FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 344 total)
← 1 … 10 11 12 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 31.10.2007 at 00:10 #598918
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Hefur einhver spurt Neytendastofu hvað mönnum finnst þar inni. Mér finnst þetta gjald fyrir neðan allar hellur hvort sem einstaklingar eru rukkaðir eða félagið sem er þó enn nískulegra. Með þessu losna þeir við kostnað og áhættu í innheimtu á gjöldunum, kostnað sem þeir meiga líklega ekki rukka sem seðilgjald.

    Kv Izan





    22.10.2007 at 16:48 #599954
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Einar

    Ég kannast við svona lagað, ég var búinn að vera í rúma 4 klukkutíma í áður yndislegum heimabæ mínum, Selfossi. Búinn að keyra frá Egilsstöðum eftir vinnu fram á nótt þegar brotist var inn í bílinn en aldrei þessu vant hafði ég læst honum en einhvernveginn komust púkarnir inn í bílinn. Því sem var stolið var GPS tæki 128 garmin vitaverðlaus en ágætt til síns brúks en engin snúra hvorki rafmagns né loftnets tekin með eða skemmd. Ég var svosum svekktur yfir því en hinsvegar þegar ég áttaði mig á að DVD spilara sem við notum til að hafa ofanaf fyrir 2 og 4 ára strákum afturí á löngum ferðum var einnig stolið með einum ágætis DVD disk með barnaefni, að ef ég hefði hitt þá sem voru að verki hefði ég lamið þá í klessu. Ekki verðmætanna vegna heldur því að þeim gagnast tækin ekki neitt snúrulausum svo að eingöngu var um skemmdarverk að ræða og það gegn drengjunum 2.

    Heimilitrygging bætir svona tjón ef það sér á bílnum eftir bófana svo að ég náði engu þaðan.

    Kv Izan

    P.s. þeir létu veskið mitt sem lá á milli sætanna vera og líka splunkunýjann kíki sem var ólíkt verðmætari en GPS tækið, hálfvitarnir.





    17.10.2007 at 23:34 #201000
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Hvar eru patrol eigendur að kaupa balansstangarenda í Patrol. Ég fékk síðast í stál og stönsum og þeir entust ekkert sérstaklega vel.

    Kv Izan





    06.10.2007 at 15:33 #598536
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    það er sjálfsagt að menn átti sig á því að mismunandi bylgjulengdir eru misflæðandi þannig að hún finnist misvel undir klettaveggjum. Það sem ég á við er innri virkni símtækjanna. Þeir sem telja sig knúna til að liggja yfir svoleiðis tölfræði ættu að læra rafeindavirkjun og fá sér síðan vinnu hjá annaðhvort hjá póst og fjarskiptastofnun eða símanum, eða á verkfræðistofu sem reiknar út dragni og áætlar dekkunina.

    Það liggur í hlutarins eðli að ef landsdekkunin á að vera 80% af flatarmáli landsins þá dugar ekki að nota kerfi sem ekki næst í undir suðurhlíðum fjalla nema með sér sendi uppá hverju fjalli. Þetta er reiknisdæmi fyrir þann aðila sem setur kerfið upp.

    Sömuleiðis sé ég ekki hvað hinn almenni notandi þarf að velta fyrir sér hvort eitt eða fleirisímtöl séu flutt á sömu burðartíðni. Þetta er spurning um innri virkni sem engum kemur við nema þeim sem setur kerfið upp.

    Mér finnst þessar áhyggjur sambærilegar við það að menn velti fyrir sér hvort burðarspennan á háspennulínunni til heimilisins sé 6kV eða 11kV

    Þetta er bara mín skoðun um þetta og er frekar léttvægt hjá þeim áhyggjum mínum að ekkert almennilegt fjarskiptakerfi verði sett upp og kerfið jafnvel kaffært með ofnotkun á gagnaflutningi til að menn geti verið tengdir við google earth á ferðum sínum um hálendið. Ótvíræðir kostir NMT kerfisins er hvað það er ómerkilegt og leiðinlegt.

    Staðan í dag er sú, og orðin þess vegna óþolandi, að það veit enginn neitt nema að öryggis tækið sem stólað hefur verið á hingað til er að úreldast og sími sem bilar er ekki lagaður né settur í nýjann bíl við endurnýjun. Það skilur ferðalanga eftir án fjarskipta við byggð á fjöllum. Í dag stóla hreinlega margir á VHF sem er ekki gott.

