Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.05.2007 at 17:02 #590372
Neee þú ferð nú ekki að selja snattarann er það ?
03.05.2007 at 00:18 #589750Þegar fjallað er um þetta málefni er gott að gera sér grein fyrir að það er algerlega tvískipt; þ.e. Hönnun annars vegar, og smíði hins vegar.
Hönnunarlega séð er kannski ekki margt nýtt undir sólinni, en þegar svo ber undir að eitthvað er útfært á nýstárlegan máta, t.d. í fjöðrunarbúnaði, stýri eða bremsum, þá er það rýnt nokkuð vel af hönnuðum, smiðum og svo skoðunarmönnum. Þannig held ég að okkur sé ekki mikil hætta búin af þeim þætti.
Smíðin er svo annað mál, þar geta verið á ferðinni hlutir sem líta út fyrir að vera í lagi án þess að vera það, eins og t.d. illa innbrenndar suður, rangt snittaðar gengjur í stýrisbúnaði, óheppilegt efnisval o.s.frv. Meginreglan er nú samt sú, að ef eitthvað lítur út fyrir að vera í lagi, þá er það í lagi.Það er jafnframt það sem við treystum bílaframleiðendum fyrir með þeirra framleiðslu. Hafa þeir aldrei klikkað…..?
Það er nú ekki hver einasta suða mynduð í Japan, alveg sama hvort hún er á samskeytum hluta eða við HLIÐINA á þeim !!
Það er nú bara þannig að það er ekkert fullkomið í okkar ágæta heimi, en að setja upp eitthvert heljarinnar reglufarg vegna þess að einn og einn bílskúrskall er ekki nógu flinkur með pinnann, finnst mér bara fráleitt.
Ég er alveg viss um að ef skoðunarmenn fá skýr skilaboð um að þeir eigi að gera menn afturreka ef þeim blöskrar vinnubrögðin (frá sjónarhóli svokallaðrar faglegrar skynsemi) þá verður þetta aldrei neitt vandamál.
Ef menn eru svo ekki sáttir við þá afgreiðslu mála, þá geta þeir bara borgað fyrir úttekt hjá Iðntæknistofnun til að fá samþykkt, ef þeir vilja. Þar eiga að vera menn með þekkingu á burðarþoli, efnistækni, og með tæki til greininga á þessum hlutum.
Mig grunar að þetta sé akkúrat það sem hægt er að gera í dag, án þess að breyta einum staf í reglum.
Þetta eru engin geimvísindi, eins og Freysi kom inná, bara alls ekki.
kv
Grímur
02.05.2007 at 23:25 #590222Alla jafna er þetta mjög vont fyrirkomulag á dempurum, stundum sést þetta undir kerrum, en er heldur ekki að vinna sem upp/niður eða veltidempun þar, heldur halda við ónýt fjaðrahengsli.
HINS vegar, þá er réttilega farið í það hjá þer Kristinn, að hægt er að breyta virkni dempara með uppstillingu, og þá er það best gert með því að hafa þá sem næst lóðrétta að sjá ef horft er beint aftan/framan á tækið, en hallandi séð frá hlið. Þá breytist einmitt raunfærsla demparans miðað við færslu hásingar eftir því hvað demparinn hallar, annars vegar, og svo láréttri færslu hásingarinnar hins vegar, og hvernig það tvennt spilar saman. Til að kóróna allt saman, þá er hlutfallið á færslu dempara Vs. hásingu trúlega ekki jafnt alla slaglengdina…
Tricky business…
kv
Grímur
29.04.2007 at 22:00 #589820Til að grafa svona lagað upp er sennilega best að tala við kalla eins og pabba, sem hafa þvælst þarna um síðan fyrir miðja síðustu öld. Ég spyr hann að þessu næst þegar ég hitti hann, það gæti vel verið að hann viti eitthvað um þetta…
29.04.2007 at 21:54 #589756Mér finnst þetta vera hálfgerð vandamálalausn, þar sem sennilega er verið að bregðast við plássleysi og ,,of" löngum lögnum að/frá millikæli, sem er best staðsettur framarlega í vélarrúmi, til að nýta trekkinn þar.
Sérstaklega á boddýhækkuðum bílum verður til fínt pláss ofan á vélinni fyrir millikæli, sem jafnframt er gjarna staðsettur þar original, en (vanda)málið með það er að losna við varma frá vélinni og lofta draslið sem best.
Það að loft-kæla vatn, til að kæla svo aftur loft, hljómar ekki skynsamlega í mínum eyrum. Bara aukið flækjustig held ég.
