Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.12.2009 at 13:07 #671304
Sælir
Ég lét setja 3" púst í pattann minn og mér fannst bíllinn fyrst og fremst breytast þannig að túrbínan var heldur fyrr inn. Ekki nóg en munaði samt. Ég lagði upp með það að auka þrýstinginn á túrbínunni og hækka á olíuverkinu en ég held (þó að ég hafi hvorki mælingar né samanburð) að þær breytingar hafi skilað sér betur út af svera pústinu. S.s. aukaloftið sem ég bætti við skilaði sér a.m.k. á sama hraða út eða hraðar og ölli ekki meiri mótstöðu fyrir aftan túrbínuna heldur en var áður. Þegar túrbínan var komin í 14-15 pund og olían eins og ég þorði (var með afgashitamæli) var 2,8 mótorinn að þrælvirka. Millikælirinn komst ekki lengra en í bílsskúrinn.
Ég vann þessar breytingar í skömmtum en eftir að þeim "lauk" gat ég notað bílinn í tæpt ár þegar mótorinn fór svo illa á stangarlegu að mér þótti ekki ástæða til að eyða meiri peningum í hana.
Kv Jón Garðar
12.12.2009 at 15:06 #671150Sæll
Er ekki súrefnisskynjarinn í þessum bílum viðkvæmur. Fokdýr en væri athugandi að fá svoleiðis lánaðann úr öðrum bíl og prófa. Ef "check engine" ljósið logar hlýtur stýrivélin í bílnum að vita eitthvað og geta sagt eitthvað um hvað er í gangi.
Af hverju fór heddið? Ég setti 3 raða vatnskassa í pattan minn og hitavandamál sem fyrir voru breyttust ekki neitt. Það passar við lýsingu manns sem ég talaði við um daginn sem sagði að þegar hedd fara í patrol er pottþétt viftan orðin léleg.
Ef ekkert er athugað með viftuna eftir t.d. 150.000 km sem flest hedd endast eru góðar líkur á að heddið fari aftur. Kíktu á það.
Kv Jón Garðar
06.12.2009 at 01:59 #670164Sælir
Jú, auðvitað er mellings maus að vera með bæði 12 og 24V kerfi en í mínu tilfelli er málið það að ég er að setja 6.2 í Patrol og fékk mótor með 24V starti og þessum 2 fljótandi altarnetorum. Mér finnst það bara áhugavert að vera með 24V start sérstaklega af því að það er miklu öflugra start.
Hinn kosturinn sem ég sé er sá að ég get verið með 2 stk 100 ampera altarnetora og ég þykist vita að þeir ættu að geta unnið fyrir kaupinu sínu. Maður sér fyrir sér að nota t.d. 24V spil út í það óendanlega, bíllinn hafi einfaldlega undan.
Ef þetta gengur ekki get ég einfaldlega keypt mér 12V startara og smellt honum við.
Þessi vísindi eru svosum ekki ný af nálinni, Benz kálfarnir gömlu voru með 12/24V startklukku sem raðtengdi geymana í starti. Virðist vera úr skíragulli ef maður býðst til að kaupa svoleiðis. Þessi 12/24V útfærsla er ekki úr hausnum á mér heldur því að mér sýnist að navy útgáfan af chevy pikkup allavega sé nákvæmlega svona eins og ég ætla mér, enda er mótorinn minn ættaður þaðan. Spennubreytishugmyndina gæti ég tileinkað sjálfum mér en ég efast ekki um að öðrum hafi dottið þetta í hug. Þá er öllum stóru notendunum skipt út fyrir 24V s.s. kastaraperum, spili o.s.frv. og 24/12V spennir notaður á rafkerfi bílsins. Það þarf nefninlega ekki að vera svo mikil notkun, afturrúðuhitarinn er þá líklega orðinn akkilesarhællinn, annar búnaður tekur svo lítið.
Bara gaman, Jón Garðar
05.12.2009 at 11:18 #670150Sæll
Ef hverju færðu þér ekki bara 24V altarnetor og lætur hann hlaða tvöfalt geymasett. Síðan kaupirðu stóran spennubreyti 24/12 og hleypir á bílinn. Þá skiptirðu öllum stóru notendunum út s.s. ökusljósum, aukaljósum o.s.frv. og keyrir aðalkerfi bílsins á spennubreyti.
