Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.04.2013 at 18:22 #765539
Hefði verið til í að fara með , hefði ég ekki endilega þurft að átaksprufa framöxul.
05.01.2013 at 23:19 #762349Myndin neðst til vinstri held ég að sé af gömlu brúnni yfir Jökulsá á Dal við Fossvelli.
17.01.2012 at 21:26 #747437Fann þetta á netinu virðist að fyrsta blótið hafi verið haldið árið 2002 sama á og 101 ferðin .Árið 2003 var blótið haldið í Kverkfjöllum .
17. feb. 2002
Austurlandsdeild 4X4 hélt Þorrablót um helgina í Snæfellsskála. Góð mæting og mikil gleði. Fóru 13 bílar 38" og 44" inneftir. Færðin inn í Snæfell af Fljótsdalsheiði, norðan við Snæfell, er leiðinleg lítill snjór og " brotafæri" ýmist hélt klaka- skánin á snjónum eða brotnaði undan og er bara duft undir. Víða eru steinar og grjót uppúr og slóðir varasamar vegna þess. Í dag 17,02,02 fórum við inn á jökul Vatnajökul,innfyrir Háöldu og út að íshelli í Eyjabakkajökli, er þokkalegt færi á jöklinum. Fórum út Eyjabakka út á veg við Laugafell. Mjög lítill snjór er á Eyjabökkunum og slæmt færi hörð skán sem heldur ekki og púður undir. Afæturnar á Eyjabökkunum eru sérlega varasamar vegna snjóleysis.
4 mars 2003
Þorrablót deildarinnar var haldið í Kverkfjöllum laugardaginn 1 mars. Ferðin inneftir gekk að óskum hjá öllum hópum nema hvað hópur formannsins sem kom að sunnan var eitthvað að nuddast saman og sulla í krapi. Þáttakendur voru mjög ánægðir með blótið og ferðina í heild enda sæmilegt veður og færð. 55 manns voru á blótinu og 26 bílar samanlagt. Hópurinn þótti líka fjölbreyttari en þessi venjulegu Patrol/LC90 hópar sem eru algengir fyrir sunnan. Ný leið fannst yfir Kverkfjallaranann, en hóparnir þrír sem óku frá Héraði fóru allir inn í Snæfell og þaðan yfir jökulinn, niður í Hveragil og svo inn í Sigurðarskála.
http://frontpage.simnet.is/f4x4aust/oldnews.htm
13.01.2012 at 00:13 #745715Heiðar takk fyrir góðan pistil.
Kveðja frá Kanada Kobbi
30.12.2011 at 09:15 #745067Það má bæta því við að hver mínúta í breiddarbaug er 1 sjómíla eða 1852 metrar og hver mínúta í lendarbaug á miðbaug er líka 1 sjómíla.
08.12.2011 at 01:18 #742399Sælir félagar.
‘Eg vona að þið verðið duglegir að skrifa um allt sem er að gerast.
Með kveðju frá Kanada
Jakob
28.08.2010 at 22:16 #21422315.01.2009 at 23:10 #637410sæll kalli
þetta er ekki pelastikk hnúturinn mun renna til og upp að staurnum, pelastikk á að minda likkju.
Neðri myndin er hestahnútur.
06.10.2006 at 10:54 #561962Kem ekki myndini inn hún er á myndasafninu [img:11t9h5wf]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4798/34459.jpg[/img:11t9h5wf]
12.09.2005 at 21:26 #526566Ég er með Econoline m. 7,3 disel túrbó á 38" og 44" á 4,10 hl. og kemur mjög vel út og eyðslan er minni eða 15-17 l. Veit um inn Econcline m. 7,3 á 4,88 hl.á 36" og eyðslan er 25-30 l.Svo eru 4,10 hl. mun sterkari en td. 4,88 hl
-
AuthorReplies