FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 344 total)
← 1 … 8 9 10 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 15.07.2008 at 21:31 #626076
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Þessi ágiskun er ekki byggð á reynslu né þekkingu en getur ekki verið að ef þú hefur fengið eina stimpilstöng að hún sé þyngri eða léttari en hinar gömlu. Í mínum augum gæti það valdið ójafnvægi og skemmt mótorinn ef hann er notaður þannig.

    Kv Jónsi

    P.s. ég ítreka þekkingaskort og reynsluleysi en þetta er bara hugmynd.





    12.07.2008 at 23:48 #626000
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Lögin um aukaljós eru á köflum dálítið óskýr en við jeppamenn fáum líklega alltaf verstu útreiðina þegar kemur að skoðun. Það skrifað stendur skýrt í reglugerðinni að kastara megi ekki setja á óbreytta bíla (bara þokuljós með stuttum dreifigeisla) og þá er hægt að ganga á röðina og kíkja á lögreglubíla landsbyggðarinnar. Ég hef fengið endurskoðun af því að hlífar vantaði framan á slíka kastara.

    Ég reyndar skil ekki hvers vegna einungis breyttir jeppar megi bera slíka gripi því að þeir nýtast afburða vel í svartnættinu, draga úr syfju og hjálpa manni að giska hvað er framundan.

    Ég er viss um að hvorki Skoda, Hyundai, Toyota osfrv skilgreini þessi ljós sem þokuljós, enda væri þá notkun þeirra harðbönnuð þegar ekki væri þoka, frekar en kastara þar sem eru ca 20W perur í ljósunum.

    Annað brýtur í bága við reglurnar og það er að það er sjaldnast gaumljós við kastarana og það er bannað.

    Reglugerðin er hálfgerð sorgarsaga og vert að minnast hennar þegar maður mætir flutningabílum á langferðum að vetrarlagi vitandi það að þeir mega einungis hafa eitt par af þokuljósum og eitt par af auka háuljósum.

    Kv Jónsi

    P.s. ég er ekki að mælast gegn því að atvinnubílstjórar séu vel upplýstir við vinnu sína, þvert á móti tel ég það mikilvægt að tæki þeirra séu vel búin og ég hef aldrei, aldrei lent í því að ljós þeirra trufli mig sem heitir og verð ég bísna oft á vegi þeirra.





    08.07.2008 at 21:51 #625090
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Það þarf náttúrulega ekki að velta vöngum lengi yfir því hversu mikið menn sem kaupa ódýrustu öryggistækin á markaðnum gætu lent í að sjá eftir því. Reyndar hafa og geta dýru og ný yfirförnu tækin líka klikkað.

    Málið er hinsvegar að ef keypt er tæki hjá Europris sem jafnvel er góðra gjalda vert þá er ekki skoðunarmiði á því eins og ef keypt er tæki hjá t.d. Ömí, Skúrítas eða sambærilegum aðila.

    Þá þarf réttindamann til að yfirfara nýja tækið til að það fái skoðun og það kostar. Ódýra tækið sem kostaði 2500 kall +láta yfirfara ca 1500 kall = of lítið ódýrara en dýra tækið hjá viðurkennda aðilanum.

    Kv Jónsi





    04.07.2008 at 00:29 #625380
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þú ræður alveg hvað þú skiptir um marga hluti á leiðinni að viftunni en ég átti bágt með að trúa henn til að láta svona en þannig var það nú samt. Þetta var gert hjá mér helgina eftir sumardaginn fyrsta og munurinn er svakalegur.

    Á patrol er hraðinn alltaf kominn niður fyrir 80-90 þegar bíllinn erfiðar.

    Taktu viftuna úr og gáðu hvort hægt sé að kippa henni í sundur. Ef það er hægt þá færðu þér silikon á sprautum og lætur fljóta yfir rillurnar og lokar svo aftur. Ef það er ekki hægt að taka hana í sundur þá kaupirðu viftu af L-200 skilst mér og lætur rennismið sjá um að hún passi á dæluna.

    Það er ekkert annað að bílnum þínum.

