FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 344 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 13.10.2010 at 22:42 #706236
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Bíddu sallarólegur áður en þú pantar japanska vírasúpu. Aðalljósaöryggi fyrir parkljós??? Bráðnaði????

    Ég ætla að skilja málið þannig að annaðhvort parkljósaöryggið hafi sprungið og þá hafi mælaborðsljósin farið með. Getur þetta passað?

    Ef þetta gerist þegar kerra er sett í samband eru fáir hlutir sem geta hafa gerst: 1. klóin hefur verið brotin og farið öfug í tengilinn, kerruklóin vitlaust tengd eða eitthvað verulega ónýtt í kerrunni. Í öllu falli er nánast pottþétt að þú hafir fengið – á kerrunni á móti parkinu.

    Það eiga að vera 2 parkljósaöryggi, fóru þau bæði? Þetta eru bara 10A öryggi er það ekki? Hvað er bíllinn gamall og hvaða búnaður getur verið á parkljósabingóinu.

    Ef allt virkar þangað til þú kveikir ljósin á rofanum er pottþétt í lagi með allt frá dagljósabúnaðinum að ljósum. Síðan kveikir þú á rofanum og þá koma mælaborðsljósin á og þá deyr allur pakkinn. Ég myndi skoða mælaborðið og aðalljósarofann. Þarf ekki að vera merkilegt en ef kerran hefur skammhleypt með látum geta allskyns hlutir gerst. Ef 10 eða 15A öryggi springa er ekki líklegt að þú leysir málin með nýjum vírum, það er nánast útilokað að vandamálið liggi þar, ekki alveg útilokað samt.

    Taktu mælaborðið úr sambandi og prófaðu svo ef það gerist sama er vandamálið liklega í rofanum. Ef mælaborðsljósadimmerinn er ekki í mælaborðinu sjálfu geturðu prófað að taka það úr sambandi en athugaðu að ef allt er í lagi þegar þú gerir það getur allt sem við hann tengist legið undir grun.

    Kv Jón Garðar

    P.s. byrjaðu ekki fyrr en þú ert í sólskinsskapi og hættu ef þú verður pirraður, þetta er eins og krossgáta gersamlega ósigrandi en þegar svarið er ljóst áttirðu að vera löngu búinn að fatta það.





    10.10.2010 at 21:17 #705866
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Ætli það sé í tísku að stela spilum af björgunartækjum? Maður spyr sig.

    Bara að halda þræðinum á lofti.

    Kv Jón Garðar





    02.10.2010 at 12:07 #214925
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Alveg fær maður á tilfinninguna hvaða fólk vegagerðarmenn telja „markhópinn“ sinn. Dásamlegir menn og ef hvergi finnst lituð olía hjá jeppamönnum í þessari ferð þarf 4×4 að monta sig opinberlega af því. (þá er líka eins gott að enginn noti slíka olíu)

    Samt býsna sniðugt hjá þeim vitandi að það verður hellings umferð um vegina um helgina að reyna að kría út svolítinn auka pening til að eiga fyrir fyrstu heflun á næsta ári.

    Eigum við nokkuð að trúa því að vegagerðin sé í liði með þeim sem vilja loka vegunum? Ég hefði haldið að slík þróun yrði til bölvunar fyrir þá til lengri tíma litið allavega ef loka á öllum vegum hægt og bítandi, vinnuöryggis vegna ættu þeir að taka þátt!

    Kv Jón Garðar





    29.09.2010 at 16:35 #703916
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir Eyfirðingar

    Ég á eftir að gera upp við mig hvort ég renni í Vonarskarðið en var að spá hvort þið mynduð lofa mér að fylgjast með ferðatilhögun ykkar ef ég gæti verið samferða ykkur. Mín óskastaða væri að komast áleiðis á föstudagskvöld í heppilegan skála.

