FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Garðar Helgason

Jón Garðar Helgason

Profile picture of Jón Garðar Helgason
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 344 total)
← 1 … 9 10 11 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 25.02.2008 at 17:54 #615046
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég er þeirrar skoðunar að fjarskiptamál landsins séu algerlega í molum. Vodafone er að stækka dreifikerfi sitt til muna sem er gott í sjálfu sér, 4×4 hefur aðgang að að Tetra sem er í uppbyggingu og þróun en er ekki nærri nógu gott ennþá. Síminn á einkaleyfi á tíðni sem hentar vel til langdrægs kerfis en er ekkert að nýta það.

    Þegar einkafyrirtæki byggja upp slík kerfi er viðmiðunin alltaf sú að vera með sendi þar sem hann er mest notaður. Þannig eru flest fjarskipta kerfi í ágætum gír sunnan lands en eftir því sem norðar og austar dregur daprast gæðin, stöðugleikinn og þ.a.l. áreiðanleikinn.

    Ég er algerlega ófeiminn við að fara á hálendið næst höfuðborginni, á Fjallabak og aðra fjölfarna staði með VHF eitt og sér og þá eingöngu með rás 45 og 4×4 rásirnar. Maður er með stöðugt spjall í eyrunum alla daga langt fram á kvöld í eyrunum þar sem jeppamenn eru á flækingi.
    Ég flækist tölvert hér austanlands og er eingöngu með VHF, þar sem NMT síminn er genginn úr sér og kerfið farið auðsjáanlega að daprast verulega, og það er sjaldan að maður heyri mannsins mál í tækinu. Ég hvet menn til að veita þessu athygli á leiðinni með suðurströndinni.

    Spurningin er sú: hvenær hætta þessi fyrirtæki uppbyggingu á dreifikerfum, hversu mörg kerfi verða í gangi og sitjum við svo ekki uppi með dekkað suðvestur fjórðunginn og tóma skallabletti allstaðar annars staðar.

    Mín trú er sú að Síminn komi sér undan ábyrgð á CDMA kerfinu þar sem fyrirtæki í ríkiseign er að byggja upp fjarskiptakerfisem á eftir að dekka landið mikið til og GSM kerfin bæði hjá símanum og Vodafone verði með lélega dreifingu á hálendinu á norðausturhorninu.

    Ég hef mesta trú á að Tetra verði byggt mest upp allra kerfa þar sem allir viðbragðsaðilar færa sig yfir á það kerfi. Það kerfi er mjög heppilegt fyrir svoleiðis notkun en ferðafélög eiga að geta notað kerfið samhliða. Tetra á eftir mikla uppbyggingu og skipulag sem verður aldrei gott fyrr en ljóst verður hverjir komi til með að nota kerfið og hversu margir.

    Það væri gaman er einhver hefði aðstöðu til að forvitnast um CDMA hjá símanum og hvaða áform þeir hafi um uppbyggingu kerfisins.

    Kv Izan





    16.02.2008 at 20:42 #614438
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér virðist ekki vera nein yfirburða fjöðrun svona fljótt á litið. Bara sver flatjárn soðin uppí grind. Sér einhver eitthvað annað út úr þessu

    Kv Izan

    P.s. kyngimagnaðar hásingar hinsvegar





    27.01.2008 at 21:57 #611622
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Dísus, ég keypti hús fyrir nokkrum árum og það var ekki nærri því svona flókið. Hver borgar læknisvottorðið?

    kv Izan

    Ps auðvitað þarf að vera regla á þessu en mér finnst þetta samt fyndið.





    26.01.2008 at 23:29 #611618
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    hvenær er síðasti séns að skrá sig á blót. Það þurfa nokkuð margir hlutir að smella til að ég komist en mig langar að kíkja.

    kv izan





    24.01.2008 at 00:25 #609540
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ef ég skil málið rétt er nokkra áratuga Lister dieselrafstöð biluð í Setrinu. Það hefur enginn rétt fram bilanalýsingu á vélinni því að ég veit það að Listerinn er það magnaður að vélar sem hafa verið keyrðar í stóra stopp þ.e. þangað til hún sat föst hefur verið endurræst og notuð svipað lengi og þessi er gömul í árum.

    Ég myndi ekki gefa upp von á vélinni þó að hún hafi fengið gírolíu í staðin fyrir mótorolíu.

    Ég geri mér grein fyrir að Listerinn er ekki nógu öflugur fyrir bæði lýsingu og kyndingu á Setrinu en upphitun mætti að einhverju leyti fara fram með kamínu eða sólóvélum sem ég held að séu til staðar.