Það eru til nokkur trix er eru lítið prófuð, bara gera eitthvað en hafðu bara nóg af spennumælum til að sjá til þess að ekkert óeðlilegt sé að gerast.
Ég er að eiga við svipaðan hlut nema ég er með 2 fljótandi 12V altarnetora og ætla að láta þá hlaða sinnhvorn geyminn sem raðtengjast við start. Á að virka en ég er ekkert alltof bjartsýnn.
Kv Jón Garðar
02.12.2009 at 16:24 #669696Er ekki mekanísk olíudæla á hliðinni á vélinni. Gætir verið biluð. Það er hægt að fá rándýrar olíudælur á ljónsstöðum en þær virka bærilega skilst mér
Kv Jónsi
27.11.2009 at 15:34 #668974…hvernig reddar rainx því að hann sé ekki á vetrardekkjum????
24.11.2009 at 20:53 #668232Daginn
Ég myndi ekki telja það nóg að fá einn lykil bættann. Þetta er lykill af bíl og ef einhver óheiðarlegur er með hann undir höndum getur verið að þú eigir ekki bíl nema í nokkra daga í viðbót. Bílasali sem týnir lykli sem bæði getur hleypt handhafa týnda lykilsins inn í bílinn og gangsett hann hlýtur að vera ábyrgur fyrir því að þú fáir nýtt sett bæði af lyklum og sílindrum og að sjálfsögðu við svissinn.
Annars hélt ég að notendur vefsins væru sammála að ata ekki einstaka fyrirtæki aur. Sá siður að nota spjall til að drulla yfir einstaka fyrirtæki er lágkúruleg aðferð sem auðvelt er að misnota til þess að kollsteypa fyrirtækjum sem ekki eiga það skilið.
Mér finnst eðlilegt og auðsótt að leita ráða á spjalli vegna viðskipta sem ekki eru að fara sinn rétta veg en þau viðskipti eru þeirra sem eiga þau. Hverskyns fyrirtæki sem ekki sýnir þjónustulund keyrir sig út af markaðnum sjálfir og þurfa ekki aðstoð spjallsíðna eins og þessara. Það má nefninlega ekki gleyma því að það eru 2 hliðar á hverju máli.
Bílasali sem ég átti viðskipti við fyrir löngu síðan taldi sig ekki bera ábyrgð á skemmdum sem unnar voru á bílnum á plani sölunnar en í þessu tilfelli myndi ég segja að hann hafi sjálfur valdið þér tjóni, miklu tjóni. Það að fá einn lykil endurgreiddann eru ekki nægar skaðabætur nema það sé pottþétt að handhafi (ef einhver er) geti ekki notað hann hvorki til að opna bílinn né gangsett hann.
Kv Jón Garðar
16.11.2009 at 20:04 #666738er ekki bara besta mál að maður fái ógeð og klígju á jeppamennskunni áður en við verðum tjóðruð inni í ESB og jeppar bannaðir á stærri dekkjum en 31"?
Maður spyr sig.
Kv Jónsi.
P.s. frændi, Sjálfstæðisflokkurinn hefði allavega ekki selt mótstöðuna við esb eins og Vinstri grænir gerðu og það eru reyndar til aðrar leiðir eins og SF hefur bent á. T.d. leggjast ekki flatir á móti allri fjárfestingu erlendra aðila. Er svo slæmt að fá útlendinga til að smíða verksmiðjur á Íslandi sem skila bæði fólki vinnu og ríkinu sköttum bæði sem tekjuskattur einstaklinga og fyrirtækja. Hlýtur að vera hryllingur. Forvitnilegt að vita hvað þetta "ýmislegt annað er", kannski að verða kominn tími til að opinbera það.
06.11.2009 at 10:50 #664070Sælir
Flækjustigið er greinilega komið langt út fyrir öll velsæmismörk og mig langar til að leiðrétta einn hlut sem virðist vera ríkjandi hugsunarháttur sérstaklega vélskólagengnum mönnum sem eru búnir að sitja í ótal rafmagnsfræðitímum. Ágúst Úlfar, ætli þú sért ekki einn þeirra? Til að það sé alveg á hreinu þá er þetta allavega hlutur sem ég hef rætt við ungann vélskólanema og hann var fastur í hugsun sem var ekki rétt og mér fannst ég lesa það sama úr texta Ágústar.
