FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 344 total)
← 1 … 4 5 6 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 13.07.2010 at 16:02 #698344
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Núna þegar tunnan er komin til byggða er loksins tímabært finnst mér að velta fyrir sér hver á tunnuskrattann.

    "pottþétt björgunasveitabjálfarnir, örugglega míla eða vodafone" ég held að menn ættu að vera svolítið hófsamir í yfirlýsingum því að það hlýtur það sama að ganga yfir alla, að menn séu saklausir unz sekt er sönnuð.

    "þessi tunna getur ekki verið full, þá væri hún komin á hliðina" var sagt í þessum eða einhverjum öðrum þræði og annað keimlíkt sem er allt í lagi að minna menn á og sýna þeim að þeir eru kannski ekki svo sannspáir eða svörin þeirra svo gáfuleg til þess að menn ættu að fara út í að agnúast út í aðila sem voru á svæðinu til þess jafnvel að aðstoða eða forða slysum.

    Eins og Skúli benti réttilega á er heldur ekki eins og þetta eldgos hafi verið upphaf af umferð á svæðinu. Það eitt og sér að olían sé lituð gerir ekki jeppamenn stikkfrí, þeð eru jeppamenn að nota litaða olíu og frekar ólíklegt að þeir myndu viðurkenna að eiga gripinn.

    Ég er hinsvegar forvitinn að vita hvort menn hafi gengið úr skugga um hvort tunnan sé full af olíu eða kannski hálf af olíu og hálf af vatni. Við vitum alveg hvert vatnið fer í svona tunnu og hvert olían fer svo að mig langað að vita hversu mikið, ef eitthvað, vatn var í tunnunni og hve mikil aska.

    Það er ekkert heldur sem útilokar að tilvist tunnunnar sé á ábyrgð eins og að hún sé opin sé ábyrgð annars.

    Kv Jón Garðar





    06.07.2010 at 10:06 #697584
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég væri hlyntur því ef félagsmenn gætu lagt eitthvað í púkkið því að ef einhverjir vita hvað svona rúntur kostar þá eru það félagsmenn 4×4. Ef menn vilja ekki gefa upp bankanúmer hér er kannski spurning hvort félagið vilji verða milliliður í þessu.

    Mér þætti reyndar eðlilegast að félagið sjálft legði til allan beinan kostnað við svona hluti. Þetta er hagsmunamál félagsins og skiptir miklu máli til afspurnar.

    Óháð peningum og slíkum pælingum er sannlega ástæða til að þakka leiðangursmönnum fyrir að láta sig þetta varða og leggja til viljann, tíma og tækjabúnað til að ljúka málinu og forðast það að þetta nýja landslag sé skírt með hráolíu. óvígðri í þokkabót.

    Takk drengir, þið eigið hug minn allann.

    Kv Jón Garðar





    04.07.2010 at 16:21 #697544
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Mikið finnst mér það ánægjulegt að einhver sem á heimangengt sé að planleggja björgunarleiðangur til að sækja keraldið. Tilfellið er nefninlega að tunnan hlýtur að vera tilkomin vegna einhvers sem ekur tæki sem hefur átt að ganga fyrir olíunni.

    Fxf félagi eða ekki er það okkar hlutverk og ábyrgð að gera svona hluti og það brosandi út að eyrum. Þetta kemur lokunum á fjallaslóðum ekkert við, Páli Ásgeiri ekki heldur nema að því leyti að tunnan varð á vegi hans og lét vita af henni. Ég ætla að vona að hver sem lætur hafa sig út í það að nálgast tunnuna geri það eingöngu fyrir ánæguna af því að forða olíunni frá fósturjörðinni.

    Gísli Þór, að mínu mati er tunnan ekki aðalmáli heldur innihald hennar. Ég vil ekki að 206 lítrar af hráolíu leki þarna til jarðar. Mér finnst a ðá meðan Ferðaklúbburinn 4×4 telur sig vera að stuðla að náttúruvernd verði félagsmenn að láta sig slíka hluti varða.

