FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Grimur Jónsson

Grimur Jónsson

Profile picture of Grimur Jónsson
Virkur síðast fyrir 8 years síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 357 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 09.10.2008 at 21:19 #630798
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það er líka þanniglagað lítið mál að setja 12bolta chevy miðju í Hilux hásingu. Suðuvinna og nákvæm uppstilling, en öxlarnir passa í keisinguna óbreyttir. Þá er komið drif sem hrekkur ekki eins auðveldlega og 8".
    Eina atriðið sem stendur þá útaf er að það fást sennilega ekki lægri hlutföll en 4.88 í japanskt/amerískt bland. Gæti hafa breyst á síðustu árum samt. Þá er líka alveg hægt að fara í Ameríska miðju að framan líka….t.d. 12 bolta líka….





    19.09.2008 at 20:34 #629642
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    100.000 plús !!!

    Hefur sennilega ekkert að gera með það að sömu fyrirtæki eru að negla dekk….





    19.09.2008 at 20:10 #628222
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Fróður SmallBlock maður sagði mér að 305 (litli bróðir 350) væri heppilegasta útfærslan fyrir túrbínur. Túrbínur hafa þann kost að vél getur haft mjög breitt vinnslusvið hvað afl varðar, og hagkvæmni jafnframt.
    Ekki það að ég hafi reynslu af þessu kombói enn, en ég á reyndar 305 TPI sem gæti alveg átt von á turbo æfingum eitthvert árið….





    19.09.2008 at 20:04 #629588
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er smeykur um að þetta auki aðallega álag á alternatorinn…og lítið meira.

    Ansi sniðug vatnsinnspýting sem ég las um fyrir nokkru byggist á því að nota þrýsting frá túrbínu(vélarmegin við bínuna, á soggrein) til að úða inná soggrein fyrir framan túrbínuna, semsagt, þéttur þrýstikútur notaður sem forðabúr. Ferlega einfalt…þegar vélin puðar er vatni bætt inn til að minnka varmatöp.
    Ég á örugglega eftir að prófa þetta á Galhopparanum :-) ekki miklu að tapa….





    14.09.2008 at 21:10 #629242
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Vélartölvan í þessum bíl stillir sig sjálf að töluverðu leyti, þó er ekki svo að vandamálið sé algerlega úr sögunni, síður en svo.
    Ég ók svona bíl nokkra tugi þúsunda km. fyrir 2-3 árum. Þegar ég keypti hann fór eyðslan upp í 35L/100km í miku frosti, innanbæjar, á 30". Það tók mig töluverðan tíma að finna helstu trixin, en þau voru í mínu tilfelli þessi:

    1: Opna púst. Ég komst ekki svo langt að laga ,,crossover" hönnunargallann, en setti sverara nokkurn veginn frá grein og afturúr. Minnkaði eyðslu um ca 1 ltr/100km.

    2: Reif alla spíssa úr milliheddinu, hreinsaði skít og drullu með þéttingunum, setti saman með smá koppafeiti. (Þetta hafði ALLRA mest að segja, fór niður um 3-4 lítra pr. 100km) Það er ógerningur fyrir innspýtingarvél með ,,closed loop" stýringu að halda vitrænum stillingum ef falskt loft lekur inná einn eða fleiri cylindra.

    3: Nýr sensor í pústið.

    4: Reif lokið ofan af MAF-sensornum (Lofthreinsaraboxið, plastlok á álhúsi) og spennti um 2-3 tennur upp á fjöðrinni fyrir trekkspjaldið.

    4: Reif EGR ventilinn úr og boraði hann út þar sem hann er þrengstur ásamt því að bæta götum í rörið sem gengur inní milliheddið.(EGR dæmið er alger snilld, gerir kleift að ,,crúsa" á fremur daufri blöndu án þess að fá neistabank.) Annars er ég almennt andvígur vafasömum ,,mengunarvarnarbúnaði".

    5: Ný kerti, man ekki akkúrat hvernig, en mig minnir að ég hafi fengið 2ja neista kerti í hann….svona klofin einhvern veginn.

    Svo er gott að hafa í huga að það er ekkert að marka gang/eyðslu/afl fyrr en eftir ca 2ja daga notkun (100-150 km), þar sem það tekur tölvuna svolítinn tíma að aðlaga helstu breytur eftir breytingar. Þó má ganga út frá því að ef bíllinn er ókeyrandi, þá skáni hann ekki þannig að nothæfur sé á aðlögun tölvunnar einni saman. Ef mikið er fiktað borgar sig að taka geymasamband af í 5-10 mínútur til að núlla tölvuna á verksmiðjustillingar, þannig finnur hún frekar gott ,,map" heldur en ef upphafsgildin eru einhvers staðar úti í jaðri eftir áralangt ,,ástand".

