FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 344 total)
← 1 … 12 13 14 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 12.10.2006 at 12:40 #563310
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég las út úr dómnum allt annan hlut en þið eruð búnir að ræða hér.

    Þarna voru menn ákærðir fyrir utanvegaakstur á veiðum. Slíkt er bannað og í raun bannaðara en að ferðast eins og jeppamenn gera gjarnan.

    Skv. einhverjum náttúruverndarlögum eða lögum um veiðar á villtum spendýrum er akstur utan vega bannaður óháð snjóalögum eða frosti í jörð. S.s. er bannað að keyra á snjó, sama hversu þykkur hann er, eða klaka svo fremi sem hann sé ekki á vegi.

    Jeppamenn geta ekki tekið dóma sem falla um utanvegaakstur á veiðum sér til athugunar.

    Hinsvega féll dómur á Héraði þar sem hreindýraeftirlitsmaður var kærður fyrir utanvegaakstur á fjórhjóli, þegar hann ók eftir vegi sem sést ekki nema sumsstaðar, vegna þess að hann ók þessa leið dagin eftir að dýrið var fellt og héraðsdómur komst að því að þá voru þeir ekki á veiðum þegar fjórhjólinu var ekið umrædda leið.

    Reyndar fylgdi það þessum dómi að þeir höfðu fengið leyfi landeigenda til að aka þessa leið á hjólunum.

    Kv Izan





    25.09.2006 at 12:42 #560816
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst alltaf spaugileg umræða um bændur og utanvegaakstur. Bændur hafa einir fjárhaglegann ávinning að afréttir sínir haldist óskemmdir og eru á þeim forsemdum leyfður utanvegaakstur við smölun.

    Hinsvega er verið að ræða um utanvegaakstur á vegi sem er eiginlega ennþá furðulegri hlutur.

    Í Héraðsdómi austurland féll dómur fyrir nokkru þar sem ákært var annars vegar fyrir notkun vélknúinna ökutækja við veiðar á hreindýri og hinsvega fyrir utanvegaakstur þar sem fjórhjól var notað til að ná í fallið dýr.

    Þá var ekinn ævaforn traktorsslóði sem á köflum sést ekki eða illa með reyndar leyfi landeiganda. Sýknað var í báðum ákæruliðum vegna þess að þegar dýrið var sótt voru þeir ekki á veiðum og óku eftir slóða.

    Þarna finnst mér vera hugsanlega komið fordæmi fyrir því að ef vegslóði er notaður óháð aldri eða ástandi er ekki hægt að dæma menn fyrir utanvegaakstur.

    Kv Izan





    17.09.2006 at 11:10 #560108
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst það athyglisverðast við þennann dóm að þarna var notaður æfagamall straktorsslóði sem er mjög óskýr á köflum og jafnvel sést ekki á sumum stöðum.

    Eftir þessum slóða ver ekið að miklu eða öllu leyti og kært var einnig fyrir utanvegaakstur en báðir sýknaðir.

    Spurningun er hvort þessi dómur sé fordæmi fyrir því hvaða slóða megi nota.

    Ég held að umhverfisnefnd 4×4 og áhugamenn um notkun gamalla slóða ættu að kynna sér innihald dómsins rækilega því að þetta er sýknudómur í málefni sem skiptir jeppamenn miklu máli.

    Sömuleiðis er það umhugsunarefni hvernig dómurinn hefði farið ef þarna hefði verið venjulegur jeppamaður í leit af kaffistoppistað eða ef einhver ummerki hefðu myndast hjá veiðimönnunum.

    Dómurinn fer út í þá sálma að hjólin voru ekki notuð við veiðar heldur lauk veiðunum þegar vopnin voru fjarlægð af veiðistað

    Kv Izan





    05.09.2006 at 20:54 #559344
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Einhvernvegin minnir mig að Plastviðgerðir Grétars hafi verið að framleiða olíutanka úr plasti.

