Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.06.2007 at 15:14 #591764
Daginn
Það sem Beggi sagði um að setja fleiri amper á 1,5q vír á 24 Voltum er náttúrlega alrangt.
Það er hinsvegar málið að hvert watt á 24V eru færri amper en á 12 V
Sem þýðir að 200W notandi t.d. kastarar eru 200/12=16,6 A en 200/24=8,3
1,5q vír þolir með herkjum 16A en þarna væri nauðsynlegt að nota 2,5q vír á 12V en 1,5q dygði fínt á 24V
Kv Izan
01.06.2007 at 23:45 #591756Daginn
Ég man ekki ástæðuna 100% en mig minnir að það sé spurning um að innri mótstaða geymanna verur að vera sú sama. Með því að smella auka úttaki á annann geyminn myndast önnur mótstaða yfin annann geyminn og spennan verður hærri á öðrum geyminum og sýður hann og hleður hinn það lítið að hann skemmist.
Þetta var einhvernveginn svona.
Kv Izan
11.05.2007 at 22:56 #590642Daginn
Gaman að sjá hve margir jeppamenn eru framsóknarmenn. Ég hef einhvernveginn nefninlega gripið kosningabaráttu framsóknarmanna að þeir séu að lýsa því yfir að þeir beri fulla ábyrgð á öllum stóriðjuframkvæmdun síðasta tímabils.
Allavega nefna þeir kostina sem eru þeim að þakka, hagvöxtur, lítið atvinnuleysi osfrv.
Þetta þýðir, að mínu viti, að t.d. nafni minn Ofsi styðji með atkvæði sínu alla stóriðjukosti sem ríkisstjórninni hefur þótt athyglisverð.
Kv Izan
Ps. hugsiðykkur ríkisstjórn með ZERO framsókn…..
07.05.2007 at 20:27 #590506Daginn
Þá spyr ég eins og heimsk skúringakerling!!!
Hvað er stærsta vél sem ameríka hefur framleitt fyrir almennan markað.
Það skal tekið fram að ég veit ekki svarið en það væri gaman að vita þetta.
Kv Izan
20.04.2007 at 01:00 #588852Sæll
Ég átti í vandræðum með minn að koma vatninu á hann svo að lofttappi myndaðist ekki við hosuna uppi þar sem tappinn er. Reyndi með öllum tiltækum ráðum þar til að ég endaði á því að hella frostleginum inní helvítis gatið.
Þetta lýsti sér ekkert ósvipað hitaði sig gersamlega að ástæðulausu en þá drap ég bara á og prófaði ekkerrt meira fyrr en allt var smekkfullt að frostlegi.
Síðan hefur hitanálin farið lítillega upp fyrir miðjann skalann en ég hef ekki séð hann fara upp fyrir það
Kv Izan
06.04.2007 at 11:12 #200082Daginn
Hvernig er með þá Vatnajökulsfara, eru engar fréttir af þeim. Er rennifæri eða allir saman pikkfastir í krapa eða er kannski hópur lögregluþjóna búin að stövða för þeirra og handjárna þá sem ákveðnastir eru í að komast á hálendið.
Það vær gaman að fá fréttir og þá sérstaklega af færðinni hvort það sé mjög blautt eða hvort lögreglan og vegagerðin hafi sameinast í að halda hálendinu slysalausu þessa páska með því að banna akstur.
Kv Izan
27.02.2007 at 17:04 #199804Daginn
Ég er með nokkrar spurningar um Patrol.
1. Ég er með landcruiser gorma að framan og enga upphækkunarklossa en ca. 8,5cm upphækkunarklossa að framan og vantar að hækka bílinn svolítið meir. Framsrýfurnar voru síkkaðar um ca 8cm hjá B’ilabúð benna f 10-12 árum.
Hvað eiga þessir gormar að standa hátt undir ólestuðum bíl og hvað haldiði að ég geti hækkað bílinn mikið án þess að það bitni á aksturseiginleikum. Eða verð ég að fara í að hækka hann á bodýi, ég er bara að tala um eina eða tvær tommur.
2. Ég er svolítið forvitinn um 3.74 tannhjólin sem Kliptrom selur en hvaða reynslu hafa menn af þessum gírum. Eru þau eitthvað veikari en original búnaðurinn eða er þetta alveg jafn sterkt.
