FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 344 total)
← 1 … 7 8 9 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 02.11.2008 at 22:56 #632022
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Það er gaman til að vita að Toyota Hilux verði eini breytti jeppinn á íslandi.

    ojbara.

    Kv Jón Garðar





    30.10.2008 at 20:48 #631848
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér líst svoleiðis á að best væri miðað við þráðinn að leggja 6-8mm loftslöngu innan úr miðstöð og upp í kassann framanverðann og bora pínulítil göt 2-3mm þvermáli. Ég myndi bora þau á botninn en eftarlega. Bíllinn er oftar kyrrstæður og það rignir oftar til hliðar heldur en upp milli þaks og kassa.

    Markmiðið væri að taka heitt loft úr miðstöðinni og flytja það upp í kassann. líklega verður hann að vera að einhverju leyti einangraður t.d. með tjalddýnu. þannig myndast yfirþrýstingur í kassanum sem er mjög mikilvægur með tilliti til ryks á malarvegum. Jeppar fara oft um á malarvegum þar sem enginn snjór er.

    Loftið í kassanum þarf að komast í burtu til að tryggja loftskipti og götin sem loftið fer út um þurfa að vera jafnstór eða minni heldur en það sem það kemur inn um.

    Kv Jónsi

    Ég held samt enn að besti staðurinn fyrir föt og svefnpoka sé inni í bíl ef það á að stóla á búnaðinn.





    29.10.2008 at 08:39 #631836
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég er í svipuðum spögleringum, nema ég er með kassa aftan á afturhurðinni og er með lofdæluna þar. Það er ekki gott að hún sé í blautu rými.

    Kassinn minn er úr plasti og þal geymir hann hita pínulítið betur.

    Ég gataði botninn með nokkrum litlum götum og vandaði ekki fráganginn sérstaklega þar sem straum og loftleðslurnar koma inn í hann.

    Ein hugmyndin vara að setja ljósaperu parkljós eða sambærilegt sem hitagjafa.

    Ég held að í öllu falli séu til betri staðir tl að geyma fatnað og svefnpoka. Svona geymsla allavega til lengri tíma kemur til með að svíkja þig á ögurstundu.

    Kv Jón Garðar





    27.10.2008 at 00:07 #631728
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    It’s not the size that matters It´s how you use it!!!





    25.10.2008 at 22:42 #631572
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Af hverju er Toyotan þín til sölu Benedikt minn, búinn að gefast upp á þessu veseni.

    Kv Jónsi





    18.10.2008 at 12:46 #631282
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Patrolinn minn er þannig breyttur að það er búið að setja einhverja landcruisergorma undir hann að framan og 10cm klossa að aftan. Stýfufestingarnar að framan voru síkkaðar um einhverja cm og balancestangarendarnir lengdir um það sem nemur hækkuninni. Eitthvað þarf að eiga við hleðslujafnarann til að hann virki rétt og annaðhvort færa demparafestingarnar eða sjóða stubba á demparana til að þeir höndli hækkunina.

    Það þarf að færa samsláttinn til að hann geir gagn á móti dekkjastærðinni.

    Þessi hækkun er tæplega nóg. Hún dugar fínt í allan venjulegan akstur og bíllinn er góður og þægilegur fjölskyldubíll jafnvel í kaupfélagssnattið en það vantar enn pínulítið uppá að maður geti tekið almennilega á honum í aksjón á fjöllum. hugsanlega leysi ég það einhverntíma með svolítilli bodýhækkun, tommu eða tvær.

    Þegar þú klippir úr áttu að vita að það er engin eftirsjá í brettunum sem á annað borð fara undir kantinn. Þeim meira sem þú fjarlægir þeim mun betra. Eitthvað þarf sjálfsagt að eiga við hvalbakinn og eða sílsinn og það þarf að vanda sig í frágangi á því. Mundu bara að víkka ca eina tommu til viðbótar við það sem dekkið nær því að þú bætir einhverri klæðningu og hugsanlega drullusokk við og síðan er ótrúlegt hvað hjólasellið gengur mikið til í átökum.

    Kv Jónsi





    18.10.2008 at 12:27 #631286
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Í þessari stöðu myndi ég láta verðið ráða svolitlu en ef þú ferð í 36" dekkin myndi ég ætla að þú þyrftir breiðari felgur. 36" dekk sem eru 14.5" breið virka stórvel á ca 13-14" felgum.

    Ég myndi leggja meira úr því að fá breiddina heldur en eina tommu á hæð. Þá færðu aukið flot og mýkt.

    Kv Jónsi





    11.10.2008 at 11:38 #630910
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Einar, hvað í veröldinni fær þig til að ætla það að íbúar á Austurlandi vilji fremst af öllu flytja til Reykjavíkur.

    Þvílík endalaus heimska það er að halda því fram að lífið sé auðveldara og betra í Babylon.