    Kv Izan





    16.08.2006 at 00:29 #557882
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þú nefndir að þig vantaði jeppa sem væri lipur innanbæjar. Það er hugarástand í mínum augum. Ég átti einu sinni Subaru justy og þótti fínn í innanbæjarsnattið en keypti stuttu seinna gamlann volvo og þótti hann ekki síðri. Enn seinna keypti ég gamlann Trooper, og á enn, og þótti hann albestur í laugavegsrúntinn. Bíllinn var einstaklega kassalaga og maður gat vitað upp á hár hvað bíllinn var stór.

    Ég get verið sammála flestu ofantöldu, að 3l TD toyota er líklega skemmtilegasta eignin í þessum flokki en þar á eftir kemur líklega diskóinn. Hann færðu varla á undir milljón en kannski athugandi. Trooperinn færðu ekki undir milljón nema alelstu árgerðirnar en Isuzu er án efa albesti bíllinn í þessum flokki. 3l TDi vélarnar eru fyrstu og einu Isuzu vélarnar sem hafa reynst svikular.

    Musso finnst mér tæplega framtíðareign nema manni finnist gaman að gera við furðulegar bilanir sem tengjast rafmagni. En Pajeróinn með 2.8 TD vélinni gæti verið að síga niður í þetta verð. Það er skemmtilegur jeppi og sérstaklega ef hann er sjálfskiptur.

    Ég bara fæ mig ekki hinsvegar til að vera sammála ofantöldum álitum um cherokee. Málið er að ef þú finnur vel með farinn bíl á kristilegu verði þá er cjeffinn ágætisbíll. Það er líka ódýrt að kaupa varahluti (allavega miðað við Patrol) og þeim bíl er hægt að breyta með tiltölulega einföldum hætti í algerann rudda fjallatrukk.

    Kv Izan





    03.08.2006 at 01:19 #557272
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég heyrði um daginn hvernig hún hrapaði en ég veit ekki hvort sagan sé sönn en hún er trúverðug.

    Vélin var notuð til flutninga og var á leiðinni á milli Hornafjarðar og á leið eitthvað í vesturátt annað hvort Reykjanesið, Reykjavíkur eða Selfoss-stokkseyrarbakka svæðisins, það skiptir kanski ekki svo miklu en.

    Hún var býsna hlaðin þegar fljótlega eftir flugtak bilaði annar hreyfillinn og flugmönnum sagt að snúa við. Þessar vélar geta auðveldlega flogið á einni vél svo að flugmennirnir ákváðu að fara alla leið. Þá gerðu þeir sér ekki grein fyrir því hversu þungur farmurinn var og hreyfillinn sem var í gangi byrjaði að hitna meira og meira. Það var fátt annað í stöðunni en að nauðlenda gripnum hið snarasta og þar liggur hún. Stuttu eftir að vélin lenti þarna vöru verðmæti vélarinnar sótt vélar, vængir og aðrir nothæfir varahlutir.

    Þetta með skemmdar vargana þá finnst mér það skrýtið hvað hefur verið raðað miklu af haglaskotum í skrokk hennar. Hvaða sport er það að skjóta 12 metra langa blikkbelju sem liggur útí fjöru, í mínum augum krefst það eins lítillar færni og hugsast getur og veitir mönnum því afskaplega takmarkaða þjálfun í skotfimi.

    Nær væri að raða kókdósum á sandinn og skjóta útúr glugga vélarinnar. Það veitti mönnnum hugsanlega útrás fyrir hernaðarleiki.

    Kv Izan





    01.08.2006 at 19:03 #557070
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    er….

    Daginn.

    að finna þér 10q vír, setja skó á báða enda og tengja hann frá – pól á geymi og í mótorinn, einhversstaðar helst í blokkina, bolti sem heldur einhverju jaðartækinu er afbragð.

    Að því loknu skaltu setja í gang og kanna hvort eitthvað hafi lagast. Gakktu bara vel frá vírnum og láttu hann svo bara vera þarna, hann gerir bara gagn.

    Þarna ertu búinn að sannreyna uppástungu rafvirkjans þíns sem ég er alveg sammála allavega í fyrstu.

    Dugi það ekki til er kanski mál að líta á altarnatorinn. Horfðu bara á hann og hugsaðu vandlega hvort allt sé með felldu, reimin vel strekkt, vírarnir vel tengdir, vírarnir illa einangraðir eða merki um bruna eða hitamyndun og hvort torinn sé skítugur.