    Kv Jón Garðar





    27.09.2010 at 15:10 #704200
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Álíka lýsingu heyrði ég um daginn, sá bíll var reyndar líka tregur í gang minnir mig en þá var olíuverkið búið. Eigandanum sagt hist og her að verkið myndi aldrei klikka en samt var það ónýtt. Minnir að Framtak-Blossi hafi tekið það hjá honum.

    Kv Jón Garðar





    21.09.2010 at 08:25 #703560
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Mig minnir að Roger Moore hafi prílað þennan klettavegg með fáeinar skrúfur og spotta í hlutverki James Bond. Nafnið á myndinni man ég hinsvega ekki, giska á Live and let die.

    Kv Jón Garðar





    04.09.2010 at 10:01 #701580
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Þetta spjall er að verða svolítið skemmtilegt. Ég get ekki betur séð en að venjulegur Gsm sími nýtist ca 70% tilfella og menn eru í óða önn að velta fyrir sér búnaði upp á hundruði þúsunda til að hækka hlutfallið kannski upp í 75%.

    Ég myndi ekki kalla það góð kaup.

    Ég hef verið með ´Gsm síma með útiloftneti og munurinn var sáralítill. Þar sem hann náði sambandi með loftnetinu en ekki einn og sjálfur inn í bíl gat maður sig hvergi hreyft og sambandið var mjög slitrótt.

    Vissulega hjálpaði loftnetið pínulítið til í ójöfnu landslagi en munurinn var ekki peninganna virði. sem samanstendur af loftnetsfæti, loftneti, snúru og smá veseni við að tengja símann við snúruna.

    Tilraunin var samt skemmtileg og þannig lagað þess virði.

    Kv Jón Garðar





    03.09.2010 at 01:17 #701702
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Ég hef reyndar ekki prófað en ég er sannfærður um að ég geti spólað á mínum og það er ekki einu sinni túrbína í honum!





    21.08.2010 at 13:19 #700318
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Ef það er ekkert samband þar sem þú ert getur þú ekki búið að til, endurvarpi verður að hafa eitthvað til að endurvarpa.

    Samskipti gsm síma gengur út á að bæði síminn nái til sendisins og sendirinn til símans. Í viðbót við þetta fléttast tímafaktor sem er gersamlega ósigrandi með hverskyns loftneti eða sendi/móttökubúnaði. Gengur út á ákveðna fjarlægð frá sendi og þegar þú ert kominn ákveðið langt frá honum er sending og svar í símann á sama tíma og þá er ekkert samband. Langdrægari sendar hafa lengri tíma milli sendingar og svars.

    Ég prófaði gsm símann minn með stóru loftneti uppi á bíltopp og með honum höndlar hann pínulítið betur misfellur í landslaginu, allavega sem nemur hæðamismun á standandi manni og loftnetinu. Gerir lítið meira.

    Kv Jón Garðar





    20.08.2010 at 15:30 #700312
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég get ekki fundið muninn á kúk og skít (síminn/Vodafone) hvað varðar útbreiðslu en ég er þó alltaf að verða meira og meira hissa á hvað gsm dekkun er mikil. Ég er hjá Vodafone og þannig lagað sáttur.

    Annar póll í þessu málefni er ferðamaðurinn sem kallaði eftir aðstoð í gegnum Spot kerfið. Það tilvik sýndi og sannaði að það apparat virkar þó að boðin fari um langann veg en þegar hann ýtir á sos takkan kemur það upp hjá neyðarþjónustu í Texas minnir mig og í þeirra valdi að framsenda til Íslands. Þetta virkaði í þetta sinn og gæti verið vísbending um að ferillinn sé í lagi svo að treysta megi á þetta.

    Ég væri sáttur með svona tæki og ömurlegt gsm kerfi, svosum ekki verra að setja upp VHF stöð í eldhúsinu ef maður er einn á ferð, það gæti líka komið sér vel.

