Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.09.2013 at 10:22 #379084
Daginn
Í framhaldi af þessu:
Þar sem komið er að því að endurnýja spilvír hjá mér langar mig að forvitnast um kosti og galla á dynextógi miðað við vírinn. Getið þið upplýst það?Kveðja
Haukur
09.07.2012 at 16:18 #755675Takk fyrir þetta. Ég athuga þessa möguleika.
Kv
H
09.07.2012 at 14:03 #223857Góðan dag.
Ég varð fyrir því óláni að slanga í vökvastýrinu gaf sig í Þórsmörk um helgina. Með hjálp góðra manna tókst að tengja framhjá kælinum og loka með því kerfinu og keyra áfram.
Ég ákvað í framhaldinu að endurnýja allar slöngurnar í vökvastýrinu en komst að því að orginalslöngurnar kosta eins og löng helgi fyrir tvo á lúxushóteli.Vélaverkstæði Þóris á Selfossi smíðar alls konar slöngur en þar á bæ voru uppi svolitlar efasemdir um að þeir réðu við þetta verkefni (ekki búinn að rífa hinar úr til að sýna þeim).
Einhverjar uppástungur frá ykkur snillingunum þarna úti?
Kveðja
Haukur
26.06.2011 at 16:47 #732585Ég er með 35" breyttan LC80. Um leið og ég tók orginal gormana undan fjarlægði ég hækkunarklossana og setti OME gorma sem voru lengri sem nam þykktinni á klossunum. Alveg frábær reynsla af þessu. Mjúkir og góðir gormar en þola samt mikinn burð. Ég hef farið á þessu í miklar torfærur, er oft með mikið hlaðinn bílinn og dreg stöku sinnum þungar hestakerrur. Þær eru að vísu ekki endilega svo þungar á beislið þó þær séu þungar í drætti.
Ég mæli óhikað með þessum gormum. Bíllinn gjörbreyttist við að þeir voru settir undir.Haukur Gunnarsson
16.06.2010 at 18:19 #696450Takk kærlega fyrir þetta. Skoða þetta við fyrsta tækifæri.
En er þetta nánast alltaf vegna vandræða með mótorinn? Hvað með læsingarmekanismann í drifinu sjálfu. Þarf maður að liðka eitthvað upp þar?
Kveðja
Haukur
16.06.2010 at 14:58 #696446Takk fyrir þetta Oddur.
Þarf að taka mótorinn úr til að gera þetta?
Kv
Haukur
15.06.2010 at 21:16 #696442Allar æfingarnar hjá mér voru framkvæmdar á möl, set þetta aldrei á á malbiki. Þurfti reyndar að keyra heim á malbiki með læsinguna á, 20 kílómetra á þjóðveginum.
Takk samt.
Kveðja
Haukur
15.06.2010 at 20:09 #213217Daginn
Er í vandræðum með læsingu á LC80. Báðar læsingar stóðu á sér þegar ég keypti bílinn fyrir 2-3 árum. Lét hreinsa mótorana og liðka allt upp. Það gekk þokkalega með afturlæsinguna en ekki að framan. Keypti því annan mótor að framan og nú fúnkerar sú læsing fínt. Mér var ráðlagt að setja þetta á og af stöku sinnum til að halda því liðugu.Það hef ég gert reglulega en afturlæsingin er oftast svolítið lengi að grípa. Nú áðan gerði ég „liðkunaræfingar“ og nú vill afturlæsingin ekki fara af aftur. Er búinn að keyra í 8, rugga bílnum fram og til baka, setja í og úr drifi…
Eigið þið nokkur trix þarna úti?
21.05.2010 at 00:08 #693788Rétta svarið er:
Þetta er gabb.Í fyrsta lagi: Harla ólíklegt að Toyota bili,
í öðru lagi: Alvöru sauðfjárbændur fara ekki í bíltúr á þessum árstíma,Haukur
16.04.2010 at 20:40 #690924Takk fyrir þetta Atli.
Þú ert skjótari en skugginn.Gaman að heyra frá þér líka. Það er skarð fyrir skildi meðal vélstjóraefna síðan þú útskrifaðist.