    Ef allt virðist með felldu þá skaltu verða þér úti um sepennumæli, sem er gagnleg eign og sjálfsagt verkfæri í fjallajeppa, og mæla spennuna á geymapólskónum meðan bíllinn er í gangi. Þarna ætti að vera 13,8V spenna DC. Ef hún er til staðar er bilunin ekki í altarnetornum. ef hún er rúmlega 12V þá skaltu auka aðeins við bílinn, það er stundum eins og torarnir hlaði ekki fyrr en mótorinn er á u.þ.b. 1500 snúningum.

    hækki spennan uppí 13,8V er í lagi með torinn en ef ekki þá skaltu rífa hann úr bílnum.

    Ef alternatorinn virðist vera í lagi skaltu skipta um pólskó og þrífa geymin og geymasaböndin vel.

    Ef Alternatorinn er bilaður gætirðu sent hann í viðgerð eða tekið hann í sundur ef þú telur þig færann um slíkar viðgerðir. Ég hef grun um að Emil hafi nokkuð til sín máls að kolin séu búin en úr því að torinn er kominn úr gæti verið sniðugt að þrífa hann rækilega.

    Takir þú hann í sundur skaltu rýna vel í innyflin og leita af einhverju brunnu eða illa förnu. Þá hluti gæti verið nauðsynlegt að skipta um.

    Vonandi verður þetta þér gagnleg lesning og gangi þér vel.

    Kv Izan





    16.07.2006 at 11:42 #556482
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Prófaðu hráolíusíuna, hún gæti verið smekkfull af vatni eða bara drullu eða ef það er einhver lítil netsía í eða fyrir framan olíuverkið. Nissan pikkalóinn minn gerði þetta fyrir dottlu síðan og hann hagaði sér svona.

    Kv Izan





    12.07.2006 at 17:56 #555988
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég spjallaði við Lúther um daginn en hann fór úr Kelló í Setrið fyrir 2 vikum en mig langaði til að vita hvort einhver hafi verið að flækjast á þessum slóðum síðan og gæti lumað á upplýsingum um færð.

    Kv Izan





    29.06.2006 at 23:53 #555404
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst þetta með að "ef þú getur ekki vaðið ána áttu ekki að fara á bílnum" og spekin var sú að ef bíllinn stoppar útí miðri á með vatn á vélinni eða bara út af einhverju, hvernig ætlarðu til baka????

    Kv Izan

    ég kann ágætlega við að vera lifandi gunga.





    25.06.2006 at 15:04 #555116
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það er einhvernveginn þannig að ef menn kaupa sjónvarp þá er oft innsigli sem meinar hinum almenna borgara að opna tækið. Ef innsiglið er rofið af öðrum en hafa heimild til þess þá fellur tækið úr ábyrgð. Það sama á við um þvottavélar, þurrkara, vídeótæki o.s.frv.

    Þessir skilmálar finnst mér ekkert óeðlilegir en í raun finnst mér það kraftaverki líkast að umboðin séu reiðubúin til þess að ábyrgjast bíla sem er búiðað breyta svo 38" dekk passi undir.

    Þegar bílum er breytt svona mikið þá er búið að fara inní flesta hluti saga í sundur, sjóða í burðarvirki lengja drifsköft, bæta við lággírum, lengja stýrisgang svo eitthvað sé nefnt.

    Vissulega eru margir eða jafnvel flestir þessara bíla nógu sterkir til að þola þetta t.d. á drifbúnaðurinn í gamla Patrol að geta dregið 3,5 tonna eftirvagn. En þegar 44" dekk eru komin undir bíl eins og Patrol, sem er ekki beinlínis þekktur fyrir krafmikla mótora, þá er allur vél-, og drifbúnaður í 90-100% álagi alltaf þegar bíllinn er ekinn.

    Kv Izan

    P.s. er ekki bara miklu betra að notast við eldri bílana, það er ódýrara að halda þeim við, það kunna allir að gera við þá og minni skaði ef eitthvað kemur uppá.





    19.06.2006 at 21:31 #554894
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    með að benda á annan.

