FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 344 total)
← 1 … 14 15 16 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 06.03.2006 at 20:02 #545712
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Þetta er náttúrulega sáraeinfaldur búnaður þegar maður gefur sér tíma til að hugsa málið. Þegar kertin þurfa fullt afl er + 12V á stóru skinnunni og – á litlu. Þannig fá öll kertin fulla spennu en þegar vélin er komin í gang stendur + 12V á litlu skinnunni og hin skinnan einangruð frá og þannig raðtengjast tvær þriggja kerta hliðtengingar.

    sáraeinfalt og auðvitað er Patrol þ.a.l. ekkert bilaður.

    Kv Izan

    það er vissara, litli bróðir. að vera búinn að kynna sér hvernig alvöru bílar virka ef við tækjum bíltúr saman……





    05.03.2006 at 21:55 #197475
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Er nokkur hér sem veit hvernig glóðarkerti í Patrol virka.

    Málið er að annaðhvort eru 3 innstu kertin ónýt eða þetta er eitthvað sýstem sem ég ekki kann á.

    Það eru 2 safnskinnur á kertunum, önnur fer alla leið á öll 6 kertin en hin tengist bara við innstu 3. Ég tók það þannig að það væru 2 element í innstu sem bæði tengjast við bodý en ég mæli ekkert þar.

    Eru bara 3 innstu sem eru notuð eftir að bíllinn fer í gang?

    Kv Izan





    04.03.2006 at 21:40 #545626
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Steypa hér skjáinn minn þekur,
    og ofaná skrifborðið lekur
    Ég ort get ei neitt
    og þykir það leitt.
    Að úr klúbbnum mig Kafteinninn rekur

    Kv Izan





    27.02.2006 at 18:45 #544948
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Trúlega eru allir búnir með peningana í Patrolinn hans Gísla!!!!!

    Ég held að þessar safnanir verði að hugsa betur. Í þessu tilfelli þætti mér að klúbburinn ætti að standa fyrir söfnun og hafa það að markmiði að safna einni milljón gefa björgunarsveitunum undir yfirskriftinni "takk fyrir að vera til staðar".

    Kv Izan





    26.02.2006 at 21:38 #544812
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Fimmtán tommu felgur er algert lágmark.

    Sniðugt að þú skulir nefna að ef maður fari yfir 13" felgur þurfi maður beatlock.

    Í Austurlandsdeildinni er enginn að mér vitanlega með beatlock og afar sjaldan affelgað.

    Hálfri tommu grennra eða breiðara en dekkin.

    Kv Izan





    24.02.2006 at 13:04 #544174
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Afsakið fáfræði mína en hver er munurinn á ægisarmi og ogiginal s.s. hvernig þekki ég þá í sundur. Ef stýrisendinn kemur uppundir hann og kastalaróin ofaná er ég þá í góðum gír eða að fara að drepa mig og mína í Þorrablótsferðinni um helgina?

    Kv Izan





    21.02.2006 at 23:23 #543858
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Þetta er athyglisverð umræða og ég var einmitt að velta fyrir mér í tilfelli Gísla hvort hann hefði verið bættari með utanvegakaskó. Ef einhver fengi það staðfest að hann hefði fengið 44" patrol í bætur ef hann hefði haft utanvega kaskó væri gaman að heyra það. Sömuleiðis ef hann fengi ekki krónu, sem ég held að sé málið, þá hversvegna ekki.

    Hann ók bersýnilega ekki á vegi og ekki í óbrúaðri á, hvar stendur hann þá gagnvart utanvegakaskói.

    Ég held að þessi trygging nái bara til aksturs á slóðum og akstri yfir óbrúaðar brýr OG á ekki að bæta tjón á krami s.s. mótor, kössum eða hásingum.

    Kv Izan





    20.02.2006 at 19:59 #543794
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    prófaðu að skipta um hráolíusíu.

    Kv Izan





    17.02.2006 at 21:12 #542998
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Bara að gamni langar mig að minna jeppamenn á að það er virkjun í Kerlingafjöllum svo að ég gæti ekki svarað öðruvísi en játandi þó að ég hafi reyndar engu svarað.

    Ásgarðsáin er virkjuð rétt fyrir neðan tjaldsvæðið en virkjunin er svo lítil að ekki hefur þótt ástæða til að byggja línu til byggða.

