FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 344 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 24.06.2009 at 08:53 #204866
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir.

    Ég var að hugsa mér að setja 6.2 í Patrolinn minn og langaði til að forvitnast hvort einhver hafi prófað að setja gírkassa úr 4.2 patrol aftan við hana og þá fá upplýsingar um fráganginn o.s.frv.

    Takk, Jónsi





    07.06.2009 at 10:52 #648482
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll trölli

    Ef það nórir á hleðsluljósinu á meðan bíllinn er í gangi er möguleiki á að díóðubrettið sé farið. Þá getur alternatorinn hlaðið eðlilega en tæmt geyminn á ákveðnum tíma, mislöngum. Gæti verið ein nótt og gæti verið nokkrir dagar.

    Hina lýsinguna kannast ég ekki við enda á + inn að fara af ljósinu þegar þú drepur á eða svissar af. Það er ekki eins og bilunin sé í alternatornum.

    Kv Jónsi





    06.06.2009 at 09:23 #648464
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Kipptu öryggjunum út einu af öðru og þegar ljósið slokknar ertu með rétta grein. Þaðan þarftu að feta þig eftir víraflækjunum.

    Mér finnst líklegasta skýringin sú að einhver þeirra hluta sem eiga að vera með straum þegar slökkt er á bílnum vanti jarðsamband en nær að draga jörðina í gegnum hleðsluljósaperuna. Ég myndi byrja á að skoða klukkuna og jafnvel útvarpið o.s.frv.

    Kv Jónsi





    26.04.2009 at 16:13 #646522
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll.
    Bílasmiðurinn á prýðileg rofabox með ljósi.

    Kv Jónsi





    11.03.2009 at 21:21 #642956
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ef einhver er enn efins um ágæti björgunarsveitanna ættu þeir þá að skoða heimasíðu Ingunnar á Laugarvatni. Þeir halda úti skrá yfir útköll en þar er bara hægt að sjá til 2008 ennþá. Menn verða að gefa því gaum að þessi sveit er staðsett á Laugarvatni sem er frekar fámennt pláss. Félagatalið er líklega ekki rétt þarna frekar en hjá öðrum sveitum því að margir eru félagar til þess að styrkja sveitina um árgjaldið. Ég gæti trúað að 90% vinnunar í þessari sveit sé unnin af innan við 10 manns í sjálfboðavinnu að sjálfsögðu. Þá er lagt kapp á að tæki sé gert útkallshæft strax og það kemur í hús. Einbíla sveit má ekki við að vera bíllaus lengi, gefur augaleið.

    Það væri gaman hinsvegar að fá fréttir af því hver örlög bílsins verða og hversu fljótir þeir verða að gera sig útkallshæfa aftur, með stórum jeppa.

    Benni. Það eru þónokkrar björgunarsveitir búnar snjóbílum sem eiga meira sameiginlegt með troðara heldur en farartæki með stórri tönn og hrikalegum beltum og eru þannig einskonar "vetrar jarðýtur".

    Kv Jónsi

    http://www.123.is/bjsv.ingunn/





    02.03.2009 at 20:30 #642224
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Jóhann, og takk fyrir síðast.

    kipptu blásaranum úr sambandi og prófaðu nýtt öryggi. Ef það springur er nokkuð víst að mótorinn er í lagi og þannig geturðu líka prófað mótstöðurnar.

    Helkalt skot mitt út í hafsauga myndi beinast á mótorinn. Ég hef 2 fundið svona bilanir en hvorug í Musso. Í annað skiptið lak vatn niður í mótorinn og hann var ekkert hress með það og í hinum hljóp kolunum kapp í kinn og tóku á rás einhvert sem þau áttu hreint ekkert erindi til. Í þeim mótor kviknaði í ef mig misminnir ekki.

    Kv Jón Garðar

    P.s. væri ekki miklu heppilegra að gera Rocky ferðbúinn heldur en Mússó???