    Daginn

    Agalega fer það í taugarnar á mér að jeppamenn dragi alltaf mótorhjólamenn inní sína umræðu um utanvegaakstur, mótorhjólamenn draga hestamenn í sína og jeppamenn ef enginn hlustar á tuðið um hestana. Og ef ekkert af þessu virkar þá er útlendingum kennt um allt saman.

    Af ofangreindum lýsingum að dæma (tek fram að ég sá ekki bílinn og kannast ekki við landið þar sem hann var) þá átti bílstjórinn alls ekki að keyra þarna. Kannski er það þyrnir í augum þeirra sem nota stærstu og mest breyttu jeppana að láta smá votlendi stoppa för sína en málið er einfalt í mínum augum Utanvegaakstur er bannaður nema jörð sé hulin snjó og frosin. Hvorugt þessara hluta átti greinilega við í þessu tilfelli.

    Menn verða að geta farið í ferðalag með það fyrir augum að geta farið svo varlega út á ákveðin svæði að þeir geti snúið við. S.s. dýfa fyrst stórutánni ofaní áður en maður sest í baðið.

    Svo er líka eitt málefni sem allir jeppamenn eiga að vita um landið okkar og það er hvernig það er þegar frost fer úr jörðu. Vegagerðin lokar svæðum eftir því hvenær lítil hætta sé á skemmdum á fjallvegum en þó að vegirnir um fjallabak og Landmannaleið séu færir þá eru leiðirnar þar á milli lokaðar og ófærar vegna aurbleytu þó að vegagerðin hafi opnað fyrir umferð um svæðið.

    Kv Izan

    P.s. reyndar finnst mér að 4×4 eigi að taka harðar á sínum félögum sem verða uppvísir um utanvegaakstur heldur en að benda þeim á að breyta bókinni hans Ofsa og skrifa að vegurinn sé ekki fær nema bílum sem innihalda tölustafinn 4 í undirtegundarheiti sínu……..





    14.06.2006 at 22:54 #554360
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Til hamingju Ísland, loksins er ljóst hvar við megum keyra, nefninlega hvergi nema með samþykki viðkomandi sveitarfélags.

    Þessir bjánar eru snjallir maður, "ef vegurinn er ekki á kortinu áttu að hafa samband við sveitarfélag eða veiðieftirlitsmann". Þarna eru þeir búnir að svara Ofsa, spurningunni um vegina sem ekki eru inná kortinu.

    En þarna væri kanski sóknarfæri fyrir okkur. Nauða í sveitarfélögum landsins með stöðugum hringingum og spjalli um hvort vegurinn sé í raun og veru leyfilegur til aksturs.

    Með því að halda símum sveitarfélagana á tali í viku eða tvær þá hljóta menn að sjá að þetta er ekki að virka enda þvílíkur fíflaskapur.

    Umhverfisráðherrann okkar fyrrverandi er líka að gleyma einni staðreynd og það er sú að mestur utanvegaakstur sem fer fram er í kringum fjölförnustu hálendisleiðirnar sem eru leyfðar á þessu korti. Landmannaleið, Kverkfjallaleið, Öskjuleið o.s.frv.

    Ég sé heldur ekki fyrir mér hvernig eigi að sporna við utanvegaakstri með því að banna akstur á vegum.

    Kv Izan





    05.06.2006 at 22:13 #553724
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég sá fréttina í sjónvarpinu áðan (5/6,2006) þar sem umhverfisráðherra ræddi, eða hótaði 2 hjólamönnum að ef þeir hypjuðu sig ekki til Þorlákshafnar þá myndi hún banna torfæruhjól með öllu.

    Mér finnst hún vera dóni.

    Ég er ekki að segja að þeir hafi mátt spóla og spæna þetta land sem þeir eða einhverjir voru á, en að taka tvo gutta út í bæ og hundskamma þá er náttúrulega barnaskapur.

    Mér finnst ekki heiðarlegt að hóta neinu, hvorki eignarnámi í hjólunum né að banna þau fyrr en aðstöðumál eru komin í viðunandi farveg.

    Það er líka fáránlegt að halda fram að leiksvæði minnki ekki verulega utanvegaspól vegna þess að ef svona svæði eru til þá er fyrst hægt að hóta almennilegum afleiðingum, þá er engin afsökun til.

