Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2007 at 22:25 #604924
Sælir,
Gaman að horfa til baka og muna eftir því að þegar maður fór fyrst á fjöll sem farþegi og tilvonandi jeppamaður.
Þá splæsti maður bara tank og aukatank á jeppan hjá eigandanum.. kannski 150 lítrar og keypti svo Sómasamlokur, kók og twix og borgaði 4000 þús kall. Þá var líterinn á sirka 27 kr að mig minnir.
Já, sæll.. Þetta er pakki uppá svona 22þús kall í dag. Enda hefur sómasamlokan hækkað!
Reyndar var olíugjadið ekki komið á þá, en mér er sama.
Ef ég myndi framreikna þetta á launavísitöluna mína þá ætti ég að vera með 1,3 milljónir í laun í dag.
kv,
heijo
29.11.2007 at 20:53 #605086Sæll,
Þetta er vissulega orðið dálítið mikið ryðgað hjá ykkur feðgum. Ég átti svona Landcruiser ’84 á sínum tíma og leitaði af body hlutum í hann á netinu. Það var því miður ekki mikið til í 60 bodyið, en í 40 bodyið er hægt að fá allt úr plasti eða áli. þetta er samt nokkur ár síða og það gæti verið komið meira úrvar á markaðinn fyrir 60 bodyið í dag.
Ég skal athuga hvað ég finn á þessum síðum sem ég var að nördast á og sjá hvort ég finni eitthvað áhugavert.
kv,
heijo
26.10.2007 at 13:02 #600836Máttur auglýsinga er ótrúlegur. Systir mín er komin á fullt í tilhugalífinu og virðist vera að ganga út með þessu áframhaldi. Það er nóg að gera í tölvupóstsendingum hjá henni og Það hellingur af hressum og góðum gæjum sem eru tilbúnir að hitta hana með samband í huga.
Þó nokkrir hafa kvartað yfir því að eiga ekki Cintamani flíspeysur eða Scarpa gönguskó og vill systir mín taka það fram að hún mun koma til með að lýta framhjá svona hlutum ef öðrum skilyrðum er fullnægt.
Ég vill þakka góðar undirtektir og ég vona svo innilega að hún gangi nú út. Ég get staðfest að þið verðið ekki sviknir af henni. Enda hress, skemmtileg og jákvæð með eindæmum. Hún er mikil íþróttamanneskja með jeppadellu og útvistarmaníu á háu stigi.
Að lokum vill ég taka það fram fyrir þá sem eru samkynhnægðir að ég er ekki á lausu og það þíðir ekki að senda mér tölvupóst með sambandi í huga. Ég á konu og 3 börn og hef ekki áhuga á að skipta henni út fyrir karlmann á 44 tommu Land Cruiser. Vinnsamlegast sendið á emailið prinsessa68@gmail.com
Kveðja,
Heimir
27.01.2006 at 14:46 #197177Ég skrifa þetta til að vara ykkur við atviki sem ég lenti sjálfur í þegar ég var að versla í Bónus.
Þetta atvik átti sér stað fyrir utan Bónus búðina í Breiðholti.
**Varúð hér eru atvinnuþjófar á ferð!!!
Þegar þú kemur út úr búðinni þá bíða á planinu tvær ungar og fallegar konur.
Þær nálgast þig þegar þú ert að koma vörunum fyrir í skottinu á bílnum
þínum. Önnur fer fram fyrir bílinn en hin nálgast þig frá hlið. Þegar hún
nálgast þá hrasar hún svo að bobbingarnir detta næstum út úr fleigna
V-hálsmáls bolnum hennar. Það er VONLAUST að stara ekki á brjóstin á henni á
þessum tímapunkti !!! Því næst þá biðja þær þig um að skutla sér á
McDonalds í Skeifunni.Á leiðinni á McDonalds hefja þær mök við hvor aðra í bifreiðinni. Því næst þá
klifrar ein þeirra yfir í framsætið og rennir niður hjá þér buxnaklaufinni
og fer að totta vininn. Á meðan þá stelur hin veskinu þínu. Ég varð fyrir
þessari fólskulegu árás á mánudaginn, þriðjudaginn, miðvikudaginn og
fimmtudaginn en þegar ég leitaði þeirra á föstudag þá voru þær horfnar!Farið varlega félagar … maður er greinilega hvergi óhultur nema á fjöllum!!!