Hins vegar hef ég ekki prófað þess háttar búnað sjálfur, þannig að ég get ekki svarið fyrir neitt í þessum efnum, en varmafræðin segir manni að þrepin eigi að vera sem fæst í þessu tilfelli….
29.04.2007 at 21:43 #589814á [url=http://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/sagan/sogulegar-upplysingar/1884/nr/183:114wwwqa]Kjalvegi[/url:114wwwqa]
29.04.2007 at 20:24 #589696Ef ekki er gengið almennilega frá innan við kantinn bílstjóramegin að framan, þá eiga ljósalagnirnar þar það til að daprast vegna veðrunar….lugta-Gvendur getur líka verið með leiðindi, en það lýsir sér nú oftast ekki svona.
Skv. minni reynslu eru nú samt 90% rafmagnsbilana í bílum einhvers konar jarðsambandsleysi, sérstaklega þegar ,,undarlegheit" gera vart við sig.kv
Grímur
29.04.2007 at 20:03 #588866…kannski ekki alveg svarið í þessu tilfelli, en svona almennt, þá hef ég stundum þurft að keyra bíla upp í halla (bratt) til að losa lofttappa, sérstaklega þegar vatnskassinn er neðarlega eins og algengt er orðið. Þá leitar loftið stundum upp í efsta punkt, hjá lokinu.
Svo verður náttúrulega að losa loftskrúfur ef þær eru til staðar, en það er alls ekki alltaf.Eitt vildi ég benda á, brósi lenti í þeirri ógæfu að missa hedd á Patrol vegna þess að lítil vatnsslanga aftanvið olíuverkið gaf sig (nýlega búið að taka vélina í gegn).
Endilega skiptið um þetta gúmmírusl ALLT SAMAN, EKKI BARA STÓRU HOSURNAR, þegar vélarnar fara í 500.000 króna yfirhalninguna, það er svo voðalega lítið í viðbót en verulega mikil trygging.
Ef svona vél missir smá vatn undir álagi, þá er heddpakkningin bara farin, ásamt heddinu.
kv
Grímur
29.04.2007 at 19:47 #589688EN félagi minn hefur verið með slíkt í allnokkur ár, þetta var reyndar sett ásamt öðru (flækjum, einföldun á mengunar(varna) búnaði, og opnu pústi.
Ég held að þetta henti sérlega vel ef verið er að reyna að fá þessar vélar til að ganga vel á frekar þunnri blöndu, þ.e. pína þær til að fara sparlega með bensín, það er víst þannig, að betri neista þarf til að kveikja í þynnri blöndu…!
Annars borgar sig ekki að fara of langt í þá áttina, sérstaklega þegar ekki er WideBand sensor til að fylgjast með.
En allavega, þá VIRKAR þetta, og bara stórvel yfirleitt.
kv
Grímur
23.04.2007 at 22:46 #589152Mér reiknast til að formúlan sé ca svona:
(verð í USA + flutningur) * 1,54 + tollafgr.gjald = Verð hér heima.Þannig að svona gróflega áætlað, þá má gera ráð fyrir að dollarinn sé á rétt um 100 krónur fyrir bílavarahluti eins og gengið er núna…
20.04.2007 at 20:13 #588882Ég sá nú ekki þess mynd, en ég tilheyri vissulega þeim hóp sem pirrar sig svolítið yfir þessari regnhlíf þeirra. Mér skilst að þeir spari sér ca 50.000.000,- á ári með því að nota ekki Esso-merkið…ætli það skili sér í lægra vöruverði? Hmmmm við skulum bara VONA það! Nei. Ég er alveg viss um að þetta er eingöngu hagræðingar-ráðstöfun til að ná samlegðaráhrifum og tilraun til að skapa sterkt vörumerki á markaðinum.
Nafnið er vitanlega alveg ferlega illa heppnað út af fyrir sig, en það skiptir sennilega engu máli þar sem við erum svoddan lúðar að það hefur sáralítil áhrif.þetta eru mín 2 cent
kv
Grímur
15.04.2007 at 12:54 #588434er fínt, ef taumurinn er ekki of breiður.
Kannski er betra að blanda einhverju sulli í lakkið þannig að það leyfi meiri teygju….bara spyrja lakksalana.
kv
Grímur
14.04.2007 at 15:09 #587358Já þetta er alveg mögnuð vél, sennilega í svipuðum merkilegheitaklassa og SmallBlockChevy.
Átii einusinni RangeRover með svona, alveg ferlega skemmtilegur gangur i henni, ekkert sérstakt afl í henni original, en með túrbínum, innspýtingu og þessháttar föndri er hægt að breyta þessu í algera bombu.
