Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2009 at 01:30 #641208
Einhvern veginn finnst mér að það vanti búta í þessa sögu.
Ég man ekki eftir að mhn hafi sett inn komment af þessu tagi í gegn um tíðina, heldur verið frekar á léttu nótunum.
Við getum orðað það þannig að það sé kjötið á beinin….ekki beinlínis stoðgrindin í spjallinu. Eitthvað til að smjatta á.Endilega reynið að sýna umburðarlyndi kæru félagar, það er ekki allra smekkur eins.
kv
Grímur
17.02.2009 at 22:01 #641162Það eru miklu meiri helgispjöll að troða einhverri Datsun-grind undir TOYOTU!!!!
17.02.2009 at 19:57 #641014Eins og ég kann oftast vel við skrif Jóns Ofsa og er nú reyndar sammála honum í mörgu, þá þykir mér jafn óheppilegt þegar mín skrif eru slitin úr samhengi.
Mér finnst það einhvern veginn ekki passa við karakter af hans kalíber, hitt veit ég að tilgangurinn var í þessu tilfelli góður;
Ég fullyrti aldrei að þetta væri "stormur í vatnsglasi", sagðist hins vegar vona að svo væri.
Fylgdi því svo eftir með að umræðan væri af hinu góða.Hvað sem því líður….
Inntakið er það að til að fyrirbyggja þvinganir af hálfu stjórnsýslu þarf að halda uppi umræðum um málefnin, sérstaklega til að hafa almennileg rök tiltæk.kv
Grímur
17.02.2009 at 00:52 #640994Ég vona að þetta sé nú bara enn einn stormurinn í vatnsglasi.
Þessi umræða er nú samt kannski ekki svo galin útaf fyrir sig.
Ég er nefninlega mjög harður andstæðingur reglna, boða og banna sem engu ná fram nema veseni, tilkostnaði og ergelsi.
Til að eitthvað eigi virkilega að ná alvöru árangri í málum sem þessum er að mínu viti réttara að beita einhvers konar gulrótum.
Ætli væri ekki skynsamlegast að klúbburinn, eða jafnvel einhverjir aðrir aðilar sem hafa hagsmuni af þessu sporti (breytingafyrirtækin kannski), settu saman örlítinn námskeiðspakka. Þá er aldrei að vita nema það megi kría út smá afslátt hjá einu eða fleiri tryggingafélaganna…..?Regluverk frá Evrópusambandinu, námskeið samið af einhverjum legátum hjá Umferðarstofu og annað í þeim dúr er að mínu viti alger þvæla og myndi í besta falli ekki auka slysahættu.
Alger útúrdúr, en gott dæmi:
Fyrir þá sem aldir eru upp á dráttarvélum eins og ég, er hin merkasta upplifun að sjá hvernig Vinnueftirlitið (Ennþá skilst mér, já, 20 árum eftir að ég sá þetta fyrst) ráðleggur að tengja aftanívagn við dráttarvél.Þar er semsagt lagt til að vera með tengibita sem nær langleiðina afturfyrir afturhjól, og setja vagninn þar í. Hvernig þeim datt þetta í hug er mér algerlega hulin ráðgáta.
Þetta er, fyrir þá sem ekki til þekkja, alveg stórhættulegt, þar sem traktorinn lyftir framhjólum í besta falli strax, versta falli í miðri brekku á uppleið. Ef farið er fram af brekkubrún brotnar drifskaftið(ef það er til staðar) og að bakka með svona búnað er sérlega óþægilegt.
Þetta er dæmi um afleiðingarnar þegar "sérfræðingar" í málefnum sem þeir hafa hvorki reynslu né þekkingu á taka sig til við að setja saman leiðbeiningar og reglur.Góðar stundir
Grímur
11.02.2009 at 01:03 #640496Já, þetta er svona nokkurn veginn viðtekið "lingó" í bransanum.
Strangt til tekið mætti kannski telja stífurnar og miða við það, en það væri hálfgerð hártogun og þvert á málvenju, ef svo mætti kalla.Í mínum haus er þetta allavega svona:
1-link : A-grind á hásingu+þverstífa, einsog í Unimog.
2-link : 2 stífur langsum, sitthvoru megin+þverstífa, RangeRover framan.
3-link með A: 3 stífur langsum, þar af ein skorðuð líka þvert (efri stífa, ca fyrir miðju), þannig að þverstífa er óþörf.
