FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Grimur Jónsson

Grimur Jónsson

Profile picture of Grimur Jónsson
Virkur síðast fyrir 8 years síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 357 total)
← 1 … 5 6 7 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 03.01.2009 at 02:46 #636018
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það ætti að vera tiltölulega hentugt að koma tjakknum fyrir bílstjóramegin að framan. Bara finna gamalt "hrútshorn", má sennilega vera brotið, og skella því ofaná liðhúsið. Þá er kominn armur, sem laganna armur hefur ekkert með að setja útá.
    Eina sem þarf að athuga er hvort þetta rekst í þverstífu eða togstöng í samslagi….gæti náttúrulega eyðilagt þennan möguleika, hef ekki grandskoðað undir þennan bíl.

    Ég man heldur ekki hvernig þetta er á akkúrat þessum bíl, hvort það er laust pláss fyrir svona arm hægramegin, það er auðvitað smá smuga og vel athugandi í plássvandræðum.

    Annars er oftast hægt að koma tjakk inná millibilsstöng án teljandi vandræða ef hann er vel samsíða henni, liðurinn sem næst stönginni, og sem næst enda. Það fást t.d. stýrisendar með gati (original í Hilux minnir mig) sem henta þokkalega til að setja tjakk inná millibilsstöng.

    Varðandi millibilsstöng aftan/framan við hásingu…þá er mín skoðun sú að hún sé heldur betur staðsett fyrir framan ef kostur er. Millibilsstangir aftan við hásingu hafa leiðinda tilhneigingu til að kikna (Land Rover Syndrome). Hitt er annað mál að ef verið er að slást við að koma felgum innarlega og/eða finna pláss fyrir togstöng og þverstífu framanvið, þá getur verið hentugt að vera laus við hana.
    Það er nebbbbla oft ansi mikið kraðak framan við rörið þegar allt er komið á sinn stað og þarf að sleppa nokkurn veginn nuddlaust hvert við annað í öllum mögulegum stöðum…
    Niðurstaðan er sú að ef millibilsstöngin er aftan við, þá borgar sig a.m.k. að velja hraustlegt efni í hana. Að framan er þetta ekki eins krítískt.

    Ég vona að eitthvað af þessu þvaðri mínu sé skiljanlegt. Ef ekki, þá verður bara að hafa það :-)

    kv
    Grímur





    06.12.2008 at 15:56 #634290
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það eru flestir, ef ekki allir heddboltar "teygjuboltar", þannig séð. Þessar serimóníur eru alls ekkert svo flókin vísindi.

    Málið er að það er oft hert í t.d. 30Nm til að byrja með, til að "núllstilla" boltana. Það þýðir að þeir eru allir rétt að byrja að taka upp spennu, en ekkert farnir að gera að viti.

    Síðan er haldið áfram að bæta við eftir gráðum, í þrepum til að vinda ekki til allt draslið. Hugmyndin með því að nota gráður er sú að mynda jafna spennu yfir allt heddið, sem fæst með því að strekkja boltana alla um jafn marga millimetra.

    Með því að nota gráður en ekki Nm þarf ekki að taka tillit til viðnáms í gengjum sem getur breyst mikið eftir því hvernig hefur heppnast að skera gengjuna, óhreinindum og smurefni.

    Vel getur verið að í einhverjum tilfellum séu mis margar gráður í herslu eftir boltalengd (það væri allavega rökrétt), en ég hef svosem ekki rekist á það sjálfur. Svo gæti líka verið að viljandi sé mynduð meiri spenna með styttri boltum í sömu gráðu.

    kv
    Grímur





    03.12.2008 at 23:03 #634064
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Skipta bara um hásingar, það er minnsta málið.
    Þetta eru ferlega skemmtilegir bílar að innan, nóg afl o.s.frv. Algerlega ástæðulaust að láta eitthvert hásingavesen vefjas fyrir sér.





    03.12.2008 at 23:00 #634176
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég held að ég viti hvað er að.
    Frændi vor lenti í svipuðu með Suburbaninn sinn, þar var skynjari í blokkinni (eða milliheddi), sem ákvað að vélin væri orðin heit þegar webasto var búin að ylja henni. Hins vegar vantar dálítið uppá það í raun, og vélin gekk illa eða jafnvel alls ekki köld.
    Lausnin í því tilfelli var að taka skynjarann úr vatnsganginum og koma honum fyrir einhvers staðar ofaná milliheddinu, þannig hitnar hann þegar vélin er raunverulega komin í gang og orðin heit.

    kv
    Grímsi





    30.11.2008 at 14:12 #633766
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Alveg ferlega svipað concept og stjáni meik var með… [url=http://www.youtube.com/watch?v=YYPpHbUwrN0&feature=related:2czs5mjl]hér[/url:2czs5mjl] Þetta eru annars algerir snillingar….mætti kannski kynna þá fyrir nothæfum dekkjum og lægri loftþrýstingi…..





    28.11.2008 at 00:11 #633258
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Erfiðustu bilanirnar eru sennilega þegar skynjarar "skekkjast", þ.e. skila vitlausum mælingum í stað þess að hætta að virka.





    27.11.2008 at 01:16 #633254
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Láttu vita hvað var að :-)





    27.11.2008 at 01:03 #633636
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það var nú akkúrat þetta sem ég var að tala um…..vil samt ekki drulla yfir félaga okkar hér á f4x4. Ég vil virða málfrelsi okkar félaga nú sem hingað til, en jafnframt reyna að beina umræðum á málefnalegt svið.