    Eftir að tunnan er komin til byggða og tryggt að umhverfistjón hljótist ekki að tilvist hennar geta menn gersamlega tapað sér í vangaveltum og pirringi yfir því hvers vegna hún endaði þarna í fyrsta lagi.





    03.07.2010 at 17:26 #697530
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Er í alvöru enginn hér tilbúinn til að skreppa eftir tunnuskrattanum þið viðið "take one for the team". Ætli enginn 4×4 félagi sé tilbúinn til að gera þetta viðvik án þess að velta fyrir sér kostnaði, tryggingum o.s.frv. Ég stóð í þeirri meiningu að umhverfisvernd væri hluti af markmiðum félagsins.

    Ef menn eru smeykir við að valda því að menn kenni 4×4 um tunnuna ef þeir taka hana þá er ég þeirrar skoðunar að ef við tökum hana ekki er það okkar sök. Menn hafa alla æfina til að velta fyrir sér hver setti hana þarna en á meðan hún er opin og ef það rignir er umhverfisslys í uppsiglingu.

    Kv Jón Garðar

    P.s. ég skal fara næstu helgi en mér finnst helvíti hart að á meðan 4×4 telur 6.000 manns að ég þurfi að keyra frá Egilsstöðum á Fimmvörðuháls á meðan flatlendingarnir eru að velta fyrir sér hver á að borga bensínið á bílinn sinn.





    27.06.2010 at 11:31 #695622
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég er einhvernveginn voðalegur efasemdamaður í eðli mínu þegar kemur að auglýsingum frá fjarskiptaseljendum sem sýna falleg kort af Íslandi með fjólubláum litkeim þar sem á að vera samband. Ég er búinn að vera með síma nokkur ár sem var hægt að tengja útiloftnet við sem ég gerði og fékk 6 db loftnet hjá Nesradíó.

    Árangurinn af þessu var þannig að síminn sýndi merki þar sem hann sýndi ekki neitt áður en þegar kom að því að nota símann var merkið hálfgerður draugur. Loftnetið hjálpaði símanum af og til í mishæðóttu landi og var svosum engin skömm af því að hafa það á bílnum.

    Ég fæ ekki betur séð en að Ísland sé nokkurnvegin landsdekkað bæði af GSM og Tetra en bæði kerfin eiga þann djöful að draga að vera á of hárri tíðni til að höndla mishæðir. GSM er mun skárra að því leyti.

    Þetta er nokkurnvegin það sem ég hef upplifað s.s. að mishæðótt landslag sé helsti óvinurinn og þessvegna hef ég efasemdir um að ný notkun á sömu tíðni komi ekki til með að leysa neitt. Auðvitað er ekki annað hægt en að fagna því að menn reyni nýjar leiðir. Ég verð reyndar að viðurkenna það líka að útbreiðsla GSM er alveg að verða ásættanleg á hálendinu. Það er búið að raða Tetrasendum út um allt hálendið og þeir þurfa rafmagn sem símafyrirtækin hafa nýtt sér til uppsetningar GSM senda. Það eina sem mér finnst mig vanti er smekkegur sími sem ég get sett fastann í jeppann og tengt við loftnetið og fast rafmagn.

    Kv Jón Garðar





    10.05.2010 at 18:15 #689244
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Er að auglýsa fyrir tengdó, bezt að heyra í honum. Uppl. Óskar s. 895-2356

    Kv Jón Garðar





    09.05.2010 at 18:49 #689240
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Upp





    10.04.2010 at 11:13 #689238
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Upp!





    04.04.2010 at 20:38 #211873
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Til sölu Kipor dieselrafstöð 10,5 KVA 3 fasa m rafstarti. Rafstöðin er biluð. Annar sleituhringurinn er brotinn og kolahaldan ónýt og feting undir rafalnum að aftan er brotin. Vélin er notuð ca 200 stundir og mótorinn sjálfur í toppstandi. Hún er í hljóðeinangruðum kassa (72db(A)7m skv auglýsingu).

    Vélin heitir Kipor KDE12STA3. Stærð: 1350 x 790 x 840mm. Tvö úttök f 230V einfasa.