    21.02.2009 at 00:18 #641556
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Einar, ég held að hausinn á þér sé eingöngu statíf fyrir eyrun.

    Svei mér þá!

    Heimsmarkaðsverð á áli segir ekki nema hálfa sögu um hvort álver á íslandi loki eða ekki. Það verður aftur þörf á áli í heiminum og þá þokast verðið upp aftur. flest fyrirtæki í heiminum þurfa að þola slíkt núna.

    Heimsmarkaðsverð á íslenskum þorski t.d. fellur líka en þú básúnar ekki að við ættum að slökkva á fiskiðnaðinum. Skrýtið. Líklega finnurðu ekki svona fallegt línurit á netinu um það.

    Kv Jón Garðar

    P.s. hættu svo þessu bulli um að útrýma álverum, það er u.þ.b. 10.000 manns á íslandi sem vinnur í þjónustu við álver á einn eða annan hátt og vill gjarnan halda í vinnuna.





    19.02.2009 at 23:26 #641438
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Bíll!

    Kv Jónsi





    17.02.2009 at 18:25 #640934
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Patrol er frekar illa við gormahækkun nema að framstýfurnar séu síkkaðar líka. Ef ég skil dæmið rétt er original spindilhalli lítill og verður nánast enginn við þessa hækkun. Ef bíllinn er þegar hækkaður um 4 cm ætti það að duga fyrir 35" dekk, minn er hækkaður um innan við 10 og er á 38" dekkjum. Eina hækkunin á honum eru landcruisergormar að framan og klossar að aftan en allt annað var síkkað með, framstýfufestingarnar, balancestangarendar og demparafestingar..

    Það getur ekki verið dýrt að láta síkka framstýfufestingarnar á verkstæði og láta lengja í dempörunum í leiðinni. S’iðan bara að passa uppá bremsuslöngur og hleðslujafnarann að aftan.

    Ég notaði jeppa á 35" dekkjum á 8,5" breiðum felgum án vandræða en hann breyttist ótrúlega í dugnaði þegar ég skipti á 13" felgur og viti menn ég affelgaði aldrei.

    Kv Jónsi





    12.02.2009 at 23:01 #640800
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég þori ekki að setja K&N loftsíu í pattann minn og ástæðan er ekki flókin

    Loftsíur eiga það hlutverk að sía óhreinindi úr loftinu sem vélin notar við bruna og framleiðandi velur síu með ákveðnar fosendur. xx% af kornum sem eru YY míkrómetrar eða stærri.

    Ef þú finnur síu sem hleypir meira af lofti í gegnum sig þá hleypir hún líka meira af óhreinindum og það fer illa með túrbínuna og vélina.

    Hugsaðu um þetta hárfína ryk sem þyrlast upp á sumarrúntinum á hálendinu, það þarf pottþétta síu til að ná því úr loftinu.

    Kv Jón Garðar





    07.02.2009 at 12:20 #640304
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég held að Patrol hásingarnar séu allavega nógu sterkar fyrir Patrol á 44" dekkjum og eru líklega nær D60 í styrk. Það eru 9,5" drif í Patrol kögglum bæði framan og aftan en eitthvað lítillega stærra að aftan í Patrol með 3.l vélinni.

    Gallar Patrolhásinga eru hjólalegurnar að framan en eittvhvað hafa menn verið að dúttla við að græja nýjann og sterkari legubúnað. Hinn gallinn við Patrolhásingar vs Dana er verðið á vara og aukahlutum í þær. Þú þarft að leggja út fáránlegar fjárhæðir til að kaupa í Patrolinn t.d. hlutföll, spindillegur o.s.frv.

    Kv, Jón Garðar





    30.01.2009 at 10:54 #639280
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Ertu búinn að prófa K2 á Akureyri?