    Það er auðséð að þessi ráðherra hefur andstyggð á svona tækjum og ættum við jeppamenn einnig að vara okkur á slíkum manneskjum í svona áhrifastöðum.

    Kv Izan





    05.06.2006 at 11:32 #553694
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Ég hef velt lengi fyrir mér, bæði í sambandi við motocross hjól og fjórhjól, hvað má nota þessi tæki. Eftir því sem ég kemst næst má ekki nota þau á vegum eða slóðum ag alls ekki utan þeirra.

    Reyndar ef maður gónir vel í lagabækur kemur í ljós að vélsleða má maður bara eiga og borga tryggingar af en ekki nota.

    Þess vegna spyr maður sig hvort þarna sé ekki mergur málsins að eigendur slíkra tækja mega hvergi vera, nema á brautinni í Þorlákshöfn.

    Sjálfur er ég mótfallinn notkun motocross hjóla úti í náttúrunni en væri gott sama að menn notuðu slík verkfæri á þartilgerðum svæðum t.d. Úlfarsfelli eða sambærilegum stöðum. Svæðin þyrftu að bjóða upp á áskorun fyrir bæði byrjendur og þá bestu ásamt keppnisbraut. Nú skil ég ekki hvers vegna slík svæði geta ekki fundist t.d. uppá Hellisheiði þar sem Hellisheiðin er ónýt sem útivistarsvæði þar sem hún er útbíuð í rörum og borgötum og meira og minna bönnuð umferð.

    Þarna mætti leita leiða til að gera svæði til þess að nota þessar græjur.

    Kv Izan





    01.06.2006 at 19:32 #551972
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Davíð

    Ef skórnir safna ennþá spangsgrænu eftir að þú skiptir um skó er kominn tími á að kíkj á aðra hluti.

    Þú ert orðinn tryggur að tengingin við geymana sé 100% og það er, sama hvað hver segir, grundvallaratriði.

    Núna skaltu finna þér spennumæli og gá að því hvort alternatorinn sé að skila hæfilegri spennu. Það gerirðu með því að mæla spennuna yfir geyminn með bílinn í gangi og prófa að auka aðeins við snúningshraðann á mótornum.

    Rétt hleðsluspenna er 13.8V og eitthvað nálægt því ættirðu að fá en fari spennan yfir 14.5-14.7V þá er mál að láta kíkja á alternatorinn, spennustillir, díóðubrú, legur og þrífa hann.

    Ef spennan dólar á þessu róli 12.8-14.5V þá eru miklar líkur á að rafgeymirinn sé ónýtur og tímabært að skipta. Framleiðsludagsetning geymisins er stimpluð á hann einhversstaðar og eins og ég sagði þá er 8-10 ára gamall geymir ekki nýr geymir.

    Prófaðu eitthvað að þessu og skrifaðu síðan hvað á daga þína drífur

    Kv Izan

    P.s. það er heill hellingur af rafvirkjum og rafvélavirkjum sem væru í stakk búnir til að hjálpa þér að finna það sem hrellir……





    30.05.2006 at 20:26 #553422
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Ég trúi því ekki að þú, Einar sért þeirrar skoðunnar að björgunarsveitir landsins ættu að tapa sinni einu tekjulind sem einhverju skilar að viti og þú haldir því fram að stjórnendur þessara tuga sveita um allt land hafi ekki leitað leiða til að afla fjár með öðrum hætti. Ef svo er þá máttu, mín vegna, finna þér stórann flugeld, troða honum þangað sem þér finnst þægilegast og kveikja svo í.

    Að fjallamaður skuli láta svona út úr sér, edrú!!!

    Mér finnst reyndar að sveitirnar ættu, eins og þær hafa unnið að síðastliðin ár að leggja kapp í að fara eftir öllum lögum í sambandi við sölu á slíkum gripum. Við erum að kaupa þessar vörur af slysavarnarfélagi og ættum því að bera virðingu fyrir hvað þetta er hættulegur varningur.

    Ég vona að þessi sveit sé tryggð gegn svona rugludöllum eða geti sótt málið áfram til framleiðenda vörunnar svo að þeir verði ekki fyrir fjárhagslegum skaða af þessu. Nóg er samt að þurfa að ganga í gegnum dómsferli fyrir og í sjálfboðavinnu.

