunum.
Þeir sem tjúna þessar vélar velja frekar MAP típuna þar sem að það er hægt að breyta forsendum miðað við vacum en erfiðara að komast hjá MAF skynjara sem hamlar loftflæði.
Ég er nokkuð viss um að frá 93 hefur MAF verið notaður, enda þolir hann betur breytingar en MAP.
Þar að auki eru auðvitað hellingur að öðrum skynjurum notaðir, m.a. Throttle Position Sensor.
Það ástand sem lýst er er því eingöngu þegar vélin er að hitna, þegar vinnsluhita er náð þá stjórnast innspítingin af skynjurum.
Það er hinsvegar sammerkt með flestum innspítingum að þær þola ekki endalausar breytingar án þess að fá nýjar forsendur í forritið (með því að prógramera tölvu eða kubb).
Ef þessar flækjur hafa verið við blöndungsvél þá gæti skort staðsetningu fyrir súrefnisskynjarann (hef ekki hugmynd hvar hann er staðsettur á Suzuki). Ef hann er ekki á sínum stað þá fær tölvan ekki réttar upplýsingar.
Ef hann hefur verið á greininni og er ekki á flækjunum, þá gætir þú þurft að láta sjóða festingu fyrir hann. Sumir hafa lent í vandræðum með að hann hitni ekki nóg þegar þeir eru með flækjur (ekki spyrja mig afhverju en þetta er raunverulegt vandamál) og þá er það leyst með að kaupa skynjara með hitara. Hvort þannig skynjari fáist sem þú getur notað veit ég ekki.
En er nokkuð annað en að prófa og sjá hvernig bíllinn vinnur, ef þetta virkar ekki þá er bara að smella gömlu pústgreininni á aftur.
JHG
04.02.2005 at 13:21 #515506Ég lenti í svona víbríng af og til með 350 sbc. Á milli var allt í lagi með bílinn. Þegar þetta gerðist þá varð bíllinn vita máttlaus.
Einn góðviðrisdag tók ég mig til og skipti um allar vacumslöngur. Eftir það hef ég nánast aldrei lent í þessu (ja, eitt tilfelli sem skýrðist af vacum slöngu sem losnaði en það telst tæpast með).
Í mínu tilfelli skýrðist þetta greinilega af fölsku lofti.
Þú ættir að skoða vacum slöngurnar, og jafnvel sprauta startspreyi á þær og athuga hvort gangurinn breytist eitthvað við það.
Seinna setti ég vacum mæli á hann sem hækkaði dótastuðulinn nokkuð (og sparar bensín að keyra eftir vacumi).
Þegar vacum slanga losnaði hjá mér þá vissi ég strax hvað var að gerast, ég sá það á mælinum
JHG
03.02.2005 at 17:57 #515478Er í Mosó, ekkert Setur hér
02.02.2005 at 19:09 #514982Vals skrifaði:
"…JHG, ég vona fyrir þína hönd að rörin séu ekki beintengd milli sjálfskiptingar og vatnskassa, því venjulega er vatnskassinn festur í boddy-ið en skiptingin á púðum. Titringur mundi því slátra vatnskassanum mjög fljótlega. Ég keypti hitaþolnar slöngur hjá þeim sem þær selja og koma þær mjög vel út."
Þetta eru sem betur fer ekki stórar og sterkar járnstangir 😉
Ég er með orginalrörin (ætli GM viti af þessu?) sem liggja frá skiptingu í vatnskassa. Þau hafa ekki eyðilagt vatnskassa ennþá svo ég viti til og ég get ekki ímyndað mér að það væri nokkur möguleiki
Ef ég væri hinsvegar með rör eins og bensínleiðslurnar sem ég lagði hér um árið þá væri kannski einhver hætta. En orginal rörin hafa ekki skemmt vatnskassa í þessum bíl í 24 ár og fara varla að taka uppá því núna (eru ekki flest orginal rör fyrir sjálfskiptingar lagðar með rörum?).
En hvað hitan varðar þá er það rétt, endingin minnkar eftir því sem vökvinn hitnar meira. Ég er með mynd í albúminu hjá mér sem sínir endingu miðað við hita.
JHG
02.02.2005 at 11:24 #515244Þær eru alltaf auglýstar af og til. Þú gætir líka prófað að hringja í Óðinn í síma 820-8240 en hann lumar oft á ýmsu dóti.
Algengustu innspítingar á 350 voru TBI og TPI. TBI er mjög áreiðanleg innspíting, og einfölld en TPI er flóknari (multiport) og í raun miklu þróaðri innspíting.