    Ég ætla hinsvegar að lýsa minni skoðun á virkjun í Setrinu og áformum Einars.

    Hugmyndin er afbragðsgóð en ég er viss um að ef Einar leggst betur yfir útreikninga á kostnaði þá sér hann fljótlega að ódýrst væri að flytja Setrið niður til móts við Vatnsfell og nota rafmagn þaðan.

    Ef til stendur að flytja t.d. 30 A pr fasa um 3 kílómetra vegalengd þá er spennufallið á hverjum leiðara ca 26V ef reiknað er með 4x95Q álstreng. Þá er heildarspennufallið útreiknað 46V

    46V spennufall er varla viðunandi fyrir 400 V sem leggja af stað. Ef spennan yrði hækkuð á virkjuninni um t.d. 10% eða upp í 440V/254V þá stendur sú spenna heima í Setri á þeim neyslutækjum sem í gangi eru þega lítið annað álag er. Ég er bara að reikna með 30 A, hvað er Listerinn að skila? 30A á 400V eru 20KVA. Gaman væri að sjá og heyra hvað meter af 4x95Q álstrengur kostar. Landsnet og/eða RARIK áætlar milljón á kílómeter niðurkominn á sína strengi. Innkaupsverðið þeirra er mun lægra en aðrir njóta.

    Það má eiga við spennufallið með því að staðsetja spenna sitthvoru megin við einn í virkjun og hinn í Setrinu og þa´ð væri ekki síður gaman að heyra hvað slíkir gripir kosta. 2 stk 400/900 YD 30KVA spennar til viðbótar við strengina.

    Þá er bara virkjunin eftir…….

    Kv Izan

    P.s. ef vilji er fyrir því að halda Setrinu frostfríu er ég viss um að lítil díesel ljósavél og rafmagnsofn væru ódýrasta leiðin, láta litla rellu bara lulla. Maður sér fáránlega litlar diesel ljósavélar um borð í smábátum t.d.





    21.01.2008 at 18:22 #611028
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Þeir í Kliptrom eða KT á Akureyri spöglera mikið í hlutföllum í algengustu bíla og segjast geta selt 5:38 minnir mig í framdrifið en ekkert í afturdrif.

    http://www.kliptrom.is

    Er ekki einhverskonar Dana 60 afturhásing, væri séns að finna eitthvað sambærilegt til að klúðra í trooper köggulinn. Annars er bara lóló gír eða lækkun á original millikassanum. Úr 1:2 í 1:3 væri ekkert afleitt ef bíllinn er á annað borð nothæfur í venjulegum akstri. Kliptrom er með svoleiðis búnað.

    Kv Izan





    11.01.2008 at 23:57 #609056
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn.

    Ég var í vandræðum þangað til áðan með að opna trökk sem voru vistuð í MapSource í nRoute en það er sáraeinfalt þegar maður kann það, eins og svo markt annað.

    Þegar trökkin eru vistuð þarf að breyta formatinu í .gpx. MapSource vistar sjálft í .gdb en nRoute kann ekki að lesa það.

    Prófaðu að opna MapSource eingöngu s.s. engann annann glugga og smella á send to device, þá ættirðu að fá tækið upp. Þú getur bara sótt og sent gegnum MapSource og unnið með trökkin en rauntíma gps forritið er nRoute þar sem þú sérð hvar þú ert þá stundina.

    Kv Izan





    11.01.2008 at 22:45 #609564
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Ég er með svona tæki og tengdi það algerlega vandræðalaust við bæði borðtölvuna mína og nýja fartölvu. Þurfti engann driver því að USB tengin eru original í báðum tölvunum.

    Mér fannst ég hafa séð enhverstaðar að tækið þurfi að vera stillt á NMEA in/NMEA out svo að ég stillti mitt á það. Hef reyndar ekki prófað að stilla á neitt annað þvi að hitt dugar.

    Usb tengið færir GPS tækinu rafmagn þannig að ef það er ekki til staðar þá er eitthvað bilað, það kemur mynd af kló á skjáinn á Gps-inu.

    Fyrst prófaði ég tækið á MapSource með því að sækja upplýsingar úr Gpsinu, "receive from gps". Þá kemur gluggi sem hjálpar þér að leita af tækinu og býður þér upp á að sækja trökk, pungta, rútur og eða kort.

    Ef þetta virkar er tækið komið í samband við tölvuna. Hinsvegar lendi ég í fljótfærni í því iðulega að hafa Gpsið í samskiptum við nRoute og ætla að sækja úr því inní MapSource en það er ekki hægt. Það getur bara tengst einu forriti í einu.