Í jeppa er þetta líka alger snilld, þar sem hún vegur innan við 200 kg með hóflega miklu af drasli utaná.
Það leiðinlegasta við að setja hana í aðra bíla er vatnsdælan, en ég held alveg örugglega að það fáist dæla með styttri háls á hana.
Ég myndi segja að þessi vél með Edelbrock blöndungi, plönun á original milliheddinu fyrir hann, flækjum, tork-ás og MSD kveikjumagnara, þá sé komin ansi skemmtileg græja í svona bíl.kv
Grímur sem ætlar að gera svipað projekt fljótlega…
11.04.2007 at 22:28 #587496Það má nú alveg vara sig á því sem einhverjir bílaumboðagaurar halda fram um ábyrgðir. Ég þekki dæmi þess að það hafi þurft miklar bréfaskriftir og trix til að fá hérlent umboð til að viðurkenna ALÞJÓÐLEGA ábyrgð á amerískum bíl hér á landi (6.5 GM…)
Framleiðandinn þurfti að beita umboðið þrýstingi til að framkvæma ábyrgðarviðgerðina sem um ræddi, þar sem umboðinu fannst ekki vera í sínum verkahring að sinna slíku.
Lykillinn að svona málum er að setja sig í samband við þjónustudeild framleiðandans í USA (fyrir ameríska) og fá uppgefið hvað framleiðandinn ábyrgist og hvað ekki. Þegar það er komið á hreint er hægt að fara að tala við hérlent umboð;
Byrja á heimsókn,
svo tölvupóst á ensku með BCC.(TO: sér ekki hver er í BCC) á þjónustudeildina í USA þar sem málin eru rakin,ef eintómt rugl kemur til baka,
þá Reply-a með USA í CC.
og ef enn kemur rugl, þá póst á USA með tilvísun í skaðabótakröfur á EES-svæðinu vegna tregðu umboða til að sinna bílum sem ekki eru fluttir inn af umboði.
Þá ætti eitthvað að fara að hreyfast.
Þetta er að sjálfsögðu ekki mögulegt ef framleiðandinn hefur ekki gefið út að viðkomandi hlutur sé í ábyrgð í sínum skilmálum.
kv
Grímur
11.04.2007 at 22:09 #583922Jæja, nú eru þeir að seilast enn lengra aftur í tímann, skipta á út millibilsstöngunum í ’88-’96 klafahiluxum….ég á nú 4runner sem á von á nýrri millibilsstöng, en ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við millibilsstöngina í X-Cabinn, sem er kominn með hásingu
1.381 toyotur eiga möguleika á nýrri stöng á næstunni hér á landi…
Það er sama sagan með þetta og öxlana, ég man fyrst eftir svona stöng brotinni í X-cab hjá kunningja mínum fyrir rúmum 10 árum, um það bil þegar ég var að læra á þetta sport. Um síðustu helgi reddaði ég svo félaga mínum um svona stöng þar sem hans var brotin, og toyota átti hana ekki á lager, en hún átti að kosta um 16.000,- hehehe (gámurinn kannski ekki kominn)
Þeir mega samt eiga það að þeir kalla þetta inn, þó seint sé.
Kannski fara þeir að hlusta á okkur vitleysingana einhvern tímann, við NOTUM jú draslið þannig að gallar af þessu tagi koma miklu fyrr fram hér en annars staðar.
03.04.2007 at 23:30 #587010síðasta ræðumanni.
Það verður samt að viðurkennast að 350 Chevy mótorinn hlýtur að vera mjög vel heppnuð hönnun alveg frá upphafi. Þessi mótor er að sjálfsögðu búinn að ganga í gegn um ansi margar kynslóðir af breytingum, en að hann skuli enn vera gjaldgengur um 50 árum eftir að hann var fyrst smíðaður þykir mér alveg stórmerkilegt. Vissulega hefur hann fengið innspýtingu og framfarir í nánast öllu á þessum tíma, en breytingarnar eru samt ekki svo dramatískar miðað við tímann.
Hitt er annað mál að Japaninn hefur verið að gera ansi góða hluti síðustu 20-30 árin, um það verður varla deilt, en þeir hafa jafnframt gert nokkra skandala síðustu árin, sérstaklega með díselinn. Kaninn er heldur ekki saklaus af því, Oldsmobile diesel var ekki sérstaklega áreiðanleg rella, 6.2 diesel er með innbyggðan veikleika ofan við legubakkana o.s.frv. Mörg þessara mistaka má að mínu viti skrifa á fljótfærni framleiðendanna annars vegar, og svo fáránlega mengunar-reglu-ramma hins vegar, sem taka stórar og hagkvæmar vélar gjarna út af borðinu einhverra hluta vegna.