29.12.2005 at 23:04 #537400Ég er búinn að fylgjast með þessu í nokkur ár og fengið annað slægið pósta sem ég var áskrifandi af. Á tímabili var óvíst hvort þetta færi í loftið en svo kom fjármagn frá Evrópusambandinu sem sparkaði þessu almennilega af stað. Í dag eru 2 kerfi í gangi annars vegar rússneska kerfið og hins vegar gps kerfið sem við þekkjum. Bæði þessi kerfi eru með ásættanlega nákvæmni en hæðar nákvæmnin hefur ekki verð eins góð. Eins og þetta kemur mér fyrir sjónir kemur þetta flugmönnum og flugöryggi fyrst og fremst til góða. Þegar þetta verður komið á 2008 verður sennilega hægt að lenda rellunni fullur. Þetta gefur líka hryðjuverkamönnum kost á að skjóta kjarnaflaugum með meiri nákvæmni inn um gluggan hjá Ólafi Ragnari eða Gorge Bush. Ég er ekki að sjá mikið benefit fyrir okkur jeppamenn í þessu, nema fyrir þá sem hafa gaman að staðsetja skála og sprungur með meiri nákvæmni. Munar kannski 3-6 metrum.
kv,
heijo
26.12.2005 at 21:23 #537040Ég er bara ánægður með þig. Ég átti svona 60 cruiser sem var búið að breyta mikið. Ég var reynda búinn að fara yfir strikið og ég held að þú ætlir að gera það líka. Gott að það eru til menn sem þora. Það verður gaman að sjá tækið þegar það verður full búið.
kv,
heijo
26.10.2005 at 21:27 #529968Sælir og takk fyrir þetta jákvæða viðhorf. Ég bjóst nú frekar við að vera rakkaður niður eins virðist oft gerast hér á spjallinu. Greinilegt að menn eru komnir í gott jeppaskap. Ég er ákveðin í að fara með hann á 38" og er byrjaður að skoða með möguleika á að koma þessum mótor eitthvað yfir 300 hestana. Setja á þetta blásara og eitthvað meira fjör. Fer eftir tíma og peningum.
Til hamingju með þinn 350 Glanni, (46" Góður 😉 og þú hafði rétt fyrir þér með að ég gæti ekki verið jeppalaus. Þetta voru 43 dagar, 22 klst og 2 mínutur sem það var hægt, þá var sjúkdómurinn kominn á lokastig og ekkert hægt að gera nema kaupa jeppa.
Ég var samt ákveðin í að gíra mig niður og fara úr 44" í 38" og láta stækka á mér tippið aftur. Ég geri ekki ráð fyrir að hitt þig meira í sundi Glanni er það?
kv,
heijo
25.10.2005 at 22:30 #529936Þetta á nátturulega að vera Jeep en ekki jepp.
25.10.2005 at 22:26 #196517Sælir drengir, hvaða álit hafa menn á Jeep Wrangler, Unlimited Rubicon útfærslunni? Ég var að kaupa mér einn slíkan. Kemur með 6 gíra skiptingu, 4:1 millikassa, hevy duty 44 framan og aftan, læsingar, allt orginal. HardTop og blæju. Ég frétti að það væri einn svoleiðis hér á landi. Veit einhver hvar hann er og hvað honum var mikið breytt. Ég ætla allavega að breyta þessu eitthvað. Það eru of litlir skór á honum orginal. Er ennþá í USA en kemur vonandi fyrir Jól. Þetta verður þá Jólagjöfin í ár frá konunni 😉
Kv,
Heijo
05.05.2005 at 09:48 #522156Olíugjald.
Sælir drengir.
Það er ekki hægt að taka höndum saman og mótmæla hækkun á olíu og bensín hér á landi, þar sem þessi hækkun er fyrst og fremst hækkun sem orðið hefur á heimsmarkaði. Það er ekki íslensku olíufélögunum að kenna að svo er, heldur flókinn tengsl áhrifamanna, spákaupmanna og minnkandi framleiðslugetu ásamt aukinni eftirspurn í Kína.
En hvað olíugjaldið varaðar þá finnst mér það hafa mætt mikilli sátt innan vébanda ferðafélagsins. Ég hef furðað mig mikið á þeirri staðreynd að olíu-lítrinn eigi eftir að kosta meira heldur en bensín-lítrinn eftir 2 mánuði. Hvaða áhrif á þetta eftir að hafa?
