Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.02.2008 at 23:23 #613992
Sammála þessu með að nenna ekki að skrifa HTML kóða.
Ég fékk bara nóg af því fyrir rúmum 10 árum síðan, þegar ekki var mikið um hjálpartól til HTML framleiðslu….það ÆTTI bara að vera liðin tíð.Allavega, mér finnst alveg dæmigert að þessi tól skuli ekki virka í Firefox, alveg lýsandi fyrir þann amatörahátt sem er á mörgu eftir blessaða snillingana sem klúðruðu þessari síðu saman.
Ég ætla ekki að koma af stað einhverri herferð vegna þessa, þetta er bara mín skoðun.
Hins vegar virðist kerfið virka nokkuð áfallalaust (7-9-13), allavega það sem hinn almenni notandi sér.
kv
Grímur
05.01.2008 at 02:57 #608926Látum nú innihaldið ráða félagar. Þó að ég persónulega reyni eftir fremsta megni að hafa mín innlegg stafsett og málfræðilega rétt, þá getur nú öllum brugðist í þeim efnum. Sérstaklega þegar lesblinda og fljótfærni fara saman.
Ég vil sérstaklega benda á það að vefurinn okkar er OKKAR miðill, ekki Morgunblaðið, og það er ekki aðalatriði hvort eitthvað er rétt stafsett eða ekki hér.Ég vil taka það fram að annars er ég sérstaklega mikill stafsetningar- og orðhengilsháttar gaur. Mér finnst bara að þessi vettvangur eigi að vera laus við fordóma sem tengjast ritfærni folks. Takk fyrir.
kv
Grímur
29.12.2007 at 04:00 #607992Þetta var nú gert svona einhvern veginn lengi vel. Fjaðrir síkkaðar, færðar ofaná rörið ef þær voru undir original, lengt í hengslum o.s.frv. Allt gerði þetta mögulegt að koma stærri túttum undir. Svo er boddíhækkun og vegleg úrklipping hið besta mál. Fyrir 60 cruserinn, og halda fjöðrunum er kannski hugsandi að færa afturhásinguna svona 10 cm aftar, hækka boddí um 5cm og klippa svo bara eins og óður maður. Ef þessir bílar eru hækkaðir til andskotans, eins og svo oft var gert, verða þeir leiðinlega svagir og hálf asnalegir nema settar séu undir breiðari hásingar.
Eitt vandamál sem einskorðast við (fram)blaðfjaðrabíla, er að finna afstöðu og lag á togstöng (stöngin úr stýrismaskínu niður á liðhús farþegamegin). Fjaðrirnar hafa tilhneigingu til að vera alveg voðalega mikið fyrir, sérstaklega þegar bíllinn misfjaðrar. Hvað það varðar og margt annað er miklu betra að breyta yfir í gorma eða loftpúða með tilheyrandi stífum og drasli. En ég virði spurninguna. Kunningi minn náði að gera svona bíl á 38" mikið skárri með því að breyta hengsladótinu að framan. LC60 er með hengslin að framanverðu, sem gerir það að verkum að bíllinn heggur mikið í ójöfnum. Hann víxlaði þessu þannig að upphengjurnar(við þann enda blaðfjaðrar sem festur er beint í grind) var að framan, og svo hengslin að aftanverðu. Þannig fæst miklu skárri hreyfing á hasinguna, á kostnað drifskaftsins kannski. Það má að hluta betrumbæta með einni stífu á hasinguna aftur í grind (Skríða undir næsta blaðfjaðra-double-cab bílstjóramegin að framan og skoða, þar er svona stífa original).kv
Grímur
29.12.2007 at 03:37 #607438E85 er 85% Etanól og nálægt 15% venjulegt Bensín.
29.12.2007 at 02:09 #607436Ég ruglaði saman Blossamarki og Sjálfsíkveikjumarki. Vinsamlega afsakið það, ég var að hugsa um töflu sem ég las í handbók fyrir ca 15 árum síðan.
Blossamark er "Flash Point", Sjálfsíkveikjumark er "Autoignition Temperature".
Wikipedia er með ágæta lesningu um þetta.
http://en.wikipedia.org/wiki/Flash_pointÍ innlegginu hér að ofan átti ég við "Autoignition Temperature".