    Kv Izan





    06.10.2007 at 12:37 #598530
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst menn hérna á þessari spjallrás vera farnir að velta fyrir sér hlutum sem kemur þeim hreint ekkert við.

    Það hvílir skylda á símanum að sjá til þess að einhvert landsdekkandi fjarskiptakerfi sem arftaka af NMT kerfinu og það eiga þeir eftir að gera.

    Eik hefur velt mikið fyrir sér hvernig þeir eiga að fara að og spáð jafnvel í hvað sendarnir draga og hversu mörg símtöl þeir geta borið og hvort menn geti verið á 10Mb internetstengingu á Grímsfjalli.

    Síminn á eftir að setja upp símkerfi sem dekkar það landsvæði sem þeim er skylt að gera, hvort sem heldur er með GSM sendum GSM 450 sýstemi eða CDMQYH kerfi þá er það eingöngu þeirra hausverkur hversu marga senda þarf til að dekka það sem þeir þurfa að dekka. Það er þeirra að setja upp kerfi og okkar að nýta okkur það sem þeir bjóða uppá.

    Ég er hinsvegar voðalega smeykur um að Vodafone sé líka að stússast íþessum málum og hafa engum skyldum að gegna. Þeir gætu sett upp kerfi sem virkar bara þar sem eftirspurnin er mest og gert samhliða nýja óuppsetta kerfi símans óarðbært áður en það verður sett upp og þ.a.l. mun dýrara fyrir hina sem ferðast utan þessara algengari leiða.

    Kv Izan





    01.10.2007 at 13:25 #597876
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ert þú í alvörunni á móti því að menn diskúteri hvernig gera megi vef ferðaklúbbsins betri.

    Jarisinn er ekki nema einn hluti af umræðunni og í raun stendur ekki tilað banna slíkar auglýsingar, heldur flokka þær betur.

    Kv Izan





    26.09.2007 at 01:06 #597784
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst samt ákveðin skynsemi í því að leifa eingöngu félagsmönnum að auglýsa á vefnum jafnvel þó aðrir geti boðið upp á vöru sem tengjast sportinu.

    Það virkar hvetjandi á menn að verða félagsmenn og borga félagsjöld ef menn fá frítt auglýsingapláss umfram aðra og það á vef sem eingöngu markhópur vörunnar skoðar.

    Mér sýnist líka að allir sem hafa tjáð sig hér séu sammála um að uppræta auglýsingarnar sem eru settar inn í atvinnuskyni.

    Kv Izan





    25.09.2007 at 20:42 #200858
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Hvar fæ ég sniðugar mottur til að klæða undir brettakantana?

    Kv Jónsi





    25.09.2007 at 09:56 #597756
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það er náttúrulega ekki viðunandi að fyrirtæki auglýsi á þessum vef frítt. Það eru í raun félagsmenn sem greiða fyrir vefinn og þar með auglýsinguna. Þessi fyrirtæki þarf að þefa uppi og rukka þegar í stað.

    Þetta með flokkunina er að mörgu leyti sniðugt en aðal leiðindin sem menn temja sér á auglýsingadálknum er að setja sömu auglýsinguna í marga flokka. Þannig birtist sama auglýsingin með sömu fyrirsögninni 3-4 sinnum á forsíðunni og ýtir öðrum auglýsingum út samstundis.

    Kv Izan





    27.08.2007 at 19:36 #595500
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég hef séð dálítið af svona tjöldum eins og eru á myndinni af Patrolnum að ofan nema það tjaldast aftur fyrir bílinn. Þá er skottið undirbúið með hillum og fíneríi og síðan er borð sett beint fyrir aftan það.

    Bráðsnjallt.

    Kv Izan





    27.08.2007 at 12:35 #595486
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég held að þessi tjöld séu aðveg hreint stórsniðug. Maður sér ógrynni af jeppum koma úr norrænu með þetta á toppnum. Þetta er tjal þannig að það heftar ekki för þína um hálendið eins og tjaldvagn eða fellihýsi, þú ert þó laus við að hafa tjaldið inni í bíl og sparar plássið, þú sefur ekki á jörðinni og þarft ekki að stússast í að dæla í vindsængur og tilheyrandi heldur ertu bara með dýnurnar klárar í skelinni.

    En þetta er náttúrulega ekki nema fyrir tvo að gista í og þarna er ekki mataraðstaða.

