Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.01.2006 at 21:14 #539466
Sælir
Þða er erfitt að átta sig á rýminu sem þingmaðurinn hefur átt fyrir sig inni í flakinu eftir veltuna en mér finnst oft að bílar sem hafa verið klipptir í sundur líta verr út en aðrir óklipptir, þetta blekkir augað aðeins.
Hinsvegar hefur karlinn verið heppinn að sleppa svona vel út úr þessu, hvort svo sem loftpúðarnir hafi svikið eða ekki. Ég er sannfærður um að Rúv hefði ekki getað tekið við hann viðtal ef hann hefði ekki verið í bílbelti nema með hjálp miðils.
Annað fannst mér athyglisvert og það voru orð hanns um símann. Gemmsinn floginn út í veður og vind og það eina sem stóla mátti á var gamli trausti NMT síminn. Tækið sem verður ónýtt eftir nokkur ár og fjandinn einn veit hvað tekur við þó að menn lofi einhverju.
Þetta er gott dæmi sem mætti nota til að minna á mikilvægi þess að gott aðgengi sé að fjarskiptatækjum sem draga um allt land og að þau verði ekki svo dýr að mönnum standi uggur af því að eignast þau og nota.
Kv Izan
17.01.2006 at 21:52 #484918Sælir
Það er gaman að sjá hvað menn eru vel að sér í rafmagnsfræði en ég ætla samt að leiðrétta nokkra smávægilega hluti.
Þverskurðarflatarmál einþátts leiðara mælir maður með því að mæla þvermál deila með 2 og þá gldir formúlan radíus í 2 sinnum pí (sem er 3,141592654)
Þverskurðarflatarmál fáþætts eða fjölþætts leiðara (sem ætti eingöngu að nota í bílum) er mælt með því að nota áðurnefnda aðferð á einn þátt og margfalda með fjölda þáttanna.
Þegar ég legg að aukarafmagnstæki í bíl svo ég tali ekki um straumfreku þá legg ég bæði + og -. Mínusinn tengi ég svo í bodýið ef ég kem því við þar sem ég tengi rafmagnstækið. Ryðmyndum verður eingöngu til út af spennumun. Það er öruggt að það er eðlisspennumunur á bodýhlutum, suðum og öðrum járnhlutum sem veldur ryði á ákveðnum stöðum í bodýinu. Með því að tengja frá – pól geymisins erum við að stuðla að því að minnsti mögulegi spennumunur sé að bodýhlutum og þannig ryðverja bílinn.
Kv Izan
17.01.2006 at 21:31 #539374Sælir
Það væri náttúrulega lang eðlilegast fyrir menn í slíkum hugleiðingum að skipta bílnum í heild út fyrir Patról en ekki bara nokkrum hlutum.
En ef þig langar að sitja í Toyotunni þinni áfram og láta Patról halda á dekkjunum ættirðu að hringja í KT jeppabúðina. Hann heitir minnir mig Halldór og á hlutfall sem gerir þetta mögulegt
Kv Izan
17.01.2006 at 00:33 #539242Sæll
Ef þú telur bílinn góðann gæti verið heppilegt að byrja á honum, en ekki eyða stórfé í bílinn sem slíkann frekar búnaðinn sem þú getur átt ef þú selur þennann.
Með GPS og VHF ertu nokkuð vel búinn til að ferðast með öðrum, NMT símar virðast vera fallvölt fjárferting í dag
Terranó er hægt að breyta í ágætis fjallabíl með því að skrúfa flexitorana upp um smáræði og setja klossa undir gormana ættirðu að koma 33" dekkjum leikandi undir hann. Líklega þarftu brettakanta sérstaklega ef þú notar breiðar felgur.
Ef þú ætlar á 35" dekk þarftu að láta breytingaskoða b´linn sem þýðir hraðamælabreytingu sem er svolítið dýr, slökkvitæki og sjúkrakassa, sem væri hægt að mæla með að eiga, og láta breytingaskoða bílinn, 4-5000 kall minnir mig.
Ég ferðaðist á 33" trooper í 2 ár um landið þvert og endilangt og fannst það bara gaman.
Farðu í jeppaferðir og þá finnurðu hvers þú þarfnast í raun.