    Kv Jónsi





    29.01.2009 at 23:09 #639250
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Mér dettur eitt asnalegt í hug sem væri þess virði að prófa. Þjöppumælar, eins og öll önnur áhöld geta bilað og það gæti orsakað vitlausa mælingu. Láttu annan aðila þjöppumæla fyrir þig til að vera viss. Minnir að í Hynes repair manual er notast við þessa olíuaðferð en það er til að bilanagreina. Þá var sullað 2-3 skvettum úr olíukönnu og mælt strax á eftir. Ef mælingin kemur betur út eru góðar líkur á að stimpilhringirnir séu lélegir. Þetta er reyndar ætlað á bensínvél en ég get ekki skilið af hverju mætti ekkki prófa á díesel líka. Nokkur á móti?

    Annars átti ég svona Navöru fyrir doltið síðan sem fór eftir eina jeppaferð að láta svona eins og asni, náði ekki að snúast nema stundum uppfyrir 3000 sn/pr min og alveg grútmáttlaus (var svosum engin keppniskerra fyrir). Þá var pínulítil vírnetshráolíusía stífluð inní olíuverkinu. Það var alveg mekanískt. Sían var á bólakafi lengst ofaní verkinu undir skrúfu á því ofaná aftarlega. Sían var ca 12-16mm þvermál og smellpassaði í gatið.

    Kv Jónsi





    30.12.2008 at 11:36 #635556
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Þetta er bráðsniðugt, umræðan fer í gang árlega og alltaf um svipað leyti. Skrýtnast við þetta finnst mér þó að einn og einn þráast við á svona heimskulegum forsendum eins og "ég á ekki jeppa", "ég er aldrei á sjó"!

    Þessu fólki er hollast að hugsa um það næst þegar það hvessir rækilega og þakið byrjar að losna, situr fast í snjó á Miklubrautinni, veit af vinum og ættingjum á jarðskjálftasvæðum, á snjóflóðasvæðum eða villt á rjúpnaveiðum á fjöllum, hvernig hlutirnir væru ef ekki væru til björgunarsveitir.

    Kv Jón Garðar





    30.12.2008 at 10:39 #635730
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég skil ekki! Af hverju er þetta "skattur á þá sem minnst eiga"? Hvar stendur að ég vilji að sektin verði hækkuð og að ég sé bara hress með hana.

    Ég geri mér fulla grein fyrir því að á sömu götum og börnin mín labba eftir aka bílar sem fá ekki lögbundna skoðun vegna þess að eigendur þeirra vita að bíllinn er ekki í lagi. Ég er ekki hress með það.

    Þessi sekt á eftir að stórfækka óskoðuðum bílum í umferðinni og það er ljómandi gott.

    Þetta með að vera skattlagning á þá sem minnst eiga er bara fáránlegt að segja því að allir, alveg óháð tekjum verða sektaðir ef þeir mæta ekki með bílinn í skoðun á tilsettum tíma. Var það ekki þannig þegar Bifreiðaeftirlit ríkisins sinnti þessu að skoðunargjaldið hækkaði um einn eða tvo þúsundkalla ef bílarnir voru ekki skoðaðir á tilsetum tíma. Minnir það.

    Kv Jón Garðar





    29.12.2008 at 15:22 #635716
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst menn velta sér uppúr undarlegum hlutum. Í mínum augum er þetta sekt en ekki gjald og ef maður fer með bílinn í skoðun á tilsettum tíma þá verður maður ekki sektaður. Aftasti stafurinn í bílnúmerinu er skoðunarmánuðurinn en þú mátt fara minnir mig hálfu ári fyrr og tveim mánuðum seinna. Ef þú dregur það lengur ertu einfaldlega sektaður.

    Ég skil ekki af hverju menn eru að velta sér uppúr því hvernig lögin geta tekið gildi og hvenær. Eru menn að reyna að sleppa við það að fara í skoðun með bílana og keyra um á óskoðuðum bílum?

    Maður spyr sig.