    Uppl. Óskar s. 895-2356





    06.02.2010 at 02:25 #680736
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Þetta er athyglisvert spjall á þræði sem hófst með því að nýr spjallvefur hafi verið opnaður og á að taka við umferð þeirra sem greiða ekki félagsgjöld í ferðaklúbbinn 4×4. Sniðugast við allt þetta spjall er það hvað félagsmenn eru harðir á því að menn eigi stóra jeppa með öllum græjum. Rétt eins og ríkisstjórnin virðist vera klár á að það séu bara til fólk með himinháar skuldir, litlar skuldir og fjármagnseigendur. Mér hefur alltaf fundist það vottur um þröngsýni.

    Ég þykist vita að upptalningar Skúla og Benna séu kórréttar um það sem 4×4 hefur áorkað að undangengnu og þetta sé aðeins brotabrot af því sem félagsskapurinn hefur breytt jeppafólki til bóta.

    Ég ætla aðeins að velta félagsgjaldinu fyrir mér. Ætli ég taki það ekki fram að ég hef undanfarin ár greitt félagsgjaldið án þess að velta mikið fyrir mér hvaða afslætti ég fæ í staðin, mér finnst félagsgjöldunum mínum ágætlega varið hjá þessu félagi og sérstaklega af því að landsbyggðadeildin sem ég stunda fær sinn hluta gjaldsins. En…. Ef ég ætti ekki jeppa eða lítið breyttan, s.s. væri ekki að fara í ferðir með klúbbnum, ætti í raun litla samleið með stóru köllunum þætti mér gjaldið þá kannski dálítið hátt. Ef ég svo ætti ekki VHF stöð, eins og þorri þeirra sem áður hafa skrifað ganga að sem gefnu að menn eigi, get ég alveg sagt í hreinskilni að mér þætti félagsgjaldið svolítið hátt.

    Þessi sorgarsaga um VHF innheimtuna og hverjir nota kerfið og hverjir ekki er náttúrulega ekki þægileg til að ráða við. P&S auðsjáanlega missti valdið yfir þessu og velti ábyrgðinni allri yfir á 4×4 og gekk í raun út frá því vísu að allir 4×4 félagar eigi stöð. Það sem einhverjir hafa minnst á að láta fjarlægja rásirnar úr stöðinni sinni er náttúrulega bara brandari því að ég veit ekki betur en að það sé nóg að eiga svona amatör stöð til að hafa aðgang að öllum VHF rásum sem eru í loftinu. Væri kannski eðlilegast að tækninefndin reyndi að fá þessar stöðvar dæmdar ólöglegar með öllu.

    Annað hefur gerst að undanförnu sem hefur hjálpað hinum almenna íslenska jeppakarli í hagsmunabaráttunni er sú staðreynd hvað þessi sérstaða er orðin stór atvinnuvegur. Ég hef trú á að gegn ESB gæti það vegið dálítið þungt í ferðafrelsisbaráttu okkar og vona það innilega.

    Félagsgjaldið er í raun og veru ekkert óskaplega hátt fyrir markhóp félgasins en mínar vangaveltur snúast um hina. Lokanir á skrifaðgangi er farartálmi fyrir hluta þess hóps sem fylgist með starfinu og getur orðið til þess að einhverjir hellast algerlega úr lestinni. Mér finnst það ekki þjóna hagsmunum félgasins.

    Ég hef ekki enn komið auga á það hvernig það bætir ferðaklúbbinn 4×4 að loka þessu. Þetta minnir frekar á það þegar Stjáni Kaupfélgasstjóri harðbannaði annan umgang um túnin sem voru í eigu Kaupfélagsins bara af því að honum fannst það. Kom æpandi og gólandi ef einhver vogaði sér að sækja bolta yfir girðinguna. Veit einhver meira en ég.

    Kv Jón Garðar.





    06.02.2010 at 00:41 #681952
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll.

    Gæti verið að tappinn sem er á eðlilegum bílum á vatnskassanum en er hjá þér á plastkútnum verið stíflaður? Hann ætti að hleypa út þrýstingi sem fer yfir einhvert gildi sem stendur á honum. Ef hann er stíflaður gæti verið að myndast of hár þrýstingur á vatnskerfið og valdið allskonar bulli.

