Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.05.2006 at 00:24 #551946
Daginn
Það eru til fræði sem segja að 6 ára gamll geymir sé ónýtur. Það er ekki rétt en ágætt að hafa það í huga að gamla geyma getur verið dýrt að halda í notkunn. Ónýtur geymir getur hæglega eyðilagt alternator.
Það leynir sér ekkert ef geymirinn er ónýtur. Hann heldur ekki hleðslu og gefur of lítið start.
Geymir sem fær of mikla hleðslu getur soðið og þá sullast geymasýra upp á pólana og myndað spangsgrænu en en geymirinn er gjarnar blautur eftir notkun ættirðu að láta athuga alternatorinn.
Með því að skipta um geymatengi og sjá til þess að þau séu hreyn og gefi fullt samband þá ertu búinn að koma í veg fyrir mjög marga hluti. Oxiterun verður ekki þar sem súrefni kemst ekki að.
Mér hefur oft dugað að skipta bara um geymasambönd og jafnvel víra á milli geyma og – yfir í mótor til að koma algerlega í veg fyrir svona vandræði.
Feiti, vaselín, sílikon eða önnur slík efni skaltu aldrei sulla yfir rafmagnstengi. Ég er rafvirki til tæplega 10 ára og fullyrði að svoleiðis meðferð á rafmagnstengjum er aldrei til bóta. Í fyrsta lagi þá ertu að loka inni raka og drullu inni í tengingunni ef rakinn á annað borð kemst þangað, sem hann gerir fyrr en síðar. Í öðru lagi þá gerir slík feiti þér útilokað að umgangast tengin í framtíðinni og ef þú þarft að eiga við tengin þá er útilokað fyrir þig að hreynsa fituna af pólunum aftur og hún einangrar skóna frá tenginu.
Kv Izan
05.05.2006 at 10:08 #551938um pólskó.
ekki maka neinu á þá heldur haltu þeim hreinum.
Ef það kemst raki eða drulla undir eitthvert mak þá kemst það ekki út aftur.
Kv Izan
01.05.2006 at 23:11 #551634Daginn
Ég er þeirrar skoðunnar að svona braut þurfi að vera opin almenningi á ákveðnum tíma og sanngjarnt þætti mér að lítilsháttar aðstöðugjaldtaka ætti sér stað.
Tryggingamál eru annar hlutur og væri t.d. athugandi að hluti gjaldsins væri trygging á meðan kappaxturinn færi fram. Það væri síðan Kvartmíluklúbbsins að ná samningum við tryggingafélag að tryggja alla bíla sem á brautinni aka svo fremi sem ökumenn séu allsgáðir, með gilt ökuleyfi, beltin spennt og á skoðuðum bíl.
Þessa umræðu ætti 4×4 að taka fullan þátt í og fylgjast grannt með því að það gæti komið í okkar hlut að byggja og reka slíkar brautir eins og tíðkast í Noregi og trúlega víðar. Náttúruverndarsinnar æpa og góla að þeir vilji gera hállendið að helgireit sem ekkert megi hrófla við, vegalaust og mannlaust. Gott ef 4×4 er ekki nýgengið til liðs við slík samtök.
Ef til þessa kemur þá verðum við, sem jeppaklúbbur, að standa skil á samskonar æfingabraut og Kvartmíluklúbburinn stendur skil á.
Kv Izan
25.04.2006 at 12:24 #550772Sælir
Ég myndi halda að bæði sé best. En ef til stendur að setja fyrst eina og síðan hina myndi ég hugsa málið út frá þessum rökum.
Hugsanlega er afturdrifið tregðulæst. Eins mikið og menn eru á móti slíkum búnaði þá er hann ágætur til síns brúks. Hann er hvergi nærri því jafngóður og 100% læsing en hjálpar samt til. Með slíka læsingu að aftan myndi ég byrja á framdrifinu.
Eitthvað fær mann til að ætla að þegar maður þarf mest á læsingum að halda þá standi bíllinn að megninu til í afturlappirnar og þá mætti ætla að afturlás sé heppilegastur en sem betur fer eru bílar yfirleitt þyngri að framan og þess vegna betra að hafa lásinn í að framan.
Ef þú ætlar að læðast mikinn hliðarhalla er framdrifslásinn sá sem þú notar.