    Þetta hentar ekki á ættarmóti þar sem menn tjalda til þriggja nátta og drekka rauðvín og spila á gítar fram á nótt heldur hentar þetta þar sem maður er á ferðalagi og tjaldar bara til að sofa og búið, eins og þeir gera sem heimsækja Ísland á jeppum.

    Kv Izan





    11.08.2007 at 23:34 #594540
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Óðinn

    Þar sem Rsh og Bílanaust sameinuðust á sínum tíma og Rsh var með garmin vörur þá er það sem heitir N1 á Egilsstöðum með sitt lítið af hverju í Garmin.

    Ef þér líst illa á úrvalið þar þá er alltaf hægt að heyra í þeim hjá R.Sigmundsson og láta þá setja það sem þú þarft í umlag og senda þér.

    Kv Izan





    11.08.2007 at 14:40 #573350
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þessar viðhaldstölur eru ekkert undarlegar að mér finnst. Bíll sem er ekinn 250.000 á 5 árum er mikið notaður bíll og ekkert nema eðlilegt að hann þurfi mikið viðhald.

    Síðan er kannski spurning hvort bifvélavirkinn hafi verið að standa sig, ég veit ekkert hver þetta var eða er og er bara að velta þessu fyrir mér, mér t.d. gengur frekar illa að fá bifvélavirkja til að skipta um olíur á öllu sem ÉG tel nauðsynlegt. Þeir stinga puttanum ofaní gatið og þefa af olíunni segja svo að hún sé í fína lagi. Þannig er gert víða af löggiltum bifvélavirkjum í staði fyrir að selja kaupandanum olíu fyrir nokkra þúsundkalla og halda bílnum í lagi.

    Patrolinn minn þurfti allsherjar yfirhalningu í ca. 170þ km og vildi fyrum eigandi kenna bifvélavirkjanum um þar sem aldrei hafði verið skipt um olíur á hvorki gír né millikassa.

    Annað sem tilheyrir lögreglubílnum er það að hann er notaður af nokkrum aðilum. Það fer yfirleitt illa með bíla jafnt sem önnur tæki. Maður þekkir það á handverkfærum sem gatslitna í höndum margra manna á tveimur árum en nýtast einstaklingi í áratugi.

    Þetta var t.d. munurinn sem búðareigandi í verkfæraverslun talaði um þegar átti að ákveða hvort þurfti iðnaðarvörur eða hobbývörur þegar átti að kaupa háþrýstidælu og menn voru óvissir. Ef margir eru um að nota dæluna þá þýðir ekkert að horfa á hobbýáhald þó að notkunartölurnar voru jafnvel sambærilegar.

    Kv Izan

    P.s. hugsanlega þurfa þessir menn að hugsa öðruvísi um bifreiðaeign sína, kannski eiga trooperinn og bæta við einum nettum fólksbíl til að létta á akstrinum á jeppanum.





    11.08.2007 at 00:43 #594536
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Þetta er náttúrulaga forsíðufrétt dagblaðanna að Ford hafi bjargað Patrol því að yfirleitt er það öfugt.

    En menn hafa náttúrulega gert þetta að lokuðu innanfélagsmáli til þess að aðrir bindi ekki vonir við Ford og sjái þessa bíla í hyllingum yfir því að hafa lánast að sjá mynd af þvi þegar ökumaður Fordbílsins batt bílana saman á meðan Patroleigandinn fékk sér lúr í góðu yfirlæti í þægindum bílsins síns.

    Kv Izan





    03.08.2007 at 12:41 #594192
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Mér hefur alltaf þótt léleg átylla hjá jeppamönnum að skýla sér á bakvið hesta, endúróhjóla eða fjórhjóla. Allir eru á hálendinu að leita að því sama, náttúru, kyrrð o..frv.

    Hestamenn hafa lengi komist upp með það að grafa í gömlum kálfskinnsskruddum eftir því hvort einhver hafi ekki lagt leið sína þar sem þeir ferðast fyrr á öldum en þá þykir það hið eðlilegasta mál að sú leið sé farin aftur.

    Jeppaslóðar geta, eðli málsins samkvæmt, ekki verið svo hund gamlir því að hesturinn var fundinn upp miklu fyrr en jeppinn. Við getum s.s. ekki ætlað okkur að aka leið sem var farin uppúr kristnitöku en það geta hestamenn.

    Mér finnst það alveg hreint í sómanum ef menn geti fundið alda gamla hestaleið að fara hana. Ef hún er sannlega til í gögnum sé ég ekkert því til fyrirstöðu að fara þar.

