Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.05.2008 at 04:40 #623026
Ástæðan fyrir því að ,,einfaldir trailing arm" eru alls ekki sniðugir að aftan með stærri dekkjum, er ákveðið hlutfalladæmi. Þeir geta í sjálfu sér alveg virkað, prinsipplega séð, en það þarf þá að lengja þá í sama hlutfalli og dekkjaþvermál. Það er bara ekki almennt gert. Líta má á afturhásingu (með þessu setup-i) sem þríhyrning, sem hefur eitt hornið í snertipunkti við jörðu, annað í snúningsmiðju hjóls, og svo í (stífu)festingu við grind. Ef það er svipað langt frá jörðu upp í snúningsmiðju annars vegar, og frá snúningsmiðju í grindarfestingu hins vegar, þá fer snúningsvægi hásingar jafnt í að lyfta bílnum upp og að drífa hann áfram. Þetta veldur ákaflega leiðinlegu ójafnvægi í ófærum, endar oftast með hoppi og látum.
Það sem stundum er kallað 5-link er í raun 4-link með venjulegri hliðarstífu. 4-link er almennara nafn yfir sama fyrirkomulagið.
Stundum er talað um 3-link, það er fyrirbæri sem ég man ekki eftir að hafa séð ,,original" unir neinum bíl, en er jafnframt að mörgu leyti það allra sniðugasta af þessu öllu. Þá eru tvær stífur að neðan, frá hasingu í grind, en bara ein að ofan, í miðju eða eins nálægt því og hægt er. Hliðarfærslan er vanalega tekin upp með einfaldri þverstífu, en væri vel hægt að útfæra eins og í Discovery(Watts link). Þessi útfærsla sameinar þá kosti að hafa tankapláss og óhefta færslu hvernig sem hásingin ,,teygist". Kannski er ,,Watts link" og ,,3-link" alveg frábær samsetning, ég hef samt ekki séð það undir neinum jeppa enn. Væri gaman að sjá það….að þessu sögðu býst ég ekki við að verða fyrstur tilÞetta er kannski komið ansi vel út fyrir efni þráðarins, en burtséð frá því, þá tel ég persónulega að einna sterkustu innleggin í umræðu af þessu tagi sé að finna hjá Guðmundi Jónssyni(gummij). Hann hefur lag á að koma torskildu efni fram á tiltölulega einfaldan hátt, jafnframt hef ég ekki orðið var við annað en fræðilegt og rökstutt álit úr þeirri átt, í bland við reynslu. Þegar þessir þættir fara saman er gjarna hægt að taka mark á niðurstöðunum.
kv
Grímsi
03.05.2008 at 01:12 #622022Það var bara átt við að það væri guðlast að setja LandCruiser mótor í Datsun. Þó svo að Datsuninn myndi skána eitthvað við aðgerðina væri þetta að sjálfsögðu algerlega óviðeigandi…..
03.05.2008 at 01:05 #621980Þarna er ég sammála Þorkeli. Beadlock eða kantlás. Kantlás er reyndar firna góð þýðing.
Það er nú ekki oft sem hann Þorkell vinur okkar í Skagafirðinum lætur í sér heyra, en þá sjaldan það gerist er það ekki að ófyrirsynjankv
Grímur (Tungnamaður)
03.05.2008 at 00:52 #621998Ég er enginn sérstakur Jeep aðdáandi, þó svo að ég geti alveg hugsað mér að eiga einn.
Bara flott síða!!!
Persónulega hef ég alveg felega gaman að þessum gömlu basl-myndum. Ákveðin nostalgía…
23.04.2008 at 21:12 #621032ætli það kosti minna en 2000 kall að yfirfara slökkvitæki? Spurning um að kaupa bara nýtt og dreifa hinum um skúrinn til öryggis…
Það er góð regla að hvolfa tækinu af og til og hlusta eftir því hvort duftið er ,,laust" inni í tækinu. Sérstaklega í bíl, þá á duftið það til að hristast saman í köggul sem svo vill ekki út úr tækinu þegar til á að taka.
Yfirfarið eða ekki, þá þarf þetta að virka!
20.04.2008 at 00:05 #620920Mig minnir að ég hafi einhvern tímann heyrt að klafarnir hafi upphaflega verið settir til að koma V6 vélinni fyrir í X-Cab og Runner. Óhjákvæmilega breikkaði bíllinn við þetta, og sennilega ekki nóg einu sinni.
