FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Grimur Jónsson

Grimur Jónsson

Profile picture of Grimur Jónsson
Virkur síðast fyrir 8 years síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 357 total)
← 1 … 11 12 13 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 18.03.2007 at 19:44 #585064
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég held nú að Palli hafi átt við klafabíl. Það getur marrað all hressilega beygjustoppum á klafabílunum þegar þau liggja útí og bíllinn hreyfist (fjaðrar) smá, afstaðan breytist nefninlega milli stoppanna og boltans þegar bíllinn fjaðrar. Frekar leiðinlegir brestir, en (að ég held) með öllu meinlausir.
    Ég myndi nú samt reyna að staðfesta þetta einhvern veginn, t.d. með koppafeiti(þagnar í smá tíma) til að sannfærast um að ekkert alvarlegt sé á ferðinni.





    17.03.2007 at 03:09 #584422
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …átti nú bara við að stundum verður pústið fyrir ef kúla+drifskaft færist á ,,öfuga" hlið…





    13.03.2007 at 17:51 #584414
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Var ekki D44 í Bronco með kúluna öfugu megin?

    Svo gæti nefninlega verið D44 að aftan í þessum bílum, alveg tilvinnandi að hafa kúluna áfram sömu megin, uppá pláss fyrir hana að gera, drifskaft o.s.frv.

    Ekkert skemmtilegt að þurfa að endursmíða púst eða hækka of mikið vegna plássleysis….

    …bara svona smá innskot þó að ég þekki þessa bíla nákvæmlega ekki neitt :-)





    07.03.2007 at 23:44 #583722
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það er mun einfaldara að koma fyrir Rover stífum eða sambærilegu að framan á 4runner, heldur en 4-link. Það er alveg fullnægjandi fyrir slaglengd innan við 30cm og mjög traustur búnaður.
    Hins vegar er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni að útfæra 4-link án þess að bíllinn verði allt of hár, eða jafnvel "3-link"….





    06.03.2007 at 15:59 #583044
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Þetta hefur sennilega verið svona ,,rangur misskilningur" hehehe





    06.03.2007 at 15:55 #583446
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ef allur köggullinn er færður, þá passar þetta 100%.
    Ef ’90 bíllinn er t.d X-Cab V6 þá er pinjóninn þar sverari, ég er ekki alveg viss hvort hægt er að ljúga honum í veikari keisinguna…það þarf allavega aðrar legur en í þeirri keisingu…

    ..og já, ég er bara að tala um afturdrifið…
    hvað framdrifið varðar, þá er drifið úr hilux (X-cab) með original manual driflokum lang hentugast, það er ekki vakúm-pung-drifið kúpla-öxli-í-sundur system á því. Það dót er alger pína og á ekki heima í jeppa. Manual lokur takk fyrir pent :-)





    06.03.2007 at 13:55 #583438
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Bara til að minna á, þá eru allavega tvær gerðir af 8" afturdrifi algengar í Hilux/4runner.

    V6/4cylTurbo gerðin sem er með miklu verklegra húsi(auka styrktarribbur og sverari) ásamt eitthvað sverari pinjón(iðulega í 4runner).

    Það þarf því að mig minnir aðrar legur fyrir sverari pinjóninn, ég held að það sé samt hægt að blanda þessu saman með réttum legum.

    Allavega, mér skilst að hvaða drif sem er (1:4.10 / 1:4.88 / 1:5.29 / 1:5.71) sé töluvert sterkara í sverari gerðinni, þar sem húsið svignar minna til hliðar í átökum, þannig að tennurnar grípa réttar (dýpra) en í 4cyl/diesel útgáfunni við fullt átak.

    Þau drif sem græða mest á þessu eru að sjálfsögðu lægri drifin sem eru veikari fyrir vegna þess hve lítill snertiflötur er á milli tanna. Það er því engin spurning að taka sverari gerðina ef maður hefur val…

    kv
    Grímur





    05.03.2007 at 23:29 #583348
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Koltrefjar eru ca. 4-5x dýrari en glertrefjar, miðað við þyngd. Hins vegar þarf mun minna af þeim fyrir sama ,,styrk", það er nú samt verulega háð formi uppleggsins. T.d. ef um er að ræða sléttan flöt, þá ræðst stífleikinn miklu fremur af þykkt heldur en gerð trefja. Ef um er að ræða form þar sem togspennur koma í efnið koma koltrefjarnar vel út. Hins vegar hafa glertrefjarnar það umfram að þær eru ekki alveg eins stökkar.
    Mesti styrkur fyrir minnstan pening er sennilega að nota OFNAR glertrefjamottur í stað þessara hálmmotta sem jafnan er verið er að nota í boddísmíði og báta. Jafnframt þarf að velja hentugt resin miðað við hvernig smíðin fer fram (vacum dregið, rúllað, pre-preg…)