Hins vegar fer ég ekki ofan af því að "Calorific Value" er nokkurn veginn það sama fyrir bensín og dísel, ef miðað er við massa. Sjá þessa slóð:
http://www.kayelaby.npl.co.uk/chemistry … _11_4.html
Athyglivert er miðað við þessar upplýsingar hversu orkuinnihald Metanóls og Etanóls er takmarkað, Bandaríkjamenn eru farnir að blanda Etanóli í bensín og kalla það E85, en þar er 15% spíri í mixinu. Ég veit nú ekki hvort nefnarinn þar er rúmmál eða massi, enda skiptir það lítlu. Allavega er verið að selja nokkuð sem hefur lægra orkuinnihald heldur en venjulegt bensín, það er alveg klárt.
kv
GrímurCalorific Value er einnig sambærilegt fyrir mörg gös, ef miðað er jafnframt við massa (ath. að á síðunni sem ég vísa í er orkuinnihald gass sett upp miðað við rúmmeter).
27.12.2007 at 19:31 #607110Ég er nú enginn vegalagningarsérfræðingur, en fæst samt örlítið við baunatalningu og tæknimál dags daglega. Mér er eiginlega alveg fyrirmunað að skilja hvers vegna það er 3x dýrara að leggja 2+2 veg heldur en 2+1. Er það kannski vegna þess að það er alltaf troðið heljarinnar skurði á milli gagnstæðra akreina og vegurinn sem fyrir er tekinn í gegn í leiðinni?
Hvað mælir gegn því að gera 4 veg (allar akreinar á sama plani, óslitið) veit ég ekki. Kannski eitthvert Evrópuregluverk.
Hvað mælir líka gegn því að leggja ANNAN 2ja akreina veg, ekkert endilega utan í hinum alla leiðina ef það hentar?
Svo er bara hleypt á gamla veginn í austur og þann nýja í vestur þegar allt er klárt.
Það er ekkert lögmál að þurfa að sjá bíla úr gagnstæðri átt…í USA er alsiða að leggja stofnvegi á þann hátt, þá er hægt að setja alls kyns slaufur og drasl á milli akstursstefna.
Kannski er þetta ekkert billegra, skásta vegastæðið er jú frátekið að mestu nú þegar.bara smá innlegg
kv
Grímur
27.12.2007 at 18:44 #607832Hefur einhver lent í draugagangi á parkljósum í Galloper?
Þau kvikna stundum bara alls ekki á mínum, en eru annars í fína lagi og hanga inni ef þau koma inn á annað borð.
Rafmagnsjukkið er út um allan bílinn finnst mér einhvern veginn, þó svo að þetta sé nú kannski ekki margbrotið. Grunar helst relay, en ég hef ekki grun um hvar það gæti verið staðsett, ekkert mál að skammhleypa framhjá relayi ef það finnst, og sér í lagi ef ljósunum þóknast að vera biluð þegar maður kemst í þetta…
Einhverjar reynslusögur? Það gæti sparað manni hellings rifrildi og rakningar ef svo erkv
Grímur
27.12.2007 at 05:09 #607812Hefur einhver farið yfir Kjöl eftir að það frysti aftur?
Væri gaman að vita hvernig Skálarnar eru (fyrir ofan Grjótá) og svo Bláfellshálsinn. Er 35" fært á Galloper?kv
Grímur
27.12.2007 at 05:04 #607824Því miður get ég ekki hjálpað þér, en mér finnst þetta ekki vera Heklu hf. til framdráttar. Okkar "local" markaður byggist að miklu leyti á fólki sem vill geta fudið út úr svona málum á eigin spýtur. Ég hef heimildir fyrir því að Toyota menn hérna á klakanum hafi lagt töluverða vinnu í að græja upplýsingar á þannig form að hægt væri að selja þær á sanngjörnu verði til viðskiptavina (fyrir prentkostnaði plús álagningu). 4000 kall plús VSK fyrir hluta af rafkerfi finnst mér alls ekki í lagi, nema að þetta séu meira en 100 síður í A4, og þar af leiðandi trubleshooting guide sem getur verið mikils virði.
Athugaðu allavega hvað er átt við með "einingu", og hvað fylgir. Kannski er þetta í lagi.
Gott að muna að skólanemar í þessu landi eru að borga 10 til 15 kall per síðu af ljósrituðu eða prentuðu efni í okkar menntastofnunum, sem fellur nokkurn veginn til fyrir kostnaði.kv
Grímur
27.12.2007 at 04:48 #607432Af ofantöldu dreg ég þá ályktun, án þess að slá neinu föstu, að tíming sé meginfaktorinn með þessa undarlegu þversögn á milli bensín og dísel.