    Kv Jón Garðar





    15.08.2010 at 16:35 #699976
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Það er ekki rétt að eftirhitunin sé bara á 3 kertum. Fyrri hitunin er þannig að hann hleypir 12V yfir öll kertin. Þau eru s.s. öll hliðtengd. Á eftirhituninni eru 3 og 3 kerti hliðtengd og þessar grúbbur raðtengdar við 12 v þannig að það standa 6V á hverju kerti ef allt er í lagi. Þessi eftirhitun fer ekki í gang ef bíllinn fer ekki í gang þannig að ef snúningshraðamælirinn virkar ekki kemur eftirhitunin ekki á en eftirhitunin stendur í óratíma.

    Ég lenti í þessu sama og þá var morkin hráolíuslangan við verkið. Þurfti aðeins að leita að þessu en hann var djöfullegur í gang og reykti mikið og var máttlaus þegar mest á reyndi.

    Kv Jón Garðar





    14.08.2010 at 13:47 #699918
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Jú það er alltaf svolítil mótstaða í pílunni. Ég er bara með lítinn kúluloka með slöngutengi beggja megin og síðan slöngubút frá lokanum í ventilinn. Svo má bæta um betur og setja loftmæli á eftir lokanum. Þannig er nóg að skrúfa fyrir loftið eitt augnablik til að athuga hvernig gengur.

    Kv Jón Garðar





    03.08.2010 at 20:54 #699348
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég hef aðeins prófað að grauta í svona búnaði sem hagaði sér sambærilega í ´92 trooper. Þar var snerta á sílindranum sem var farin. Ég átti náttúrulega ekki fimmeyring með gati þannig að ég límdi málmflís á plötuna aftur og það heppnaðist bærilega.

    Þessi rofi var ósköp einfaldur bara svona græn íhlutaplata með koparplötum sem fjöður sem ferðaðist með lykilhreyfingunni snerti.

    Ég get alveg ýmindað mér að þessi frágangur sé í mörgum bílum af hinum ýmsu tegundum.

    Kv Jón Garðar





    03.08.2010 at 08:52 #699236
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Það er reyndar snilldar hugmynd. Ég notaði rétta mótorbúða sem virtust í lagi en gírkassapúðana notaði ég frá gamla og miklu minni gírkassa. Kíki á það.

    Kv Jón Garðar





    01.08.2010 at 18:35 #699230
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir og takk fyrir ágætar tillögur.

    Eins og ég sagði áður er ég á því að fleiri en eitt vandamál séu í gangi og ég er helst á því að dekkin eigi stóran þátt í pakkanum. Ég setti hærri loftþrýsting í þau og eitthvað skánaði en ekki nóg. Ekkert af drifsköftunum fór í sundur og ég er búinn að kíkja eftir því hvort þau séu rétt sett saman og sé ekkert athugavert þar. Krossana í framskaftinu hef ég ekkert atast í, ekki skipt um þá eða gert neitt en þegar ég tók skaftið undan fann ég ekkert athugavert við krossana.

    Pinionlegurnar hef ég ekkert athugað nema með því að skakast eitthvað í endanum á drifinu án þess að finna neitt að. Ætli ég prófi ekki eftir helgina að skipta aftasta krossinum út, sá skratti er asnalegur þó að ekkert slag sé í honum.

    Ég er hinsvegar ekki nógu sleipur í að átta mig á því hvað getur gerst í drifkögglinum sjálfum. Í mínum augum getur annaðhvort allt verið í lagi eða brotið en þetta tikk hræddi mig svolítið. Hef reyndar ekki gert þessa sömu tilraun með drifskaftið ótengt. Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af lásnum, hann er allavega í lagi og ef hann væri að detta af og á kæmu stakir slynkir og bíllinn myndi örugglega ekki láta vel að stjórn.

    Sömuleiðis er ég ekki hrifinn af því hvað travelið er langt í framhjólastellinu og væri ánægður ef einhver kannaðist við það að original lokurnar geri þetta eða hvort það sé eitthvað orðið slitið annað hjá mér.