Málið er að með því að raðtengja viðnám við notenda þá er verið að lækka spennuna yfir notandann. Vitleysan er sú að viðnámið tekur ekki orkuna til sín nema að mjög litlu leyti. Heildarspennan (frá spennugjafa) deilist niður á mótstöðuna og notandann miðað við hvaða álagi þeir valda. Með því að bæta viðnáminu við eykst heildarviðnám rásarinnar og hún tekur minni straum. S.s. mótstaðan veldur minna álagi.
Það er enginn að fara að fella spennuna í bílnum sínum með viðnámi. Þessi venjulega mótstaða sem er ca 4mm að lengd og 2 í þvermál er 0.25W sem þýðir að hún þolir ekki nema kvartwatt. Gæti höndlað Hella relay alls ekki meir.
Ég er afskaplega neikvæður á allar töfralausnir og það er ekkert sérstaklega gaman að kaupa rafgeyma eins og staðan er á heimsmörkuðum.
Samt ætla ég að gera smá tilraun á bílnum mínum. Ég er með 6.2 mótor með 24V starti og 12V glóðarkertum. Kerti í 12V bílnum eru 9.6V minnir mig en ég held að 24V séu of mikið fyrir 12V kertin. Restin af vélinni er 12V og bíllinn er 12V sömuleiðis. Það eru 2 12V altarnetorar sem eru fljótandi.
Draumastaðan er s.s. 24V á startið, ca 18V á kertin og 12V á restina. Ef vel tekst til færi ég kastarana o.s.frv. á 24V og kaupi 24V spil og 230V inverter.
Haldiði að þetta gangi?
Ég ætla ekki að nota neina Benz klukku eða neinn aukabúnað annan en fáein relay og hugsanlega einn tímaliða.
Kv Jónsi
31.10.2009 at 23:26 #664050Sælir
Hættiði þessu bulli, það er engin töfralausn til menn verða bara að sætta sig við það. Til að ná 12V út af 24V rafkefi er notaður spennubreytir 12/24V DC. Það væri mögulega þorandi að taka fáein milliamper, einhvern stýrissstraum, á milli geymanna en ekkert annað. Með eða án díðóða. Væri reyndar gaman að sjá hvernig meiningin er að tengja díðóðuna til þess að ganga úr skugga um að geymarnir hlaðast og afhlaðast nákvæmlega samstíga á meðan það er mismunandi álag. Til að kóróna pakkann er bráðnausynlegt að nota eins geyma og hafa þá jafngamla og jafnmikið notaða. Mismikið innra viðnám geyma valda mishleðslu og sýður annanhvorn.
Kv Jónsi
29.10.2009 at 12:22 #664036Sælir
ef maður er með 12V kastara á 24V rafkerfi þá skiptir maður um perur og setur 24V í staðin, þá er kastarinn orðinn 24V.
Mörg Gps tæki þola spennu frá 6-24 og jafnvel 32V svo að það ætti ekki að verða vandamál.
Miðbæjarradíó selur þér spennubreyti 24-12V sem dugar fyrir útvarp, VHF, síma, Tetra og hverju sem er sem þú gætir þurft á að halda.
Þú ættir ekki að nota 12V á kastarana því að þá er bara meiri straumur í leiðurunum og meira spennufall og þ.a.l. minna ljós.
12V má alls ekki taka á milli geymana. Þá minnkar innri mótstaðan og þá aflþörfin í öðrum meira en í hinum og á smá tíma sýður hann og skemmist. Það finnst engum gaman að kaupa rafgeymi í dag eins og ástandið er.
Þú þarft að læra að njóta þess að hafa 24V raferfi, það er mun áreiðanlegra og áreynsluminna heldur en 12V fyrir þá notkun sem venjulegur jeppi þarf.
Kv Jónsi
23.10.2009 at 14:20 #207641Daginn
Ég er í smá hremmingum og vantar upplýsingar frá einhverjum sem veit alla hluti um GM kúplingar og þá sérstaklega pressur.
