Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.12.2011 at 00:06 #743983
Virkilega flottur bíll… eiga örugglega eftir að gera góða hluti á honum.
25.09.2011 at 15:04 #721386Gott að heyra að það er ekki bara ég sem er í vandræðum með myndainnsetningar! Og ps það er ekkert einfalt við að setja þessar blessuðu myndir inn, ef það væri einfalt væru miklu fleirri myndir komnar inná vefinn okkar. Hef reynt að setja inn margar myndir í einu en það kemur alltaf upp eitthvað vesen og tíminn sem fer í þetta er ótrúlegur! maður endar á því að setja þetta inn 5-10 myndir í einu og það sjá það allir að enginn nennir að setja inn myndir á þennan hátt.
Með von um að myndainnsetningar verði fljótlegar og það einfaldar að 5 ára krakki geti sett inn myndir
Hjalli Sig
29.09.2009 at 14:12 #658642Gaman að þessum þræði, sýnist að passportinn sé ennþá betri en valintine á þessum samanburði sem ég sá hér á þræðinum. Auðvita á maður að halda sér á löglegum hraða en það þarf bara gleyma sér augnablik og þá er maður tekinn og steiktur á teini!!! betra að fá sér radarvara og hann lætur mann vita ef mælingar eru í gangi.
Kv Hjálmar
26.09.2009 at 12:27 #652450Það vantar alveg mynd af gripnum og einnig verð?
25.09.2009 at 21:04 #658902Keypti nýtt sony bílútvarp 2004 og það var einmitt sama sagan hljóp til á 0,2 og var voðalega pirrandi að finna rásina.
24.09.2009 at 00:48 #658618Skoðaðu passport radarvaranna frá nesradio þeir taka líka leiserinn hjá löggunni. Eina málið með leiserinn er að hann þarf sama og engan tíma til að læsa inni hraðann. Þessir gömlu þurfa smá tíma til að læsa inni hraðann og gefur það þér tíma til að kíkja á hraðamælinn ef þú gleymir þér í stöðinni, hehe. Mér hefur fundist fáir bílar frá löggunni vera með leiser. Ef það er bíll á undan þér sem hefur verið skotið á þá heyrir þú það.
kv Hjalli Sig
14.08.2009 at 17:38 #651864Ég fékk þetta meðfylgjandi Gpsinum, eða ölluheldur loftnetssveppnum frá Garmin. Þar var einmitt minnst á að truflanir geti verið á milli talstöðvar og gps !! Talaðu við þá hjá garmin island.
13.08.2009 at 23:00 #651856Það væri sniðugt prufa að setja truflanadeifir á gpsinn… sem sagt segul sem er smellt á loftnetsendann sem fer inní gpstækið.
13.08.2009 at 00:42 #653870Þakka skjót svör.
Kv Hjalli Sig
12.08.2009 at 19:21 #646516Það væri örugglega hægt að setja upp sér sýningu, Úlendingar í íslenskum ám.
12.08.2009 at 19:17 #205743Veit einhver um eða lumar einhver á partabók fyrir LC 80 1993 módel?
Hef reynt að finna þetta en án árangurs.Kv Hjalli Sig
12.08.2009 at 19:09 #650162Smá innlegg í þessa gríðalega greinagóðu umræðu um verkfæri!
Ég er búinn að eiga Kamasa toppasett í 6 ár og hefur það reynst vel. En síðasta sumar var ég á sprengisandi og var að bauka við að bílinn í sandroki og svo gerði rigningu í ofanálag!! Eftir þetta eru öll skröllin svotil ónýt, stoppa ekki á hökunum, bara vesen. Mæli ekki með að nota skröllin í miklu sandroki.. hehe.
11.05.2009 at 22:33 #647450Ég átti svona 90 cruiser og það var eitthvað skrölt aftur í honum. Kom í ljós að það voru öftustu boddýpúðarnir sem voru farnir og leiddi þetta því um allan bíl. Skoðaðu þetta.
18.04.2009 at 13:23 #645994Talaðu við Samtak í hafnarfirði
07.04.2009 at 16:32 #645318Takk fyrir þetta… þegar ég er búinn að reikna þetta út er ekkert ódýrara að fá þetta frá usa heldur en hér heima. Búinn að senda bræðrunum á ljónstöðum mail og bíð bara eftir svari
07.04.2009 at 13:18 #204191Ég er að velta fyrir mér hver flutningskostnaður verður hingað til íslands á 20 kg ? Ef einhver hefur verslað við þessa sjoppu í USA JT’s Parts & Accessories ,Justdifferentials.com, endilega látið vita af því.
Kv Hjalli Sig
11.03.2009 at 13:18 #643142Það er líklegra að endastinga jeppanum,sökkva í krapapitt, velta honum, enda ofan í sprungu eða hreinlega fara framaf hengju en að eitthvað komi uppá við að keyra frá Rvk til Ak ein einum rikk. Það á að hafa einhverja skynsemi í þessu og þar á meðal að taka ekki 3 vikna barn á fjöll og hvað hefur 3 vikna til 1 árs barna út úr fjallaferð annað en að gera það sem það gerir vanalega á þessum aldri að babbla við sjálft sig og slefa?? Held að það sé frekar verið að hlaupa eftir áhugamáli foreldranna í þessum efnum heldur en hag barnanna!
-
AuthorReplies