    Ég ætla samt að taka fram að eftir að hafa horft á bananceringuna á Húsavík þá ætla ég ekki að efast um vinnubrögðin þar. Hinsvegar eru dekkin mikið slitin og notuð og gætu látið eins og asnar.

    Takk takk, Jón Garðar





    30.07.2010 at 14:21 #699220
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Jamm búinn að þreifa nokkrum sinnum og felgan volgnar aðeins eftir langkeyrslu, mér finnst ekkert óeðlilegt við það.

    Kv JGH





    30.07.2010 at 11:13 #213779
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég er með patrol sem ég er nýlega búinn að setja 6.2 í. Ég notaði bílinn ekkert í rúmt ár svo að ég get ekki sagt hvort vandamálið hafi komið upp við breytinguna eða hafi verið að koma áður.

    Vandamálið er að bíllinn fer að kippast allur til eftir að ákveðnum hraða er náð, milli 70 og 80. Þetta er ekki eins og menn lýsa „jeppaveikinni“ því að ég finn ekkert í stýrinu. Bíllinn er mjög lítið hækkaður svo að brotin á drifsköftunum hefur lítið breyst frá því sem nissan gamli setti í hann.

    Undirniðri kraumar fínn víbringur sem minnir á hjöruliðskrossa titring. Ég finn ekkert í krossunum enda eru nýjir krossar í afturskaftinu. Aftari krossinn reyndar virðist vera þannig að önnur hreyfingin er pínulítið þyngri en hin. Eins heyrist smá smellur ef ég banka í skaftið. Þessi víbringur einn og sér er ekki tiltökumál en þeim fylgja allrækilegir kippir. Ef maður horfir á gírstangirnar finns manni eins og allt kramið gangi svolítið til. Þessir kippir eru mismiklir eftir t.d. vindátt. Ef ég keyri í logni tiltölulega flatann veg ef þetta hóflegt en ef gefur á öðru megin eða vegurinn fer að halla til annarar hliðar ymist eykst þetta eða minnkar. Stórfurðulegt.

    Ég er búinn að vera að atast í framhjólalegunum en finn ekkert athugavert við þær, ekkert slag og ný feiti. Þar er samt hlutur sem ég skil ekki og það er hversu mikið ég get snúið dekkinu áður en drifskaftið fer að hreyfast. Ég er með original lokur læstar en hvað er það sem gefur svona langt travel og er það í lagi eða getur það verið hluti af hristingnum.

    Mér datt í hug afturhjólalegur og tjakkaði bílinn upp að aftan. Þegar þangað var komið snéri ég einu afturhjóli í einu og heyrði einhvert tikk sem mér líkaði ekki. Heyri ekki almennilega hvaðan það kemur en þá tjakkaði ég undir kúluna og setti í gír og snéri dekkinu. Þá náttúrulega snúst annað fram og hitt aftur en þá tikkaði ekki neitt.

    Ég er búinn að prófa að taka afturskaftið úr bílnum og keyra þannig en við það fór skjálftinn ekki en ýmislegt annað varð undarlegt svo að ég ákvað að þau vísindi væru ekki alveg heilög.

    Hafa menn einhverjar uppástungur um hvað er að. Dekkin eru vel balanseruð (á margrómuðu dekkjaverkstæði á Húsavík, með betri jeppadekkjaverkstæðum landsins) og sá sem vann það sagðist ekki eiga von á að aðrar hreyfingar í dekkjunum kæmu fram í akstrinum.

    Dettur einhverjum hér eitthvað í hug. Ég skal alveg trúa að það séu fleiri en eitt vandamál á ferðinni, bíllinn er mikið notaður og ég sé enga ástæðu til að útiloka eitthvað sem þó bilar sjaldan.