Hinsvegar er málið líka eins og Einar kveður á um að aðstæðurnar eru eins misjafnar og þær eru margar og í ákveðnum tilfellum væri betra að hafa læsingu að aftan og öðrum að framan, en til að forðast þessa pælingu er langbest að hafa 100% læsingu bæði að aftan og framan.
Kv Izan
23.04.2006 at 23:11 #197835Sælir
Ég tel mig vera búinn að finna rót vandans í sambandi við það að menn séu að týnast hist og her um landið með allar græjur en ekkert kunna á þær.
Ég var nefninlega að skoða myndaalbúmið þar sem nokkrir afar vel búnir jeppar og greinilega þaulvanir jeppamenn fóru bíltúr um Austurland.
Þetta var bíltúr um Sólheimasand, Reynisfjall, Vík í Mýrdal og Þakgil.
Það er enginn þessara staða á austurlandi.
Þessir staðir eru rétt vestan við það sem ég myndi kalla mið suðurland.
Ég held að 4×4 ætti að halda námskeið í landafræði, þar sé hundurinn grafinn. Menn eru ægilega snjallir á tækin og græjurnar en hafa ekki hugmynd um hvar þeir eru á landinu.
Þetta er ekki eina dæmið um þetta vegna þess að ef menn skoða vef Rafiðnaðarsambands Íslands og fletta upp sumarhúsum á austurlandi þá er fyrsti staðurinn nefndur Kirkjubæjarklaustur.
Þetta finnst mér bara fyndið..
Kv Izan
22.04.2006 at 20:53 #550550Daginn
Það hefur sýnst mér á skrifum Verkfræðingsins að hann sé slíkur nákvæmnismaður að annar eins sé vandfundinn.
Ég ber ekki vott um efa að þessi auglýsing hans sé unnin af þeirri nákvæmni sem önnur skrif hans sýni og sanni.
Kv Izan
P.s. enda greiðir maður aldrei of mikið fyrir góðann bíl….
22.04.2006 at 16:31 #550414Sæll
Svona bilanalýsingu heyrði ég um toyotu crown til forna. Þá loguðu öll aðvörunarljósin í mælaborðinu og skefldi líftóruna úr ökumanninum.
Bíllinn var dæmdur með heilabilun en raunin var sú að kolin í alternatornum voru farin.
Þatta sem þeir lýstu hér að ofan gæti líka átt við en tað gæti þurft að taka torinn í gegn.
Kv Izan
20.04.2006 at 13:33 #549918Sæll Sveinn
Þessi toyota sem þú ert með linkinn á er fjallmyndarlegur bíll en það er verðmiðinn líka.
Ég keypti Patrol rétt fyrir áramót og er búinn að velta fyrir mér hvort ég hafi greitt aðeins of mikið fyrir gripinn. Bíllinn er 93 módel ekinn 270 þús km. Hann er reyndar bara 36" breyttur og hlutfalla og framdrifslæsingalaus. Hann er algerlega ryðlaus og með upptekna vél, nýja túrbínu, upptekinn gírkassi og nýlegur millikassi.
Fyrir herlegheitin greiddi ég heilar sjöhundruðþúsund krónur. tekið skal fram að bíllinn var bara á 35" sumardekkjum.
verðmunurinn er 1650 þúsund krónur. Ég veit að 4.2 patrol kostar milljón komin í, milligír kostar 250 þús framdrifslæsing kostar 150 þús og hlutföll 100 þús. ný 44" dekk kosta reyndar 250 þús en þá er pattinn orðinn miklu, MIKLU betri jeppi en þessi Toyota sem þú varst að spá í
Kv Izan
17.04.2006 at 08:18 #549560Sælir
Það sem ég er hræddastur við í sambandi við þetta próf er að auðveldlega gæti því verið breytt og mönnum gert ókleift að gangast undir það t.d. vegna verðlags eða annara hluta.
Fyrr en nokkur fær rönd við reist verður þessu smellt inní meiraprófið og verðið hækkað á því.
Námskeið eru af hinu góða, t.d. rötun. Gps tækin verða stöðugt flóknari og fullkomnari viðmótið einfaldara og menn hafa alltaf minni og minni hugmynd um hvað tækið er í rauninni að gera. Sama má segja um Vhf talstöðvar, ég held að afskaplega fáir viti hvað þessar talstöðvar geti gert og sama má segja um farsíma sem eiga greinilega eftir að breytast mikið á næstunni.