3-link : 3 stífur langsum, oftast 2 niðri og ein fyrir miðju uppi+hliðarstífa.
4-link venjulegt: 4 stífur langsum+þverstífa.
4-link hálf-A: 4 stífur langsum, 2 efri mynda "V" séð ofanfrá/aftan þannig að þverstífa er óþörf.
Svo er til s.k. Watts Link, sem gefur nákvæmlega lóðrétta færslu, kemur í stað venjulegrar þverstífu. Finnst undir LandRover Discovery1 a.m.k.
Sennilegt er að setja megi Watts link að aftan í stað venjulegrar þverstífu í flestum tilfellum. Hins vegar er ég ekki viss um að hliðarkastið trufli menn almennt svo mikið(mér finnst það reyndar alveg ferlega pirrandi). Kosturinn við Watts Link umfram A-stífu er að pláss sitthvoru megin við drifskaft er ósnert og nýtist þar af leiðandi sem tankapláss.Einfaldasta útfærslan er sennilega Unimog-dæmið. Þar eru ekki nema 3 liðamót. Aðeins 2 tengipunktar eru á hásingu við grind…samt er hún skorðuð fyllilega nóg. Watts Link með Unimog-ramma væri sennilega það al-flottasta, 100% symmetrísk færsla og nákvæmlega engin þvingun.
Nóg röfl í bili.
kv
Grímur
05.02.2009 at 23:22 #640176Það virðist sem gagnkvæmt dómgreindarleysi hafi verið viðhaft í þessu tilfelli.
Annars vegar er, eins og Skúli bendir réttilega á, ekki viðeigandi að fjalla opinberlega á neikvæðan hátt um fyrirtæki sem maður starfar hjá.
Hins vegar er ekki skynsamlegt að segja starfsmanni umsvifalaust upp sem verður uppvís að svona löguðu, sérstaklega þar sem hann stakk á viðkvæmu máli, þ.e. hann hafði nokkuð til síns máls.
Þar að auki er einstaklingur sem bloggað hefur um viðkvæm málefni fyrirtækis ekki beinlínis líklegur til að steinhalda kjafti strax eftir uppsögn….Svo er alls ekki gott "promo" að nefna einhverja tiltekna ástæðu fyrir uppsögn þegar hún á sér stað, en tiltaka svo eitthvað allt annað skriflega þegar á hólminn er komið.
Hvers vegna var ekki hægt að segja eins og var; starfsmaðurinn var að tjá sig opinberlega um eitthvað sem eru innanhússmál í sjálfu sér, burtséð frá siðferði málsins. Dylgjur um samstarfsörðugleika eru hálf kjánalegar þegar þessi staða er komin upp.
Niðurstaða mín er sú að stjórnendur fyrirtækisins hafi leikið ansi illa af sér og í raun skaðað fyrirtækið mun meira heldur en þessi fyrrverandi starfsmaður.
Mun nær hefði verið að láta bræðina renna af sér í einn dag eða svo, kalla manninn á teppið og fara yfir stöðuna; Gera grein fyrir því hvers lags upplýsingar hann var að birta og hvers vegna hann ætti ekki að birta þær, yfirfara hvort hann vildi starfa áfram eða ekki, bjóða upp á starfslokasamning án uppsagnar gegn því að taka færsluna út o.s.frv.
Ég tek hins vegar þá afstöðu enn sem komið er að láta hina mörgu góðu starfsmenn TOYOTA, einmitt þá sem borið hafa fána fyrirtækisins hingað til með góðu viðmóti og þjónustulund, njóta þess sem þeir hafa unnið til þrátt fyrir dómgreindarleysi stjórnenda.
Ég mun því áfram eiga TOYOTUR, þó svo að ég noti einhverjar aðrar bíltegundir hvursdags til að jaskast á .KV
Grímur R-3167
05.02.2009 at 20:57 #640200Tjah…ég var alls ekki búinn að átta mig á hversu hátt þessi vegur liggur. 120 metrum hærri en Bláfellsháls. Magnað.
26.01.2009 at 22:21 #638992Við erum að tala um bílútvarp, ekki loftloka…..