    Kv Jón Garðar





    27.07.2010 at 11:36 #698932
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ætli flestir patroleigendur hafi ekki kynnst svona titringi í framhjólastellinu og nánast pottþétt að þeir sem hafa komið í veg fyrir það hafa sitthvora skoðunina á því hvar vandinn lá.

    Upplýsingarnar sem ég fékk voru þannig að hann væri vonlaus á slitnum dekkjum. Það þýðir að um leið og dekkin taka á sig aðeins aðra mynd en hinn fullkomna hring byrjar ballið. Þá eru dekkin kveikjan af ferli sem virkar þannig að dótið sveiflast þá vegalengd sem það getur s.s. allt slit, allt sem fóðringar gefa eftir, legur og annað. Þá finnst mér eðlilegast að minnka þessa vegalengd sem dótið getur ferðast eins og hægt er.

    Ég er búinn að takast á við þetta og allt sem ég hef gert bætti ástandið en lagaði ekki alveg. Ég er alls ekki sammála því sem einhver sagði áður að fóðringaskipti væri ekki framtíðarlausn því að slitnar fóðringar valda titringi og ef það virkar í einhverja tugi þúsundir kílómetra og byrjar þá aftur er kominn tími á að endurnýja fóðringasettin.

    Ég byrjaði á stífu gúmmí/plast fóðringunum frá Fjallabílum. Þau ein og sér gerðu lítið og síðan skipti ég út fóðringunum í stýrisdemparanum. Ég er reyndar með Rancho stýrisdempara og tel hann jafnvel eiga pínu hluta vandans.

    Mestu munaði að skipta um spindillegurnar og stilla rétta þyngd á þeim. Þetta er dýrt en ef þú notar Nissan legur þá þarf ekki að gera þetta oft kannski 300.000 km fresti.

    Hjólalegur þurfa að vera í toppstandi. Felgur þurfa að vera réttar og sitja rétt á nafinu. Ég herði gjarnan felgurnar þannig að ég geng hringinn og herði lítið í einu aftur og aftur þangað til felgan er fullhert.

    Ég hélt að menn notðuð alltaf stýrisdempara hvort sem það sé tjakkur eða ekki. Ég sé alltaf fyrir mér vandann þannig að titringurinn er allt sem dótið getur gefið eftir.

    Kv Jón Garðar





    23.07.2010 at 11:15 #698100
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Það er ekkert spaug að finna út úr svona rafmagnsveseni en svörin þín benda ekki til þess að þú hafir mælt eins og ég talaði um. Ef þú ert ekki með sæmilegann fjölsviðsmæli og svona einhverja hugmynd um hvernig á að nota slíkann grip verð ég að segja þér að þú átt engann séns.

    Ef þú ert með þokkalegann mæli og smá þekkingu að vopni skaltu fyrst átta þig á því hvað vantar. Til að 12V pera lýsi þarf hún 12V, það er vitað mál en hún getur líka sýnt mismikið ljós eftir því hvað mikil spenna stendur á henni. s.s. ef það er 8V yfir hana lýsir hún kannski til hálfs o.s.frv.

    Ef ekkert ljós er á perunni vantar annaðhvort strauminn á hana eða nýja peru. Ef það vantar strauminn þá vantar að öllum líkindum plúsinn eða mínusinn. Ef þú finnur öruggann plús annarsstaðar og öruggann mínus geturðu sannreynt hvort plúsinn eða mínusinn vantar og ekki með ómmælingu heldur spennumælingu.

    Hafðu pólana á geyminum og svissaðu á. Stilltu mælinn á 20VDC skala (eða einhvern DC skala sem ræður við 12V) og mældu spennuna á geyminum. Það er æfing og þar ertu með pottþétta + og – póla. Mældu svo með rauða pinnan á + pól geymisins og svarta á sitthvorn pólinn á perustæðinu. Öðruhvorumegin ættirðu að fá 12V á mælinn á meðan vélin er ekki í gangi og svissað á bílinn. Ef þú færð 12V þarna er neminn að gefa í gegnum sig og það er gott mál. Næst seturðu svarta pinnan á – pól geymisins og mað rauða mælirðu báða póla perustæðisins og ef þú færð 12V hinumegin á perustæðið skaltu íhuga að skipta um peru. Ef ekki þá hefurðu fínan stað til að byrja.