    Reyndar þætti mér fróðlegt að vita hvort menn séu í alvöru að tala um að byggja virkjannir uppi á hálendi þar sem framleiðslan færi fram uppi á hálendi því að línur til að flytja framleiðsluna eru feiknalega dýrar bæði í smíðum og rekstri. Fljótsdalsvirkjun er sniðug að mörgu leyti, sérstaklega því að rafmagnsframleiðslan fer fram eins nálægt notendanum seins og frekast er unnt. Uppistöðulónið er uppi á hálendi en önnur mennvirki eru sprengd í iður jarðar og eru gersamlega ósýnileg mönnum sem um svæðið fara.

    Núna hefur klúbburinn verið að spyrja fáránlegra spurninga á vefnum og höfða til náttúruunnenda og hvetja menn til að taka afstöðu gegn vikjunum á hálendi Íslands. Ég, sem ferðamaður, vil geta gengið að náttúru Ísland ósnortinni en ég lifi ekki eingöngu lífi sem ferðamaður. Ég er þáttakandi í samfélagi sem þarf á vinnu að halda, útflutningi á framleiðslu, eigin notkun á rafmagni og til að samfélagið þrífist þarf nýta möguleika sem landið býður uppá.

    Ég vinn í einu af þessu afleidda starfi vegna umsvifanna á Austurlandi og er ferðamaður í frítíma. Ég styð mótmæli gegn náttúruspjöllum sem fara friðsamlega fram skemmdar og ofbeldislaust en mótmæli sem hafa farið fram í kringum þessar framkvæmdir eru ekki nokkru lagi líkt. Mig langar til að vita hversu margir sunnlendingar hafa mótmælt framkvæmdum á Hellisheiði sem eru í raun spjöll á mikið notaðri náttúruperlu. Á góðviðris helgidögum er vart hægt að finna bílastæði á Hellisheiðinni fyrir útivistarfólki. Hvar er það fólk í dag, voru þau kannski of upptekin við að mótmæla Kárahnúkavirkjun eða var Hellisheiðin kannski að veita þeim sjálfum atvinnu.

    Ég mótmæli Hellisheiðarvirkjun.

    Kv Izan





    16.02.2006 at 21:23 #514990
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Það ætti ekki að vera svo flókið að setja rafmagnsloka á aukakælinn og láta hitanema stjórna honum. Þannig ætti hitinn að haldast á réttu róli s.s. ekki of kaldur og ekki of heitur.

    Kv Izan





    16.02.2006 at 20:40 #542972
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Þetta er sniðug spurning en ekki hægt að svara henni.

    Mótmæli við Kárahnjúkavirkjun gekk út á það mestmegnis að útskýra hversu miklu sniðugra er að virkja jarðvarma heldur en vatnsföll.

    Ef við hugsum um jarðvarmavirkjanir þá kæmu til greina staðir eins og Kerlingafjöll, Hrafntinnusker, er ekki háhitasvæði inn af Kverkfjöllum, Haukadal o.s.frv.

    Þetta hljóta að vera miklu sniðugri virkjannakostir heldur en Þjórsá eða Jökulsá á Dal er það ekki. Það að bora nokkrar holur og banna umferð um svæðin bæði akandi sem gangandi spillir umhverfinu ekki nærri því eins mikið og uppistöðulón.

    Y-Til að sannfærast um náttúruspjöll sem verða af virkjunum ættu höfuðborgarbúar að fara í sunnudagsbíltúr á Þingvelli. Þingvallavatn er uppistöðulón og er hæðinni á yfirborði vatnsins stjórnað á Bústaðarveginum.

    Kv Izan





    10.02.2006 at 00:19 #542150
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sterajaris heima verð.
    hann er engum líkur.
    Aðrar ætla með í ferð,
    Litludeildartíkur!!!!!!

    Kv Izam





    07.02.2006 at 13:04 #537066
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll.

    Gætirðu ekki farið núna í það að breikka felgurnar bæði út og inn til að halda stefnu spindlanna á miðju dekkjanna? Það væri sniðugt.

    Kv Izan





    04.02.2006 at 14:39 #541440
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég er mikið á móti saltnotkun og finnst það hreint skelfilegt að horfa upp á það að salti er núna dreift á flesta stærri þéttbýliskjarna landins þrátt fyrir ítrekuð mótmæli landsbyggðarmanna. Það er hægt að taka fram að tryggingar á smærr bæjum út á landi eru talsvert ódýrari vegna þess að það er litið á þá staði sem minni áhættuflokk.
    i sem blandast hefur snjó í ákveðnu hlutfalli.

    Það að ætla sér að mæla svifryk af nagladekkjum eingöngu sé ég ekki að sé hægt á óyggjandi hátt. Mér finnst það gefa augaleið að öll dekk myndi svifryk með núnungi við malbik en mismikið. Nagladekkin gera þetta líklega mest allra dekkja en við vitum ekki hver munurinn er í raun og veru.