    Gæti kannski verið sniðugt að fá annan tappa sem opnar við lægri þrýsting.

    Bara svona hugmynd.

    Kv Jón Garðar





    30.01.2010 at 18:21 #680070
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Af hverju bendir ekki einhver Ust á að veiði á Hvítabjörnum er bönnuð nema sérstök ógn stafi af dýrinu. Það hlýtur að vera umverfisráðherra sem afléttir tímabundið friðun en ekki umhverfisstofnun. Voru þeir ekki að brjóta lög þar…

    Ég held reyndar að það að kalla starfsmenn og stjórnendur Ust rasista sé ekki leiðin að hjarta þeirra. Ég, í sakleysi mínu, les ekkert óskaplega merkilegt út úr þessum texta nema það að menn eru minntir á hvað má og hvað ekki. Stofnunninni gæti verið umhuguð hlýindi undanfarinna daga og fundist ástæða til að minna menn á þessa reglugerðaklausu. Eru þetta ekki skaplegri vinnubrögð heldur en að senda sýslumann á þyrlu til að hanka menn. Maður spyr sig.

    Hefur einhver prófað að hafa samband við þá til að kanna málið, hvaða meiningu þeir leggi í bréfið og þá hvort geti verið að það sé í raun ekki frá þeim.

    Ég held að menn ættu að setjast niður, anda með nefinu og telja upp að 20 og kanna málið í rólegheitum áður en heilu stofnaninrar eru kallaðar rasistar. Þið vitið vonandi að það eru allmargir sem lesa það sem fram fer á þessum vef dags daglega, jafnvel starfsmenn Ust. Kannski eru einhverjir jeppakallar þar þó að þeir séu ekki vel þekktir í "bransanum".

    Ekki þessi leiðindi…

    Kv Jón Garðar





    30.01.2010 at 00:54 #679980
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ætli Gunni í Icecool sé ekki að flytja mile marker spilin inn.

    Kv Jón Garðar





    26.01.2010 at 17:08 #679322
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Já þá mundi ég allt í einu. Allavega á Isuzu pikkanum 3.1 hef ég séð startara sem var að einangra lokið aftaná frá belgnum og var að taka – í gegnum ankerið og þaðan í gegnum leguna aftaná startaranum. Settu vír undir skrúfurnar á lokinu aftaná startaranum og gáðu hvað gerist.

    Kv Jónsi





    25.01.2010 at 18:38 #679318
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Gamli Trooperinn minn hegðaði sér svona og þar var svona hefðbundin bilun s.s. alveg ótengd tegund bílins. Málið var að geymirinn tæmdist á einni nóttu og hálfum degi. Ég notaði bílinn mikið í langkeyrslu svo að hann hafði nægann tíma til að hlaða fyrir startið en tæmdi sig alltaf strax. Þá var ónýtt díóðubrettið í alternetornum. Þó svo að alternetorinn sé nýr getur hann verið bilaður. Díóðubrettið er ekki hlutur sem slitnar með mikilli eða lítilli notkun. Ef þú hefur t.d. verið duglegur að gefa start ýtir það undir þessa kenningu.

    Auðvitað er það samt fyrsta mál að finna sér sverann vír og tengja á milli vélar og – póls. Þá er allavega búið að útiloka það og allir vinir. Þetta með common rail nemann þekki ég ekki og er þá frekar "tegundatengd" bilun sem 3.0 Trooper eigendur gætu lent í.

    Annars er bara að tengja ampermæli við geyminn og með bílinn dauðann að mæla hvort einhver straumur sé að yfirgefa geymana. Það er eðlilegt að fáeinir hlutir eins og útvarp, tölvan, klukkan o.s.frv. taki eitthvað. Kipptu öryggjunum úr eitt af öðru þangað til ampermælirinn fellur og þá ætti bilunin að vera ljós.

    Rafgeymir sem dvelur eina nótt tómur eða svotil í frosti er ónýtur, óháð aldri.

    Kv Jón Garðar





    24.01.2010 at 22:28 #679068
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir.