    Ég prófaði að sækja upplýsingar úr tæki sem ekki var með skráða kennitölu á korti í MapSource og það virkaði, hinsvegar kom það tæki ekki fram í nRoute eins og við var að búast.

    Til að tengja gps tæki við nRoute þarf tækið að fá skráningu og ío raun samþykki fyrir kortinu, með hverju keyptu korti fæst leyfi fyrir korti í 2 tæki. Þetta er ferill sem fer fram í gegnum netið og þarf að finna ID tölu tækisins o.s.frv. en þess virðist ekki þurfa til að setja það í samband við MapSource.

    Kv Izan

    P.s. ef ekkert virkar gætirðu prófað að heyra í mér en ég er svosum enginn sérfræðingur. 861-7464, Jón Garðar





    11.01.2008 at 12:56 #608456
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Mér finnst það sérstaklega jákvætt að tæpum klukkutíma eftir að atriðið var sýnt voru félagsmenn 4×4 byrjaðir að ræða um þetta á vefnum, sínum miðli.

    Það sýnir að hjá allflestum félagsmönnum er þetta orðið eðlislæg viðbrögð að finnast eitthvað athugavert við þetta.

    Kv Izan





    23.12.2007 at 17:17 #607598
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Hvað eru menn að kvarta yfir varahlutaþjónustu í Patrol.
    Ég er búinn að kaupa þónokkurt slangur af varahlutum í minn og hef aldrei lent í vandræðum. Það eru svo margir með hluti í þessa bíla að ég trúi ekki að þetta sé vandamál. Umboðoð hefur ekki svikið mig fyrr en ég spurði um afturdempara, svörun voru þau að original parið væri svo mikið dýrara merkt patrol en bara venjulegir KYB eins og eru original.

    Aukahluti eiga allir í Patrol, KT á Akureyri, Bílabúð Benna, Kiddi Bjarna, Fjallabílar, Arctictrucks og ef þú kærir þig um varahluti úr bílanaust þá eiga þeir alveg helling til líka.

    Besta er að þessir bílar eru svo vinsælir að maður pantar nánast því hvað sem er auka eða breytta varahluti eftir árgerð bílsins. Þeir sem framleiða aukabúnað eiga flestir forskrift af búnaði í þessa bíla. Td lengda balanstangarenda, tölvuborð, aukatank o.s.frv allt með einu símtali. Þú sérð þá hvaða markaður er fyrir notaða varahluti.

    Mér finnst reyndar Patrol og LC 90, svo ég tali ekki um Hilux ekki samanburðarhæfir bílar. Pattinn nautsterkur en þungur vélavana bíll en Cruiserinn léttur og þ.a.l. ekki eins sterkur. Pattinn ræður við 44" hjól en LC 90 myndi aldrei gera það nema skipta út öllum undirvagninum.

    Kv Izan

    Ps ég á 92 patrol sem er búinn að vera á 35-36" dekkjum í 12 ár og það er einu sinni búið að fara í mótorinn, gírkassann og reyndar millikassann líka en því var um að kenna að aldrei hefði verið skipt um olíu á honum í 170Þ km. Bara putta stungið í áfyllingargatið og þefað af henni. Það er ekki viðurkennd rannsókn á eiginleikum olíu og allra síst á Patrol





    23.12.2007 at 01:30 #607522
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sendi jólakveður til ferðafélaga og allra félagsmanna Ferðaklúbbsins 4×4.

    Kv Jón Garðar
    U-127





    16.12.2007 at 12:06 #606798
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    úbbs





    16.12.2007 at 12:06 #606796
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það væri kanski ráð að prófa þetta. Mér finnst hitamælirinn fara oft of hátt upp og nýr 3 raða kassi breytti litlu.

    Kv Izan





    01.12.2007 at 22:59 #604430
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Trackið opnaðist hjá mér í MapSourse með smá fifferíi.

    Ég vistaði skjalið og skírði það nafni og bætti við .gpx fyrir aftan. Þannig les forritið formatið.

    Kv Izan





    01.12.2007 at 17:57 #605120
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Prófaðu að aftengja altarnetorinn.

    Kv Izan

    Ps hvað ertu að slást við mikinnn straum?





    30.11.2007 at 22:44 #605114
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Persónulega finnst mér ljósapera afskaplega takmarkað mælitæki til að mæla útleiðslu.

    þú þarft ampermæli, helst vísismæli og raðtengja hann við geyminn. Þá ætti mælirinn að sýna nokkur milliamper meðan bíllinn er dauður og svissað að fullu af honum. Þá byrjaru að tína út eitt og eitt öryggi og stingur þeim jafnvel strax aftur í. Þegar mælirinn fellur seturðu viðkomandi öryggi ekki í aftur. Þannig heldurðu náfram þangað til mælirinn sýnir ekki neinn straum.