26.01.2009 at 22:19 #638754Ég tel víst að hraðamælirinn sé nokkurn veginn sá sami og í Galloper. Það er best að fara inná leiðslurnar uppi í mælaborði með breyti frá Samrás. Ég gerði þetta svona:
Skoðaði litakóðana á vírum í skynjarann niðri á millikassa, fann svo einn af þessum vírum uppi í mælaborðs-bakinu. Mældi með hjólin á smá snúningi til að vera viss um að þetta væri "púls". Klippti í sundur, fann + og – við hliðina og tappaði inná það fyrir breytinn. Fann hentugan stað fyrir boxið, gekk frá og lokaði draslinu.Varðandi hlutföll, þá er Galloper á svo rosalega lágum hlutföllum original að það er ekki fyndið….1:5.29 held ég. Lága drifið er samt ekkert spes, þannig að aukagír er sennilega nauðsynlegur. Þetta þýðir að kannski er smuga að finna original hlutföll úr Galloper fyrir þennan bíl, sem mögulega væri hægt að smella beint í þennan bíl.
Galloper er samt engin TOYOTA, maður lærir bara ekki að meta TOYOTA nema að prófa eitthvað annað
kv
Grímur
26.01.2009 at 21:14 #638944Það er nú bara einhvern veginn þannig að frágangur á legum og pakkdósum er töluvert áreiðanlegri hjá Japananum heldur en Kananum. Hilux afturhásingin lekur t.d ekki inn vatni öðruvísi en inn um öndunina. Fljótandi hásingin er líka alveg pottþétt hvað þetta varðar. HIns vegar er úrval af öflugum drifum fáanlegt frá Kananum. 12bolta er gott dæmi, og já, Toyota öxlar passa í það, jafnt LandCruiser og Hilux öxlar.
Léttur bíll með 1:4.10 eða 1:4.56 hlutföllum og svo lógír gæti alveg funkerað á Hilux hásingum, það fer líka alveg eftir aksturslagi hvort það virkar eða ekki…kv
Grímur
25.01.2009 at 19:31 #638930Alls ekki galin pæling.
Gæti samt trúað að 8" sé full veik fyrir þetta, ég myndi allavega reyna að finna "keisingar" úr 6cyl 4runner, þær eru miklu sterkari en ú 4cyl bílunum, svigna minna undir álagi og hlífa þar af leiðandi kambi/pinjón.Kannski er sniðugast að finna hásingar úr 60 cruser. Þær eru með töluvert hraustari drifum, oft barkalæsingar(traustur búnaður) og liggja trúlega víða núorðið.
Kosturinn við Toyota hásingarnar er vissulega sá að það fæst allt í þær og legur/pakkdósir eru mikið áreiðanlegri en ameríska dótið.
kv
Grímur
25.01.2009 at 12:17 #638844Aðal vesenið við að túrbóvæða bensínvélar er að passa að nóg bensín skili sér með öllu loftinu. Annars er allt farið í steik…svona nokkurnveginn bókstaflega.
Ég þekki ekki hvort MAF sensorinn(spjald-skynjarinn á lofthreinsaranum) á eitthvað eftir original á þessari vél til að segja til um meira loftflæði, það er reyndar hægt að herða á fjöðrinni í honum til að færa sviðið aðeins til.
Næst ar að athuga með spíssana, ef þeir eru of litlir (ná ekki að skila nægu bensíni við 100% opnun, þ.e. opnir alltaf), þá er tvennt í stöðunni: Stærri spíssar eða meiri þrýstingur inn á þá. Sennilega er heppilegra og einfaldara að setja aðeins stærri spíssa.
Aðalvandinn er kannski að tölvan er ekki "möppuð" fyrir turbo, tvær lausnir koma upp í hugann við því: Útvega tölvu úr turbo bíl eða smíða/útvega svokallað "piggyback", sem fiktar í merkjunum sem tölvan fær.
Það væri í sjálfu sér ekkert flókið að smíða piggyback sem fiktar í merkinu frá MAF, en til að niðurstaðan verði góð þarf eiginlega að setja wideband súrefnisskynjara í pústið og prufukeyra framogtilbaka við allslags aðstæður til að ná nýtingunni þokkalegri án þess að taka sénsa eða tapa afli.