    Mér finnst alltaf svolítið spaugilegt þegar einhverjir spegurantar setja saman svona töflu og slá því föstu að 44" patrol og landcruiserar séu jafnvígir kiu á 35" dekkjum. Svolítið eins og að segja að epli og appelsínur séu það sama af því að bæði er hnöttótt.

    Jeppi er nefninlega dálítið meira heldur en kassi með 4 dekkjum. Jeppar eru nefninlega misgóðir í mismunandi færum og undir höndum mismunandi ökumanna. S.s. er það heildin sem skiptir máli.

    Svona töflur hafa ekkert með það að gera hvað jeppar eru góðir fjallabílar. Það þarf nefninlega að koma til hvernig mótorinn vinnur, gírun, styrkur, fjöðrunarkerfi, aukabúnaður eins og læsingar o.s.frv. T.d væri gaman að sjá muninn á 44" 70 cruiser og 35" suzuki vitara við að brölta upp úr á með dálitlum skörum.

    Þessi samanburður er eingöngu samanburður á floti eða í raun því einu hversu þungt jeppinn stígur niður á fersentimetra. Þetta tekur ekki einu sinni tillit til þess hversu breiðar felgur eru notaðar og það er alveg á hreinu að það hefur mikil áhrif á niðurstöðurnar.

    Kv Jón Garðar





    24.01.2010 at 06:06 #679058
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Pattinn er hörku jeppi og 38" dekk skila þér ótrúlega langt. Fjöðrunarkerfið í Patrol er svo magnað að 38" dekk koma þessum bíl mun lengra heldur en flestum öðrum jeppum á svipuðum dekkjum. Pattinn er hinsvegar heldur þungur og ber í raun stærri dekk prýðilega og þegar þú hefur prófað 38" langar þig bara í stærra. Ég er búinn að nota cherokee á 38" með 240 hp vél en patrolinn sem ég eignaðist á eftir honum hefur skilað mér miklum mun lengra.

    Kv Jón Garðar





    21.01.2010 at 20:39 #677788
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    [quote="Ofsi":xokvao44]Það væri gaman er félagsmenn sýndu Lokunum á vegum, sama áhuga og Lokun á vefspjalli.[/quote:xokvao44]

    Ætli, nafni, að þú fengir ekki svona viðbrögð ef þú færir að mæla með lokunum vegslóða. Ég hef grun um að menn séu að fylgjast með því sem þú skrifar en þurfa ekki að gagnrýna svo mikið.

    en að öðru…

    Einhver sagði áður eitthvað á þá leið að reykjavíkurdeildin væri ekki deild heldur móðurfélag. Skv bókstafi laga um félagsaðild og tilvist landsbyggðadeilda er þetta alveg kórrétt en… eru Reykvíkingar virkilega á þeirri skoðun að þeir geti valsað yfir allt og alla svo fremi að þeir búi úti á landi. Ég er í landsbyggðadeild og á ekki nokkurn möguleika á að koma á fundi reykjavíkurdeildarinnar (úrvalsdeildarinnar) til þess að greiða atkvæði mitt með eða móti þeim hlutum sem þó, eftir því sem ég best veit, fjórðungur félagsgjaldsins míns fer til. Ég á líklega ekki einu sinni atkvæðisrétt á slíkri samkomu.

    Ég veit að nokkrir innan úrvalsdeildarsvæðisins hugsa svona og hafa fyrir sig en það að reka þetta svona ofaní kok á opnu spjallsvæði sem er reyndar opið bæði úrvalsdeilinni OG utandeildarpakkinu er bara dálítið spaugilegt. Ég hef talið mig hingaðtil fullgildan félagsmann Ferðaklúbbsins 4×4 þó að ég sé í utandeild og greiði sannlega hluta ársgjaldsins til úrvalsdeildarinnar. Eftir að hafa lesið þennan þráð er ég orðinn efins um tilvist mína innan F4x4.

    Eins og ég sagði áðan stendur þetta í lögum F4x4 en það sem ég er að impra á er hvort menn hugsi almennt þannig að þeir geti óhikað ráðstafað félaginu á gegn vilja t.d. landsbyggðafélaga af því að það stendur í lögunum. Ég segi fyrir mitt leyti að ef ég verð var oftar við slíkan hugsunargang hjá úrvalsdeildinni er alveg á hreinu að ég nýti minn lögbundna rétt til að segja mig úr þessu félagi.