    Það sem truflar mælinguna eru tækin sem eiga að muna s.s. útvarp, klukka og hugsanlega tölva ef einhver er. gera má ráð fyrir að þessir hlutir sýni alltaf smá straumtöku.

    Ef þú finnur út að einhver DOME öryggi sýni einnig smá straumtöku byrjarðu að rekja. annaðhvort rekurðu vírinn alveg frá öryggjaboxi sem er reyndar nánast óðs manns æði eða finnur teikningar og rekur þig áfram eftir þeim. Kippir perum úr og aftengir víra þangað til að mælirinn fellur og rekur þig þannig áfram.

    Þetta er engin grín vinna.

    Kv Izan





    30.11.2007 at 09:46 #604646
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Ég keypti tæki um daginn og velti þessu heilmikið fyrir mér en á endanum sá ég að fyrir mér er bara eitt tæki sem virkar í jeppann.

    Það er Garmin Gpsmap 60 Csx. Eins og einhver minntist á áðan þá tekur það tæki micro minniskort sem gefur tækifæri til að vista mjög mikið af pungtum ásamt öllu íslandskortinu. Ég er reyndar ósáttur við að tækið virðist ekki geta hjálparlaust kallað fram ferla eða pungta af minniskortinu sem er asnalegt. Garmin gamli hlýtur að fara að sjá viðp þessu.

    60 tækin eru vatnsheld handtæki og þ.a.l. getur maður kippt því úr bílnum og stungið í vasann rölti maður á rjúpu eða til að skoða foss. Eins er hægt að setja festingu á snjósleðann og nota bara eitt tæki. Verði tækið bateríislaust þá er bara venjuleg AA batterí og hægt að hafa nokkkur auka í vasanum. Tækið er með USB tengi, serial, straum og loftnetstengi sem eykur nákvæmnina í bílnum.

    Pælingin mín var alltaf sú að hafa fartölvu í bílnum og nýta þann skjá. Þetta combó er alveg að þrælvirka.

    Handtækið getur ratað eftir vegi en í staðin fyrir þýða kvennmannsrödd (eins og Kolbrúnar Halldórsdóttur þegar hún segir að enginn notandi sé með símanúmerið) kemur píphljóð. En í staðin þá talar tölvan með fallegu röddinni.

    Kv Izan

    P.s. ég hef ekki notað 276 eða 286 eða hvað það heitir, en kostirnir sem ég sé umfram 276 er batteriisdótið og fyrirferðin. 276 er ekki beinlínis handtæki þó að það sé hægt að labba eitthvað með það undir hendinni.





    14.11.2007 at 20:16 #602498
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Daginn

    Það væri gaman að heyra hver verklok verða hjá þér, hvort þú takir geyminn í gegn og þá hvernig til tekst.

    Kv Izan





    14.11.2007 at 09:21 #603140
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Nú verður nóg að gera hjá sýslumannsfíflinu á Selfossi.

    Kv Izan





    13.11.2007 at 22:09 #602496
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll MMC

    hinkraðu við með að henda geymunum og prófaðu eitt fyrst. Bíllinn afhleður geymana á einhverjum tíma, klukkan er álag, útvarpið og ef t.d. díóðubrettið í altanetornum er lélegt þá tæmir hann geyma. Þessu er hægt að redda með geymarofa á plúsinn. Ekki góð aðferð en virkar ef þetta er vandamál.

    Ég er reyndar ekki sammála Emil með frost en í mínum augum er frost það versta sem tómur rafgeymir upplifir. Þannig botnfellur hann.

    Taktu geyminn einn í einu og hvolfdu úr honum í plastbala öllu sem í honum er. Notaðu góða sýruþolna vettlinga. Geymdu sýruna og skolaðu með garðslöngu innanúr hverju hólfi geymisins og helltu vel vatninu úr aftur. Taktu sýruna og deildu henni jafnt aftur á hólfin en gættu þess að botnfallið renni ekki niður með. Skildu frekar eftir svolítið af sýrunni heldur en að fá botnfallið.

    Bættu við með hreinu vatni (ég nota kranavatn) þannig að það fljóti yfir sellurnar og settu geyminn í hleðslu. Hafðu hann í hleðslu í sólarhring á lélegu hleðslutæki sem ekki slær af, samt ekki á einhverri MAX stillingu.

    Ég hef gert þetta við þónokkra geyma og þeir hafa allir komið þokkalega út, endast í einhver ár í viðbót eða jafnvel út bílinn sem hann var í.

    Kv Izan





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 344 total)
← 1 … 9 10 11 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.