Svo hefur bara verið hagkvæmast að fara alfarið yfir í klafadótið…..
12.04.2008 at 21:22 #620362er stórmunur á þessum bílum, en 54" er 54", og í þessum tilfellum virðast Unimogrör vera hluti lausnarinnar, sem aftur færir breytingarnar nær hver annarri. Sennilega felst mesti munurinn raunverulega í frágangi á köntum og þessháttar, ljós og sílsar eiga það til að vera full fyrirferðarmikil eins og fyrri daginn….svolítið mismunandi mikil vandamál eftir boddíum. Ég geri ráð fyrir að kaninn hafi nú ekki haft hugmyndaflug í að gera undirvagninn í þessum tveimur svo ólíka frekar en fyrri daginn
Í breytingum af þessu tagi verður stýrisgangurinn vanalega helsti höfuðverkurinn. Þar er margt að athuga, margar leiðir færar, gríðarlega mikið álag og hætta á jeppaveiki oftast í réttu hlutfalli við dekkjastærð. Jafnvel reyndustu breytarar geta lent í brasi með þetta. Mögulegar lausnir hanga dálítið á bílgerð hvað fyrirkomulag stýrismaskínu, styrk og stífni grindar ofl. varðar í þessu tilliti.Andskoti eru Unimog hásingarnar vígalegar.
12.04.2008 at 01:51 #619742Throttle Position eensor getur að líkindum bilað á ansi mismunandi vegu, þar af leiðandi geta einkennin lýst sér á mismunandi hátt.
Ég hef því miður ekki nema 3VZE vél til að spila úr, en ég er til í að lána hvað sem að gagni kann að verða úr þeirri vél….kv
Grímur
12.04.2008 at 01:41 #620358Ég er viss um að það er ekkert mál að fá að skoða hjá Fúlagenginu.(Já, ekki FORD, en dekkin samt) Andstætt við nafngiftina, þá eru þetta sérlega örlátir einstaklingar á upplýsingar og annað sem við kemur jeppamennsku. Ég var einu sinni svo heppinn að deila aðstöðu með þessum naungum og það var mjög ánægjulegt frá mínum sjónarhóli séð, þrátt fyrir að minn reynslupakki eða efnahagur á þeim tíma væri í hróplegu ósamræmi við hópinn í heild á þeim tíma. Sannur 4×4 andi þar á ferð. Sláðu bara á þráðinn Frændi til að heilsa upp á Fúlagengið
11.04.2008 at 23:20 #620088Kalla
Ég á allavega góðar minningar úr Scout…ekki að það sé besti jeppi allra tíma, en hann hefur mikið sögulegt gildi. Blazer auðvitað líka….
11.04.2008 at 19:26 #620084[img:1y65fjgn]http://skagafjordur.net/4×4/myndir/flk26/854.jpg[/img:1y65fjgn]Þessi X-cab er með LT1, D44 framan, 12bolta GM aftan, Toyota millikassa og GM sjálfskiptingu, smíðaður veturinn 1997-98 að mestu. Hann var raunar afrit af öðrum X-cab, sem þá var hvítur, en er nú einnig orðinn blár. Sá bíll er á skurðarborðinu fyrir Pontiac 455 og D60 hásingar.
Þriðji blái Toyota fisksalabíllinn sem mér dettur í hug er með ,,gamla" boddyinu (fyrir 1989), og einhverja 8cyl sleggju, Buick minnir mig endilega. Sá bíll er með ansi mergjaða fjöðrun og örugglega ekki mikið þyngri en Yaris fullur af túristum….
11.04.2008 at 19:13 #619056Það væri nú ekki amalegt að þeysa um á 350 kg fjórhjóli á 38" með svona ca 120 hestöfl til skiptanna.
Mann dauðlangar bara til að tína saman Súkkuhásingar, GTi mótor og slatta af háþrýstiglussarörum og byrja að henda þessu saman. Verst að maður hefur engan tíma í svona ævintýri….en það má alveg leyfa sér að pæla aðeins í því.
11.04.2008 at 18:59 #620310Þú ert væntanlega að tala um hleðslustýringuna sem er uppi á bretti, er það ekki?
Ef ekki, þá gæti hún verið sökudólgurinn, lenti einu sinni í því.