Ég fór einu sinni fyrir löngu síðan á námskeið sem hét "Fjallamennska 1" upp á Hellisheiði og lærði þar m.a. að grafa snjóhús sem tók 4 í gistingu. Á leiðinni heim daginn eftir var skollið á frekar dimmt veður og leiðsögumaðurinn okkar rétt orðinn rammvilltur á milli varðanna sem eru rétt við neyðarskýlið. Það fékk hinsvegar svo mikið á hann að hann sagði ekki orð á meðan hann mundaði áttavitann til að rata og kenndi raunverulega akkúrat ekki neitt.
Þarna um helgina útskrifaðist ég sem Fjallamaður 1 grunlaus um hvernig ég ætti að bera mig að við að munda áttavita í vondu veðri.
Reynsla verður ekki fengin með námskeiði.
Ég er sammála nafna mínum í 2 pósti að ofan að klúbburinn ætti að einblína á forvarnarstarf fyrst og fremst, kynningu á klúbbnum og auðvelda félagsmönnum að sækja námskeið í hinu og þessu.
Kv Izan
16.04.2006 at 09:22 #549524Sælir
Vissulega hafa menn rætt um hvernig skuli ná til manna í ferðahugleiðingum en að mínu mati var sniðugasta uppástungan að koma örlítilli fræðslu í ökunám þ.e. búnaður bíla og notkun þeirra í akstri um fjallvegi.
Hitt er bundið við við tiltölulega fámennann hóp sem er einfalt að ná til með einföldum skilaboðum. Það þýðir ekkert að reyna að kenna tutuguþúsund manns með langri ræðu það verður að hugsa upp eina setningu sem dugar næstu 20 árin.
Án GPS OG eins langdrægs fjarskiptatækis ferðu ekki á fjöll.
Þessi setning gæti átt við bæði að sumar og vetrarlagi.
Þá gæti klubburinn opinberað leyndarmál sitt um litlubílana. Sá flokkur opnar gátt til að hleypa inn nýjum meðlimum og leyft óvönum og illa búnum þáttakendum að prófa alvöru jeppaferð. Þeir sem áhuga hafa á slíkum ferðum ganga til liðs við klúbbinn, endurnýja eða breyta bílunum sínum og græja þá upp.
Jóhannes litludeildarforrystusauður finnst mér afbragðsgott dæmi um þessa þróun (ásamt mér sjálfum)
Það er annað sem klúbburinn getur gert og það er að opinbera leyndarmálið um hvernig búnað menn þurfi að eiga, t.d. er betra að eiga tuttuguþúsund króna teygjuspotta en doldið sver kaðall dugar, eins er besta að eiga áttatíuþúsund króna gps tæki með kortagrunni og tvöhundruðþúsundkróna fartölvu tengt við en fimmtánþúsund króna handtæki dugar bara fínt.
Ef menn lærði það í ökunámi að fara ekki úr byggð nema með skóflu, spotta og startkapla og 4×4 hvettu menn til að eiga Gps og Vhf eða Nmt þá eru bílar orðnir sæmilega búnir. Annað kemur með reynslunni, felgujárn, dekkjatappar, drullutjakkar, jarnkallar, varahlutir, ljós o.s.frv.
Kv Izan
P.s. svo mætti klúbburinn stuðla að því leynt og ljóst að kenna fólki, bæði félagsmönnum og öðrum, að bera virðingu fyrir náttúrunni. Þó að hún sé viðkvæm og falleg er hún líka grimm og stórhættuleg…..
08.04.2006 at 22:58 #548472ertu fullur nokkuð?????
06.04.2006 at 12:20 #548454Sælir
Nú spyr ég eins og fávís kona…
er eitthvað í húfi þó að neðsta blaðið sé fjarlægt???
er ekki bara hægt að fjarlægja sama blað hinumegin og safna síðan peningum fyrir gormum eða nýjum bíl.
Annars myndi ég fara í búð sem heitir Fjaðrabúðin partur og spjalla við þá. Ef þeir eiga svipaða fjöður þa´kaupa bara beggja megin.
Kv Izan
04.04.2006 at 00:28 #548106Daginn
Þetta er náttúrulega stórgalli við ágæta heimasíðu þessa að menn geti breytt fyrirvaralaust framburði sínum og sett þannig allt á annan endann. Skv skilmálunum góðu þá hélt ég að skrifin væru eign 4×4 um leið og þau eru samþykkt en eftir það getur hver sem er breytt sínum texta.