Nördakveðjur
Grímur
25.01.2009 at 12:05 #638692Alltaf gott að vita hver lausnin var á endanum, eins og í þessu tilfelli
24.01.2009 at 15:01 #638728já, thad er lika alveg feikna spes hljod sem kemur thegar sveifarasinn er ad dangla i ponnuna innanfra….en jafnframt ekki eftirsoknarvert kannski
24.01.2009 at 14:55 #638770Thetta er alveg óhemjuvitlaus adgerd. Gerir ekkert gagn nema rétta af stífuna í gúmmíunum, ekkert fyrir fjodrunina.
Jafnframt myndi eg ekki maela med ad hita og beygja japonsku stifurnar, thad er svakalega hart i theim(hef heyrt af Patrol stifum sem brotnudu i mask vid ad detta a steingolf), gaeti veikst/sprungid vid svona aefingar. Range Rover stifurnar eru ur deigara efni og hafa verid rettar upp aftur og aftur i torfaerunni ad thvi mer skilst.
kkv
Grimur
11.01.2009 at 21:31 #637066Álkassi, 5gíra, ekki sá sami og er t.d. í Blazerum samt.
Stöngin kom ofaní, ef ég man rétt. Kúplingsþrællinn var hægra megin, í þartilgerðu æxli sem þurfti að víkja fyrir framskaftinu. Þar fór semsagt það litla sem var þrykkt í húsið af lesmáli.
Við rifum hann vegna þess að okkur fannst smá hlaup í eftri tromlunni, sem var svo sennilega alveg innan marka.(það var líka svo spennandi að rífa hann til að skoða)
Allavega, í kassanum voru MJÖG spes legur, kefla-kúlulegur, sambyggðar. Engin leið að finna þær hér á klakanum allavega, en heldur engin ástæða til að skipta þannig lagað. Rosalega sterklegur frágangur á öllu, enda var 12bolta drif mulið nokkrum sinnum með honum, ásamt inntaksöxlinum á Hilux millikassa.
Kassinn kom með einni af fyrstu LT1 vélunum sem fluttar voru hingað á klakann, mjög líklega ættaður úr Corvettu.
Þetta er allt sem ég man um gripinn, ég smelli af honum mynd ef ég rekst á hann einhverntímann aftur.
11.01.2009 at 15:38 #637062Allt nema það að prófa er náttúrulega bara gisk.
Það er talað um að stórar dísilsleggjur séu ekki í neinum vandræðum með að brjóta þessa kassa, hins vegar eru bensínvélar almennt ekki eins slæmar með að mylja kassa. Alveg spurning hvort lítið tjúnnuð SB Chevy fari ekki bara þokkalega framaná honum.Persónulega finnst mér SB Chevy miklu skemmtilegri með beinskiptingu heldur en sjálfbíttara, það fer alveg slatti af afli og eldsneyti í glussahitarann sem gerir þetta hálf marklaust.
Félagi minn átti kassa á SB Chevy, eitthvað racing dót sennilega, en því miður var búið að skera af kassanum verksmiðjunúmerið/týpunúmerið, þannig að það var engin leið að bera kennsl á hann. Áransfjárans andskoti, vegna þess að þetta er mjög hraustur kassi sem fleiri þyrftu að komast yfir…þetta er annars útúrdúr.
Það er allavega skoðandi að finna USA kassa í bílinn, og jafnvel millikassa líka, til að þurfa ekki að smíða milliplötur og þessháttar.
08.01.2009 at 22:37 #636754Gerist oft ef stöngin er að rekast í gatið uppúr boddíinu…
08.01.2009 at 22:08 #636738Ég hef hvergi rekist á neitt sem segir hvað er lágmarks efnismagn óendurnýjað í bílgrind.
Þar af leiðandi ætti að mega endursmíða/endurnýja allt nema þessi ca 100 grömm sem númerið er stansað í.
Í flugvélum má skipta um bókstaflega allt, meira að segja plötuna með skráningarnúmerinu og númerið sjálft. Bara að það sé skráð á fylgiskjöl vélarinnar.Hversvegna í andskotanum ætti líka að binda skráningu við burðarvirkið og enn fremur einhvern tiltekinn hluta þess?
kv
Grímur
08.01.2009 at 21:50 #636782Samkvæmt því sem maður hefur heyrt og lesið þá er ekki alveg málið að nota kassann úr máttlausapatrol. Kassinn í 4.2 er víst mun hraustari…
Mekanískt olíuverk er hins vegar alveg prýðileg hugmynd, sérstaklega ef búið er að setja höfuðlegubakka með aðeins fleiri boltum en original.
-
AuthorReplies