Japanskt-Amerískt-Evrópskt, allt hefur sína kosti og galla. Helsti kosturinn við Japanann, sem hefur verið að smitast yfir á aðra undanfarin ár, er öflug gæðastýring á famleiðslu, sem hefur leitt til lægri bilanatíðni sem rekja má til frávika í famleiðslu. Hönnunin er svo annað mál.Þetta eru mín 2c
kv
grímur
02.04.2007 at 23:16 #586876Eins og svo oft áður, þá er heilmikið til í því sem Skúli lætur frá sér.
Ég vil sérstaklega taka undir það sjónarmið að klúbburinn taki jákvæða afstöðu gagnvart umræðu sem þessari, í fyrsta lagi á hún rétt á sér út af fyrir sig, og í öðru lagi er það hagsmunamál okkar allra að breytt ökutæki séu í skikkanlegu ásigkomulagi.
Hvað breytta bíla varðar, þá liggur vandinn þannig séð einhversstaðar á milli breytingarreglugerðarinnar og skoðunarstöðvanna. Ég man ekki eftir að hafa séð reglur um frágang, hönnun eða gæði á fjöðrunarbúnaði þannig að sérstakt mark sé takandi á(reglurnar eru að vísu settar gróflega varðandi hækkun o.þ.h.).
Ég vil þó taka það sérstaklega fram að ég er ekki að kalla eftir einhverju bákni sem takmarkar skynsamlegt felsi til framþróunar á því sviði.
Málin liggja nefninlega þannig akkúrat núna, að hægt er að koma breyttum bíl, með illa frágengna, eða jafnvel algerlega fíflalega hönnun í gegn um skoðun ef vilji er til. Sem betur fer er það frekar undantekning en regla.
Skoðunarstöðvarnar hafa hreinlega ekki nothæf viðmið, jafnvel þó að staðreyndirnar blasi við.
Hver á þá að ákveða hvað er í lagi og hvað ekki?
Þetta er spurning sem við komum til með að þurfa að svara fyrr eða seinna, þannig er nú það. Þess vegna held ég að við náum okkar hagsmunum einna best fram með því að halda áfram að leggja línurnar, fyrst og fremst með fræðslu, sem fer til dæmis fram í stórum stíl hér á vefnum, og svo, ef að í harðbakkann slær, með samvinnu við yfirvöld um framlengingar á reglum sem skarast við okkar núgildandi frelsi til jeppabreytinga.Grímur
02.04.2007 at 21:21 #586830Hehe, fínt innlegg mummi
Þessir endar eru magir hverjir með kúlu sem er ó-umskiptanleg, þ.e. þrykktir saman líkt og spindilkúlur. Ég tel sennilegt að hraustir stýrisendar séu í mörgum tilfellum heppilegri kostur. Þeir eru í fyrsta lagi gæðaprófaðir fyrir notkun í þessu umhverfi og fyrir álag sem er mjög svipað og þverstífur verða fyrir, í öðru lagi er alveg pottþétt hægt að nálgast nýjan stýrisenda af þekktum uppruna þegar sá gamli er orðinn þreyttur, og síðast en ekki síst, þá er gúmmíþétting á þeim þannig að maður þarf ekki að vera eins duglegur að smyrja.
Eina sem þarf að gera er að þrykkja kón í þykka stalplötu, sem er svo soðin við hásingu sem stífufesting. Getur verið ansi nett lausn þegar vandræði eru með pláss.
Eins og ýjað var að hér að ofan, þá er ráðlegt að hafa gúmmí í annan endann, til að einangra hávaða úr hjólabúnaði frá grind, samsetningin verður líka mun sterkari ef hún leyfir smá eftirgjöf við högg, frekar en að hafa allt járn-í-járn.
kv
Grímur
02.04.2007 at 21:10 #586900Byrjaðu á að athuga hvort allar bremsudælufestingar eru á sínum stað, þ.e. hvort einhverjir boltar eru að yfirgefa samkvæmið….
…annars eru þetta alveg stórfurðuleg einkenni, ekki líkt lofti á bremsum að því sem ég best veit, hlýtur að vera eitthvað sem fer úr skorðum við mikið álag, þessvegna dettur mér þetta í hug.kv
Grímur
29.03.2007 at 22:58 #586480..ég rakst á þetta (hét kannski eitthvað annað) í einhverju nördablaði/nördasíðu um daginn. Frekar sniðugt held ég bara, nokkurs konar ,,tin" fyrir ál.
Kaupi svona ef ég sé það, það er alveg pottþétt.
-
AuthorReplies