    Hinsvegar finnst mér líka eðlilegt að jeppa og hjólamenn geti gert slíkt hið sama. Það ættu að vera til heimildir um hvern veg sem ekinn hefur verið og ef þar hefur verið vegur getur það varla skemmt landið að aka hann einu sinni enn. Akkúrat það sem mér finnst um leiðir sem hestamenn velja.

    Þetta finnst mér vera mál sem umhverfisnefnd félagsins ætti að hafa sem markmið. Þá er enginn vafi á því að ef maður finnur gögn um veg einhversstaðar þá er maður öruggur um að geta farið hann.

    kv Izan





    31.07.2007 at 13:16 #594122
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Rúnar

    Það væri fínt ef Cruiser hásingin passaði undir hann því að þá getur þú fengið Patrol hásingu undir þinn og sett toyotu hásinguna undir Terrorinn.

    Ég veit reyndar ekkert um breiddina eða hvort drifið sé réttu megin og annað en mér fannst þetta bara sniðug hugmynd.

    Kv Jón Garðar





    18.07.2007 at 18:57 #200543
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Vitið þið hvort ég fái skoðun á bíl sem er með ABS bremsum sem er bilað og gerir akkúrat ekki neitt. Bíllinn bremsar fullkomlega en einn skynjarinn er ónýtur.

    Verð ég að laga bílinn eða taka peruna úr mælaborðin?

    Kv Izan





    06.07.2007 at 21:10 #593378
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég held samt að vandamálið sem þú lýstir með hæðina á mótorhjólinu og mjólkurbílnum sem ekki bara bundið við fjórhjól og í raun ekki heldur við mjólkurbíla. Það væri t.d. gaman að mæla upp í stóru og klettþungu stuðarana á jeppunum, sérstaklega þessum alstærstu.

    Væri ekki nærtækara að skylda þá til að nota undiraksturvörn í byggð? Maður bara spyr sig.

    https://old.f4x4.is/new/files/photoalbums/5468/42924.jpg

    Ég myndi ekki vilja lenda framan á t.d. þessum líkum á fólksbíl.

    Kv Izan





    16.06.2007 at 15:15 #592422
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mig minnir að notendur vefsins hafi gert Fjallasport að umræðuefni einhverntíma ekki fyrir löngu og gersamlega sturtað ímynd þess fyrirtækis gersamlega niður í klósettið.

    Þá fékk Bílanaust heitið að kenna á því einhverntíma o.s.frv. en allavega fékk Fjallasport mjög slæma útreið hjá sínum eina markhóp, jeppamönnum, að þeir hafa trúlega varla náð sama striki aftur.

    Það að rjúka með smávandamál fyrirtækja í þó þetta stórann fjölmiðil sem vefurinn okkar er, finnst mér alls ekki við hæfi fyrr en fyrirtækin hafi gerst uppvís af því að reyna viljandi að pretta aura út úr sínum kúnnum.

    Ég er búinn að versla þónokkuð við fjölmörg fyrirtæki í jeppaiðnaðinum og krafist þess að fyrra bragði að fá að borga um leið og ég legg inn pöntun. Þessi viðskipti mín hafa gengið mun betur en þau þegar mér er sendur reikningur þ.e. þeir telja sig verða að leggja meira á sig að koma vörunni frá sér.

    Þetta mál sem rætt var um hér leystist farssællega og ef ég skil rétt tóku forráðamenn allt plast á sig sökina og komu vörunni á leiðarenda með skýringum og áreiðanlega afsökunarbeiðni. Á svoleiðis fyrirtæki skilið að fá útreið á þessum vef sem gæti sett nýjann eiganda á hausinn?

    Kv Izan

    P.s. fólk sem vinnur við það að selja og afgreiða vörur er mannlegt og getur orðið á, við sem kaupum þessa vöru erum jafn mannleg og verðum að geta sætt okkur við það.





    14.06.2007 at 12:16 #592408
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst reyndar að þú eigir að eiga þetta við þá hjá allt plast og ekki básúna því hér fyrr en það þykir sýnt að þeir ætli ekki að standa við sitt.

    Sömuleiðis gætirðu sýnt þeim alls kyns stæla t.d. kíkt við hjá þeim eða gert einhverjar kúnstir.

    Ég held að það sé enginn sem les þennann vef sem getur hjálpað þér.

    Kv Izan





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 344 total)
← 1 … 10 11 12 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.