    Kv Jónsi

    P.s. hitamælirinn hjá mér stóð alltaf undir lágréttu og þegar á reyndi fór hún svipað mikið uppfyrir lágrétt og rétti sig strax og áraunin minnkaði. eftir að sílikoni var bætt á hana dró verulega úr aflinu á bílnum og hitamælirinn fer á sinn stað og haggast ekki þaðan.





    03.07.2008 at 21:02 #625372
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Þetta er nákvæmlega það sem minn gerði áður en bætt var sílíkoni á viftuna. Hvort þetta sé afleiðing eða bara venjulegt slit veit ég ekki en viftan hjá þér er ekki í lagi.

    Kv Jónsi





    25.06.2008 at 23:24 #624950
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Það er staðreynd að allar markaðsaðstæður eru að hækka eldsneytisverð á Íslandi. Það eru samt nokkrir hlutir sem angra mig. Þar ber fyrst að nefna hvers vegna hráolían hækkar svona mikið umfram bensínið. Þetta er mér algerlega hulin ráðgáta.

    Um það leyti sem skatturinn var lagður á olíuverðið sagði ég og skrifaði minnir mig hér á spjallið að þrátt fyrir að ríkisstjórnin lofi því, sem hún gerði, að olían verði alltaf ódýrari en bensínið hækki olíuverðið langt umfram bensínið þegar meginþorri landsmanna verður kominn á díselbíla. Sjálfur átti ég ekki von á svona hrikalegum hækkunum.

    Kunningi minn sagði að málið væri einfalt: olíufélögin hafa aldrei grætt krónu með gati á bensíni en allar þeirra tekjur komið inn á hráolíu. Mér finnst þetta lógískt. Núna eru olíufélögin að nýta sér kreppuna til að taka okkur díeselbilaeigendur, sem á að vera náttúruvænni kostur, í ósmurt púströrið, og við bara brosum og biðjum um meira.

    Hitt sem mér finnst óeðlilegt eru svör olíufélaganna við áleitnum spurningum um nákvæmlega þetta ofangreint.

    "Það er mun dýrara að flytja hráolíu því að líterinn af henni er þyngri en af bensíni". Ég skal ekki efast um það en var það bara að breytast núna á þessu ári. Eru það ekki dálítið gömul vísindi sem hefði átt að trufla verðlagið dálítið fyrr.

    Maður spyr sig!!!

    Djöfull sem þessir glæpónar eru að láta okkur kenna á því. HVER KLAGAÐI Í SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ?

    Hvað mótmælum lýtur er ekkert grín að gera eins og menn ræddu hér ofar á þræðinum. Atlasolía er ekki svo víða á landsbyggðinni og hin félögin hafa búið sér vel í haginn með því að hækka olíuna rétt fyrir fyrsta slátt að þeir tóra þó að helmingur reykvíkinga noti atlasolíu.

    Kv Jónsi

    P.s. ég held að menn mótmæltu mest og best með því að kaupa sér reiðhjól.





    07.06.2008 at 22:04 #624218
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég fékk úr því skorið að ég hef gert eitthvaðvitlaust því að ég kippti þessum skynjaraskratta úr sambandi á öðrum bíl og hann hrökk í gang sá og gekk eins og klukka.

    Nú er bara að bíða eftir að stytti upp til að byrja að rífa aftur.

    Fjandinn

    Kv Jónsi





    07.06.2008 at 20:16 #202526
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég skemmdi í einhverju fikti skynjara sem er staðsettur á bakvið tímareimahjólið á olíuverkinu. Ég var að skipta um tímareim og vandaði mig svolítið við að láta hann hitta á tíma en braut skynjarann og nú fer bíllinn ekki í gang. Til að vera viss um að ekkert myndi skemmast í gangsetningu þá snéri ég mótornum nokkuð langt svo að það er pottþétt að ventlar og stimplar mætast ekki.

    Ég límdi skynjarann aftur en líklega hef ég eyðilagt hann en ég hef grun um að hann stjórni bara snúningshraðamælinum. Ef hann gerir ekkert meira þá er tímareimin á vitlausum stað en ef skynjarinn hjálpar olíuverkinu þá ætla ég að útskrifa tímareimina.