Ég get s.s. sagt einhverjum að fara í rassgat og gert viðkomandi kolvitlausann, fengið hann til að kalla mig öllum illum nöfnum, breytt síðan textanum og sagt honum að fara í lúdó og sagt hann eiga upptökin af látunum. Sniðugt.
Ég er farinn að skilja ýmsa hluti betur og tel bráðnauðsynlegt að menn sem bæta "vefnefnd" við undirskrift sína ættu að ræða saman um þessa hættu.
Kv Izan
P.s. Þórir, ég er sunnlendingur að upplagi svo að ég fell tæplega undir skoðun þína á austfirðingum…..
03.04.2006 at 20:25 #548100Sælir.
Það er náttúrulega dagljóst að enginn vöruseljandi gengst við því að selja ónýta vöru og leggja að veði dýran búnað eins og olíuverk og heilu mótorana. Þetta er jafnheimskulegt og að tryggingafélögin fái að ákveða sjálfir hvaða greiðslu þeir inna af hendi við tjón.
Það var hinsvegar ekki fyrr en eik nokkur otaði því að Þóri að hugsanlega og mögulega væri eitthvert síugrey í Hummer stífluð eða jafnvel vatn komið í hráolíusíuna, sem gerist á bestu bæjum, að Hummer eigandinn fór á taugum og smitaði nokkra af taugaveiklun.
Þórir, ég les skrif þessa ágæta vefs mikið og held ég að þú hafir valdið töluverðri löngun nokkra félagsmanna til að eignast Hummer, allavega hafa niðrandi skrif manna um Hummer stórminnkað síðan þú varst sjáanlegur á þínum. Það er ekkert nýtt að menn hnýti í eigendur annara tegunda en þeir eiga sjálfir og held ég að Patrol eigendur ættu allir að vera komnir á geðdeild ef þeir tækju niðrandi ummæli annara eins nærri sér og þú. Hinsvegar hafa menn atyrt þig og átt í litlum vandræðum við að ná þér í gírinn. Það hefur ekki alltaf verið sanngjarnt gagnvart þér en því er auðvelt að horfa framhjá þegar þú svarar slíkum ófögnuði eins og raun ber vitni.
Sérstaklega þótti mér athyglisvert að sjá menn byrja, um leið og Þórir virtist orðinn trekktur, að merkja stöðu sína í vefnefnd. Eins og menn séu að segja "ég er að fylgjast með þér, gæskur". "Passaðu þig".
Þórir, þegar þú sest næst við lyklaborðið geri ég ráð fyrir að þú ausir úr skálum reiði þinnar yfir mér en þá skaltu íhuga það að það eina sem eik var að benda þér á, að ég las úr textanum, var að kanna hvort einhverjar síur væru óhreinar eða eitthvað annað sjáanlegt í hraðri yfirferð um bílinn. Ef þú hefðir sagt í næsta þræði að þú hefðir kannað hráolíusíu, netsíu í olíverki og loftsíu og allt hefði reynst hreint (þú athugar að slík athugun er bráðholl öllum mótorum, meira að segja í Hummer) hefðir þú tekið af allan vafa um að olían hefði verið skítug og ekki í takt við það sem við erum að kaupa.
Þessar upplýsingar ættu að berast til Hálendismiðstöðvarinnar í Hrauneyjum til að uplýsa þau um að eitthvað væri að olíunni þeirra. Þau hljóta að vilja halda viðskiptum við ferðamenn sem þurfa eldsneyti og gera það sem þarf til þess. Jafnvel hreinsa tankana.
Kv Izan
03.04.2006 at 17:47 #548222Sælir
Ég veit ekki hvernig tryggingafélögin tryggja breytta bíla. Trúlega er ekkert erfitt að finna út hvað nýr og nýbreyttur bíll er mikils virði og fá hann skráðann sem slíkann en hversu mikið reikna þeir sem afföll af breytingu.
Einhver þöngulhaus hjá Toyotu sagði að gera mætti ráð fyrir að hverskyns breyting verðfalli um 25% frá upphaflegri tölu á hverju ári í þrjú ár en síðasti fjórðungurinn stæði félli í takt við bílinn. Þetta gætu tryggingafélögin notað sem viðmiðun og trúlega komist upp með það.