    Hvernig steik ertu eiginlega!!!!

    Það eru ekki 3-400 íbúðir sem halda austurlandi í hreðjargreipum, talan var fengin með því að leggja saman allar eignir á söluskrá fasteignasananna, prófaðu það í Reykjavík.

    Þökk sé álverinu fallega þá er hér næga vinnu að fá, þokkalega launaða og í nánd við fallegustu staði Íslands.

    Kv, Jónsi





    06.10.2008 at 17:38 #630582
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þessi ljós sem við setjum framan á jeppana okkar eru ekkert sérlega vel varðir og eru nákvæmlega jafnilla varðir fyrir t.d. grjótkasti.

    Þá skiptir ekki máli hvort þú sért með 50þ króna IPF ljós 120þ kr HID ljós eða 15þ kr ljós úr stillingu.

    Verð og gæði fara náttúrulega saman í ljósabransanum en menn fá líka að borga fyrir nöfnin eins og Hella IPF o.s.frv. Kíktu bara á vörubílana sem keyra þjóðvegina, Britax ljós eru mjög algeng þar og það eru atvinnumenn sem velja þau.

    Kv Jónsi

    P.s. Það brotnaði Bosch ljós hjá mér og ég gat valið milli eins ljóss frá bosch eða pars frá Sírius. Ég valdi síriusljósin og þau eru lengt í frá að vera helmingi lélegri.

    Pps ef eitt ljósapar lýsir ekki nóg getur maður þá bara keypt annað!!!!





    03.10.2008 at 20:32 #630380
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Það fer eftir því, gæskur, hvort þú viljir vita hitann framan eða aftan við túrbínu.

    Kv J’onsi





    15.09.2008 at 13:45 #629382
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég hef ekið Patrol í 2-3 ár man ekki alveg en honum var breytt 1995 f 36" dekk og ég hef notað hann á 38" í mín 2-3 ár. Bíllinn er ekinn 330 þ km

    Hann er á 3 legusettinu að framan svo að það má varla kalla stórvanda, bæði skiptin skipt um legu í hefðbundnu viðhaldi en ekki út af bilaðri legu. Vandinn felst í því að ef lega fer þá skemmir hún fyrir stórfé á stuttum tíma.

    Drifin hélt ég reyndar að væru 9.5" bæði framan og aftan og á 38" dekkjum brýtur þú þau ekki. 31 rílu öxla hef ég heyrt á minnst og þannig gengur ekkert annað hefðbundið samanvið, pirrandi en satt.

    Patrolinn er vélavana og gírkassinn er byggður fyrir minni átök en við erum vanir á Íslandi. vélin er á fullu álagi frá morgni til kvölds og gírkassinn fær líka að kenna á því. Þannig endist þessi búnaður illa og búast má við heddviðgerð og nýjum gírkassa á hverjum 150 til 200þ km

    Hvað er til ráða, jú, smyrja nógu oft og mikið. skipta mjög reglulega um allar olíur og setja feiti í alla smyrjanlega hluti og helst fleiri. skipta um á öllum kössum og drifum minnst árlega án þess að hugsa um ástand olíunnar sem fer af. nema hún sé alltaf ljót þá þarf að gera eitthvað í málinu. Sömuleiðis er bráðnauðsynlegt að viðhalda kælikerfinu og tryggja að það standi fyrir sínu, lúin vifta getur kostað nýtt hedd.

    Þegar millikassinn fór í bílnum mínum (áður en ég keypti hann) var farið að kíkja á málið og kom í ljós að aldrei hafði verið skipt um olíu á honum bara þefað af henni um 175 þ km.

    Stóri gallinnn er varahlutaverð. Ekkert annað að gera en að kyngja og brosa.

    Kv Jónsi





    26.08.2008 at 21:14 #628122
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Einhvernveginn finnst mér eins og myndir úr eftirlitsmyndavélum séu frekar lítils metnar í dómstólum nema játning viðkomandi liggi fyrir. Enda eru myndavélar þeim annmörkum gæddar að einungis er hægt að komast að því hver framkvæmdi verknaðinn en ekki koma í veg fyrir glæpinn. Eigi viðkomandi ekki peninga kemst hann upp með að sleppa því að borga og eigandi situr uppi með tjónið.

    Besta aðferðin er að nota skálann meira. Sérstaklega á sumrin. Á veturna hefur mér sýnst vera stöðug traffík á húsinu og enginn friður fyrir misyndismenn að athafna sig en ég hvet menn til að nota húsið meira á sumrin.

    Síðan er spurning um tryggingar. Var húsið ótryggt. Ef svo er þætti mér ástæða til að kanna það betur. Í raun er glórulaust að hafa svona dýrt og mikið hús ótryggt, það eru það mikil verðmæti í innanstokksmunum og markt sem getur gerst. Það má svosum vera að tryggingafélögin hafi ekki hentuga tryggingu fyrir svona hús.