3. Passa original musso felgur undir bílinn???
4. Original afturlæsing. Er það góður búnaður. Málið er að það er víða talað um að þær megi alls ekki fara á í átaki en mín fer ekki á fyrr en ég er búinn að missa alla þolinmæði og gefa allt í botn. Hvernig lætur maður læsinguna tengja átakalaust?
Kv Izan
22.02.2007 at 12:44 #581646Ég átti gamlann transporter fljótlega eftir að ég flutti hingað, fékk hann í skiptum fyrir runóinn og seldi hann stuttu síðar fyrir smáaura og bílalyftu.
Kv Izan
22.02.2007 at 11:41 #581642…nennt að skipta um kertin sem þú náðir ekki til með góðu, enda lítil von til að musso skáni mikið við að fá nokkur ný glóðarkerti…..
Daginn.
Þessa speki um að skipta ekki um færri en öll heyrði ég þegar ég skipti um kerti í gömlum Transporter sem ég átti. Sá sem átti ráðin var af gamla skólanum og ég efast um að hann hafi í gegnum tíðina gert við mikið nýrri bíla en árg 95 og var vel kunnugur gömlum dieselmótorum t.d. benz, Toyotu o.s.frv.
Með þetta lagði ég í Bílanaust og keypt kerti sem voru verðlagðar á 1500 kall stykkið og fannst mér ekki taka því að kaupa bara eitt svo að ég keypti fjögur og skipt um þau um kvöldið.
Þá þegar ég þóttist vera búinn blasti við mér fimmta kertið en ég hafði ekki haft grum um að bíllinn væri með 5 cylindra vél svo að bara þarna græddi ég einn cylinder en tapaði 1500 kalli því að þar var líka kerti sem þótti rétt a skipta um.
Kv Izan
16.02.2007 at 22:42 #580730Daginn
Múrari kenndi mér einus sinni trix sem gekk út á það að finna hvað væri að ef ekkert væri að……
Þegar bíllinn gengur undarlega, prófaðu að taka lokið af benzíntanknum.
Hugsanlega er öndunin í tanknum stífluð eða mjög léleg og þess vegna gangi hann misvel.
Kv Izan
10.02.2007 at 21:54 #580054Daginn
Ég hef þá skoðun að ef rafmagn í bíl hagar sér asnalega þá er lélegt – samband einhversstaðar.
Tryggja – sambandið á rúðuþurrkunum og aðalljósunum, einnig á relýjunum fyrir ljósin o.s.frv.
Svona jarðleysi eða mínusleysi getur verið undarlega lúmzkt svo að það er engin ástæða til að hætta strax ef ekkert virkar heldur halda áfram að tryggja – þar sem mínusinn á að vera.
Kv Izan
04.02.2007 at 00:32 #565386Daginn
Þá var eigendanum bent á að finna sambærilegann bíl og vippa loftflæðiskynjaranum yfir í sinn
Sú aðgerð bar árangur og bíllinn gengur eins og klukka eins og Patrol er einum lagið
Kv Izan
11.12.2006 at 12:19 #570874Daginn
Ég hef alltaf litið á þetta þannig að maður þurfi að mæta með bílinn á stærstu dekkjum sem undir komast í breytingaskoðununa sem er mikilvægt til að mæla mestu breidd bílsins on hæð upp í aðalljós
Ég hef mætt með 38" bíl á 33" dekkjum í skoðun athugasemdalaust
Kv Izan
03.12.2006 at 22:58 #569846Daginn
Núna skal ég viðurkenna fáfræði mína á bilanaleitarkerfi á nemasýstemi bílmótora en ég veit hinsvegar að það er ekkert endilega samhengi á milli þess að einhver kóði komi á tölvuskjáinn og skynjarar séu bilaðir. Ég er nefninlega ágætlega að mér í ýmiskona skynjurum.
Skynjari getur verið bilaður á ýmsa vegu og þá sérstaklega á 2 vegu. Rafmagnsbilun, sem kemur fram í bilanagreiningu og skynjunarbilun. Sú síðarnefnda kemur ekki fram á greiningu en er sannlega bilun.
Það þýðir að skynjarar geta verið að skynja tóma vitleysu en senda ekkert óeðlilega spennu eða merki út til stýrivélarinnar.