    Þess má geta að ég náði eyðslunni niður í 12L/100 minnst, en var jafnan í ca 13,5 lítrum í blönduðum akstri á 30" (alls enginn sparakstur þannig séð, enda bíllinn léttur á sér og skemmtilegur)

    kv
    Grímur





    14.09.2008 at 02:46 #629324
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Svona gróflega, þá má gera rá fyrir að skoðun fáist ef reglugerð um gerð og búnað ökutækja er uppfyllt. Hún hefur reyndar blásið töluvert út undanfarin 10 ár, en í meginatriðum er reglan sú að grind(burðarvirki) skal vera a.m.k. í sömu eða minni lengd en upphaflega, með skráningarnúmeri á upphaflegum stað, og þá er hægt að gera allt sem manni dettur í hug innan marka reglugerðarinnar.
    Jammogjá.





    02.09.2008 at 01:43 #628578
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Mig minnir að það sé ca 30% niðurgírun í Rocky kassanum. Háa drifið meðtalið.
    Hitt er ég ekki svo viss um, að hann passi beinlínis við eitthvað úr toyota, þó að margt sé skylt með Hiluxum og Rocky þannig séð. Kannski rillustykki, alls ekki ólíklegt, en flangsa þarf mjög sennilega að mixa. Svo minnir mig jafnframt að afturskaftið komi ekki aftur úr miðjum Rocky millikassanum, því þarf að færa það til hliðar og mjög sennilega breyta eldsneytistank við svona aðgerð.
    Þetta er aftur á móti snilldar búnaður, sérstaklega ef fremri hluti Hilux-millikassans er skilinn eftir sem aukamillikassi….





    18.08.2008 at 01:32 #627446
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þarna hitti Freysi alveg í mark !!!

    Bændur í Skaftafelssýslu, minnir mig, bjóða nú þegar upp á þá þjónustu að halda fé fyrir fólk. Maður semsagt á rolluna, bóndinn sér um að fóðra hana og vesenast.

    Brilljant !

    Kaupum rollur og fáum utanvegapassann með!!!

    Kannski verða þau með bás á sýningunni til að kynna þetta dæmi….





    18.08.2008 at 01:25 #627314
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég hélt að spil væru til að spila Ólsenólsen þegar maður er að bíða eftir Patrólunum…..hihihi





    16.08.2008 at 00:41 #627500
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég hef nú alltaf náð hægjum á þetta helvíti fyrir rest, en það kostar MIKLA þolinmæði, og nokkrar umferðir af bremsuvökva.
    Mín aðferð er eftirfarandi:
    Sílikonslanga (mjúk og þægileg, þéttir vel við aftöppunarstúta, fæs líklega í Landvélum), sett á stút og ofaní brúsa með vökva. Slakað rétt nógu mikið á aftöppunarstútnum til að hann blæði. Alls ekki losa of mikið, þá dregur hann loft til baka þegar slakað er á pedalanum. (Ath. ég er alltaf að vesenast í þessu einn, enda ekki ráðlegt að umgangast mig þegar bremsuviðgerðir eru annars vegar….)
    Pumpað slatta, a.m.k. 10 slög á hverju horni bíls.
    Losað rétt svo nóg uppá nipplum við höfuðdælu til að það blæði við pumpun, aftan og framan.
    Endurtekið.
    Svona hefur þetta nú tekist fyrir rest, en er allt annað en skemmtilegt.

    kv
    Grímur





    01.08.2008 at 02:42 #626538
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Er nokkuð átt við Jón frá Laug við Geysi í Biskupstungum?





    28.06.2008 at 13:59 #625100
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …og ekkert vottorð þá?
    athuga þeir kannski hjólastillinguna í leiðinni?
    Kannski bara afturhásinguna…svona bara fyrir Umferðarstofu :-)





    25.06.2008 at 23:13 #613794
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er oft búinn að velta því fyrir mér að smíða nettar diskabremsur aftan á Hilux millikassann. Æti ekki að vera neitt voða flókið, og skárra í viðhaldi heldur en þetta víradrasl sem er alltaf fyrir og aldrei til friðs. Hef bara ekki rekist á hentuga íhluti enn sem komið er, enda svosem ekki þaulleitað að þeim. Subaru bremsudæla er reyndar ansi sterkur kandidat, en þá vantar líka disk sem ekki þarf að smíða of mikið í kringum, er passlega djúpur og þykkur…
    …en þetta finnst sjálfsagt um leið og maður drífur í þessu.