Kv Izan
P.s. mundu bara að umgangast landið af virðingu.
16.01.2006 at 21:43 #538606Sælir
Ég get ekki betur séð en að ferðaklúbburinn 4×4 hafi stundað mótmæli með nokkuð kröftugum hætti þegar ráðherrum var boðið í bíltúr. Þessa ferð lít ég á sem mótmæli þó að þau hafi farið með eindæmum friðsamlega fram og engan veginn sett félagið í hóp skyrslettara og skemmdarvarga á nokkurn hátt.
Kv Izan
13.01.2006 at 23:21 #538852Sæll
Ég er enginn bifvélavirki en lenti í basli með drifloku á trooper gamla. Ég átti engra kosta völ en að rífa lokurnar í sundur til að liðka og gerði það gersamlega að farast úr áhyggjum að koma þeim ekki aftur á. En lokan er í raun afar einfaldur búnaður bara 2 gormar sem reyndar þarf pínulitla útsjónasemi við að koma saman aftur fyrir byrjendur en alltsaman hafðist það þó.
Á lokukvikindið setti ég svo vel af koppafeiti og það hefur enst ágætlega síðan en það gæti verið ágætt að nota annaðhvort rauða kopafeiti (ægilega góð) eða eitthvað linara.
Lokan hefur ekki brugðist mér síðan
Kv Izan
13.01.2006 at 12:13 #538886Sæll Finnur
Þú ert að rugla hlutunum saman, ef þú ert með allaþesa hluti í gangi í einu og verður var við að bíllinn verður rafmagnslaus ættirðu ekki að horfa á geymana heldur alternatorinn.
Ef þú ert með spennumæli þá geturðu fylgst með því hvort torinn sé að hafa undan álaginu. ef ekki þá er hugsanlega tímabært að setja stærri alternator.
Rafgeymar gera fátt annað en að geyma uppsafnaða raforku til að nota þegar ýmist er dautt á bílnum s.s. ljós, útvarp, miðstöð o.s.frv. og til að geta startað mótornum með rafstarti sem er staðalbúnaður í flestum betri bílum. Rafgeymarnir taka líka neyslutoppa þegar alteratorinn hefur ekki undan og þú biður um auka rafmagn t.d. f afturrúðuhitarann.
Þegar menn hrúga aukaljósum, talstöðvum, símum og allskyns auka rafbúnaði verða þessir toppar fleiri og hærri og þá þarf að leysa það með stærri alternator til að fækka og minnka toppana og hugsanlega stærri geymum til að ráða viðþá sem verða ásamt því að gera bílinn hæfari til að gefa betra start undir verri skilyrðum t.d. útaf miklu frosti.
Kv Izan
12.01.2006 at 19:28 #538564Sælir
Hvenær og hvar var þessi frétt ég bara finn hana ekki og hálflangar að heyra hana
Kv Izan
03.01.2006 at 20:58 #537778Sæll
Ég veit ekki um neinn sem selur álhillur í bíla en ég kannast við einn sem selur iðnaðarinnréttingar í bíla þ.á.m. hillur, skúffur, vinnuborð og fleira í þeim dúr frá Sortimo. Þessi búnaður er árekstraprófaður og níðsterkur.
Verslunin heitir Rafver og er í Skeifunni og selur ýmis verkfæri.
Kv Izan
22.12.2005 at 00:21 #536410Sælir
Engan veginn get ég fengið mig til að vera sammála nafna mínum Sigurðsyni sem tíundaði að allir gamlir bílar væru ruslahaugamatur. Ég sé ekkert samhengi í árgerð og fegurð.
Þegar menn eru búnir að natnast við bílana sína í áratugi með öllu tilheyrandi raða aukabúnaði snyrtilega, loftnetum, sprauta, smíða ryðfría stuðara o.s.frv. get ég ekkert fundið fallegra við nýja bíla heldur en þá gömlu.
Þetta sannast hjá öðrum þar sem langflestar myndir í þessum þræði eru af bílum tvítugum og eldri.
Mér finnst margir bílar bera af í fegurð og þá helst gömlu jálkarnir sem búið er að endursmíða og gera fína.