    Mér finnst það reyndar líka alveg hrikalega fyndið þegar menn eru að horfa til annara landa í þessu sambandi. Mér þætti t.d. alveg eðlilegt að það væri hreinlega bannað að aka um á nagladekkjum á Kúbu. Ísland er landfræðilega svolítið sér á báti og veðrakerfin hér eru ólík því sem gerist annars staðar. Sömuleiðis skiptir stærðin á okkur máli þar sem það er vandfundið mannsbarn sem ekki bregður sér úr bænum af og til yfir veturinn.

    Hinsvegar finnst mér það gott mál að það eigi sér stað þróun á nýjum gerðum vetrardekkja og áróður þess efnis að menn eigi síður að nota nagladekk ef menn telja sig komast af án þeirra en að skattleggja þá sem þurfa á þessum dekkjum að halda yrði hreinn glæpur.

    Kv Izan





    30.01.2006 at 22:33 #540740
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Siggi tæknó

    Þetta var athyglisverð upptalning en hún hljómar svipuð og mín með undantekningum.

    Blaðið sem ég fékk hef ég undir höndum og ætla að stikla á stóru:

    03,2003

    Í reglugerð um gerð búnað ökutækja eru strangar reglur um ljósbúnað bifreiða. Nákvæmlega er skilgreint hvað sé skylt að hafa (áskilin) og hvað má hafa (leyfð). Önnur ljósker eru bönnuð hvort sem þau virka eða ekki.

    Stöðuljós: hvít framvísandi og rauð afturvísandi staðsetnign bla bla bla áskilin 2 framvísandi og 2 afturvísandi leyfð aukalega 2 framvísandi og 2 afturvísandi

    aðalljós há, aðalljós lág, helmaljós, stefnuljós, númeraljós, bakkljós, þokuafturljós, breiddarljós, hliðaljós,

    Þokuljós: Hvít eða gul staðsetning bla bal bla tengd í gegnum stöðuljós. Leyfð 2

    Aðgreinaljós, leitarljós, Vinnuljós, dagljós,

    Ljóskastarar: Hvítir gulir lýsa fram. Geisli má vera tvískiptur. Ljósin skulu vera byrgð þegar ekki í notkun. Tengdir í gegnum háljós (þó stöðuljós á breyttum bifreiðum) Leyfðir 2

    Kv Izan

    P.s. hver er dagsetningin á þínu plaggi?





    30.01.2006 at 20:04 #540732
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég hef verið að velta fyrir mér ýmsum hlutum um aukaljós tengingu þeirra og notkun.

    Hvers kyns aukaljósum er ekki gott að mæta sem er ekki með dagljósaperu eða s.s peru sem eingöngu lýsa beint árfam eða niður. (þetta er gert með því að peran ýsir eingöngu upp í speglana sem kasta ljósinu fram og niður en það fer ekkert ljós niður í speglana sem þar eru.

    Til að menn átti sig á hvernig aðalljósker virka þá eru perurnar tvískiptar. Lága og hágeisla vöfin eru 55W og 60 wött. Þá sjá menn að munurinn liggur nánast því eingöngu í því hvernig ljósið fellur í spegla ljóskersins.

    Svuntuljós í nýjum bílum eru ekki með perum sem beina ljósinu niður og eru þ.a.l. ekki þægileg ljós til að mæta. Auk þess eru menn með lágageislann í aðalljósunum kvéikt og þá er hellingur af ljósi að lýsa í augu þess sem sá bíll mætir.

    Ég keypti bíl um daginn sem var fluttur inn með 2 kastarapörum 2 auka há ljós og 2 þokuljós. Reyndar finnst mér tengingarnar vera rangar en þær eru þannig: auka kastarar kvikna með háa geislanum sérrofalaus og gaumljóslaust. Hin ljósin kvikna með aðalljósunum en lýsa ekki með parkljósunum sem er náttúrulega algert möst. Á þeim ljósum er sérrofi en ekkert gaumljós. Þannig hefur bíllinn fengið skoðun í 10 ár þangað til allt í einu í ár.

    Það var búið fyrir nokkrum árum að skipta um ljós og valin vinsæl ljós. Stórir Bosch kastarar með pungti og dreifigeisla og tengdir á háageislann. Hin ljósin voru valin pungtkastarar og tengd með aðalljósunum.

    Þessi uppsetning er harðbönnuð.

    Leyfð 2 stk aukaháljós á breytta jeppa, vöru og sendibíla tengd með háuljósum með eða án sérrofa.