    Kv Izan





    26.05.2006 at 21:47 #553246
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    er hann ekki framsóknarmaður……

    Kv Izan





    08.05.2006 at 20:30 #197926
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það eru nokkrar myndir af björgun xtracap bíls á Mýrdalsjökli, reyndar fannst mér áður hafi verið reynt að bjarga honum.

    Ef mig misminnir ekki þá voru menn að diskútera hvað væri hugsanlega að bílnum og ég er bara að springa úr forvitni hvað var að?

    KV Izan





    06.05.2006 at 11:27 #551954
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Málið með hvort geymirinn sé ónýtur.

    Sko, eins og ég sagði í fyrri pósti þá er möguleiki á að ef spennustillirinn er farinn og hann hlaði of hárri spennu þá er til í dæminu að geymirinn sjóði þ.e. sulli sýrunni upp í gegnum öndunina á töppunum og sýra fer afskaplega ílla með samböndin og veldur m.a. spangsgrænu. Eins er möguleiki að geymirinn sjóði ekki heldur stigi upp frá honum gufa sem inniheldur mikla sýru og umleikur samböndin og myndar þannig spangsgrænu.

    Þetta er í raun besta eðlisfræðin sem ég get boðið þér Óli en þetta lætur ekkert asnalega í eyrum allavega.

    Ég held hinsvegar að maður verði var við lélegann rafgeymi með öðrum hætti. Ef t.d. þú ert með einn stórann geymi eða 2 litla og gleymir að slökkva inniljósið í eina nótt og bíllin fer ekki í gang þá eru geymarnir ekki mjög góðir.. T.d. entist inniljósið í tæpa viku á 2 nýjum geymum og samt gat ég startað 71 módel 318 mótor sem var ekki í góðu ástandi.

    Feitin sem þú ert að tala um er notuð í rafmagnsiðnaði og er kölluð leiðnifeiti. Hana notar maður einstaka sinnum við tengingar á álleiðurum.

    Annars er málið með feiti, eins og glöggir hafa líklega tekið eftir, trúabrögð. Menn hafa gert þetta makað feiti á hugsanlega og óhugsanlega staði, jafnvel sett kopp á tengidósir og smekkfyll þær af koppafeiti. Síðan með tímanum smýgur rakinn inn að tengjunum og veldur útleiðslu og þá er ekkert spennandi að gera við.

    Eik minntist á að rafgeymir endist bara vel ef hann tæmist aldrei. Það er alrangt. Það eina sem heldur rýmd geyma er notkunin. Ef þú notar bara 10% af geyminum þá verður það mjög bráðlega rýmdin sem geymarnir eiga til. Hinsvegar þá meiga geymar alls ekki standa óhlaðnir og alls ekki frjósa tómir en það er mjög gott ef þeir svo til tæmast af og til gegn því að þeir fái hleðslu jafnskjótt aftur.

    Það er líklega rétt hjá Óla að það hefur verið pikkað nóg í þennan þráð um upplýsingar til Davíðs og ég er fullviss um að hann finni eitthvað til að ráða bót meina sinna. Ég myndi byrja á skónum, þeir eru ódýrastir, síðan athuga ástand geymisins, kanna hvort yfirborð sýrunnar sé ekki fyrir ofan sellurnar og kanna síðan alternatorinn. Gættu þess bara að ef sellurnar standa uppúr sýrunni á einum tappa þá er allur geymirinn í ólagi. Hleðsluna er sáraeinfalt að mæla með spennumæli. Rétt hleðsla er 13.8V og getur verið reikul frá 12.5V og eitthvað uppfyrir 14V. Ef spennan fer mikið uppfyrir 14-14.5 gæti það verið merki um að eitthvað sé að alternatornum.

    Kv Izan

    p.s. mundu bara að um tengið fer mjög mikill straumur og þess vegna er nauðsynlegt að tengingin sé í góðu lagi. Með eða án feiti þarf tengið að vera tæringarlaust og tandurhreint og geta skilað góðri leiðni. Líka út í mótor.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 344 total)
← 1 … 12 13 14 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.