Málið er að ég er að mixa saman gm mótor og stóra patrol gírkassann og er með sérsmíðað kúplingshús og í leiðbeiningunum með því er tekið fram að kúplingin eigi að vera 11″. Ég náttúrulega fann bara 12″ kúplingu og núna þegar allt draslið er komið saman fríkúplar draslið. Fjaðrakransinn sem legan á að ýta á stendur asnalega langt út úr pressunni og mér datt í hug hvort að gæti verið að 11″ kúplingin sé ekki með svona útstæðan krans og þess vegna séu þeir að mæla með 11″ pressu.
Ef svo er þá er spurning hvort einhver geti sselt mér svona 11″ pressu.
Kv Jón Garðar
27.09.2009 at 11:12 #656350Daginn
Fjórhjóladrifsskattur er miklu meira heldur en landbyggðaskattur, hann er skattur á öryggi. Sykurskattinum er ætlað að draga úr áhuga fólks á að kaupa vörurnar sem eru skattlagðar og það kæmi mér á óvart að jafnvel þessi ríkisstjórn dragi úr áhuga fólks á öryggismálum.
Kv Jónsi
16.09.2009 at 23:18 #657682Sæll
Það er aldrei að vita hvað þessum skoðunarköllum finnst en ég myndi segja að gröfin 2 á síðunni sem linkurinn bendir á er af dreifiljósum. Ég sé reyndar ekki fjarlægðartölurnar en ef þetta væru kastarar ætti grafið að vera lína beint út frá ljósinu. Sirius er líka með ljós sem eru þannig að það er beinn geisli og línur til hliðar en skoðunarkarlarnir í Fellabæ sögðu mér að þeir myndu meta þá sem kastara (sem mér fannst ekki endilega rétt).
Ef bíllinn hjá þér er ekki breytingaskoðaður má hann skv reglugerð um búnað og gerð ökutækja eingöngu bera 1 par af þokuljósum tengd þannig að þau logi einungis með parkljósum og í gegnum sérrofa með gaumljósi. Það að nota parkljósatenginguna tryggir það að ljósin logi aftaná bílnum. Að sjálfsögðu loga parkljósin alltaf bæði með háa og lága geislanum og stök.
Kv Jónsi
15.09.2009 at 12:34 #657440Sæll
Mér finnst þetta asskoti líkt Nissan Navara (pikkup) húsi. Keimlíkt því sem ég átti. Pallurinn er fáeinum cm lengri en hilux pallur.
Kv Jónsi
25.08.2009 at 21:44 #206042Sælir
Ég var að velta fyrir mér þessu fyrirbæri þegar bílum er breytt og fá ekki að halda upphaflegum farþegafjölda vegna nýrrar eiginþyngdar vs leyfðar heildarþyngdar.
Ég á Patrol sem var breytt ca 95 hjá Bílabúð Benna að ég held og ný eiginþyngd bílins á 36″ dekkjum – leyfð heildarþyngd er 200 kg frekar en 280, breytir ekki öllu. Málið er að ef hann fer í einhverja breytingaskoðun í dag þó að ég setji bílinn eingöngu á loftpúða og held nákvæmlega sömu kílóatölu má ég ekki bera nema 3 farþega + ökumann en núna er bíllinn skráðuð fyrir 6+ökumann.
Ég var að velta fyrir mér hvort þetta sé ekki mistúlkun á lögunum um hlutfall eiginþyngdar, leyfðar heildarþyngdar og farþegafjölda. Ég væri alveg tilbúinn til að sjá þessa reglu á prenti en finn hvergi og reyndar væri gaman að fá afrit af skráningarskírteini patrols á original dekkjum til að átta sig betur á þessu.
Mín kenning gæti verið sú að framleiðandi gefi upp burðargetu umfram farþega en íslensk skráning geri ráð fyrir farþegunum í burðargetu.
Reglan sem allavega Frumherji í Fellabæ gaf mér upp var að ég ætti að draga 50 frá burðargetunni og síðan deila með 68 til að fá farþegafjöldann. S.s. þeir gera ráð fyrir að ég sé 50 kg og hver farþegi 68 kg. Þessar tölur eru náttúrulega algerlega úti á túni. Ég er þyngri en 50 kg en krakkarnir sem langoftast verma aftursætin eru tölvert innan við 50kg. Ef ég sný formúlunni við fæ ég örlítið hagstæðari tölu en ekki líkt því nóg samt.
