FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Grimur Jónsson

Grimur Jónsson

Profile picture of Grimur Jónsson
Virkur síðast fyrir 7 years, 12 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 357 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 06.04.2009 at 22:40 #645046
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég græjaði búst-aukninguna svona:

    Setti stillanlega þrengingu á leiðsluna að "bypass" pungnum, svo "T" inná sömu leiðslu, á milli pungsins og þrengingar. Aðra þrengingu á T-ið sem blæðir útí loftið. Svo stillir maður jafnvægið milli þessara tveggja þrenginga þangað til réttur þrýstingur næst, án þess að yfirskjóta eitthvað svakalega þegar mótorinn er að ná snúning(má ekki hafa alltof lítið flæði um fyrri þrenginguna). Ástæðan fyrir að hafa tvær er að takmarka sóun á þrýstilofti, annars væri hreinlega hægt að hafa eitt T og blæðingu í sjálfu sér.

    Pungurinn opnar í einhvers staðar á milli 10 og 13 pundum, mér hefur ekki fundist vesensins virði að setja einhverjar skinnur þar sem hann heldur áfram að opna við sama þrýsting, aðeins er verið að takmarka sviðið sem hann vinnur á og láta hann opna minna, ekki við annan þrýsting. Annað mál væri ef maður opnaði kvikindið og bætti undir gorminn, þá er verið að tala um raunverulega breytingu á þrýstingi.

    Veit einhver hvar he#$%&*s magnskrúfuna er að finna á olíuverkinu í þessum drossíum? Mér finnst eins og kvikindið svelti á snúning, samt er nóg olía að verkinu…

    kv
    Grímur





    03.04.2009 at 00:30 #645030
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Lenti í dagljósaveseni með minn. Fann stýringuna eftir mikla mæðu framaná rafgeymaskermingunni. Undarlegur staður eins og á flest öllu í vélarsalnum á þessum grip(það er eins og draslinu hafi verið sturtað í húddið og fest þar sem það lenti).
    Allavega, tengið var bara búið að hrista sig laust og kontaktarnir orðnir slappir. Spennti þá til með skrúfjárni eða töng og plöggaði saman uppá nýtt. Málið dautt.

    kv

    Grímsi





    03.04.2009 at 00:24 #645036
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er á einum svona 35".
    50mm boddylift
    Stuðarar hækkaðir líka
    Smá fiff vegna viftuspaða
    Skorið/hitað/beygt í original brettakantana, smá möndl en ekkert sem klárast ekki yfir helgi og plastbreikkanir skrúfaðar innaní. Billegt, ófagurt en praktískt.
    Hraðamælabreytir frá Samrás, tengdur inn bakvið hraðamælinn, +, – og signal.
    Balansstangir komnar á endurvinnslustöð.

    Nartar hvergi í svo heitið geti á 35" DC, hreinsar rykið innanúr breikkununum að aftan stöku sinnum ef mikið gengur á.

    Ég hef ekki fundið neina raunhæfa leið til að auka aflið svo neinu nemi, hann verður þó heldur sprækari við 18psi búst í stað 11 original. Á eftir að prófa að svera pústið eitthvað, grunar að stíflan sé þar.

    Svo minnir mig að það séu 5.29 hlutföll í þessum eðalvagni, allavega er hann alveg rosalega lágt gíraður (lágadrifið mætti reyndar vera slatta lægra vegna togleysis vélarinnar).

    Varðandi 38", þá myndi ég ekki nenna því nema aflaukning hefði heppnast. Þarf sennilega ekki að hækka meira, en úrklipping og smávægileg færsla á afturhásingu er trúlega möst. (Reyndar er afturfjöðrunin algert bögg, þyrfti að vera 3- eða 4link til að trakka betur í ófærð.

    Ástæðan fyrir því að ég setti þennan bíl á 35" er eiginlega sú að ég kunni ekki að kaupa minni dekk :-)

    kv
    Grímur





    28.03.2009 at 00:18 #644630
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Svona til fróðleiks, þá er 2.8 Rocky mótorinn ekki annað en aðeins stærri útgáfa af 2.4 toy (Toy 2L).
    Samkrull Daihatsu og Toyota er alveg ótrúlega mikið þegar allt kemur til alls.