    Ultimate-styrkur fæst með pre-preg koltrefjum (búið að setja resinið í trefjarnar, oftast epoxy), sem eru lagðar upp eins og teip, svo er plastað yfir með sérstökum möskum, lofttæmt og sett í autoclava (þrýstihylki með yfirþrýstingi og hita) til að láta allt harðna.
    Ég hugsa að rúður og sæti, já og kannski teppin, yrðu ráðandi faktor í þyngd á Patrol boddíi úr koltrefjum…. :-)

    Það sem væri hins vegar AFAR spennandi verkefni, væri grind, stífur og hásingar úr koltrefjum. Þar eru ofurefnin algerlega á heimavelli þar sem verið er að skipta út þungum og sterkum hlutum fyrir létta og sterka.
    Ég heyrði líka af því fyrir nokkrum árum að einhverjir Rússar voru að reyna að komast yfir nýlega Cummins úr Dodge Ram, sem þeir ætluðu að endursmíða úr títani !!! Þokkaleg rella það…

    Gott í bili

    Grímur





    05.03.2007 at 23:03 #583390
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Hvernig er hægt að fá það út að Patrol verði eitthvað stirðari við að vera með lok í stað drifloka?
    Annað hvort er drifið að lulla með eða ekki, á ólæstum bíl finnur maður nú varla muninn….





    05.03.2007 at 14:09 #583272
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það er nú alsiða að hafa vatnskassann á buggy-um ofaná vélinni, fyrir aftan sætið.
    Afturí-vatnskassar hafa meiraðsegja verið settir upp í torfærubílum hérlendis til að varna skemmdum á þeim og fá smá pláss auka að framan. (Í bílum með vélina frammí).

    Til að snúa drifrásinni má alltaf athuga að hvolfa drifum, annað eins hefur nú verið gert….það sparar 1:1 viðsnúningsgír….

    Alltaf gaman að svona pælingum :-)





    20.02.2007 at 02:21 #580938
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Afhverju langar mann bara að fara beint út í skúr og hrauka saman viðlíka tæki þegar maður sér eitthvað svona?
    Hvað ætli sálfræðingar kalli þessa bilun?….fjórhjóladrifsröskun, drifbrest eða kannski mótorhverfu?





    08.02.2007 at 23:57 #579830
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Mér finnst þessir Quiz-þræðir bara ágætir, betri en margt annað þras á þessum vef ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Lyftir húmornum aðeins upp úr driflokum og patrolvandamálum :-)
    Ég vil jafnframt hrósa Magnúsi sérstaklega fyrir framfarir í textaritun….. :-)
    kv
    Grímur





    25.01.2007 at 02:55 #577050
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …nú úr skálum reynslu þinnar af MegaSquirt í toyotu, ég er viss um að það eru fleiri en ég spenntir fyrir þessu.

    kv
    Grímur





    15.01.2007 at 19:45 #564744
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er svolítið spenntur fyrir þessari hugmynd með að veita hlustun á talstöðvar á Netið. Hvernig væri að tjúnna inn hlustun á endurvarpa VHF til dæmis? Spurning hvort það varðar við persónuverndarlög að taka allt upp og geyma í ca 2 sólarhringa, en það sem ég er að reyna að segja er að ef ekki er skipulögð hlustun á talstöðvarrásir, þá má taka þær upp og skanna svo yfir það þegar einhver er týndur til að athuga hvort viðkomandi hefur látið heyra í sér….

    …svo gæti þetta dót kannski virkað í hina áttina líka…SKYPE-VHF/SSB bridge hehe síma-hvað?





    06.12.2006 at 18:36 #570500
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég hef mixað Subaru bremsur á 12 bolta GM hásingu, það felst einna helst í eftirfarandi:

    a) Finna heppilega diska, í því tilfelli pössuðu diskar af Hilux framhásingu ágætlega (eru ekki of þykkir, án kæliraufa). Ég veit til þess að Lada Sport diskar hafi verið notaðir fyrir 5 gata, fleiri diskar koma sjálfsagt til greina.

    b) Koma diskum fyrir; sennilega er oftast nærtækt að setja þá inn fyrir náið og felguboltana í gegn, en það fer líka eftir því hvar dælan kemst fyrir gagnvart disknum hvort hentar að hafa diskinn sem ,,spacer" milli felgu og hjólnás. Ég myndi samt forðast það frekar en hitt. Oft þarf að renna diskinn eitthvað til, en sérstaklega þarf að renna bakið á náinu ef innan-nás-leiðin er farin til að fá réttan flöt fyrir diskinn.

    c) Smíða festingu, ca 10mm stálplata/breitt flatjárn er sennilega heppilegur efniviður. Oft þarf að græja einhvers komar ,,spacera"(skinnur, massífa hólka) til að fá afstöðu rétta við disk.