Spurningin er hvort Pattinn hefði yfirhöfuð átt að fá 7 manna skráningu til að byrja með og hvort nýjir patrolar, óbreyttir séu á svoleiðis svæði, þetta hlýtur jú að eiga við alla bíla, breytta sem óbreytta.
Pattinn er skráður 2500 kg og er viktaður og skráður á 36″ dekkjum. Ég átta mig ekki á því hver þyngdarmunurinn er á 32″ og 36″ dekkjum, ég veit ekki á hvernig felgum hann var viktaður á en ég geri ráð fyrir því miðað við að þyngdartalan er há að hann hafi verið með tankinn fullan af olíu eins og lög kveða á um. Hann er ekkert meira breyttur sem ætti að þyngja hann mikið en með því að nota formúluna sem ég fékk hjá Frumherja þyrfti hann að bera 458kg en með því að snúa henni við (sem ég held að sé hin rétta formúla) fæ ég 368 kg. Miðað við þessar tölur hefur Nissan gamli ekki gert ráð fyrir það neinn farþeganna haldi svo mikið sem á kókflösku og geti varla verið mál að pissa. Þetta passar engan veginn.
Ef það er eitthvað vit í því sem ég held fram ættu farþegarnir að vera 368 kg og í viðbót ætti bíllinn að bera ca 300 kg. Heildarþunginn væri þá 2400 (áætlað fyrir breytingu) + 368 + 300 = 3068 kg. Ef ég man rétt þá er leyfð heildarþyngd pikkupana sem er með daprara bremsukerfi að aftan og mun veikari grind 2800 kg.
Það er ljóst að þessi vinnuregla er eitthvað sem hefur ekki viðgengist á þessu árabili 1995 vegna þess að þá væri bíllinn minn bara 4 manna og þá velti ég fyrir mér hvort þetta sé nýleg regla eða hvort skoðunarstöðvarnar hafi fundið uppá þessu sjálfir. Hvar ætli þessar reglugerðir sé að finna. Er kannski málið að þó að bíllinn sé kominn á damp með eiginþyngd að það komi skráðum farþegafjölda ekkert við. Bara að maður aki bílnum ekki of þungum, það er sannlega bannað og skráð í lög.
Kv Jón Garðar
P.s. þeir verða allavega hissa skoðunarmennirnir þegar ég bið um breytingaskoðun á 44″ dekkjum og með 6.2 Gm mótor og stórann gírkassa ef bíllinn verður 200 kg léttari en fyrri skráningi er……
22.08.2009 at 11:22 #654944Sælir
Ég hef aldrei verið hrifinn af því sem Kolbrún Halldórsdóttir leggur til málanna en bara af því að lesa pistilinn á mbl.is sem hlekkurinn benti á finnst mér eins og Ferðafélagið 4×4 er að sofna á verðinum í sambandi við kynningar á utanvegaakstri og umgengni við slóða sem eru til staðar.
Félagið má taka þá ábyrgð að hamra betur á félagsmönnum og landsmönnum öllum að ef bíllinn sekkur í landið á slóða eða utan hans (þá meina ég að vetrrarlagi þegar lagt er á snæviþakin fjöll og menn enda á skallablettum) þarf að bregðst við. Snúa við, velja aðra leið eða eitthvað í þeim dúr.
Það er okkar að minna á að utanvegaakstur er ekki bundið við einhvern lagaramma heldur þarf að höfða til skynsemi fólksin sem er að nota slóðakerfið. Slóðarnir eru misjafnir eins og þeir eru margir og sumir hverjir verða varla færi allan ársins hring. Með því að keyra slóðana eru ökumenn að eyðileggja þá og þessa skynsemi þurfum við, Ferðafélagið 4×4 að rækta í félagsmönnum og landsmönnum öllum.