Haukur
16.04.2010 at 20:28 #212159Góða kvöldið félagar
Þið sem eigið GPS
Getið þið sagt mér fjarlægðina í loftlínu frá Selfossi að gosmekkinum.
Ég spyr fyrir útlendan vin minn sem finnst ég geta grillað pylsur við eldinn.Kveðja
Haukur
01.07.2009 at 09:25 #650954[b:407w212k]SKÁPURINN ER SELDUR[/b:407w212k]
30.06.2009 at 22:33 #204995Electrolux ísskápur til sölu.
Gengur fyrir gasi eða rafmagni, hægt að stilla á 12 volt eða húsarafmagn.
Í góðu standi og fullkomnu lagi. Lítið notaður. Verð aðeins 30 þúsund.
Upplýsingar gefur Gunnar Már s. 895-8259.
19.06.2009 at 17:49 #650092Sæll
Landvélar áttu ekki efni í þetta, ekki Barki heldur. Stilling, Poulsen, Fálkinn… Ekki IH heldur. Maður skilur bara ekkert í þessu.Kveðja
Haukur
19.06.2009 at 10:36 #204773Góðan dag.
Okkur bráðvantar allar bremsuslöngur í Isuzu Trooper, árgerð 2000, en þær eru hvergi til!!!
Getur nokkur sagt okkur hvert við getum snúið okkur í þessu máli?Kveðja
Haukur Gunnarsson
Egill Guðmundsson, sími 8222354
15.04.2009 at 09:24 #645544Ég hef áhuga á þessum þræði, verandi stoltur eigandi LC80.
Þegar læsingarnar eru settar á, blikkar ljósið hjá mér. Ljósið fyrir framlæsingarnar verður stöðugt eftir 1-2 mínútur en afturljósið blikkar áfram.
Þýðir þetta að læsingarnar eru ekki virkar meðan ljósið blikkar?Með þökkum
Haukur Gunnarsson
06.03.2008 at 16:48 #616690Sælt veri fólkið
Ég tjái mig um þetta þó ég sé ekki í stjórn eða neitt og því umboðslaus fyrir hönd klúbbsins í þessu máli.
Ég starfa sem deildarstjóri í Fjöltækniskóla Íslands og hef verið í sambandi við stjórnina vegna fyrirhugaðs félagsfundar á 25 ára afmælisdegi klúbbsins. Okkur í Fjöltækniskólanum til mikillar ánægju tók stjórn klúbbsins tilboði okkar að halda afmælisfundinn hjá okkur, í því húsnæði sem hann var stofnaður.
Á laugardaginn 8. mars verður haldinn Skrúfudagur skólans, opinn dagur þar sem gestum og gangandi er boðið að skoða aðstöðuna og kynna sér starfsemina. Sú hugmynd kom upp að minna aðeins á afmælið og klúbbinn og því óskuðum við eftir því að klúbburinn lánaði nokkur vígaleg ökutæki til að stilla upp fyrir framan skólann á Skrúfudaginn. Hér er aðeins um að ræða nokkra jeppa, ekki almenna sýningu, þó allir meðlimir 4×4 klúbbsins séu hjartanlega velkomnir á Skrúfudaginn.
Með kveðju
Haukur Gunnarsson
04.03.2008 at 11:35 #616020Þetta er rétt. KE býður upp á 120 lítra áltanka, það er ég búinn að fá staðfest og ég býst við að verðið sé gott. Maður kannski spyrst aðeins fyrir annars staðar en annars lætur maður slag standa.
Kv
Haukur
03.03.2008 at 22:29 #616016Takk fyrir þetta.
Athuga þetta strax.
Einhverjir aðrir möguleikar?
Kv
Haukur
03.03.2008 at 20:59 #202010Er nokkur svo fróður að geta sagt mér hvort einhver framleiðir staðlaða aukatanka í 80 Cruiser. Mér finnst einhvern veginn að það hljóti að vera til standard teikning hjá okkar frábæru smíðaverkstæðum.
Ég er að hugsa um tank fyrir aftan afturhásingu, ekkert endilega mjög stóran.Kveðja
Haukur Gunnarsson
-
AuthorReplies