Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.06.2009 at 23:36 #648348
Hvað gerist svo þegar vagninn misfjaðrar? Jagast ekki klemmurnar á rörinu?
Ég sá svipaða útfærslu hjá einhverjum, en með snúningsbolta öðru megin við hásingarrörið til að losa um þessar spennur. Alveg eins væri hægt að nota bara eina gúmmífóðringu í viðbót í stað þannig bolta.
Kannski ekkert mál þannig séð, en þetta stingur dálítið í augun…
04.06.2009 at 00:36 #648032Já
04.06.2009 at 00:34 #648296Ég hef nú ekki fylgst með þessum málum undanfarin tvö ár eða svo, en tilfellið er það, að ég var meðlimur í lokaverkefnishóp hjá Tækniháskóla Íslands sem vann frumhönnun að þessari gaslögn og hagkvæmni hennar. Samkvæmt niðurstöðum okkar á þeim tíma var ekki nokkur spurning um að það borgaði sig að setja flutninginn í lögn til langs tíma. Síðan þá hafa margar forsendur breyst og hitt og þetta lagst til eins og hönnunarkostnaður, frávik frá upprunalegri hönnun o.s.frv. Þess vegna þykir mér ekkert skrýtið að verðið hafi hækkað. Þó að það komi auðvitað við budduna hjá hverjum og einum, þá skulum við líka hugsa til þess að hér er um umhverfisvænan orkugjafa að ræða(það er 20x betra að brenna þessu gasi en að sleppa því upp úr haugunum, enda er skylda að brenna gasinu) og þetta er jafnframt innlendur orkugjafi….ekki slæmt á þessum síðustu og verstu tímum.
Ég er ekkert frá því að ég bæti tilraun með þetta við það sem ég hef verið að bralla með Galloper-fjósið mittkv
Grímur
04.06.2009 at 00:19 #648422Spurning um að hringja í þá, ekki viss um að þeir séu með þetta, en þeir vita örugglega hvert er best að leita ef þeir hafa ekki efni í þetta. Bensi er með þetta allt á hreinu.
Bestu kveðjur
Grímur
03.06.2009 at 23:34 #648406Ég er hræddur um að sumir eigi eftir að blómstra ef svo illa fer að við göngum í evrópusukkið….
[img:2yh7nmt2]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/6774/59505.jpg[/img:2yh7nmt2]
Merki umferðarstofu
23.05.2009 at 01:44 #647856…það virðist ekkert "kitt" vera til með blower akkúrat á þessa vél, það þarf að sérsmíða þetta alltsaman.
Varðandi bínuna, þá er einmitt upplagt að setja hana bara á greinina bílstjóramegin, pústið er allt leitt þangað og sett einhvern veginn snaröfugt saman original, en virðist alveg geta gengið flott með því að skella öllusaman í gegn um blásarann þar.
Og já, kjallarinn er massa yfirhannaður miðað við það sem tekið er útúr vélinni, skilst að það þurfi t.d. ekkert að pæla í hraustari sveifarás eða þessháttar. Einna helst að stangir og stimplar séu takmarkandi ef mjög mikið er tekið útúr draslinu, t.d. með nítró.
Ég hallast allavega að því að þetta sé alveg ágætis hráefni, fæst oftast fyrir tiltölulega lítið, lekur ekki olíu, er fislétt miðað við flestar aðrar (skilst að hún sé bara lítið þyngri en Rover V8 sem lekur olíu nema hún sé olíulaus…
)
kv
Grímur
21.05.2009 at 01:54 #647848EN , ég er búinn að leita töluvert að þessu á netinu. Niðurstaðan er sú, að þetta er alls ekki svo alvitlaus hugmynd.
Kosturinn við þessa vél fyrir þessa framkvæmd, sem er jafnframt hennar helsti galli almennt, er að pústið er leitt eftir "crossover" röri yfir á vinstri hlið. Þess vegna er frekar lítið mál að setja túrbínu á draslið þeim megin, draga loftið frá MAF skynjaranum og þrusa því inná vélina. Ekkert allt of mikið pláss, en alveg nóg.
Kajllarinn í vélinni þolir þetta vel, talinn þola 250hp+, jafnvel meira.
Eitt sem þarf kannski að huga að er að endursmíða "crossover" pípuna þannig að hún liggi ekki alveg uppvið cylinder nr. 6 (aftasta vinstramegin), en hitinn frá henni er víst meginorsök heddpakkningavandamála í þessum mótorum.