Semsagt:
Bensín er ekki eins "eldfimt" og dísel, í sjálfu sér, samanber blossamark. Ef blanda af bensíni er veik brennur hún hægar og veldur hitamyndun seint, og þ.a.l. á óhentugum tíma.
Dísil er dælt inn (fyrst) á ákveðnum tíma í hverju slagi, og ef meira magni er sprautað inn tekur það lengri tíma, sem veldur sams konar seinni tíma óhentugum bruna.
Ef þetta er samnefnarinn þá er ég bara alveg sáttur. Það eina sem ég fæ ekki til að ganga upp er að forsprengingar eiga sér frekar stað með daufri bensínblöndu, sem bendir hugsanlega til óstöðugra ástands sem þýðir hraðari bruna, sem aftur fellir fyrri kenninguna.
Það sem gæti aftur bjargað þeirri kenningu er áhrif af fyrra slagi, s.s. hitamyndun seint í fyrra slagi setur af stað bruna í því næsta.Vona að þetta skiljist…
kv
Grímur
27.12.2007 at 04:31 #607802Ég hef fjarlægt ballansstangir undan nokkrum bílum sem ég hef átt. Engin hefur farið undir aftur.
4runnerinn varð svolítið undarlegur þegar stöngin var farin að framan, en ennþá undir að aftan. Þegar aftur-stöngin fór líka í ruslið, þá varð allt miklu þægilegra.
Besta dæmi sem ég man eftir var þegar ég sannfærði félaga minn á Lada-Sport (33") um gildi jafnvægisstanga. Við tókum hana undan, skildum hana eftir á verkstæðisgólfinu og fórum í bíltúr á djöfullegum malarvegi.
Þegar við komum aftur inn á gólf tók hann stöngina og færði hana snyrtilega í ruslafötuna.
HINS VEGAR eiga jafnvægisstangir alveg rétt á sér í bílum með stutt á milli gorma og mikla yfirþyngd, bara til að halda draslinu nokkurn veginn lóðréttu á því sem næst sléttum vegi. Þess vegna er gott að muna hvernig fyrsti alvöru gormavæddi jeppinn (Range Rover) var byggður, alveg án jafnvæisstanga; langt á milli gorma og demparar utarlega. Það er uppsetning sem hefur hentað ansi vel í gegn um tíðina þrátt fyrir að flestir aðrir bílaframleiðendur hafi valið að troða grindinni á milli hjóls og gorms að aftan.
Ég er ansi hræddur um að RR útfærslan verði seint toppuð, þó svo að hún sé komin til ára sinna. Það væri allavega mjög gaman að hitta teymið sem hannaði þetta system, það er alveg víst.kv
Grímur
22.12.2007 at 00:07 #607412Það er nú það.
Málið með steinolíu á bensínvél er akkúrat þjöppumál, en algerlega öfugt við það sem maður myndi halda. Steinolía hefur MINNA þjappþol heldur en bensín, og þar af leiðandi þarf bensínvél að hafa mjög lágt þjapphlutfall til að fara ekki að forsprengja undir álagi, einna helst á lágsnúningi.
Á einhverju bensínkrepputímabili vegna verkfalls, fyrir mína tíð, var fiktað við steinolíunotkun á bensínvélar. Til að fá þetta til að ganga vandræðalítið þurfti víst að seinka kveikju svo að þetta slyppi…Ef ég man rétt er blossamark bæði steinolíu og dísil lægra en á bensíni. Alveg ferlega pirrandi vísindi. Það er líka ansi erfitt að ímynda sér afhverju ,,rich mixture" hlífir bensínvél, á meðan hið gagnstæða gildir um dísilinn. Kannski hefur þetta eitthvað að gera með blossamarkið. Ég hef allavega ekki fengið neinn almennilegan botn í þetta, svona fræðilega séð.
Vonandi stendur það einhvern tímann til bótakv
Grímsi
21.12.2007 at 17:35 #607452Ég er langt frá því að vera viss um hversu sambærilegir þessir bílar eru, en það sem ég valdi að gera til að klína 35" undir Galloperinn minn var eftirfarandi:
a) Flexitorarnir óhreyfðir til að fá ekki leiðinda álag á stýrisgang og ómögulega fjöðrun.
b) 50mm boddílift.
c) Klippt úr frambrettum og faldað uppá nýtt, ca 6 cm að aftanverðu, festingar og framstellsblikkið snyrt til að framanverðu.
d) Original kantarnir klipptir til, hitaðir og faldaðir uppá nýtt.
e) 4mm þykkur plastrenningur frá málmtækni skrúfaður innaná allt saman til að breikka, skagar 2-3 cm út að ofanverðu sem sleppur fyrir 35" á 12" felgum.
f) Vatnskassamöndl, man ekki nákvæmlega hvernig ég leysti það, víxlaði eitthvað festingum og setti á hvolf…smekksatriði hvernig það er gert, en nauðsynlegt og tekur smá stund.Bremsurör sleppa alveg í þessum bíl, eru á grind aftur í hásingu, vafin að framan sem leyfir hækkun.