09.04.2008 at 22:55 #620018Ef hægt væri að koma því við, þá væri alger snilld að hafa bíl með uppstilltum rörum, hálfsamsoðnum stífuturnum o.s.frv. á sýningunni. Bara svona til að sýna hinum almenna borgara hversu mikil fagmennska tíðkast í bílskúrum um allt land í þessum geira.
…
Grímsi
04.04.2008 at 23:21 #619256Þetta á náttúrulega ekkert skylt við 4-link, nema kannski fjölda fóðringa. Óttalegt skítamix þannig séð, hannað til þess að hægt sé að bolta breytinguna undir. Ég er persónulega ekkert sérlega hrifinn af kengbognum stífum sem liggja einhvern veginn skakkar.
Stillanlegir rótendar og þessháttar er líka eitthvað sem bara býður upp á hávaða og brot í versta falli. Fátt er eins gjarnt á að brotna undan þreytuálagi og snittaðir hlutir, því tel ég að meðal bílskúrsmixari hérna á klakanum sé að gera fullt eins góða hluti og þessi aftermarket-framleiðandi í USA.
Ég vil taka fram að ég hef gaman að þessum innleggjumkv
Grímur
29.03.2008 at 16:41 #617596Bara hin allra snyrtilegasta smíði, verð ég að segja. Af myndunum að dæma er þessi smíði bara alveg til fyrirmyndar.
Alltaf gaman að fá svona myndasyrpu í safnið, sérstaklega þegar myndirnar eru þokkalega góðar eins og tilfellið er með þessa.
28.03.2008 at 20:56 #617592Það hefur mjög mikla kosti, burðarþolslega séð, að setja upp þríhyrningsramma eins og í Unimog. Sérstaklega fyrir þungar kerrur. Þá er upplagt að láta rammann ná fram á beisli og festast þar í lið (gúmmí / Spindilkúla). Þar með þaf ekki að byggja inn í grindina styrkleika sem gerir ráð fyrir höggum og djöfulgangi sem annars þarf að færa niður í stífuturna.
Togstangirnar í þríhyrningi sem þessum taka þessa krafta með lágmarks efnismagni og kerran ,,flýtur" nokkurn veginn ofan á.
Guðni Ingimarsson hannaði svona fjöðrun og smíðaði undir tjaldvagn, meðal annars vegna þess hversu undirvagninn var ,,mikið drasl". Ég veit ekki annað en sá tjaldvagn hafi verið dreginn þangað sem þurft hefur að fara….
Allavega, ég er algerlega ósammála því að 4-link sé eitthvað sterkara, betra eða hentugra undir þungan olíukálf heldur en útfærsla sem er með 30% af þeim liðamótum sem 4-link hefur.kv
Grimur
27.03.2008 at 23:47 #617574Núna verð ég að vera alveg fyllilega sammála Einari.
Útfærsla sem er í meginatriðum eins og í Unimog hefur mjög marga kosti umfram 4-link á öxli sem er ekki einusinni með drifi.
Kostir 4-link eru einkum þeir að hægt er að stýra því hvað verður um andvægiskrafta á drifnum öxli, jafnvel búa til sýndarlið inni í miðjum bíl. Þessir fídusar hafa enga þýðingu undir kerru sem er dregin.Það sorglega er að ég hef séð svona fyrirbæri eftir menn sem ég hélt að vissu betur. Kannski hefur þetta verið hugsunarleysi og vani….það vona ég allavega.
kv
Grímur
04.03.2008 at 21:35 #616044Þetta er að sjálfsögðu alveg hægt. Bara spurning hvort þetta fer ekki að bitna á aksturseiginleikum. Hækkun af þessu tagi er vanalega hægt að gera að vissu marki, áður en allt fer til fjandans varðandi fjöðrunina og stýrisgang.
Mér þykir líklegt að það sé búið að lyfta þessum bíl upp undir þolmörk hvað þetta varðar, og borgi sig ekki að ganga lengra með uppskrúfun.
Næsta skref væri miklu frekar að skrapa saman fyrir 38", köntum, slípirokk, tektíl og blikklippumkv
Grímsi gírlausi
12.02.2008 at 23:30 #613944Þetta er nú bara með því betra sem ég hef séð lengi….spurning um að snara Hávamálum í heild sinni yfir á Jeppamál….?
-
AuthorReplies