    Efni þráðarins var hvort stjórnin eigi að láta ákvörðun sína að loka spjallaðgengi utanfélagsmanna fram að ganga. Pósturinn minn kemur því málefni svosum ekki við enda hafa engin rök komið fram sem styðja þá framkvæmd síðan ég skrifaði síðast nema þessi þar sem landbyggðapakkinu var gert grein fyrir því að þeim kemur málið ekki við. Mér finnst þau rök frekar döpur og vera til marks um það sem ég sagði áðan um ergilega algengan hugsanagang höfuðborgarbúa.

    Kveðja úr sveitinni, Jón Garðar





    19.01.2010 at 21:59 #677738
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég er búinn að vera gildur limur í þessu félagi í gegnum landsbyggðadeild síðastliðin amk 5 ár og ég hef hingað til ekki haft aðgengi að neinu sem heitir innanfélagsmál. Einhvern einn eða tvo pósta hef ég sent á starfandi vefnefnd í það skiptið en ekkert gerst og ég hef ekki nennt að garfa mikið í þessu. Ætli þessi staða komi ekki til með að koma upp líka s.s. að félagið útiloki félagana alveg óvart. Ég er ekki að ætla að þetta sé markmið einhverra heldur mannleg mistök sem auðvitað geta átt sér stað en ég allavega nenni ekki að gera mikið í því að leiðrétta svona lagað.

    Af hverju er því alltaf haldið fram að utanfélagsmenn leiti eingöngu ráða hjá félagsmönnum? Líta menn svo á að greindarvísitala þeirra hækki við að þeir borgi félagsgjöld. Tilfellið er nenfinlega það að þetta spjall nota líka menn sem eru áhugasamir um jeppa eða ferðalög á fjórhjóladrifbifreiðum sem eru fagmenn í því sem verið er að leita ráða hjá. Með því að loka síðunni er verið að loka á þá gátt með öllu. Fínt mál að loka fyrir fría upplýsingaveitu sem félagsmenn geta mögulega gengið í af hendi fagmanna.

    Eftir að VHF gjöldumun var bætt við félagsgjöldin er þetta ekki reikningur sem menn leika sér að því að greiða til að taka þátt. Ég á þónokkra kunningja sem tíma ekki þessum pening af því að þetta er of dýrt. Það eru akkúrat þeir sem ekki eiga jeppa, nota afslættina lítið sem ekkert og nota ekki VHF. Ég skil þá bara vel.

    Hvað ætli fái menn til að halda því fram að það eitt að borga félagsgjöld í Ferðaklúbbinn 4×4 stöðvi menn með öllu að selja þýfi? Þessi rök eru með þeim daprari að mér finnst.

    Ætli flestir notendur vefsins séu ekki hægt og bítandi að sættast við þá framkvæmd að henda virðulegum og fallegum vef 4×4 fyrir þennan ófögnuð. Fyrir mína parta finnst mér hann venjast bærilega en þessi breyting að loka fyrir ógreidda að spjallinu gengur að honum dauðum.

    Þá spyr ég eins og bjáni, hvers vegna að breyta því sem er gott? Hér hefur verið ótrúlega lítið um níðskrif undangengið bæði hvað varðar einstaklinga og fyrirtæki. Niðrandi ummæli um annara manna jeppa hafa verið sófsöm og geta talist eðlileg, hvað er þá að?????

    Kv Jón Garðar





    29.12.2009 at 12:30 #673282
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    sælir

    ætli þetta séu ekki svolítið heitari ár en við eigum að venjast. Það er líklega svolítill munur á að lenda á kafi í á sem maður þarf ekki að berjast við fimbulkulda.

    Þessi myndbönd skýrir samt svolítið út fyrir manni hversvegna útlendingar eru svona oft í hremmingum með íslenskar ár.

    Kv Jón Garðar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 344 total)
← 1 … 4 5 6 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.