5-6psi ættu að vera í lagi án grundvallarbreytinga á bensínkerfi, kannski þarf eitthvað að bæta við bensínþrýsting, en það er ekki víst. Nauðsynlegt að fylgjast vel með neistabanki(detonation) til að grilla ekki draslið.
Ég er reyndar að pæla í blower á þessa vél, gæti verið ansi skemmtileg þannig, fislétt og traust að mörgu leyti.kv
Grímur
21.05.2009 at 01:43 #647810Eftir því sem ég best veit, þá hefur nýting í glussakerfum snarskánað undanfarin 10 ár með stórendurbættum vinnsluaðferðum á íhlutum í kerfin. Glussarótorar eru reyndar ennþá orkusóðar, en sjálfskiptingarconverterar eru það engu síður við lágan snúning. Gæti verið alger snilldar lausn ef heppilega útfært.
Mig minnir einhvern veginn að það hafi verið til International traktor sem var algerlega glussaknúinn, hann náði nú aldrei miklum vinsældum, en þessi kerfi eru samt að koma aftur smám saman í iðnaðarvélum af fyrrgreindum ástæðum.kkv
Grímur
21.05.2009 at 01:32 #647944Þessar Subaru dælur voru bara ALGER SNILLD. Setti þetta upp oftar en einu sinni á afturhásingu. Vandinn er sá að þetta dót er að verða æ vandfundnara.
Eitt trix sem ég man eftir úr þessu er að það er hægt að snúa örmunum fyrir barkann til að setja upp "saeiginlegt" vírasystem eins og í Hilux original að aftan.
Hins vegar eru Subaru barkarnir alveg pottþéttir, man ekki eftir að svoleiðis barki hafi nokkurn tímann orðið fastur í þeim súbarúum sem ég átti (og þeir voru nokkrir og frekar aldraðir…).
Millikassabremsan er líka alvöru jeppabúnaður, ekkert auka drasl tengt niður á hásingu, sem er gott. Hef bara ekki séð svoleiðis búnað "aftermarket" sem virkar verulega traustvekjandi.kkv
Grímur
15.05.2009 at 23:57 #645884Svona til að lífga þennan þráð aðeins við, þá langar mig til að deila smá lausn sem ég setti upp í Galloper-hræinu mínu:
Tek loft af soggreininni í gegn um einstefnuloka, sverar lagnir gera kleift að nýta þessi ca. 10psi sem ég læt öndunarvélina streða á. Þannig er tekur það örskamma stund að þrusa lofti í öll dekk eftir erfiðan skafl.
Gæti trúað að 10psi myndu duga með virkilega svert í öllu. Ekkert rafmagns-vesen, bara handlokar og standa dolluna áfram til að blása í. Það er í sjálfu sér engin þörf fyrir loft í dekkin ef túrbínan virkar ekki.Ég verð að viðurkenna að ég fékk algeran aulahroll yfir að hafa ekki fattað þetta fyrr… þ.e. að nota þrýstiloft frá túrbínunni. Kveikjan að þessu var samt sú að ég tók í F350 bíl hjá félaga mínum og þar voru öndunarvélarnar að gefa 35psi!!!! Þá small þetta einhvern veginn…
kv
Grímur
15.05.2009 at 23:46 #647292Það sem ég hef helst áhyggjur af er hraðinn ,eð það að nota "CV" liði. Þeir hafa í sjálfu sér fúnkerað vel styrklega séð útí hjól (eru að taka ca 4 sinnum meira tork í gegn um sig þar heldur en í drifskafti). Spurningin felst kannski helst í að halda gúmmíunum í lagi og velja rétt smurefni m.v. hraða.
Hvaða feiti ætli kaninn sé að nota í svona drifsköft?kv
Grímur
15.05.2009 at 23:37 #647664Ég hef nú ekkert sérlega góða reynslu af plastfóðringum, hef slegist dálítið við þær. Gallinn er sá að um leið og það er komið smá slit, þá verður fjandinn laus. Áður en það gerist er allt draslið full mikið þvingað og sveigjuálag færist í stífuvasa og stífur í stað þess að vera tekið út í gúmmíunum. Held að Cruiser fóðringarnar séu bara það sem blífur, það er reynsla svo margra og engin áhætta fólgin í því, þó að þær séu ekkert gefins.