    Kv Jónsi





    24.08.2008 at 11:00 #628012
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þetta nær náttúrulega ekki nokkurri átt. Óskaplega eru menn barnalegir að fara á fjöll til þess eins að skemma. Og borguðu örugglega ekki einu sinni gistigjöld.

    Hvernig var það var ekki komin ný skrá og nýr lás á Setrið. Hvernig komust þessir pjakkar inn, maður spyr sig.

    Nafni, þó að þú sért, með réttu, æfur af reiði skaltu ekki eitt andartak velja þér hóp manna til að skella skuldinni á. Rétt eins og skotveiðimenn eru jeppamenn og þar með talin þú taldir til minnihlutahópa og ef þú ætlar að velja þér einn slíkann til að skella skuldinni á gerir það þig að engu betri manni en þeim sem rústaði Setrinu.

    Kv Jónsi





    24.08.2008 at 01:27 #627836
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    sælir

    Ég hef keypt helling af Ljósboganum og hef ekkert nema gott um það fyrirtæki að segja, með góða vöru og á sanngjörnum verðum.

    Reyndar hef ég séð áður að altarnetor sé fáránlega misdýr á milli staða og þess vegna meiri ástæða að horfa vel í kringum sig þegar svoleiðis búnaður er keyptur.

    Kv Jónsi





    24.08.2008 at 01:20 #627954
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég hef notað sömu bíla á misbreiðum felgum en í sjálfu sér ekki farið í neinar yfirstærðir en mér finnst betra að nota breiðari felgur. Ég hef prófað 8 og síðan 13" felgu á 35" dekk og munurinn var fáránlegur. Bíllinn var allur annar, miklu meiri trukkur. Núna er ég á Patrol á 38" dekkjum og 12"-14" felgum. Munurinn þar er ekki eins mikill en þó nokkur. Næst verður 16" felga prófuð og þá á ég von á að munurinn komi í ljós.

    Kv Jónsi





    16.08.2008 at 19:55 #627296
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir.

    Pattinn minn skítféll og jafnvel þó að ég setti inn allar ímyndaðar breytingar.

    Kv Jónsi, sem áður taldi sig til jeppamanna….

    p.s., má ég setja DVD og MP3 af þvi að það er í tölvunni????





    14.08.2008 at 23:20 #627346
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Einherntíma setti ég koppafeiti í lokurnar og þá byrjuðu þær að höggva í auto svo að ég setti þær bara í lock og þannig hafa þær verið síðan. Límmiðinn er reyndar farinn af svo að ég vissi ekki af free stöðunni og þá finnst mér lokurnar enn sniðugri en áður.

    Ég ræddi málið fyrir nokkuð löngu síðan við vélfræðing sem sagði að það getur ekki verið hollt fyrir drif að vera stopp í víbringi sem bíllinn myndar í notkun. Drifið þarf að snúast og smyrja sig.

    Að vissu leyti held ég að hann hafi á réttu að standa nema að ég trúi því passlega að framdrifið sé alveg stopp á meðan bíllinn er á ferð.

    Drifið mitt dólar bara með og ég trúi því ekki að það skipti sköpum, hvorki í eyðslu eða endingu á drifum eða legum.

    Kv Jónsi





    13.08.2008 at 12:36 #627234
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll.

    Ég myndi segja, eins og mikill snillingur vinur minn, að menn ættu ekkert erindi á fjöll án Gps og Vhf. Þá ætti kaðall að vera skylda í öllum bílum ásamt sjúkrakassa og slökkvitæki

    Sum sé veita hvar þú ert og geta sagt einhverjum frá því.

    Stór dekk, upphækkun, niðurgírun, drullutjakkar, spil, aukaljós, aukatankar, driflæsingar o.s.frv. bara til að bæta bílinn í takti við það sem nota hann í.

    Kv Jónsi

    P.s. þetta lærist þegar maður prófar að fara í vetrarferð hvað jeppi þarf að hafa til brunns að bera en það er líka pínulítið misjafnt á milli bíltegunda hverju þarf að breyta fyrst.





    12.08.2008 at 23:14 #202773
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Ég skil ekki með nokkru móti hvernig menn fara að því að sýna mér, á spjallinu og myndaalbúminu, skjámynd úr MapSource. Gæti einhver hér kennt mér það. Það er eins og skjámyndin sé vistuð sem .jpg en ég skil bara ekki hvernig.

    Kv Jónsi





    01.08.2008 at 11:38 #626600
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Þetta þarf ekki að vera merkilegri bilun en að kolin séu búin í altanetornum.

    mældu bara spennuna yfir geyminn með bílinn í gangi helst á ca 1500 sn, spennan á þá að vera 13-14V. Ef hún er um eða undir 12V þá er eitthvað að altarnetornum.

    Kv Jónsi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 344 total)
← 1 … 7 8 9 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.