FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Hlynur Snæland Lárusson

Hlynur Snæland Lárusson

Profile picture of Hlynur Snæland Lárusson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 1,627 total)
← 1 … 5 6 7 … 82 →
  • Author
    Replies
  • 07.10.2010 at 23:26 #695646
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Kvöldið

    Núna er lag að menn fari að huga aðeins betur að VHF og kynni sér endurvarpanetið sem 4×4 á. Kerfið er orðið ótrúlega öflugt, og það eru ekki margir staðir á hálendinu þar sem góð VHF stöð með loftnet í lagi er ekki að ná endurvarpa. Endurvarpakort má sækja á heimasíðu Sigga Harðar, radioehf.is. Allir ættu að hafa það í jeppanum og prufa að lykla á endurvarpana sem eru næstir þeim á ferðalögum.

    Þegar lyklað (lyklað er að senda út á endurvarparás) er á endurvarpa og þú ert í sambandi, þá svara endurvarpinn þér með "skotti" sem getur verið 3 til 7 sec. Ef skottið svara getur maður notað endurvarpann til að kalla á. Ef ekkert skott kemur eftir að lyklað hefur verið, þá er ekki samband við endurvarpann og ekki til neins að reyna að nota þá rás.

    Sem dæmi um ágæti endurvarpa, þá getur Ólsarinn farið núna út í bíl hjá sér á Sauðárkróki, stilt á rás 46 sem er endurvarpi á Þándarhlíðarfjalli og í gegnum hann mað tala um allt norðanvert hálendið, norður á strandir, suður á Bláfelsháls og eins næst hann á Holtavörðuheiði

    Ég get farið út í bíl hjá mér í Reykjavík og sett á rás 58 sem er endurvarpi á Hlöðufelli. Með honum get ég meðal annars kallað upp á Grímsfjall.

    VHF gerir svo mikið meira en vera dyrasími á milli bíla.

    Góðar stundir





    06.10.2010 at 17:40 #705368
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi hefur örugglega fari í jeppaferð með mér sem touristi. Hann hringar allar föstu druslurnar, en eins og flestir vita þá drífa Patrolar lang mest og gera lítið annað en hringa samferðabíla af ómerkilegum gerðum.

    Góðar stundir





    20.09.2010 at 23:29 #703422
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Miðað við breytingahraðan í skúrnum hjá Tedda, þá giska ég á að "krapa"græjan verði klár 2074.

    Góðar stundir

    ps: Ég hef lausn á krapa, og hún heitir Nissan Patrol !!!!!





    20.09.2010 at 17:31 #703370
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Svo má líka benda á grein sem Leifur Þorsteinsson skrifar í Moggan seinasta laugardag. Þetta er fulltrúi okkar í SAMÚT og hans niðurstaða er sú að það hafi verið mistök að reyna ekki að ná betri sátt við þá aðila sem málið varðar.

    Ég er alveg sammála honum.

    Góðar stundir





    09.09.2010 at 23:30 #702518
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Gott að menn eru með púlsin á þessu máli. Ferðafrelsið er í stór hættu, maður sér það vel af skrifunum hér að ofan.





    08.09.2010 at 20:07 #702346
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Mér vitanlega liggur ekki neinn bílvegur yfir Lyndalsheiði, né er verið að byggja hann. Lyngdalsheiði er gömul dyngja sem liggur töluvert fyrir sunnan Gjábakkaveg. Á toppi dyngjunar eru Þrasaborgir, mönnum til glöggvunar. Reyndar vill svo skemmtilega til, að verið er að byggja nýjan Gjábakkaveg, sem liggur norðan Lyngdalsheiðar. Hef ég lesið það fyrir stuttu að hann muni opna í lok sept.

    Góðar stundir





    18.08.2010 at 22:00 #700514
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég heyrði að húsið yrði lokað, en fólki væri boðið upp á feluleik á milli yfirveðsettra bíla á bílasöluplaninu.

    Góðar stundir





    16.08.2010 at 21:48 #214026
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Útaf umræðu sem byrjaði á „áskorun til stjórnar“ ákvað ég að pósta þessu hér inn svo ekki væri þráðarán í gangi þar.

    Aðeins að þráðaráninu. Í kasljósi kom fram að landvörður í Landmannalaugum hafi umsjón með Gullfoss og Geysi, og keyri þangað tvisvar í viku úr Laugunum !!!! HALLÓ er ekki allt í lagi með þá sem stjórna þessum málaflokk !!! Menn ættu að ganga um Geysissvæðið næst þegar þeir fara þarna um og horfa á hvað þetta er rosalega subbulegt og óaðlaðandi við hverina.

    Ríkið gat sett 1.3 milljarða í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar, enda á hann að vera fyrir einhverja aðra en flest venjulegt fólk í landinu, en það er ekki hægt að ráða starfsmann til að hugsa um Gullfoss og Geysi. Ég er þó viss um að til er slatti af einhverjum nefndum sem eiga að fjalla um þessi svæði, og kostnaður af þeim er margfaldur það sem eitt stöðugildi myndi kosta þarna.

    Svo var ég eitthvað að rýna í nýjar tillögur um stækkun í Þjórsárverum, og var ekki alveg viss hvort Setrið var komið inn á friðlandið.

    Góðar stundir





    16.08.2010 at 21:43 #700206
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég er algjörlega sammála Gísla um þessi ljósavélamál. Það þarf að fá nýja ljósavél upp í Setur áður en vetur skellur á. Þessi hækja sem er þar núna hræðir félagsmenn frá Setrinu, með óhóflegri eyðslu og svo er hún endalaust biluð og til vandræða.