    28.03.2009 at 00:14 #644510
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Efast ekkert um það :-)
    Svona til lengdar er samt eitthvað við það að geta komist áfram með flest hjól sem næst jörðu….en ég ætla samt ekki að mótmæla því að þetta getur verið bara hin besta skemmtun.





    27.03.2009 at 23:48 #644614
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Stríðir það að einhverju leiti gegn markmiðum eða stefnu félagsins að gera einhvers konar samning við lögfræðing(a) sem sérhæfðu sig í akkúrat okkar málum af þessu tagi?

    Ég fæ ekki séð að það geti skaðað okkar ímynd eða málstað að neinu leyti, þar sem markmiðið er ekki annað en að fá sanngirni framfylgt.

    Er einhver munur á myndavél, golfsetti, GPS tæki eða fartölvu í þessu samhengi?

    Ef ég mætti velja, þá sæi ég ekkert á eftir auka þúsundkalli árlega í félagsgjald fyrir möguleika á þjónustu af þessu tagi. Ég veit líka að margir myndu ekki vilja fella þetta beint undir starfsemi klúbbsins, það er líka mér algerlega að meinalausu, end er þetta sett fram sem hugleiðing en ekki tillaga :-)

    kv
    Grímur





    27.03.2009 at 23:38 #644624
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Gæti verið wastegate, eða olíuverks-stýringin. Wastegate samt frekar líklegt. Prófaðu að klemma leiðsluna að wastegate pungnum eða taka hana af og blinda. Þá áttu að fá allt búst sem bínan getur, ég á ekki von á að ofur-búst skaði neitt til skamms tíma allavega, það hafa alveg farið 30psi inná Gallloper-lufsuna mína án þess að hún hafi kvartað :-)

    kv
    Grímur

    ps
    Galloper er sko engin TOYOTA, en það er ágætt að vita akkúrat afhverju maður á TOYOTA.





    27.03.2009 at 23:30 #644500
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Gaman að heyra að þú ert að eignast þennan grip aftur :-)
    Ég hef verið að kynna mér 3.0 lítra V6 toy vélina aðeins betur (á eina slíka og hef góða reynslu af henni). Almennt talað fremur illa um hana, talin eyðslufrek og máttlaus, en það er alls ekki algilt ef vel er vandað til. Varðandi tjúnningar á henni, þá má sennilega fara upp í ca 300 folöld án þess að original kjallarinn fari að feila. Magnað finnst mer fyrir svona rellu, enda er hún fremur léttbyggð. Varðandi heddpakkningar, þá var það galli sem kom til vegna asbest-banns í USA þegar þessi vél var í burðarliðnum. Í dag fást heddpakningar á þessa vél sem gera hana jafn áreiðanlega og aðrar. Cross-over pústgreinin er hins vegar algert viðrini, flækjur eru sennilega algert möst með henni, eða þá allavega að taka cross-over rörið burt og setja Y undir bíl einhvers staðar, jafnvel þótt megnið af greinunum sé enn á sama stað.
    Langaði bara að skjóta þessu að…það er líka alveg hellingur af þessum vélum út um allt þannig að það ætti ekki að vera vandkvæðum bundið að finna sæmilegt eintak til að sprella með….

    kveðja úr Vogunum

    Grímsi





    27.03.2009 at 20:41 #644494
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …getur verið að skortur á upplýsingum um ford-ígræðslur hafi eitthvað með almennt takmarkaðan áhuga á slíkum æfingum…???? :-)

    Frekar ýti ég TOYOTUNNI en að aka um á ford…





    26.03.2009 at 00:30 #644506
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Alveg pottþétt hægt. Verst hvað þetta yrði stuttur bíll, eiginlega ekkert vit í að smíða jeppa sem er minna en 2.60m á milli hjóla. Ekkert spennandi að sitja inní "korktappa" til lengdar.