    21.06.2008 at 18:08 #624636
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …það fór eitthvað alveg hrikalega úrskeiðis þegar útlitið var hannað á þennan nýja l200. Sá gamli er alls ekki svo slæmur, bara svona ,,ekkert" bíll, líkt og flestir pikkuppar. En þessi skelfing er alveg hreinlega út í hött. LADA Sport er bara glæsibifreið í samanburði !





    20.06.2008 at 23:18 #624710
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það er alls ekki fráleitt. Þá verður mjög dauf blanda á 1-2 cylindrum, sem getur valdið banki og þar af leiðandi bætir innspýtingin óhóflega í bensínmagnið.

    Félagi minn lenti í svipuðu með 350 TPI V8 (Chevy), þar sem það lak loft inná grein með spíssaþéttingu, auðvitað gerðist þetta þeim megin sem oxygen sensorinn er, þannig að allt fór í vitleysu; fáránlega mikil eyðsla og lítið afl.

    Ég fann jafnframt mikinn mun á 3VZ-E eftir að ég tók þessar þéttingar og þreif þær, setti smá feiti með og skellti öllu saman aftur, mikið jafnari gangur og eyðslan datt niður um nokkra lítra per 100 km……

    WD40 testið er alveg ágætt fyrir meiriháttar leka af þessu tagi, en ekki alveg víst að minniháttar smit finnist þannig.





    20.06.2008 at 22:59 #624706
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Throttle Position Sensor (skynjari sem sér um að lesa af stöðuna á inngjöfinni).

    Fyrst það kemur svartur reykur hef ég ekki beinlínis trú á að bensíndæla eða sía séu með leiðindi.

    Varla loftflæðiskynjarinn heldur, en það gæti samt hugsast.

    Ég myndi reyna að nálgast svona skynjara til að prófa að víxla, er ekki viss hvort skynjarinn af 3VZ-E (V6 vélinni) passar, en ég er með einn slíkan inni í skúr og gæti lánað skynjarann til að prófa ef vill.

    kv
    Grímur





    20.06.2008 at 22:53 #624052
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Alltaf áhugavert að finna út úr svona draugagangi.
    Ef keðjan er úr kassanum sem lenti í tjóni, þá er kannski pínulítill möguleiki að einn hlekkur hafi tognað örlítið, og smelli þar af leiðandi í öllu þegar hann sest….fjarstæðukennt samt.





    18.05.2008 at 13:07 #623030
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …er þetta miklu lengur til friðs, einfaldlega vegna þess að þegar maður bremsar færist stór hluti þyngdarinnar þannig lagað á framhásinguna og vinnur á móti þessum sundursláttar-áhrifum. Hins vegar er ég viss um að þeir sem hafa þurft að bremsa snöggt á 44" Patrol með jafnvel hallandi framstífur geta vitnað um að hegðunin er ekki alveg eins og best verður á kosið….





    18.05.2008 at 05:15 #623056
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þetta er engin Toyota. Það er alveg klárt. Einhvern veginn lenti svona bíll samt í minni eigu. Hann var dekkjalaus þannig að ekki ræddi um annað en að setja 35" undir. Mesta furða hvað þetta kemst….3pund…alveg merkilegt. Kannski ekki áreiðanlegasta apparat sem maður kemst yfir, en alveg í samræmi við það sem maður borgar.
    Fyrir ,,serious" breytingar væri þetta kannski ekki vitlausasta boddy+grind kombóið. Gott úrklippipláss, sérstaklega að framan, einföld grind og ágætt pláss inni í bílnum. Allt kram þyrfti sennilega að víkja, nema kannski afturhásingin….





    18.05.2008 at 05:05 #622636
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …er bara farin að hljóma vel :-)

    Ég náði henni úr 35 lítrum á hundraðið eins og hún var þegar ég keypti 4runnerinn, niður í 13 að meðallagi, bara með því að koma öllu í lag. 2.5l turbo intercooler Galloperinn minn eyðir meira. Munurinn er sá að Galloperinn er algerlega kraftlaus.
    Ég er algerlega að missa díseltrúna.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 357 total)
← 1 … 6 7 8 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.