    Góðar stundir

    Grímsi





    27.11.2008 at 00:57 #633374
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Viltu gjöra svo vel að miðla af þekkingu þinni á skipulagðari hátt!
    Burtséð hvort ég er sammála niðurstöðunni, eða röksemdum á bak við hana, þá kalla ég eftir skipulegri framsetningu.

    Takk.

    Grímsi





    27.11.2008 at 00:50 #633552
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Verð að viðurkenna að þessar myndir vekja upp ansi gráan anda…..





    27.11.2008 at 00:43 #633632
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Eins og mér finnst gaman að spurningakeppni eins og þessari, þá finnst mér að hún mætti vera betur skilgreind….mhn!…..ekki hætta þessu, mér finnst þetta lífga verulega upp á spjallið, en gerðu okkur greiða með því að pússa spurningarnar aðeins betur :-)

    kv
    Grímsi





    19.11.2008 at 01:08 #623400
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Mikið er ég smeykur um að heimasíðan sé það flottasta sem kemur frá þessu fyrirtæki.
    Það er vissulega hægt að fá ágætis hluti gerða í Kína, en að heill bíll sé eitthvað sem við höfum áhuga á….tjah….ég ætla ekki að vera sá fyrsti.

    Við skulum bara orða það þannig að ég á kóreskan bíl sem vissulega kemst víða, en ég á líka Toyotur.
    Það munar.





    19.11.2008 at 00:53 #632976
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Sérstaklega 8" í 4cyl köggli. 8" köggull úr 6cyl eða Turbo er mun efnismeiri og sterkari, sem þýðir að drifið heldur frekar undir álagi.
    Hins vegar er 44" ansi mikil drifæta og 8" algerlega í lægri mörkunum, sértaklega ef lógír og/eða vél sem getur eitthvað er annars vegar.
    Svo er hitt, sem flestir vita reyndar orðið, að það þarf að tilkeyra hlutföll….





    26.10.2008 at 00:20 #631486
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þetta með jeppaveiki í Hilux sem lagast með stýrisdempara getur alveg haft eitthvað með svignun grindar að gera. Hún er ekkert svo burðug þar sem maskínan boltast á, og reyndar ekki verra að styrkja grindina yfir í hina hliðina ef það er pláss. Ég sauð saman 50mm rör (2 beygjur, ca 30°) til að stífa grindina á móts við maskínuna. Held að það hafi haft mjög jákvæð áhrif hvað jeppaveiki varðar. Fékk samt einusinni jeppaflensu útaf skakkri felgu, en það er ekkert óeðlilegt.





    26.10.2008 at 00:14 #631484
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Jájá, þetta er alveg kristaltært.
    Flott að hafa svona "process" fyrir þessa aðgerð, maður hefur gert þetta dálítið eftir tilfinningu, sem getur verið varasamt.





    25.10.2008 at 00:19 #631270
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er búinn að prófa sumt af þessu, annað ekki. Skemmtilegasta fjöðrun sem ég hef náð að aftan undir Hilux var með 4-link, samsíða stífur í kjörstöðu, og efri stífuna töluvert styttri. Þannig fást ansi sérstakir eiginleikar sem felast í því að hásingin leitast við að spenna sig í meiri misfjöðrun ef bakkað er í misfjöðrun. Það hentar ansi vel ef maður þarf að bakka útúr festu….reyndist mér allaveg vel þar sem ég var ekki einusinni með læsingu (bara LSD sem er ekki læsing).

    Bara 2 cent…





    24.10.2008 at 23:58 #630542
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég reif þetta hjá mér fyrir ríflega ári síðan, þá voru þétingarnar svosem ekkert slæmar að sjá, en það var slatta skítur og tæring með þeim. Þreif upp og setti feiti með við samsetningu. Eftir það gekk vélin langtum betur og varð töluvert minna frek á eldsneyti….alveg spurning um að setja þetta saman með feiti allavega til að prófa kenninguna um vakúmleka.





    24.10.2008 at 23:45 #631566
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Er sandkassaleikur í stíl PATROLMAN í uppsiglingu?

    Ég verð að segja að ég sakna hans alveg ferlega mikið :-)





    24.10.2008 at 20:06 #631478
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Feykilega góður pistill alveg hreint.

    Sérstaklega athyglivert þetta með hjólalegu-upphersluna. Ég hef gert þetta nokkurn veginn svona, reyndar ekki eftir mæli þó. En eitt fýsir mig að vita: Á að snúa nafinu eitthvað eftir að losað er uppá, eða er þetta hugsað til að slaka á preloadinu "beint" úr 57Nm herslu niður í 9Nm?

    Ég geri ráð fyrir að það eigi ekki að snúa neitt á þessum punkti, enda færi allt af stað að öllum líkindum, en mig langar að fá þetta á hreint.

    Aftur; Mjög góður pistill.

    Takk

    Grímur R-3167





    15.10.2008 at 23:39 #629600
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er reyndar alveg að kaupa þessi rök með að Brown’s gasið sé að virka sem hvati. Það getur bara alveg verið, þannig lagað, að óreiðan aukist nógu mikið við svona blöndun að nýtingin verði betri.

    Skódi sem fer úr 6 í 5 er nú bara heljarinnar framför, það verður nú að viðurkennast að Skódinn hefur nú verið talinn á mörkum hins mögulega hvað nýtingu varðar.

    Að bæta það að einhverju marki er barasta heilmikið afrek myndi ég segja.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 357 total)
← 1 … 5 6 7 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.