    d) Græja dælurnar til; það þarf stundum að taka gúmmíhetturnar af ,,handbremsujúnitinu" (kannski eitthvað fleira) til að snúa örmunum þannig að þeir liggi vel við togstefnu á vírum. Í þessu tilfelli var togvíradótið af hilux sett við dælurnar í staðinn fyrir Subaru barkana, en sjálfsagt er heppilegt að nota þá í sumum tilfellum. Það þarf að passa sérstaklega að dælurnar snúi á svipaðan hátt og upphaflega til að hægt sé að aflofta þær án þess að leggja bílinn á bakið…..

    kv
    Grímur





    29.11.2006 at 22:34 #569860
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Hurru Rúnar….mislangar stífur eru bara samsíða á einum stað í fjöðrunarsviðinu, alls staðar annars staðar er horn á milli þeirra. Jafnframt er nokkuð til í þessu með skurðpunktinn, en þar er sagan ekki öll, heldur færist hann við fjöðrun, og auk þess skiptir máli hvar miðja, eða öllu heldur snertiflötur dekks við jörðu, er miðað við stífuendana sem festast í hásingu.

    Við pælingar um kraftajafnvægi í fjöðrunarbúnaði sem hlýst af drifkrafti bílsins er einfaldast að sleppa því að hugsa sér að það sé dekk fest við hásinguna, heldur líta dekkið sem ásoðinn turn úr rörinu niður á jörð. Kraftaparið er lóðréttur kraftur(vektor) upp í turninn, og láréttur vektor niðri við jörð sem togar bílinn áfram. Þá er hægt að reikna allt draslið statiskt sem stangavirki. Um dynamísku hegðunina ætla ég ekki að fjölyrða, enda er ég ekki neinn sérfræðingur á því sviði.

    …æji…úff…núna missti ég mig aðeins….

    kv

    Grímur





    29.11.2006 at 22:22 #569858
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það hefur nú myndast nokkuð sterk hefð fyrir því að hafa 4-link stífur jafn langar og samsíða, ef sett er undir að framan. Þó eru sjálfsagt til undantekningar frá því, og jafnframt óvíst að það sé einmitt það réttasta fyrir fjallajeppa.
    Hins vegar eru nokkur atriði sem gera jafnlengdar-samsíða uppsetninguna vænlegri en annað;

    a) Halli á pinjón breytist ekki við samslag/sundurslag eða breytta hæð á gormum/púðum.

    b) Það snýst ekki upp á gúmmíin í þverstífunni

    c) Það myndast lágmarks þvingun við misfjöðrun vegna þess að það snýst ekki upp á hásinguna, það hlífir gúmmíum í stífum.

    d) Það er búið að smíða þessa uppsetningu í hundruð bíla hér á landi með ágætis árangri, það er alltaf ,,örugga" leiðin að byggja á reynslu fjöldans.

    Aðrar uppsetningar hafa trúlega hina ýmsu kosti, t.d. væri hægt að leysa hjöruliðavesen að hluta með réttri uppstillingu o.s.frv. Það verður þó varla gert nema með heilmiklu sirkils-reglustiku-pári eða þar til gerðum tölvuforritum (sem ég nota nú frekar). Forsendur fyrir hvorutveggja er að mæla upp allt sem skiptir máli, t.d. fjarlægð flangsa á drifi og millikassa frá ,,gólfi" og miðju hásingar, ásamt því að ákveða (fyrsta atriði) hvar hásingin á að vera (í normalstöðu). o.s.frv.

    Upphaflega lýsingin hjá Kristni, þ.e. að hafa jafn langar stífur ofan/neðan, en styttra á milli að aftan, gefur hegðun sem líkist fjöðrun eins og er í Rover, Cruiser og Patrol, nokkurs konar kynblendingur. Þetta gæti komið ágætlega út, sérstaklega fyrir grindarvasana, sem oft verða oft asnalega síðir og valda óheppilegum spennum í grind vegna fjarlægðar neðri stífunnar frá grind.

    Sú pæling að hafa efri stífuna töluvert styttri en þá neðri, að framan, þykir mér ekki neitt sérstaklega spennandi. Mikið rétt, hásingin veltir sér aftur við sundurslag í slíkri uppsetningu, sé miðað við að efri stífan sé nokkurn veginn lárétt í normalstöðu. Ég er ekki viss um að framskaftið fíli það vel ef það er mjög stutt eins og svo oft. Við samslag yrði hreyfingin mun eðlilegri, jafnvel bara mjög heppileg varðandi hjöruliði…

    …einu var ég næstum búinn að gleyma varðandi uppsetningu á fjöðrun, sérstaklega að framan. Það má alls ekki gleyma að hugsa um hvað gerist þegar maður nauðhemlar. Maður er svo upptekinn af drifgetu og áframakstri að þetta vill ansi mikið gleymast, en er eiginlega mikilvægara en allt hitt til samans….