Stýrisgangurinn er nánast láréttur að framan og þarf ekki lengingu fyrir 50mm hækkun, dragliðurinn leyfir þetta vel.Slöngurnar í Intercoolerinn fá bara betra pláss.
Loftsíubarkann þarf að laga aðeins til, sleppur með góðu.
Að aftan er bara ágætis pláss fyrir 35", sleppur nokkuð vel án úrklippinga ef hækkað er og breikkað á þennan hátt.
Eg vil taka það fram að til að tryggja lágmarks nart slakaði ég bílnum alveg niður á flexitorunum(á samsláttarpúða) og lagði á borð-í-borð. Að öðrum kosti hefði maður freistast til að klippa eitthvað minna.
Hitt er annað mál að þetta boddí býður upp á meiriháttar úrklippingar með minniháttar vinnu ef skipt er alveg um plastruslið.
Þannig held ég að væri hægt að koma 38" með sömu eða hugsanlega minni hækkun og fá lágbyggðan og skemmtilegan bíl algerlega nuddfrían.
(Eins og Hiluxinn er skemmtilegur að flestu leyti, þá er algerlega hundleiðinlegt að þurfa að skera í sílsinn og möndla boddífestingu fyrir 38")kv
Grímur
21.12.2007 at 17:17 #607368Fór til USA um daginn og rakst þar á loftdælukríli í Pep Boys. Uppgefið magn 50l/min (sem er ekki mikið reyndar), en fyrir skitna $63 gat ég bara ekki sleppt því.
Prófaði hana í dag. Hún var ca 15mín að ná 35" ganginum úr 5psi í keyrsluhæft loft (ca 12-13psi). Alls ekki slæmt fyrir þennan pening, og miklu betra en ekki neitt. Mæli eindregið með þessu, þó ekki væri nema sem varadælu ef annað bregst.
21.12.2007 at 17:10 #607402Krafturinn verður örlítið minni á steinolíu. Ég held að það skýrist mögulega af því að hún hafi örlítið lægri eðlismassa en dísel. Orkuinnihald per kg. er nánast það sama, líka fyrir bensín. Þess vegna eyða bensínvélar almennt aðeins meira en dísil, þ.e. þær eru nær því að vera í sömu eyðslu ef miðað er við kg, frekar en lítra.
OK, en aftur að efninu…
Mekanísk olíuverk skammta í rúmmáli, þannig að ef eðlismassinn er lægri, þá fara færri grömm af eldsneyti inn á vélina í hverjum skammti –> minna afl. Hins vegar minnka þær dísilvélar sem hafa verið stilltar á of mikið eldsneyti aðeins reykinn við þetta, og væntanlega hina skaðlegu hitamyndun sem er fylgifiskur örlætis á olíumagni….Ég er að tilraunast með að blanda 5-10% jurtaolíu við steinolíuna til að hlífa olíuverkinu. Tilraun í frysti sýndi fram á að vaxmyndun á sér ekki stað við -20°C á þess háttar blöndu þannig að frostþolið ætti að vera í lagi.
kv
GrímurPS.
Finnst ykkur ekki líka magnað að það er hægt að kaupa jurtaolíu í líters umbúðum í Bónus á lægra verði en dísil af dælu? (129 kr/líter)
17.12.2007 at 02:32 #607072Þetta er sjónarmið sem með réttu rataði í fjölmiðla. Það er alveg víst. Alveg jafn víst og það að ég styð ekki þetta sjónarmið.
Ég ek daglega ,,hraðbrautina" milli Voga á Vatnsleysuströnd og stór-Reykjavíkursvæðisins, og hef gert undanfarin ríflega fjögur ár.
Það sem virkilega breyttist við að breikka Reykjanesbrautina (svo langt sem það nær í dag) var ekki beinlínis að hraðinn yrði meiri, eða að maður yrði fljótari milli staða. Það var bara eins og allt yrði rólegra. Þeir sem þurfa endilega að bruna framúr flutningabíl eða gömlum Galant, bruna bara framúr á 110-120, fá framúrakstursþörfinni fullnægt við lágmarks áhættu, og aka svo á SAMA hraða örlítið framar. Þetta er það sem ég sé dag eftir dag.