Ég held fast í skoðun mína að eiga bíl sem kostar ekki mikið og tryggja sem minnst.
Kv Izan
P.s.
30.03.2006 at 20:00 #547906Sælir
Það er mín skoðun að þegar menn fjárfesta í stórum bílum sem þessir amerízku pikkuppar eru þá geri menn sér grein fyrir því hvað þeir eru að kaupa.
Slíkum bílum mega t.d. jafnaldrar mínir og þeir sem yngri eru mér ekki aka slíkum bifreiðum nema hafa meirapróf, og í flestum þéttbýliskjörnum landsins eru til samþykktir sem kveða á að slíkum farartækjum megi ekki leggja við íbúðargötur.
4×4 gæti tekið þátt í því með öðrum t.d. FÍB og fleirum að breyta skilgreiningunni sem rammar þessa bíla inn með vörubílum. Í mínum augum eru þetta engvir vörubílar, heldur pallbílar. Lagaramminn gæti einskorðast við hvort bílarnir væru á virðisaukaskattsnúmerum upp að 5 tonna heildarþyngd.
Með því hinsvegar að breyta þessu þá ramma menn þessa bíla trúlega inn með venjulegum jeppum í tollaumhverfinu og gera bílana minna eftirsóknaverða. (þetta er reyndar fyrirbæri sem ég þekki ekki vel).
Kv Izan
P.s. eru ekki til glufur í vörubílaumhverfinu sem mætti nýta til frádráttar í rekstri á svona apparötum….
29.03.2006 at 18:38 #547744Sælir
Þetta er náttúrulega ótrúlegt hvað þessir djöflar geta hækkað verðið gengdarlaust allir á sama tíma, svipað mikið og sleppt algerlega úr kaflanum um lækkanir á heimsmarkaðsverði.
Síðan fyllir maður tankana aftur og aftur með bros á vör þorir ekkert að mótmæla því að ef einhver fer í skaðabótamál aftur vegna samráðs eða einhverra hluta þá hækkar verðið bara enn meira til að mæta þeim kostnaði.
Samkvæmt tölum mhn þá kostar það mig, af því að ég bara næ bílnum ekki niður fyrir 20 á hundraði á um 100 km hraða, tæpar 15.000 krónur að aka frá Egilsstöðum, þar sem ég bý, og á hrygningarstöðvarnar, Selfoss, hringveg 1 um Breiðdalsheiði og þar af 61 km á malarvegi sem sýni það að þungaskatturinn er ekki að fara í að bæta vegakerfið nema að of litlu leyti
Það var reyndar mikil samgöngubót að þá borgat til að aka undir Almannaskarð og ég veit ekki hvort vegagerðin hafi gert ráð fyrir því gati í þessum tölum sem ég hnupplaði á vef vegagerðarinnar.
Mér virðist fleiri vera að sukka í olíupeningunum heldur en olíufélögin.
Hvernig var svo með Atlantsolíu, hvað er líterinn hjá þeim. Áttu þeir ekki að vera allra meina bót fyrir samkeppni á olíumarkaði.
Kv Izan
26.03.2006 at 21:30 #547444Sælir
Þetta er prýðishugmynd hjá þér frændi en ef það á að kveikja í mörgum bílum þá myndi það kosta helvítis helling af steinolíu og þá myndu olíufélögin bara græða meira.
Kv Izan
21.03.2006 at 00:07 #546982Sæll Gundur
Það hefur verið áður sagt á þessum vef en þessar myndir af þér sýna það og sanna hvað er hárfín lína sem skilur að visku og heimsku í svona sporti.
kv Izan
18.03.2006 at 20:03 #546802Sælir
Í mínum augum er munurinn á toyotu og patrol einfaldur. Patrol er vélavana og 4 lítra vélin kostar helling. Allt annað kram er 100 % ef því er sinnt.
Tojota er með veikara framdrif en mótor sem dugar en þú þarft að kaupa frekar fínann bíl ef þú ætlar að bjóða fólki að sitja í aftursætinu.
K&N loftsíu hinsvegar set ég ekki framar í bíl nema kannski benzín bíl með blöndung. Hún hleypir alltof miklu í gegnum sig og ef það skemmir ekki loftskynjara þá skemmir hún túrbínur. Þær þola ekki svona skítugt loft.
Kv Izan
-
AuthorReplies