    Þá veistu hvorn pólinn vantar. Byrjaðu á þessu og gefðu skýrslu um hvernig fer.

    Kv Jón Garðar





    16.07.2010 at 12:05 #698094
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég myndi fara þannig að:

    Rífa mælaborðið þannig að þú getir mælt spennuna yfir perurnar og svissa á bílinn. Gefum okkur það að ljósin komi ekki og þá geturðu mælt með spennumæli yfir peruna. Ef það er spenna þar skaltu skipta um perur.

    Ef ekki skaltu setja – pinnan á mælinum í örugga jörð. Ég nota sígarettukveikjarann til að sannreyna alla svona póla. Þá mælirðu á báða pólana á perunni og ættir að fá 12V á öðrum hvorum pólnum. Hvort sem þú færð spennu þar eða ekki skaltu setja + pinnan á mælinum í öruggan + og hinn á báða perupólana.

    Málið er að peran þarf bæði + og – til að lýsa og þann sem vantar skaltu rekja.

    Hleðsluljósið virkar þannig að alternatorinn sendir – á þennan vír til að kveikja ljósið. Þegar hann byrjar að hlaða fer spennan á þessum vír úr 0 í 12V og þá hættir peran að lýsa. Hleðsluljósið er líka notað til að segulmagna alternatorinn (held ég, allavega þarf peran að vera nokkuð rétt til að triggera alternatorinn. Ég held að hún afhendi segulmögnunarstrauminn í upphafinu.) Í Patrol og án efa öðrum bílum eru nokkrar perur í mælaborðinu notaðar til að hjálpa hleðsluperunni að triggera alternetorinn og að auki eru þær síðan aðskildar með díóðum til að þessi ljós kveiki ekki á hleðsluljóinu ef þau fá sitt merki.

    Olíuþrýstineminn ætti alltaf að senda – ef það er dautt á mótornum. Ef það er ekki – þar og ekki á hleðslunni verður sumarið þitt með skemmtilegra móti. Hann er mekanískt pressostat sem ætti að rjúfa sambandið við húsið sitt ef þrýstingurinn fer yfir ákveðið setpoint.

    Ef þú færð alla mínusana (sem ég gæti best trúað) þarftu að átta þig á því hvaðan +inn er tekinn. Einhversstaðar er öryggi fyrir þetta og vissuelga er þessu stýrt af svissinum en það gæti líka verið í gegnum reley sem getur líka bilað.

    Ég er búinn að fletta svolítið upp í Patrol rafkerfinu og finnst ekki ólíklegt að þó þau séu ekki eins er pottþétt hægt að finna eitthvað sammerkt með þeim. T.d. er einhver aðili eins og Delo Remy, bosch eða hitatci sem framleiðir alla íhlutina og gæti allt eins átt hönnunina af rafkerfum bílanna. Ég fór í vélaskipti á Pattanum og þá umsvifalaust týndust öll þessi merki. (á einu uugabragði) Þá eru þau öll tínd inná einhvern tölvugarm sem ekkert gerir nema skilar þeim aftur út að einhverjum skilyrðum fullnægt. Þau skilyrði fann ég ekki. Þetta gæti allt eins átt við Toyuna líka.

    Ef þetta fer að verða mjög flókin spöglering er stundum hægt að finna rafmagnsteikningar á netinu og þá kemur google gamli að góðum notum. Athugaðu samt að það er ekki pottþétt að teikningarnar séu akkúrat af þessum bíl en þær nýtast alltaf til að fá einhverjar hugmyndir.

    Kv Jón Garðar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 344 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.