Mesta hættan skapast við þrengingar niður í einfaldar akreinar, sem eru einmitt einkenni 2+1 vega.
Sem innlegg í þessa umræðu langar mig að nefna lífsreynslu sem ég varð fyrir nýlega. Ég þurfti að komast frá Washington til Baltimore daginn fyrir "thanksgiving" í USA, akandi. Það var búið að vara mig við umferðarteppu af versta tagi, svo að ég fór í fyrra fallinu. Þetta var EKKERT mál. Vegirnir alveg fullir, hraðinn 110-120 og fílingurinn ekki ósvipaður Ártúnsbrekkunni. Ég tel að ástæðan fyrir því að þetta gekk svona smurt, sé einfaldlega sú að það eru ekki óþarfa þrengingar á þessari leið. Kerfið er hreinlega HANNAÐ, ekki uppsoðningur úr einhverjum sem varla fer út á veg, nokkurntímann.kv
Grímur
17.12.2007 at 01:50 #605954…hvað þessi þráður fór alveg inn að máli málanna
Ég hjó eftir þessu með upphengju í Pajero, ég er með Galloper á 35" þar sem ég er ekki alveg sáttur við stýrið í. Kíki á þessa (fjárans aumu) upphengju við tækifæri, hún gæti alveg verið að gera einhvern óskunda þó svo að bíllin sé alls ekki alslæmur á vegi og skjálftalaus (ennþá).
kv
Grímur
17.12.2007 at 01:30 #607038Þetta er meginreglan. Svo eru stundum gerðar einhverjar málamiðlanir um fáar gráður, en kostar stundum víbring.
Athygliverð pæling, sem ég áttaði mig ekki á fyrr en Freysi benti mér á það fyrir um ári síðan, að það kemur eins út að hafa frávik frá miðlínu skafts í 0° og 180°. Semsagt, maður er vanur að sá fyrir sér að pinjón og millikassaöxull séu samsíða, og þá er allt í fína. OK. Það er það sem ég myndi kalla 180° horn milli frávika.
Svo er hægt að fá sama út með 0°. Merkilegt nokk. Semsagt tvö jafnstór brot í SÖMU áttina.
Þegar ég hugsa til baka grunar mig að Range Rover hafi verið með framskaftið uppsett á þennan hátt. Það var ekki tvöfaldur hjöruliður upp við millikassa, en samt er eins og mig minni að það hafi verið svolítið brot á skaftinu, og svo undarlegt brot niðri við hásingu, samt víbraði ekki vitund.
Þessi uppsetning er meira að segja nokkuð rökrétt fyrir Range Rover-stíls framstífur, sérstaklega ef skaftið fær að vera aðeins lengra en stífurnar.Það væri alveg ágætt ef einhver nennti að skríða undir Range Roverinn sinn og leiðrétta mig ef ég er að fara með einhverja vitleysu
kv
Grímur
12.12.2007 at 20:38 #603368Miðað við hversu Toyota menn hafa verið duglegir undanfarið við að innkalla galla (sem við Íslendingar erum jafnan fyrstir til að greina og tilkynna) þykir mér sérkennilegt að þeir hafa ekki brugðist við þessu.
Kannski er einhver pólitík bak við það, t.d. gæti hugsast að stór hluti hrútshornanna sé í umferð í heimsálfum þar sem erfitt er að standa að innköllunum af þessu tagi, t.d Austurlönd nær og Afríka. Þá gæti einmitt verið að það reyndist ,,pólitískt rangt" að innkalla EKKI á akkúrat þeim svæðum, á meðan það er tiltölulega minna mál og ódýrara að innkalla á vesturlöndum.
Það er ekki eins og ég hafi neitt fyrir mér í þessu, en þetta er það eina sem mér dettur í hug varðandi málefnið….kv
Grímur
05.12.2007 at 22:11 #605462Það væri allavega ekki vel grundað hjá N1 að fara í fýlu og klippa á alla afslætti akkúrat núna. Frekar tækifæri til að reyna að halda í horfinu.
Við skulum vona það besta og búast við því versta
Mér líður samt hálf kjánalega með að framvísa klúbbskírteini merktu Shell í bak og fyrir þegar ég versla í Bílanaust (N1).
Hefur eitthvað heyrst frá þeim?
-
AuthorReplies