Dæmi:
Verður það ekki skrýtið þegar XPatrol 2.8 og Fjalli fara og tanka saman fyrir ferð og Fjalli borgar 22þús á Djásnið en XPatrol 2.8 25þús. Humm,,hvor ætli sé að eyða meira á 100km? og hvor er kraftmeiri? Svo á aumingja XPatrol 2.8 ekki eftir eð týma að nota olíufíringuna sína til að halda hita á bílnum fyrir utan einhvern skálan þar sem hann þarf að sjálfsögðu að borga 50% meira fyrir hvern lítrann þar heldur en áður.Svo gleyma menn því að þegar þeir eru í low-low færð þar sem kílómetrarnir verða fáir en ferðin tekur 10klst þá er XPatrol 2.8 að borga 40-50% meira heldur en áður. Er þetta ekki rétt hjá mér?
Ég hef furðað mig á því hvað þetta hefur mætt mikilli sátt hjá dísel mönnum. Allaveg þá er til sölu núna LandCruiser 4.0 disel turbo. Ég nenni ekki að keyra þetta olíubrennarafjós þegar ég get harkað um á bensíntrölli fyrir lítið minni pening, power og verið með heita miðstöð í bílnum. Og kannski best af öllu það verður hægt að tala saman í jeppanum. Fer úr 76db í 20db.
kv,
heijo
05.05.2005 at 00:48 #522144Sæll Linxu dúddi.. Þú ert að spyrja hvort OziExplorer sé til fyrir Linux. Það er ekki til og verður sennilega aldrei. En ef þú ert að leita af forriti sem getur gert sama hlut og Visual Navigation frá Nobeltec og OziExplorer, þá er til forrit sem heitir Olex. Þetta forrit er mjög öflugt með 3d möguleikum, dual screen support ofl.ofl. Þetta forrit getur keyrt sömu kort og OziExplorer og Visual Nav. gera.
Skoðaðu http://www.olex.no og þar getur þú skoðað þetta. Að sjálfsöguðu er þetta hugsað fyrir skip og báta eins og öll þessi forrit, en það er hægt að nota þetta í jeppan líka.. Keyrir margfald hraðar og á léttara hardware heldur en Windows gerir. 3D langtum hraðvirkara í þessu heldur Visual 6 eða 7.
Svo eru til hellingur af svona forritum fyrir linux sem þú getur prófað, sem er hugsað fyrir flutning á punktum á milli gps og tölvu og með einhverju korta möguleikum. Bara nota Google og leita og þér munuð finna.
kv,
heijo
05.03.2005 at 17:13 #512812Var rétt í þessu að tala við Simma, hann henti sér niður Eyjafjörðinn á Pattanum og með tvo 38" jeppa í samfloti. Hann sagði að þetta væri full fært fólksbílum að fara þetta og skildi ekkert í mönnum að vera lengja ferðina að óþörfu. Hann var hissa á þessum jeppamönnum fyrir norðan að dæma þessa leið ófæra. Hvernig er með þessa jeppamenn fyrir norðan? Eru þetta algjörar kerlingar?
kv,
heijo
24.11.2004 at 00:43 #509324Sæll, Sigurfari.. Sennilega er þessi lækkun bara þetta venjulega. Þ.e.a.s 17% lækkun. Þá er notað úr sjálfskipta bílnum. Það er hægt að fá lækkun frá Ástralíu í millikassan en ég veit ekki til að nokkur hér á landi hafi svoleiðis í millikassanum á 60 bíl. "Nokkri Patrolar eru með svoleiðs." Flestir þessir cruiser eigendur hafa bara fengið sér milligír. Það eru sennilega nokkrar tegundir af þeim í gangi, ég er með 203 sem Árni Brynjólfsson smíðaði fyrir nokkrum árum.
kv,
heijo
14.11.2004 at 11:37 #508604Já, verðum við ekki að leyfa þeim að klára síðuna áður en við drullum á bakið á þeim. Þessar heimasíður sem þeir hafa smíðað líta bara mjög vel út. Hægt að sjá það á http://www.castor.is
Svo gefur þetta webadmin tool meiri mögulieka að halda síðunni lifandi, það verður auðveldara fyrir menn að setja efni inná vefinn. Menn þurfa ekki að vera html forritara til þess að halda þessu meira lifandi..
Gefum þeim séns.
kv,
heijo
31.05.2004 at 18:21 #503431Þeir sem keyra á fastagjaldinu og keyra mikið eru ekki þeir einu sem tapa á þessu kerfi, heldur líka þeir sem eru á mæli. Mitt reiknisdæmi kemur allavega þannig út að ég tapa líka sem nota bara jeppan til að ferðast á fjöll og er með mælir. Verð á líter kemur mjög illa út fyrir þá sem eru á mæli og nota jeppana til að ferðast um jökla og hálendi. Mælagjaldið reiknaðist bara á ekin kílómetra en ekki magn díselolíu sem eyðist.