Ef þú ert að pæla í að setja TPI í bílinn þá ættir þú að skoða spjallborðin á http://www.thirdgen.org en undir "Motor swap" er að finna leiðbeiningar hvernig á að setja TPI mótor í blöndungsbíl.
Ég held að þessar innspítingar hafi verið að reynast mjög vel. TPI hjálpar mikið til að byggja upp tog og vinnur mjög vel á lægri snúning. Hún fer hinsvegar að verða takmarkandi á hærri snúning (>5000) en það skiptir ekki svo miklu máli í jeppa.
Blöndungurinn stendur alltaf fyrir sínu, er einfalldur og alltaf hægt að fá hann til að virka, en eyðslan verður samt yfirleitt aðeins meiri en með innspítingu. Ef ég væri að smella 350 niður þá myndi ég láta hann duga, nema að ég fengi 350 TPI með rafkerfi og öllu.
Með 700 skiptinguna þá eru þær ekki allar eins góðar. Þegar þær komu árið 1982 þá voru í þeim veikleikar (barnasjúkdómar). Ef skiptingin er 1987 eða yngri þá er búið að komast fyrir þá.
TH700 er ekki eins sterk eins og TH400 en með góðum kæli og mæli þá á hún alveg að þola góðan jeppa (voru nú notaðar í Blazer K5 og pickupa, heavy duty útgáfur fengu samt TH400).
TH700 er hinsvegar hægt að gera mjög sterka, og einnig kosta heavy duty TH700 ekki nema um $1200-1500 í stóra landinu.
JHG
02.02.2005 at 11:09 #514974Rör eru alltaf best. Ég er með rör frá skiptingu í vatnskassann, en slöngur til aukakælis. Stefni að því að leggja rör alla leið.
01.02.2005 at 13:38 #515240Ef þú villt góða vél fyrir lítinn pening og orkugjafi skiptir ekki máli þá myndi ég næla mér í 350 chevy með blöndung, TH700R4 skiptingu og NP208 millikassa.
Eyðslan á ekki að þurfa að vera svo svakaleg, þar sem að yfirgírinn á TH700 skiptingunni sparar þér mikið í langkeyrslu (ég er með Blazer K5 með 350, 4,88:1 hlutföll, 38" dekk og engan yfirgír, eyðsla um 22-25 l/h).
En með átta gata bensínvél þá hefur hún möguleika á að eyða meiru, það er bara svo gaman (eyðslan getur rokið upp ef pinninn er alltaf keyrður niður úr gólfinu).
Ef þig langar í dísel þá er það 6,2/6,5 en þær þurfa ekki að kosta mikið (keypti um daginn mjög lítið keyrða 6,2 með TH400 skiptingu og NP241 millikassa á 150.000). Forþjöppur á þessa vél eru að fara á um $500-$750 á Ebay.
JHG
29.01.2005 at 12:41 #514954Ég hef aldrei rifið svona Pæju skiptingu í sundur en hún er örugglega með síu. Í þeim skiptingum sem ég hef komið nálægt þá nægir að rífa pönnuna undan til að komast að henni.
JHG
28.01.2005 at 21:03 #514944Þessir kælar eru ekki Stacked Plate, en ættu að duga (stacked plate kæla betur, en eru líka dýrari). Ég er með að ég held fyrir 26000 GVW, en ætli 18000 (eins og þessi er) dugi ekki.
En mælirinn skiptir eiginlega mestu, þú getur þá alltaf stoppað og kælt skiptinguna ef hún fer að hitna eitthvað að ráði (ekki drepa á, stoppa og setja í Park og láta bílinn ganga).
JHG
28.01.2005 at 18:08 #514936Ég keypti mæli og kæli hjá Benna. Keyptu stærsta kæli sem þú finnur og þá þarftu aldrei að hafa áhyggjur af þessu
Stacked plate kælar eru dýrari en betri en gamla gerðin. Mig minnir að ég hafi borgað eitthvað um 16-17 þús. krónur fyrir kælinn, en þá var dollarinn í hámarki.
Mælarnir eru flestir ekki stafrænir en þú hlýtur að geta fengið svoleiðis dót.
Þegar þú setur auka kælinn í þá er mikilvægt að sleppa ekki kælinum í vatnskassanum. Olían fer þá frá skiptingu í kælinn í vatnskassanum, frá honum í nýja kælinn, og þaðan til skiptingar.
JHG
P.s. í myndaalbúminu hjá mér er hitakort vegna sjálfskiptinga, ættir að kíkja á það
-
AuthorReplies