Einn hælús man ég eftir að hafa séð mynd af á f4x4.is. Bíllinn var kallaður Mjallhvít. Hvíti Scoutinn með "JAKINN" númerinu finnst mér virkilega smekklegur og hvíti willysinn sem er líka mynd af hér að ofan.
Ég gef samt Hrollinum mitt atkvæði. Það er ekki vegna þess að bíllinn sé svo vel sprautaður eða með svo flottann stuðara heldur vegna þess hve tryggur hann er húsbónda sínum.
Kv Izan
16.12.2005 at 21:22 #531174Sælir
Á sama tíma og ég skil reiði og gremju manna sem lenda í því að bílum þeirra sé stolið, öðrum eignum eða ruðst inn á einkasvæði manna þá finnst mér þetta vera fulllangt gengið.
Félagið á að vernda hagsmuni jeppamanna og hefur lagt sitt lóð á vogarskálarnar í þeim efnum þegar menn geta auglýst eftir vitnum eða óskað eftir aðstoð við leit á stolnum munum en ég dreg í efa að félagið eigi að verða sjálfkjörnir dómarar sem fjalla um málefni manna sem stela eða skemma jeppa.
Nú þegar er búið að birta nafn, heimilisfang, kennitölu og farsímanúmer manns sem hefur stolið bílum ítrekað og fengið litla sem enga dóma fyrir ennþá og einnig er búið að hvetja alla þá sem kunni að verða glæpamannsis varir að beita hann harkalegu ofbeldi vegna þess að það eru miklar líkur til þess að hann fái ekki dóm sem jeppamönnum finnst hann eiga skilið.
Núna hefur kennari frá Selfossi skrifað á þráðinn að hún sé dauðskelkuð að fá í heimsókn íturvaxna jeppakalla með felgulykla og hafnarboltakylfur til að taka á heimilismanni sem á svo ekki heima þar. Þarna bíður hún upp á von og óvon að einhverjir "heimsæki" sig og börnin sín.
Ég ætla að hvetja alla þá sem hafa skrifað á þennann vef að þeir ætli að taka lögin í sínar hendur og berja Val Sigurðsson að skrifa loforð um að þeir geri það ekki. Slíkt er aumingjaskapur með eindæmum og kemur engum verr heldur en eigendum bílanna sem hann hefur stolið.
Ég ætla að minna félagsmenn á þá lausn, sem er ekki einu sinni mjög dýr, að koma fyrir í bílunum sínum þjófavarnarkerfi sem fást víða um land og láta fagmann ganga frá því. Sömuleiðis mætti hugsa sér að koma fyrir þráðlausri vefmyndavél í bílum og láta heimilistölvu taka upp alla umferð um bílinn á planinu fyrir utan heimilið þar sem þjófnaðirnir virðast eiga sér stað, passa uppá að læsa bílunum, halda central læsingum í lagi og gera þjófum almennt sína vinnu erfiða.
Kv Izan
15.12.2005 at 23:33 #536148neibb, greinilega ekki, en ef þú setur inn þráðheitið gæti ég kannki lesið mér til.
Kv Izan
15.12.2005 at 23:25 #536144Hvurju á þessi Valur að hafa stolið af félagsmönnum?
Kv Izan
07.12.2005 at 09:59 #535208Sæll
Ég held að þú megir hafa hvurnig kastara sem þú vilt framan á bílnum en ef bíllinn er óbreyttur er ekki sama hvernig þeir eru tengdir.
pungtkastara þarf að tengja með háa geislanum þannig að kastararnir slokkna þegar þú lækkar ljósin
dreifiljós þarf að tengja með parkljósunum svo að það sé örugt að ekki sé hægt að láta þau loga nema afturljósin séu kveikt.
Hann á að hafa allar upplýsingar um bílinn þ.e. breytingaskoðun o.s.frv vegna þess að ef hann er breytingaskoðaður þá stendur það í skráningaskírteininu.
Kv Izan
05.12.2005 at 12:25 #534918Sæll
Mislitar perur eru tölvert mikið vandamál og erfitt að eiga við.
Xenon perur eru eftir því sem ég kemst næst svipað uppbyggðar og sparperur og sparperur breyta litnum sínum á ákveðið löngum tíma. S.s. pera með sama litarhitastig frá sama framleiðanda getur verið aðeins öðruvísi á litinn en önnur eins sem er búin að vera í notkun í einhvern tíma.