Setti sjálfur "mini" gerðina af Benz fóðringum í þverstífuna hjá mér fyrir nokkru, og hálf sé eftir því, fékk jeppaveikikast þegar illa ballanserað dekk fór undir að framan. Annars hefur þetta verið til friðs, en ég myndi ekki velja þessa lausn í dag.kv
Grímur
13.05.2009 at 23:33 #647286Ég held að Baldur hafi hitt naglann á höfuðið hérna.
Það er líka í raun aldrei mikil þörf fyrir 2-falda liði í báða enda, þar sem hægt er að nálgast góða lausn með annaðhvort 2×1-falda eða 1-faldan+2-faldan lið í öllum tilfellum. Ég er hrifnastur af einföldum liðum vegna þess að það kostar minnst að endurnýja í þeim, skaftið er örlítið lengra þannig og minna til að bila.Hefur samt einhver prófað að nota CV-lið (kúlulið) í drifskaft?
Er að velta svoleiðis fyrir mér í sértilfelli sem krefst frekar krappra horna….
13.05.2009 at 23:07 #647538Ojjjjbjakkk.
Það er útbreiddur misskilningur að það sé gott að keyra á breiðum lowprofile dekkjum, allavega á íslenskum hraðbrautum.
44" Hilux lætur betur að stjórn í Ártúnsbrekkunni heldur en Porche Cayenne
13.05.2009 at 22:58 #647434…gallinn við bilanir eins og þessa er að eitthvað er ekki "alveg" ónýtt. Bara virkar ekki eins og það á að gera. Það er líka hitaskynjari í airflow-boxinu ef ég man rétt, spurning um að mæla hann lika.
13.05.2009 at 22:55 #647244Skilst að hann hafi alltaf haldið heljarinnar leynd yfir verklaginu, alls ekki galið að hugsa sér að einhver læri hjá honum. Handverk af þessu tagi má ekki glatast.
11.05.2009 at 18:04 #647276Get nú ekki veriðsammála Þorvaldi meðþetta síðasta comment….það er kúla í miðjum tvöfalda liðnum sem skorðar krossana í sömu gráðu. Þannig getur skaftið ekki farið útúr línu, ef svo má að orði komast. Ef þetta væri ekki, þá myndu öll sköft með 2faldan lið fara að kasta sér þeim megin sem 2faldi liðurinn er…..sem einmitt gerist ef kúlufjandinn bilar…..
11.05.2009 at 17:42 #647420Hitaskynjarinn aftast í milliheddinu, eða lofttappi þar undir.
(Bara gisk, en gæti verið samt)
Svo er líka séns aðþetta sé sambandsleysi í vír eða tengi, borgar sig að aftengja/tengja öll plögg, jafnvel setja einhvern skrattann í þau eins og WD40.
Lenti í því að fá lofttappa í svona mótor einhvern tímann, leysti það með því að keyra uppí malarhrúgu og láta ganga þannig með trýnið uppí loft í smá stund. Bætti svo á vatni.Logar "Check Engine" ljósið?
Bara smá hugmyndir.
08.05.2009 at 23:17 #646944Félagi minn átti NIVA sem við settum 33" undir. Alveg sérlega skemmtilegur vagn. Mér er sérlega minnisstætt þegar ég taldi hann á að taka balansstöngina undan að framan. Hún var lögð snyrtilega til hliðar á gólfinu á Sultartangaverkstæðinu….prufutúr….aftur verkstæði. Næsta aðgerð var að færa stöngina af gólfinu í ruslatunnuna.
Þá var líka fjöðrunin semsagt fullkomnuð
Ég hef því miður aldrei orðið svo lánsamur að eiga NIVA sjálfur, en mikið djöfull var gaman að hamast á þeim. Svona svipað og með Defender-inn, það er ekkert gaman að þessum bílum nema á verulega slæmum malarvegi, enda skipta hljómgæði útvarps eða leðursæti ekki meginmáli í því samhengi.
08.05.2009 at 22:33 #647316Ég efast nú einhvern veginn um að Gunnar á Efri-Reykjum hafi keypt landróver fyrir hænurnar…..túristarnir sem héldu að þeir væru óstöðvandi á landróver hljóta að finnast fyrir rest
-
AuthorReplies