Þeir einu sem koma vel út úr þessu er þeir sem ætla að kaupa sér fólksbíl með díselvél.
Fyrir mér verður þetta allt að 20-30% dýrar að fara í ferð.
Mér finnst samt atygglisvert hvað þetta mál fór sofandi í gegn.
Það mátti kannski breyta þessu eitthvað, en það mátti líka kannski skoða dæmið betur. Ekki bara keyra þetta í gegn eins og allt annað.
kv,
heijo
18.04.2004 at 02:22 #499186Nú er rétti tíminn til að selja jeppan, það er að segja ef einvher vill kaupa hann.
Nokkara ástæður þessa að svo ætti að vera.
1.
Nú eru margir menn að tala um það sama og Leo um "skort á eðlilegum reglum frá hendi hins opinbera…" og "löggjafi og dómsvald ekki sinnt þessum málum sem skyldi…" (Bara leiðinlegir menn, reglusjúkir menn sem pissa ekki nema í samþykkt gustafsberg klósett með ISO 9001 öryggisstaðli) Þetta eru mál sem eiga ekki eftir að auðvelda okkur jeppamönnum. Það á eftir að auka eftirlit með þessu til muna og jafnvel að banna breytta jeppa, enda ísland á leið í Evrópu helvíti og það þarf reglur, lög og leyfi fyrir öllu þar. Norska aðferðin.2. Vatnajökulsþjóðgarður, og hvað svo? Það verður örugglega erfitt að fá að fara á þessa jökla á jeppum nema með sérstöku leyfi þegar fram í sækir. Vatnajökull núna svo koma hinir.
3. Ólíugjald. Það er engin spurning að það á eftir að auka kostnað helling, bæðir þeira sem eru á fastagjaldinu og þeira sem eru með ökumæli.
4. Loftslagsbreytingar og hlýnun andrúmslofts. Áhrif loftslagsbretinga hefur óneytanlega gert okkur erfitt fyrir og er það ekki spurning að nú er svo komið að það er hægt að skynja þessar breytingar vel. Menn eru að spá því að þetta sé að gerast miklu hraðar heldur en menn þorðu að vona í fyrstu. Mín stutta æfi hefur meira að segja fundið fyrir þessum breytingum.
Núna verður maður bara að breyta til. Fá sér fólksbíl með díselvél, góða gönguskó og stuttbuxur og ganga um hálendið. Frelsið til þess verður seint stoppað.
😉
kv,
heijo
06.02.2004 at 18:27 #487818Fyrir þá sem eru alltaf að nöldra yfir öllu bendi ég á fínan spjallþráð inná heimasíðu http://www.barnaland.is. Þar geta ford og peve spjallað við kjaftakerlingar barnalands. Annars ekki slæm síða fyrir þá sem áhuga hafa á því..
Ekkert persónulegt bara hafa gaman af þessu.
Sjáumst á fjöllum um helgina..
kv,
heijops.
Svo þetta með þráðinn um Fjallasport. Mér fannst illa farið með þá í Fjallasport, og menn ættu að gæta sína á svona skrifum. Menn eiga ekki að dæma Fjallasport út frá hans skrifum. Ég held að það séu tvær sögur á bakvið þetta mál.
06.02.2004 at 18:27 #492635Fyrir þá sem eru alltaf að nöldra yfir öllu bendi ég á fínan spjallþráð inná heimasíðu http://www.barnaland.is. Þar geta ford og peve spjallað við kjaftakerlingar barnalands. Annars ekki slæm síða fyrir þá sem áhuga hafa á því..
Ekkert persónulegt bara hafa gaman af þessu.
Sjáumst á fjöllum um helgina..
kv,
heijops.
Svo þetta með þráðinn um Fjallasport. Mér fannst illa farið með þá í Fjallasport, og menn ættu að gæta sína á svona skrifum. Menn eiga ekki að dæma Fjallasport út frá hans skrifum. Ég held að það séu tvær sögur á bakvið þetta mál.
06.02.2004 at 16:48 #487812Er búinn að setja inn Texta með myndunum til að koma í veg fyrir að menn misskilji þetta.
kv,heijo
06.02.2004 at 16:48 #492623Er búinn að setja inn Texta með myndunum til að koma í veg fyrir að menn misskilji þetta.
kv,heijo
-
AuthorReplies