    Veit einhver fyrir víst hvaða hlutverki þessi skynjari þjónar?

    Kv Jónsi





    07.06.2008 at 00:37 #624090
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Reglugerðarfarganið er tómur fíflaskapur í kringum aukaljós á bílum. Ég á bíl sem var fluttur inn notaður 1995 og árið 2006 fékk bíllinn endurskoðun út á kastarana vegna þess að þeir voru vitlaust tengdir. Reglugerðin hafði þá ekkert breyst.

    Ég bað um að fá reglugerðinaafhenda og fékk. Að gamni sendi ég fyrirspurn til Umferðarstofu og fékk þá upp í hendurnar annað plagg dagsett seinna en fyrra blaðið og reglurnar þar voru örlítið rymri. Seinna ræddi ég við lögregluþjón, kunningja minn, sem sagði að ég hefði milli handa 2 blöð sem innihalda tóma vitleysu en reglugerðin væri öðruvísi.

    Aukaljós má ekki vera hægt að kveikja án þess að amk. parkljós logi.

    Aðeins má vera eitt par af ljósum skilgreindum sem þokuljós.

    Á breyttum jeppum má setja aukaljós og tengja þau að vild svo fremi að parkljós logi með þeim. (rökrétt þar sem menn geti annars verið grunlausir um að afturljósin séu slökkt, parkljóin trufla menn ekki). Aukaljós verða að vera lokuð í almennum akstri.

    Ég hef haft þetta til hliðsjónar þegar ég tengi aukaljós á bíl og fæ aldrei athugasemd á þetta.

    Takiði þá eftir að aukaljós sem eru ekki skilgreind sem þokuljós þe ljós með stuttum dreifigeisla mega ekki vera á fólksbílum og þess vegna fæstum lögreglubílum og jeppum sem ekki eru breytingaskoðaðir.

    Kv Jónsi





    05.06.2008 at 23:48 #624078
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það er gríðarlega gott að vita hvað relý er og hvernig það virkar því að þá þarf maður ekki að reyna að muna þessar tölur.

    Myndin af kassanum með skástriki í gegnum er spólan, þegar hún fær spennu yfir sig segulmagnar hún smá kjarna sem dregur til sín járnstykki sem er fast við rofa. Við þetta breytit rofinn um stöðu, sá sem áður var opinn verður lokaður og öfugt. í bílarelýum er oft víxlsnerta sem skiptir þannig á milli póla.

    Vitandi það þá tengir maður rafmagn sem upphaflega kemur úr parkljosum í gengum rofa með gaumljósi (skylda) og þaðan á annað plöggið með myndinni af kassanum með skástrikinu. Hitt plöggið tengir maður við mínus (jörð). Þvínæst tekur maður rafmagn með sverum vír frá geymi í gegnum öryggi og á plöggið á relýinu sem er með mynd af rofa, og frá hinu rofaplögginu leggur maður vír út í ljós.

    Þú verður að vera pottþéttur á að taka rafmagnið frá parkljósum eða háa/lága geisla því að það er harðbannað að tengja aukaljós þannig að þau geta verið kveikt án þess að parkljósin loga. Sömuleiðis er skylt að rofinn sé með gaumljósi.

    Kv Izan





    30.05.2008 at 13:36 #623740
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Svarið er meira af lofti, sem hugsanlega eykur aflið lítillega en með þessu lofti kemur meira af óhreinindum sem skemma eitt og annað, t.d. skynjara og svona smotterí.

    Kv Jónsi





    03.05.2008 at 19:16 #622028
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir.

    Ég átti ekki von á að vera nefndur Júdas þó að þessi hugmynd hafi þotið í gegnum kollinn á mér. Ég er svosum ekkert að fara út í þessa sálma í dag eða morgun en líklega er mótorinn minn á seinni snúningnum og ef til vill yrði þetta ódýrara en uppgerð á vélinni.

    Gírkassinn minn er svolítill óhljóðabelgur líka og engin eftirsjá í honum.

