Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.08.2010 at 21:30 #213947
Sælir félagar, ég er í þeim hugleiðingum að taka fjaðrir undan að framan að bæta í leiðinni fjöðrunina um heilan helling. En hvað skal fá sér, bíllin er á 1200kg loftpúðum að aftan, á ég að fá mér gömlu góðu og traustu gormana með dempurum, púða að framan líka með tilheyrandi veseni, eða eins og er búið að vera að ýta að manni að gera, setja Fox dempara sem bera 600kg hvor á hvert horn. Ég á LC60, ég er að sækjast eftir mjúkri fjöðrun, hættur að nenna að vera með nýrnabeltið á mér á malarvegum. Spurning með þessa Fox, þyrfti ég að hafa jafnvægisstangirnar með.
Er einhver þarna úti sem hefur prófað þetta, veit að þetta er í torfærubílum en hvernig virkar þetta á fjallajeppa?
11.08.2010 at 21:18 #699526Ef tekið er eftir fjöðrun, er hann ekki með fox demparana eins og notaðir eru í torfærunni? Ef svo er þá ætla ég að fá mér svona fjöðrun.
11.08.2010 at 21:15 #699774verð á fjöllum!
30.06.2010 at 15:58 #697446Þú ert þá eflaust að tala um á höfuðborgarsvæðinu, eða hvað?
19.06.2010 at 20:08 #696690Sælir, mátt endilega ath fyrir mig snorkel á Toyota LC hj61 árg 88 þ.e. ef það er til.
06.05.2010 at 09:06 #692796Er enginn sem veit neitt um þetta.
05.05.2010 at 23:20 #692916Kannaðu hjá Orkan niður á höfða, þeir eru með gott og háglans trukkalakk. Kom vel út á mínum bíl.
05.05.2010 at 08:54 #212553Sælir félagar, hefur einhver lent í því að þurfa að framlengja eða fá lengri barka í t.d. barkalæsingar. Ef svo er þætti mér vænt um að einhver kæmi þeim upplýsingum til mín.
29.04.2010 at 12:08 #692174Það er alveg sama hvort þetta er jeppi eða fólksbifreið, Toyota, Patrol, Musso eða hvað það nú allt heitir, allt bilar þetta, þessi keðjuverkandi bilunartíðni er óþolandi, á einn VW Touareg 2006, ef eitt bilar þá fer eitthvað annað seinna, sannreint og kostar helling.
Sammála efsta ræðumanni nema hvað að þetta á sér ekki einslíka við jeppa heldur allar bifreiðar, og þetta með konurnar, hættulegt að koma með þesskonar umræðu hér inn. Þetta kallast að eiga sameiginlegt áhugamál hvort sem þér líkar það betur eða verr.
Takktakk
30.01.2010 at 15:18 #680176Einu upplýsingarnar sem ég set hér inn eru hnit af vettvangi, ekkert annað. Hélt að menn vildu fá þessar upplýsingar til að setja inn hjá sér í gps tæki til varnaðar v/sprungusvæða.
30.01.2010 at 15:12 #680170Ég get ekki séð að það sé ekki í lagi, þetta er einungis til varnar því að þarna sé sprungusvæði. Ef þessar upplýsingar mega ekki vera hér þá biðst ég afsökunar á því.
30.01.2010 at 15:05 #680164Björgunarsveitir sem eru á vettvangi, sé þetta á sitewatch. Er að reyna að setja inn hér mynd af vettvangi úr mapsource staðsetningu af slysavettvangi.
30.01.2010 at 14:18 #680158Hnit á vettvangi N 64° 39.123′ / W 020° 026.836′
30.01.2010 at 14:09 #680154Kona og barn féllu úr bíl og niður í sprungu. Þyrla LHG farin á vettvang með undanfara Landsbjargar.
25.01.2010 at 14:36 #661638Ég ákvað að sleppa því að setja inn svona ýtarlegar og persónulegar upplýsingar, ég efast um að þetta sé leifilegt nema með leyfi þess sem verið er að leita að.
Vona að ég sé að fara með rétt mál.
24.01.2010 at 20:07 #661634Ég hef þær upplýsingar að hann er afskráður hjá manni sem á heima í Hafnarfirði. Fjórir aðilar eru búnir að eiga hann síðan þú seldir hann.
06.01.2010 at 22:44 #674728Hvað er maður lengi að fá þetta til landsins, er frekar ragur við að panta svona á netinu, er hægt að treysta þessu alveg 100%.
04.01.2010 at 17:30 #209526Sælir félagar, er einhver sem þið mælið með sem tekur það að sér að sandblása, ég er með afturhlera af LC60, smá rið sem þarf að fjarlæga áður en farið er með þá í sparsl og sprautun.
Kv. Guðjón S
29.12.2009 at 23:08 #209410Sælir félagar. Er er að kaupa mér lenovo fartölvu til að nota sem GPS tæki, mig vantar pung en ég á GPS nuvi, mín spurning er sú hvort að það sé hægt að nota nuvi tækið sem einhversskonar pung til að fá Mapsource til að virka í tölvunni. Spyr sá sem ekki veit.
Kv, Guðjón S.
28.12.2009 at 23:19 #209389Sælir félagar, er ekki einhver þarna úti sem á eða veit um einhvern sem vill losna við GPS pung með usb tengi á sanngjörnu verði.
Kv.Guðjón S
-
AuthorReplies