    Þetta eru mín $0.02

    kv
    Grímur





    23.11.2006 at 22:56 #566684
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Sú tillaga að láta ferlasafn ráða alfarið því hvar má aka og hvar ekki þykir mér, eins og svo mörgum öðrum, algerlega fáránleg.
    Hins vegar er hætt við að við ofurefli sé að tefla, en við skulum samt ekki gefast upp strax.

    Ég vil minna á það góða starf sem frumkvöðlar f4x4 unnu á sínum tíma með þáverandi yfirvöldum hvað breytingar á jeppum varðar, og komust að ásættanlegri niðurstöðu, sem ég tel að hafi verið til hagsbóta fyrir alla, ekki bara yfirvöld heldur líka jeppamenn. Þar urðu til reglur sem settu SKYNSAMLEG mörk á breytingar og umfang þeirra með það að markmiði að LEYFA framþróun án þess að fórna öryggishagsmunum.

    Ég tel að líklegasta leiðin til árangurs sé einmitt eitthvað í þá veruna, reglur sem fórna ekki hagsmunum náttúrunnar en leyfa skynsamlega umgengni um hana.

    Svo virðist sem búið sé að ákveða að notast við eitthvert kortafyrirbæri til að takmarka umferð um landið okkar, en eftir standa nokkrar spurningar; mega bændur áfram nota vélknúin ökutæki utan þeirra vega við smalamennskur? Mega björgunarsveitir aka utan vega við leitir og/eða æfingar? Mega náttúruverndarfélög aka utan vega við uppgræðslustarf á hálendinu? Fá einhverjir aðrir hagsmunaaðilar svipaðar undanþágur?

    Ég vil taka fram að eftirfarandi hugmyndir þykja mér EKKI ákjósanlegar, en tel að mætti varpa þeim fram sem neyðarúrræði í vörn okkar fyrir áugljósum hagsmunum, og aðferð til að þóknast skriffinskuköllum sem í raun ekkert vita hvað þeir eru að ráðskast með:

    Félagsmenn í "viðurkenndum" samtökum á borð við f4x4 og VÍK gætu fengið ca. einnar kvöldstundar fræðslunámskeið sem gæfi réttindi til að aka utan skilgreindra vega. (Svipað og veiðikort gefur réttindi til að veiða).

    Sem enn meira neyðarúrræði mætti til friðþægingar bjóða upp á t.d. tvöfalda sekt ef einstaklingur með utanvegaréttindi gerist uppvís að náttúruspjöllum.

    kv
    Grímur Jónsson





    23.11.2006 at 22:24 #569088
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ágætis uppsetning á aukarafkerfi finnst mér hjá þér gundur, en eitt truflar mig samt við teikninguna, þ.e. að pólar nr. 86 og 85 á relayunum eru báðir teiknaðir til jarðar, sýnist mér.

    Sennilega mætti brúa á milli nr. 86 og 30 í flestum tilfellum, nema stýrispenna annars staðar frá í rafkerfinu sé nýtt jafnframt sem "AND" í rásinni.

    Gæti líka verið að ég sé að fara á mis við einhverjar hefðir í rafkerfateikningum, en ég skil "jörð" merkið alltaf sem "núllvolt" í bílarafmagni….

    kv
    Grímur





    22.11.2006 at 22:02 #569076
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það er ekkert sérstaklega sniðugt að klastra díóðum inn í aukarafmagn í bílum, bæði eiga þær til að klikka ef þær fá "spæka" inn á sig, t.d. í tengslum við rafsuðu, og einnig eru þær gjarna það nettar að þær gætu valdið seinni eigendum miklum höfuðverkjum við bilanaleit. En vissulega myndi þetta virka, það er alveg rétt.
    Einnig vil ég benda á þann möguleika, sem stundum gleymist, að nota jarðtengingu sem stýrimerki inn á relay. Þá er + tekinn, annað hvort frá geymi eða annars staðar frá, beint í spólu á relayi. Hinn vírinn frá spólunni fer svo inn í bíl í gegn um rofa og þar til jarðar. Þetta hefur þann kost að "heitum" vírum fækkar, ef útleiðsla verður á stýristraumslögninni (nudd, klemmist á milli innréttingar og festingar o.s.frv.), þá fer viðkomandi búnaður, t.d. kastarar, einfaldlega að blikka og kveikja á sér í tíma og ótíma, frekar en að draslið grillist með tilheyrandi eldhættu.
    Sem dæmi má nefna að original skynjarar í bílarafmagni virka mjög gjarna á þennan hátt, þ.e. gefa jörð sem signal.

    kv
    Grímur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 357 total)
← 1 … 11 12 13 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.