    Þannig er nefninlega að amk 3 Patrolar eru að mér vitanlegu komnir með 80 krúser mótor eða sambærilegt en þeð er allt nýrri bílar en minn. 80 Krúser mótorinn er óþarflega dýr fyrir minn smekk og sérílagi fyrir Pattan minn.

    Gallinn við 60 krúserinn er 24V rafkerfið og það var í raun það sem ég hef mestar áhyggjur af. Nemana myndi ég færa af Patrolvélinni til að þeir passi við mælana og 24V startrelý er hægt að finna í nokkrum bílum. S.s. lítið mál. Meira vandamál er snúningshraðamælir og þá hugsanlega eitthvað annað sem ég veit ekki hvernig er í Krúser, t.d. olíuverk o.s.frv.

    Attttto. Ég er að horfa á original turbo mótor, eru þeir til nema 4.2L. líklega ca 87-88 módel og yngri. Annars held ég að 0.2l skipti litlu máli ef enginn annar munur er á en ég held að 4.0 sé ekki með orginal turbo.

    Kv Izan





    02.05.2008 at 12:51 #202391
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Hefur einhver sett 60 Krúser mótor með kössum og tilheyrandi ofaní gamla Patrol?

    Sér einhver eitthvað því til fyrirstöðu?

    Kv Izan





    25.04.2008 at 09:56 #621482
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég held að miðað við hvernig mórallinn er búinn að vera í kringum þessi mótmæli ætti 4×4 að láta þetta alveg eiga sig. Það segir mér enginn að jafnvel þó menn ætli að láta þetta fara rólega og siðsamlega fram getir ekki einhver utanaðkomandi komið og skemmt mótmælin í nafni félagsins.

    Ég verð félagi í klúbbi sem skipuleggur eða leggur nafn sitt við barsmíðar á lögregluþjónum.

    Kv Izan





    10.04.2008 at 21:21 #620304
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Þegar þú svissar á, kemur þá hleðsluljós, altarnetorinn hleður ekki ef peran er sprungin.

    Er reimin á sínum stað og ekki að slúðra? ok heimskuleg spurning en ennþá heimskulegra væri ef það væri það eina sem að væri!!

    eru öll tengi hrein. s.s. tengin á altarnetornum og geymum.

    Getur altarnetorinn eða jafnvel vélin verið búin að einangra sig frá – pólnum á geyminum. Smelltu vír þarna á milli einhversstaðar og ef eitthvað gerist skaltu tengja hann almennilega og aka sæll út í vorið

    Kv Izan





    05.04.2008 at 11:24 #619488
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ljósið þarf að vera E-merkt skv einhverri reglugerð sem enginn skilur eða með DOT merkingu sem enginn veit heldur hvað þýðir. DOT merkingunni fylgir einhver reglugerðarflækja sem engin leið er að lesa úr en ég er illa svikinn ef þú finnur ekki einhvert merki á Light-force kösturum sem duga þessum heiðursmönnum.

    Það eina sem mér var kennt um CE merkinguna er að okkur er skylt að nota allavega rafbúnað með merkingunni en hún er stórlega ofmetin og engin gæðaviðurkenning.

    Kv Izan

    P.s. ég á ekki von á að menn séu mér sammála um CE merkið en ég stel þetta ekki dýrara en ég stal því





    10.03.2008 at 20:05 #617162
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég keypti GPS tæki í Ameríkuhrepp, rölti um götur Nýju Jórvíkur og keypti tæki í sumar sem átti að kosta 59.000kr í Bílanausti en ég keypti mitt á 406 dollara (ca 26.500kr þá) og fannst vel sloppið.

    Ég reyndar vildi handtæki þar sem það gefur meira færi á göngu ferðum og eins er auðvelt að smella því á vélsleðann eða fjórhjól. GPSMAP 60CSx er að mínu mati albesta GPS tæki sem finnst í dag. Það getur verið leiðsögutæki, rafeindaáttaviti og er með loftvog sem hjálpar hæðarákvörðun. Sjárinn er litaskjár en er frekar lítill fyrir jeppann en þó gerir það minna til þegar nýja 3.5 kortið kom út. Þar standa fjallvegir mun lengur á skjánum þegar maður Zoomar út.