    Góðar stundir





    24.07.2010 at 15:43 #698904
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Felgusætið á nafinu er stærra á Patrol og ekki allar felgur sem passa uppá. Þegar bílum er breytt er venjulega rennt af nöfunum svo allar felgur passi. Nokkrir hafa lent í því að felgurnar passa ekki upp á nafið, en taka ekki eftir því að felgan situr skökk og allt skelfur til helvítis.

    Góðar stundir





    02.07.2010 at 22:00 #697358
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi fólksbílshóra á myndinni er EKKI Patrol. Þetta er eitthvað afstyrmi sem minnir mig á Toyotu eða álíka hálfjeppaviðbjóð.

    Láglendisvæðingin hefur náð nýjum hæðum núna.

    Helvítis fokking fokk.





    26.06.2010 at 00:58 #696620
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Sælir
    Tók í sundur og gerði upp dælu úr gömlum Patrol fyrir stuttu. Sú dæla var með smurkerfi og olíukjallara og dældi olíu í þrýstilegurnar í sjálfri sér. Ég fékk nýjar legur sem pössuðu í Fálkanum og minnir að það hafi verið skinnur með þeim. Þetta var allt frekar einfalt og frekar rólega handavinna. Menn ætti að skoða hvort það sé smá bunga neðan á dælunum sem þeir eru með og leita eftir aftöppunarskrúfu. Ef þetta er til staðar væri ágætt að skipta um olíu á henni.

    Góðar stundir





    30.05.2010 at 15:39 #695004
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég fagna því að núna verði settir peningar í ferðafrelsið, ég hefði viljað sá það gert fyrr. Vona að þeim peningum verði vel varið í að kynna sjónarmið okkar jeppamanna, svo fólk sjái að jeppamenn ferðast um landið sitt með virðingu.

    Ekki veit ég hvort stækkunarmál á Setrinu voru rædd, en ég er kominn á þá skoðun að best sé að slá þau af að svo komnu máli. Mikið frekar að setja pening í nýja og hagkvæma ljósavél, sem allir sem koma í Setrið geta sett í gang á vandræða.

    Góðar stundir

    ps: Nú þegar er byrjaður að koma upp ís á Langjökli við Jaka. Má því búast við að vatnsrásir og sprungur opnist snemma í ár.





    26.05.2010 at 17:27 #693324
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Sælir

    Það vantar Jóa jeppalausa á listan yfir fjarskiptanefnd. Ekki man ég hvort hann á að sitja áfram eða vera í endurkjöri, en öllu núverandi fjarskiptanefnd vill starfa áfram.

    Svo segi ég bara góðan aðalfund,því ég verð fjarverandi á Langjökli með tourista næsta laugardag.

    Með X-Æ kveðju….





    23.05.2010 at 00:29 #694400
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það að bora út nöf í Patrol fyrir stærri felgubolta, býr venjulega til mikið meir af vandamálum en upphaflega stóð til að leysa. Eitt sinn aðstoðaði ég mann í svipuðum vandamálum með naf. Við settum nafið á felgu og hertum alla bolta vel og síðan voru þeir soðnir fastir. Þetta virkaði ágætlega.

    Ég er nokkuð viss um að nafið úr eldri bílnum passi ekki, enda er aðeins lengra á milli lega í honum.

    Góðar stundir





    04.05.2010 at 23:13 #692710
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég var á aðalfundi hjá stóru félagi fyrir stuttu. Þegar kom að því að kjósa varamenn var það tekið sérstaklega fram, að varamenn eða maður yrði bara kallaður til ef einhver stjórnarmaður hætti alfarið í stjórn, en ekki ef einhver stjórnarmaður kæmist ekki á einn fund.

    Svo eru lög auðvita mismunandi eftir félögum.

    Tek svo undir með Benna, hver er að bera þessa breytingu upp ?

    Góðar stundir





    29.04.2010 at 19:45 #692192
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það næsta sem gerist er að þú kemur heim og ferða að grenja í mönnum um að fá að keyra tourista á Ford Econoliner. :)





    17.04.2010 at 21:18 #690938
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Skrapp aðeins austur fyrir fjall í dag, til að horfa á fretið úr Eyjólfi. Mætti vörubíl með 38" breytta Tacomu á pallinum, svo þessar sögur er líklega allar sannar. Tacoma er ruslahruga á hjólum.

    Góðar stundir





    16.04.2010 at 23:26 #690966
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Sælir

    15" þykir gott að rifna við felguna, en 16" er alveg laus við þann leiða ávana. Eins held ég að fljótlega verði hætt að framleiða þessi dekk fyrir 15" felgur, ef það er ekki hætt nú þegar, allavega fær maður ekki 38" dekk frá MT lengur fyrir 15" felgur.

    Góðar stundir





    08.04.2010 at 20:07 #689768
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Mér er stórkostlega létt. Ég var farinn að halda að Umhverfisstofnun ætlaði virkilega ekki að afhafast neitt í þessu stórkostlega glæpamáli, sem lætur Icesave og Glitnisglæpamennina líta út eins og skólabörn.

    Þetta er sko stærra mál en allt annað í þessu landi.

    http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 … _top_gear/

    ps: Ég taldi að það væru til takmörk á heimsku. Ég hafði rangt fyrir mér.

    Góðar stundir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 1,627 total)
← 1 … 5 6 7 … 82 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.