Ég veit líka að það að fá skynjara lánaðann hjá einhverjum Patroleigenda er miklu, miklu ódýrara en nýtt olíuverk.
Kv Izan
03.12.2006 at 16:52 #569840Daginn
Kunningi minn á Patta sem hagaði sér svipað þessu, grútmáttlaus og náði ekki upp snúning.
Það var farinn hjá honum einhver loftskynjari sem hann fékk að prófa hjá öðrum.
Þetta er víst algengt í einhverjum árgerðum af Patrol og ég myndi kanna það fyrst.
Kv Izan
01.12.2006 at 20:20 #569972Daginn
Það væri gaman að prófa að setja hiclone í bílinn. Ef hann veldur örlítið hreinni bruna þá ætti hann að sleppa í gegnum skoðun
Kv Izan
23.11.2006 at 21:32 #569086Daginn
Ég kann ekki að búa til svona fínann link en ég ætla samt að reyna
Þarna er hægt að lesa sér til um hvernig ljós mega vera á bílum, t.d. að auka kastarar verða að lýsa a.m.k. 100m fram fyrir bílinn o.s.frv.
Kv Izan
ps, þetta er slóðin ef linkurinn virkar ekki
http://us.is/scripts/WebObjects.dll/US. … 2_2004.pdf
22.11.2006 at 23:36 #569080Daginn
Patrolinn minn fékk ekki skoðun út á kastarana sem reyndar hafa verið á honum síðan hann var fluttur inn 1995. Vandamálið var að þeir voru vitlaust tengdir.
Ég breytti tengingunum og núna eru þeir tengdir eins og myndin að ofan sýnir með relýi sem velur að taka merki frá parkljósum eða háuljósum. Frá því relýi dró ég vír út í rofa sem verður að vera með gaumljósi til að allt sé löglegt. Frá rofanum tengdi ég inn á relý sem kveikja kastarana.
Til að þessi frágangur sé löglegur þarf ég að nota hlífar á kastarana allstaðar annarsstaðar en utanvega vegna þess að svona falla þeir undir að vera aukaljós vegna breyttrar torfærubifreiðar.
Eins og fram kemur í reglum um búnað bíla þá er leyfilegt að nota eitt par af þokuljósum (dreyfigeisla), tengd með stöðuljósum með sérrofa og gaumljósi og eitt par af aukakösturum (pungtgeisla) tengd með háuljósum með eða án sérrofa og með gaumljósi verða að hafa hlífar meðan ekki í notkun. Breyttir jeppar mega setja aukaljós (man ekki hvað mörg) og þeim má stjórna hvernig sem vill en þau verða að loga með parkljósum (afturljósum) og með gaumljósi.
Hafið þessar reglur í huga næst þegar þið mætið vörubíl með ljósaseríuna framaná sér, yfirleitt eru 8 aukaljós þar sem mega bara vera 2 stk. Stundum eru mun fleiri en athugið líka hvort það truflar ykkur að mæta svoleiðis bíl þegar hann lækkar ljósin í tæka tíð.
Kv Izan
21.11.2006 at 23:03 #568772Daginn
Ég keyti Partol og var sagt að það væru orginal landcruiser gormar undir honum að framan og síðan eru klossar að aftan og original Nissan Patrol demparar. Þetta virkar bara fínt en er ekki alveg nógu mikil hækkun fyrir 38" dekk. mig vantar örfáa cm uppá en fjöðrunin er fín.
Kv Izan
19.11.2006 at 23:48 #568776Daginn
Þessi lýsing hljómar mjög svipað og hvernig millikassinn í gamla wagganum mínum hljómaði. það var reyndar 1970 módel af kassa en dugði ágætlega en ég gat valið milli þess að keyra í afturdrifinu, sídrifi (sem virkar eins og mismunadrif milli fram og aftur úttakana og þá keyrði ég bílinn með átaki á öllum hjólum en algerlega átakalaust) og ef ég stakk honum í lágadrifið þá læsti hann millikassanum og þá varð hann eins og aðrir 4×4 jeppar.
Þetta er í sjálfu sér bráðsniðugur búnaður en maður þarf að geta stjórnað þessu betur t.d. notað sídrifið með lágadrifinu og læst kassanum í hágadrifinu.
Kv Izan
-
AuthorReplies