    20.03.2009 at 19:32 #644022
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það fæst örugglega kitt í þetta….Snittappi og nokkurskonar gormur / insert sem skrúfað er í. Aðal málið er að reyna að framkvæma aðgerðina án þess að skilja mikið af álsvarfi eftir inni í brunahólfinu. Gerði þetta á Subaru fyrir mörgum árum án þess að taka heddið af og virkaði bara vel.
    Ef einhver lumar á góðu trixi til að grípa svarfið þá væri ekki galið að pósta því hér, mig minnir samt að ég hafi látið vélina standa með annan ventilinn opinn og ryksugað á fullu á meðan snittað var, upp með snittappanum.

    mín 2 cent

    kv
    Grímur





    13.03.2009 at 23:08 #643480
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Skemmtilegur fídus að þurfa að geta sér til um spurninguna áður en maður getur sér til um svarið !!!





    09.03.2009 at 23:47 #642776
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    En algerlega óskiljanlegt.
    Skýrist!





    28.02.2009 at 13:22 #642038
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Sammála Bazza með hitann. Ég hef heyrt tvær kenningar varðandi þetta málefni sem kunna að skipta máli.
    Annars vegar að það sé ekkert sniðugt að standa á bremsunni, kyrrstæður, eftir mikil átök á bremsunni, helst að láta bílinn renna rólega til að diskarnir kólni jafnt.
    Hitt atriðið er að diskar eru fyrst og fremst boraðir til að hleypa gasi úr klossunum útaf snertifletinum til þess að þeir fari ekki að "fljóta". Þeir sem hafa lent í svona "flot" aðstæðum vita alveg hvað ég er að tala um….
    Svo eru til "keppnis" klossar sem búið er að baka mesta gasið úr þannig að þeir fljóta ekki eins mikið.
    Mín reynsla er að það borgar sig illa að þráast við að nota hálfónýta bremsudiska, renna þá eða annað.

    Taka þetta bara alltsaman í gegn; stimplana úr dælunum, þrífa allt ryð og pússa, skipta um þéttingar ef það er nokkur leið að fá þær nýjar, setja svo saman með þar til gerðri feiti á þéttiflötum til að þetta fyllist ekki af drullu og vatni. Nýja diska, klossa, fjaðrir ef við á og pinna.
    Muna að liðka upp pinnana sem dælurnar renna á og smyrja ef svoleiðis er til staðar.
    Hverslags stirðleiki í þessu dóti margfaldar slit.

    kv
    Grímur





    26.02.2009 at 00:04 #641974
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þessar tölur eru alltaf eins fyrir "narrow band" skynjara.
    Þeir ná eiginlega aldrei jafnvægi, segja bara hvort blandan er of sterk eða dauf. Svo sér tölvan um að pendúla magninu (regla…þannig séð) í kring um markgildið.





    23.02.2009 at 22:27 #641814
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Svo getur verið að returþrýstingur hafi áhrif líka, þ.e. hvort það er mótstaða á "slefinu" frá olíuverki. Mig minnir einhvern veginn að misþrýstingur innan olíuverksins, sem verður til fyrir tilstilli snúðdælu(fæðidælu) framarlega í verkinu, stjórni tímingu á innsprautuninni.
    Svo getur verið að þetta sé hin mesta þvæla hjá mér, en það er ekki alveg víst.
    Því miður hef ég ekki komið því í verk ennþá að kryfja svona Bosch-týpu-olíuverk í frumeindir, en það verður gert fyrir vísindin fyrr en seinna.





    20.02.2009 at 00:21 #641446
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Rúðuþurrkur.





    20.02.2009 at 00:20 #641444
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Fín mynd :-)

    Eiginlega alveg dásamleg :-)





    19.02.2009 at 23:38 #640482
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þetta með unimog hásingarnar er með því fyndnara sem ég hef heyrt lengi :-)

    Hins vegar tel ég fullvíst að þarna sé að fæðast nokkuð sem ég hef lengi velt fyrir mér: Lengdur 4Runner. Sennilega 7 dyra, þannig lagað. Brilliant :-)





    18.02.2009 at 01:33 #641274
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Aumingjar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 357 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.