Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.11.2004 at 11:43 #508744
Sæll
Á síunni er hálfhringlaga platti minnir mig, og þessi platti heldur uppi gorminum og járninu.
þetta gengur upp í ventlaboddýið en ég man ekki í hvaða röð þetta á að koma saman, það finnst í einhverri bók.Halldór
12.03.2004 at 16:37 #491344Þetta fæst í Bílabúðinni hjá Benna, og svo er hægt að fá þunna flata snúningsplatta sem má setja undi sætið en ofan á sætisbracketið en þá heldur maður geymsluhólfinu sem er undir stólunum a.m.k. í eldra boddyinu, þessir plattar eru stöðugir með stórri legu (því þetta má ekki rugga mikið undir manni)í húsbílabúðinni AFL húsbílar á Akureyri.
12.03.2004 at 16:37 #498084Þetta fæst í Bílabúðinni hjá Benna, og svo er hægt að fá þunna flata snúningsplatta sem má setja undi sætið en ofan á sætisbracketið en þá heldur maður geymsluhólfinu sem er undir stólunum a.m.k. í eldra boddyinu, þessir plattar eru stöðugir með stórri legu (því þetta má ekki rugga mikið undir manni)í húsbílabúðinni AFL húsbílar á Akureyri.
03.02.2004 at 18:01 #459048Sælir
Mig langar til að fá uppskrift bérna frá gummij hvernig best er að setja upp 4-link, ef stífurnar eiga að halla mismunandi mikið og vera jafnvel mislangar og heppilegt bil á milli stífanna, en ég er nú líka oft að spá í muninn á að nota 4-link að aftan eða þá að nota bara Range Rover/Bronco framstífur að aftan, er 4-link útfærslan betri þar sem Toyota smíðar svoleiðis undir sína bíla?
Halldór
05.01.2004 at 17:53 #483372Sæl
Ég keypti eitt sinn svokallaða nýupptekna C4 skiftingu sem hagaði sér einmitt svona þegar ég var búinn að skrúfa hana í, hún fór ekki í R og 3 gírinn virkaði ekki heldur, hún tók af stað í 1 og 2 og í Drive en virkaði eins og í hlutlausu þegar hún átti að fara í 3 gír og Reverse.
Hún kom úr bíl þar sem sjálfsiptikælirinn í vatnskassanum var óþéttur þannig að það hafði komist vatn í sjálfskiptiolíuna og þá eru þær fljótar að fara, diskar og bönd étast upp.
ég veit ekki hvað þetta gerist fljótt þar sem bakkið virkaði hjá þér um daginn, en það er enginn barki í þessari eins og einhver skrifaði hérna ofar heldur eru teinar niður í skiftinguna.
Ætli það sé ekki best að byrja á að athuga olíuna, hvort hún sé vatnsblönduð, eða svört og brunnin, já og hvort það sé nægileg olía, í hægagangi í Park á hún að vera milli strika á kvarðanum.
skiptingin var síðan tekin upp og virkar nú vel en ég nota bara olíukæli fyrir framan vatnskassa til að eiga þetta með kælivatnið ekki á hættu.
Með von um að þetta hjálpi eitthvað.
Halldór
10.12.2003 at 17:07 #482498Sæll Theodór
Væri möguleiki að fá hjá þér teikningarnar bæði 3d og bennsluteikningarnar, til að maður geti farið að rifja upp og æfa sig í Autocad. halldorg@ruv.is
Ég er að spá í festingar að aftan með loftpúðum og á erfitt með að gera upp á milli hvort ég á að nota 4-link eða Range Rover stífur.Kveðja
Halldór
14.11.2003 at 11:21 #193179Ég er að fara að setja loftpúða undir minnsta gamla Econolininn sem ég veit ekki alveg hvað viktar en ég hef heyrt tölur um og yfir 2300 kg. og ég er að velta fyrir mér nokkrum atriðum
Hvaða efnisþykktir eru menn að nota í stífur og aðrar festingar eins og í mínu tilfelli
Hafa menn notað venjulegt ST 37 eða stífara skipastál ST 42, ST43?Hvernig er síðan best að festa hásingunni?
Það eru flestir með 4-Link með hliðarstífu,
stundum eru allar stífurnar jafn langar og þá helst hallinn á pinjón sá sami við fjöðrun,
en í breyttum Toyotum eru efri stífurnar styttri og þá sýnist mér snúast í öfuga átt upp á hásinguna þegar bíllinn fjaðrar?
Aðrir eru með 3-Link = tilbúnar stífur, td. úr Range Rover með hliðarstífu.Ég er svolítið spenntur fyrir 4 stífum þar sem 2 stífur koma samsíða grindinni og 2 stífur eða A armur kemur í miðja hásingu, og losna þannig við þverstífuna, en er það sniðugt?
Þetta sést helst í jeppablöðum á bílum með gormum en ég hef bara séð 3 bíla sem eru með svona hérna, og hvernig er þá best að festa A arminn í kúluna á hásingunni en ég hef séð bæði notaðan stóran stýrisenda og A arm sem endar í gúmmífóðringum eins og eru grindarmegin á Range Rover stífum, en má ekki eins nota 2 stífur í A með Bens fóðringum?
Með von um góð svör fyrir mig og fleiri sem eru að spá í þetta.
Halldór
30.10.2003 at 14:04 #479416Ég lenti í þessu á Bronco 74 að ljósin voru að blikka í tíma og ótíma við verstu aðstæður, en voru í lagi þegar ég var að reyna að finna út úr þessu.
Bilunin var í aðalljósarofanum sem er á bak við mælaborðið, en inni í honum eru snertur sem rjúfa þegar þær hitna, eða við mikinn straum, og þær voru að svíkja.
Ég átti gamlan rofa þar sem hafði verið lóðað yfir snerturnar, einnig hefði það leyst málið að setja relay fyrir ljósin og láta rofan bara stýra relayunum.
En málið er að skifta um aðalljósarofa.
Kveðja
Halldór G.
14.10.2003 at 09:14 #477948Reynsla mín af Rancho er ekki góð.
Ég veit um Rancho fjaðrir sem voru settar undir jeppa sem varð alveg grjóthastur á eftir.
En varðandi 9000 demparana, þá keypti ég þannig sett einu sinni með stýringu inni í bíl – loftið lak alltaf mátulega þannig að það var hundleiðinlegt að þurfa alltaf að dæla í þá þegar lagt var af stað.
En eftir að ég henti stýringunni og setti hnappana aftur á demparana þá komst ég að því að stimpillinn sem er á bak við stillihnappinn hafði orðið fastur á tveimur dempurum þannig að það var ekki um annað að ræða en að hafa alla á miðjustillingu eða eins og draslið var hvort sem er ryðgað fast. síðan fóru afturdempararnir a haugana og ég gróf upp gamla Rancho 5000 sem fylgdu bílnum þegar ég keypti hann.
Þannig að næst ætla ég að splæsa í Koní nema stillanlegu Gabríel dempararnir verði ofaná – ef þeir fást þá ennþá einhversstaðar.
-
AuthorReplies