    Kv Jón Gaðar





    19.12.2008 at 10:01 #634960
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    NMT kerfið er ekki eins mikið og gott öryggiskerfi og það var. Það er búið að ala okkur óafvitandi á að NMT detti með reglulegu millibili út og að sambandið sé lélegt nokkuð víða. Þetta er afturför vegna þess að NMT kerfið var býsna gott landsdekkandi kerfi.

    Mér fannst Jóhann halda því fram í sínu svari að það væri óeðlilegt að Tetra dytti fyrr út en NMT en það er hið eðlilegasta mál. Tetra er drasl sem verður aldrei nýtt sem landsdekkandi fjarskiptakerfi fyrir almenning. Hinsvegar á þessi gátta-bull alveg að virka en systemið er svo flókið til samanburðar við önnur kerfi að þar gætu mannfólkið staðið tækninni fyrir dyrum. Jafnvel björgunarmenn.

    NMT síminn minn er búinn að vera ónýtur í nokkur ár og ég ætla ekki að kaupa nýjann. Á meðan NMT kerfið verður rekið get ég verið öruggur með að ekkert annnað kerfi verði landsdekkandi og þess vegna myndi ég kjósa með því að kerfið verði aflagt hið fyrsta.

    GSM kerfið er í dag að verða stabílla og öruggara á fjölsóttum ferðamannastöðum. Ég keyri mikið um þjóðvegina hér eystra og sé að gloppum er að fækka mikið en það verður alltaf stórir auðir blettir á hálendinu utan fjölsóttustu leiðanna. GSM kerfið er að verða meira dekkandi en NMT og það er ekki bara vegna uppsetninga senda í GSM kerfinu heldur að verulegu leyti vegna þess að NMT sendarnir eru að týna tölunni.

    Kv Jón Garðar





    05.12.2008 at 11:46 #634222
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Verst finnst mér þó að í skjóli ástandsins eru olíufélögin að mokgræða á díselolíunni sem aldrei fyrr. Bensínið hríðfellur og félögin fá pínu skjól af því en halda olíunni í hæstu hæðum. Finnur engin annar en ég óþef af því?

    Kv Jónsi





    13.11.2008 at 23:36 #632732
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég keypti mér veiðifatapakka fyrir tæpum 3 árum síðan og síðan gönguskó fyrir ári.

    Pakkinn samanstóð af þunnum og þykkum undirfötum úr gerfiefni, Bómullarskyrta, bómullar,-gerfiefna peysa þykk, hnallþykk flíspeysa, sokkapar og þunnur og þykkur heilgalli í 2 hlutum hvor. í viðbót fylgdi veiðivesti sem er appelsínugult að innan og grænt að utan og 2 húfur. Ég fékk mér byssubakpoka með og greiddi fyrir þetta innan við 45.000kr komið á Egilsstaði.

    Kostirnir við fötin eru margir enda um margar flíkur að ræða og þesi föt hafa virkað afbragðsvel á veiðum þar sem þau eru í felulitum og heyrist varla múkk í þeim.

    Galli við fötin sem ég keypti er hinsvegar sá að engin flík er almennilega vatnsheld en ef manni vantar vatnsheld föt eru 66°norður regnfötin langbest.

    Skórnirn eru ekki miklir gönguskór en afburða "slark" skór. Mjög vel vatnsheldir og háir upp. Henta sérlega vel ef ganga þarf lengi í mýri eða krapa.

    Á heildina litið held ég að ég hafi gert ljómandi fín kaup í þessum fötum og þá sérstaklega með tilliti til verðsins en eitt slær þó öllu við, og það er þjónustan. Hvergi annars staðar hef ég kynnst meiri og betri þjónustulipurð.

    Kv Jónsi





    10.11.2008 at 23:20 #632540
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Kjartan.

    Þú ferð nákvæmlega allt á 35" patrol, ef á annað borð er færi fyrir hann.

    Taktu bara með þér gps og vhf og farðu í félagi við aðra sem gætu boðið þér far……

    Kv Jónsi

    P.s. prófaðu bara þannig sérðu hvað hann drífur.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 344 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.