    Leyfð 2 þokuljós tengd með stöðuljósum með sérrofa með gaumljósi.

    Ég spurði í hvaða flokk hann setti stóru kastarana sem væru bæði pungtur og dreifi og hann sagði samstundis að þau flokkast sem hágeisli. S.s. má ekki nota eingöngu.

    Eru ekki þessar reglur svolítið gamlar!!!!
    Ég vil geta stjórnað ljósunum sem ég vel framan á bílinn minn að vild. Það er mjög misjafnt hvaða ljós eru heppileg við hvaða færi og skyggni.

    Ég held að þetta væri atriði fyrir tækninefnd að kanna og ganga úr skugga um að reglurnar séu uppfærðar í takt við þróun á kösturum.

    Kv Izan





    29.01.2006 at 23:20 #540634
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég held að þú ættir ekki að hafa svo miklar áhyggjur af straumtöku spennumælis. Eitthvað tekur hann en það myndi ég ætla að gæti verið á svipuðu róli og klukkan í bílnum nema að það sé í honum ljós, það gæti verið að taka eitthvað sem geti tæmt rafgeymi á nokkrum dögum.

    Annars er áreinðanlega óhætt að finna svissstraum í öryggjaboxinu og þar ætti að vera minnst hætta á spennufalli sem ég held að þú ættir ekki að hafa svo miklar áhyggjur af heldur.

    Kv Izan





    29.01.2006 at 21:06 #540666
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Bara hugmynd en gæti ekki bara verið að framlokurnar séu frosnar fastar og komið vatn inn á framdifið sem síðan fraus fast.

    Kv Izan

    P.s. gæti átt við ef þú hefur bara tekið hann úr lokunum til að hjálpa við dráttinn til að nota lágadrifið.





    26.01.2006 at 12:25 #540292
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Núna þegar internet notkun er eins mikil og hún er í dag er það ljóslifandi staðreynd að netið er ekki að fyllast af gagnlegum upplýsingum heldur sorpi.

    Ef maður leitar af ákveðnum hlutum á leitarsíðum fær maður að megninu til sömu vefina, gagnlausar upplýsingar eða hreint og klárt rusl sem maður var alls ekki að leita af.

    Þetta hlítur að eiga sér stað á flestöllum vefum þar sem Pétur og Páll hafa aðgang að með eða án hindranna, hvort sem nafnleynd eigi sér stað eða ekki, til að tjá skoðannir sínar eða taka á einhvern máta þátt í mótun vefsins.

    Þettaer að gerast á old.f4x4.is og er búið að eiga sér stað í langann tíma, ekki bara í spjallinu. Lítiið t.d. á myndaalbúmið, það er að finna myndir af berleggjuðum kvenmönnum sem eru á engann hátt tengdar jeppamennsku sem slíkri og mynd af fjarstýringu sem á að skipa konum fyrir.

    Mér finnst þessi vefur hafa þróast ágætlega og hann er að miklu leyti laus við sorp og skemmdarverk. Notendur eru tiltölulega fáir og það er frekar auðvelt að sía út svör eftir því hvort þau séu sögð af viti.

    Ég held að menn verði að sættast á að nýta sér sorpsínuna sem er innbyggð í augum notendanna og horfa framhjá vitleysisiganginum til að nýta sér kosti vefsins.

    Einnig er hægt að minna á samskiptamáta sem menn notuðu áður fyrr sem gekk út á það að menn stóðu andspænis hvor öðrum og ræddu saman um málefnin. Þetta er sniðugt að gera á fundum 4×4 hvort sem er í Reykjavík eða landsbyggðadeildum. Þangað ættu flestir að koma sem áhuga hafa á því að ræða um jeppa, breytingar, útiveru og jafnvel klæðalitlar konur.

    Kv Izan





    23.01.2006 at 15:50 #540004
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Hvað þýðir "Lögreglusamþykkt".

    Er það ekki það sem menn hafa verið að komast að að sé í raun gamaldags stjórnunaraðferð lögreglustjóra og algerlega á skakk og skjön við landslög.

    Þegar á hólminn er komið þá eru bara til umferðarlög sem gilda á landinu í heild og einhverjir löggustjórar eiga ekki að geta breytt því. Ef ég er gestkomandi á Akranesi á ægilega fínum pikkupp og fæ sekt fyrir það að leggja fyrir utan hjá vini mínum, á ég að fá sekt fyrir það og lesa mér til um allar lögreglusamþykktir á landinu til að gera örugglega ekkert ólöglegt í neinu umdæmi??

    Kv Izan





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 344 total)
← 1 … 14 15 16 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.