Ef illa fer með tryggingarnar gætirðu reynt að semja um það að selja heila ljósið, kaupa nýtt og láta tryggingafélagið greiða mismuninn.
Kv Izan
02.12.2005 at 14:56 #533220Sæll Eyþór
Mig minnir að sá sem á KT á Akureyri hafi breytt Tacomu fyrir ekki löngu síðan. Hann heitir minnir mig Gulli og er að flytja inn allskonar jeppadót og gæti átt ýmislegt í þennann bíl.
Einhverja heimasíðu átti hann en ég man ekki fangið.
Kv Izan
29.11.2005 at 22:33 #534224Sælir
Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst undarlega lítill munur á öllum bílunum nema tveimur sem ég ætla að draga í efa eyðslutölur á. Það er sá sem eyddi mest og sá sem eyddi minnst.
Annars finnst mér lítill munur á þessum tölum og núna þegar dísillinn en af og til að rugga upp fyrir benzínið í verði þá fer maður að pæla.
5,2 eða 5,8 V8 mótor er að skila ólíkt meira afli en 2.8 Patrol diesel.
Kv Izan
28.11.2005 at 15:39 #533462Sælir
Afzakið að ég spyrji einz og heimzk skúringakona, en hvaða heimsmet á að slá?
Kv Izan
12.11.2005 at 22:25 #532146Sælir
Við sem notum hálendið verðum tvímælalaust að bera ótvíræða virðingu fyrir því að vera ekki ein um vilja njóta hálendisins og snjósins. Okkur eru miklu fleiri vegir færir en t.d. göngufólki, skíðagöngufólki vélsleðafólki o.s.frv eða kanski ekki fleiri heldur aðrir vegir færir.
Fólk vill njóta þess að stunda sína útivist eins og þeim finnst henta án þess að verða fyrir ónæði af tækjum sem henta í allt aðra hluti.
Þess vegna ætti 4×4 að þakka Geir fyrir ábendinguna sem hefði mátt vera orðuð miklu harkalegra án þess að missa sannleiksgildi sitt og koma tilmælunum áleiðis til ökumanna jeppa og vélsleða.
Þetta er hlutur sem hálendisfarar verða að hafa í hávegum og það er að virða aðferðir náungans ti þess að upplifa náttúruna. Við getum á jeppum komist á 20 mínútum frá flestum þéttbýlisstöðum landsins á staði þar sem við ónáðum engann.
Sömuleiðis ber okkur að gæta og það væri þarft að gera meira mál úr því að þegar snjóar mikið innanbæjar hefur brugðið við að börn séu að leik á ófærum götum og jeppamenn hafi ekið á skafla þar sem krakkar hafa verið að leika sér.
Kv Izan
12.11.2005 at 17:56 #531704Sælir
Ég er alveg orðinn sannfærður um að sá sem skrifar undir heitinu "Verkfræðingurinn" sé í raun alls ekki verkfræðingur. Ég vinn við það að taka við gögnum úr höndum verkfræðinga og búa til þá hluti sem þeir hanna. Hinsvegar lendi ég ítrekað í því að verkfræðingarnir þekki ekki raunveruleikann og sannfærast um eigið ágæti þegar þeir líta yfir fallegar teikningar.
Hinsvegar fer hann ekki með svo rangt mál. Litlu og léttu bílarnir eiga samkvæmt formúlunni að fljóta betur í snjó og gera það alla jöfnu en snjórinn getur verið það djúpur að eingöngu hæð upp í hásingu ráði hvort bíllinn komist úr sporunum. Hinsvegar veit Eik þetta örugglega.
Ég held að menn séu oft að bögglast með of stóra bíla sem kallar á meiri átök og meiri hættu á bilunum.
Það hlýtur þó að vera fyrir öllu að menn séu ánægðir með sína eign. Menn kynnast sínum bílum og ekkert óeðlilegt væri að ef Eik væri settur undir stýri á 49" patrol trölli kæmist hann hvorki lönd né strönd.
En að þræðinum, hvenær er síðasti skráningardagur í ferðina?
Kv Izan
-
AuthorReplies