    Ég keypti í það stórt 4 gig minnir mig minniskort sem er bara venjulegt mikrosd kort og það tekur allt íslandskortið og man allar mínar ferðir næstu 20 áranna og geymir. Þarna er reyndar smá galli en það er að ég verð að nota tölvu til að koma ferlunum af minniskortinu og í nothæft ástand á skjáinn. Svolítið asnalegt.

    Ég á í náinni framtíð eftir að nota fartölvu við tækið en er bara að bíða eftir fartölvustatífi en þá er skjástærðarvandamálið úr sögunni. Tækið tengi ég svo við rafmagn og útiloftnet og þá er skekkjan komin niður í 3-5 metra á hálendi sem er alveg ásættanlegt.

    Kv Izan





    05.03.2008 at 22:52 #616596
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég ætlaði svosum að skipta henni út í kvöld en bara gleymdi því. Hún er samt ekkert hátt skrifuð á hugmyndalistanum þar sem bíllinn skilar öllu sínu afli en eins og ég þekki stíflaðar hráolíusíur þá fer að ganga á aflið á hærri snúning.

    Ég skipti samt um síuna á morgun, það er sjálfsagt kominn tími til hvort sem er.

    Ef dísurnar eru farnar að láta á sjá, hvernig hagar bíll sér þá, getur ekki bara verið að þær ýri ekki nóg á meðan olían er köld. Hann hefur alltaf gengið frekar illa fyrstu mínútuna en alltaf hrokkið í gang og þá sérstaklega kaldur. Það hefur hinsvegar verið verra að gangsetja hann hálf heitann.

    Takk, Jónsi





    05.03.2008 at 19:08 #202026
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Dagin

    Nú er Patrolinnn minn hálf tregur í gang kaldur. Hitunin virðist taka svipaðann tíma og venjulega en núna þarf ég að láta startarann ganga í nokkrar sekúndur jafnvel 5 sek sem er ekki viðunandi en þá hrekkur hann í gang eins og ekkert hafi í skorist. Hann hefur alltaf verið sérstaklega röskur í gang kaldur.

    Ég tel mig fullfærann í að mæla og athuga glóðarkertin en ég hef á tilfinningunni að eitthvað annað sé að klikka og vantar hugmyndir að einhverju til að kíkja á.

    Kv Jónsi





    28.02.2008 at 13:27 #615110
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég skil ekki alveg áhyggjur manna um að Tetra skáki VHF út. Þar eru menn að bera saman brauðpakka og varadekk. Tetra er ekki talstöð til að spjalla í um daginn og veginn, passa sig á steininum og "ég er fastur, snúðu við". Svona spjall myndi heyrast um allt land. Ef Tetra nær sambandi þá heyrist í þeim sem talar um allt land, hjá þeim sem á annað borð hafa sömu rásir.

    VHF er samskiptatæki sem gerir mönnum kleift að ræða málin sín á milli þannig að það heyra eingöngu þeir sem ná sambandi við viðkomandi tæki.

    Mig minnir að Eik hafi sagt að tetra sé talstöð sem er forrituð til að hegða sér eins og sími en í mínum huga er þetta öfugt, tetra er sími sem er forritaður til að haga sér eins og talstöð.

    Þessu tæki er ætlað að leysa af NMT kerfið sem er á hraðri niðurleið, en VHF kerfið á eftir að þjóna okkur áfram og þess vegna er mikilvægt fyrir klúbbinn að detta ekki af baki með uppbyggingu VHF senda.

    Það eina sem einhvert þessara kerfa, sem leysa NMT af, þarf að vera er öruggt og með virku sambandi sem víðast. Það kerfi er það sem jeppamenn eiga eftir að nýta sér hvað sem það heitir. Það að 4×4 hafi aðgang að tetra er bara gott mál sem hvetur til frekari uppbyggingar.

    Kv Izan





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 344 total)
← 1 … 8 9 10 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.