Kv Jón Garðar
26.06.2009 at 22:30 #650438Sælir
Ég er einhvernveginn þannig týpa að hestaflatölur eru ekki allt fyrir mér. Ég geri mér nokkra grein fyrir því að ég er ekki að bjarga heiminum með því að troða 6.2 GM í Pattann, sem er reyndar eins og einhver sagði alveg ágætur bíll. Málið er í reyndinni frekar einfalt en þannig var að Patrol 2.8 TD, orginalinn, gaf upp öndina um daginn. Ég var búinn fyrir þónokkru síðan að ákveða að leggja ekki pening né vinnu í að endurbyggja vél sem er ekki nægjanlega kraftmikil fyrir þennan bíl og ekin 340.000km.
þessi kraftur er reyndar afstæður því að eftir að ég stórjók við túrbínuna og olíuverkið hefur hann verið bara alveg þokkalega sprækur, ekkert spyrnutæki en þokast bærilega áfram en það er hrikalega erfitt að þæfa eða hjakka á jeppa sem er hvorki fugl né fiskur fyrr en í 2500 snúningum. Þá datt mér ekki í hug að skipta út mótornum á meðan hann varí lagi, hann hefur þóknast mér ágætlega.
Ég nota bílinn tölvert mikið og má ekki við því að hann stoppi lengi. Svili minn sagði mér frá mótor í bílskúrnum hjá sér og sagði mér að nota hann. Það er 6.2 vélin sem er á leiðinni í bílinn.
Ég geri ráð fyrir að það verði frekar auðvelt að ganga frá vélinni ofaní bílinn þannig að vel sé og það er mikill kostur. Annar kostur er að ég fæ aflkúrfuna mikið neðar en 2.8 vélin og það hjálpar mikið bíl sem er þungur. Seinasti kosturinn sem ég sé er að 6.2 mótorinn hefur reynst mjög vel og það hentar mér líka þar sem mér leiðist að standa í eilífum viðgerðum. Ef það gengur vel að setja 4.2 patrol kassan við mótorinn er náttúrulega einfaldasta mál í heimi að koma honum fyrir, hann á bara að passa á original gírk. púðana og millikassann.
það eru líka gallar við þetta og ég sé fyrir mér að fá ekki kraftmikla vél eins og væri náttúrulega gaman, bíllinn þyngist tölvert við þetta og má tæplega við því, með því að setja gírkassa fæ ég combó sem passar ekkert alltof vel saman, þ.e. vél með tiltölulega stutt snúningssvið.Í einhverri aulabjartsýni vil ég meina að ég nái olíueyðslu tölvert niður. Það að keyra túrbódíeselvél alltaf í rauðabotni er ekki hollt fyrir budduna og ég vona að þessi gangi auðveldar undan bílnum og eyði minna. Sama bjartsýni segir mér að ódaýrari leið finn ég varla á næstunni sem er þó þetta góð.
Ég hafði svosum velt stórri bensínvel fyrir mér en ég er sjálfur meiri díesel týpa, þeir henta mér betur. Ég hefði líka getað selt flakið sem er lítið sem ekkert ryðgað og bara keypt annan en þá gæti ég lent í nákvæmlæga sömu stöðu eftir stuttan tíma.
Athyglisvert þykir mér hinsvegar, miðað við allt það sem félagsmenn 4×4 gaufa og bralla að enginn skuli gefa sig fram sem hafi prófað þetta. Þarna er prýðisvél og lipur og góður gírkassi en engum virðist hafa hugnast þetta. Stórundarlegt.
Takk fyrir, Jón Garðar
25.06.2009 at 22:34 #650510daginn.
Miðað við þessar dagsetningar Óli, er þá ekki 4×4 sumarhátíðin sem haldin var til sælla minninga á Borgafirði Eystri upphafið á "Bræðslunni", og ég og Jón Bjarki fyrstu músíkantarnir sem söngluðu einhverju kennderíisröfli þar á bæ.
Nei bara svona að gamni!!!
Kv Jónsi
24.06.2009 at 21:29 #650430Sæll Heiðar.
þekkirðu einhvern sem hefur gert eitthvað í þessum dúr? Ég held að þetta sé bæði vel hægt og ekki svo galið en það væri gott að heyra hvernig menn hafa borið sig að þessu, s.s. samsetningunni sem slíkri, kúplingu o.s.frv.
Kv Jónsi
-
AuthorReplies