Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.12.2007 at 21:56 #605686
Mér varð það á að kíkja í albúmið hjá þér, Baldvin, og þá rann upp fyrir mér nokkuð sem kannski er bara alveg augljóst….
…er það svona fídus á Patrol, að opna húddið í kyrrstöðu?[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/4653/33169:m8mif8hf]Sjá hér[/url:m8mif8hf]
05.12.2007 at 20:22 #605682Árbúðir standa t.d. við bakka Svartár.
Hún lítur nú ansi sakleysislega út, svona oftast nær, en eins og með bergvatnsár almennt, þá getur hún verið algert skaðræði á veturna með fölskum ís og þessháttar.Annars er gaman að segja frá því að eitt flottasta vörubíls-trailer atriði sem ég hef séð fór fram á vaðinu við Árbúðir. Það var verið að flytja hesthúsið (í tvennu lagi reyndar) á vagni úr Hvítárnesi þar sem það stóð áður.
Þegar á reyndi dreif bíllinn ekki upp úr ánni austanmegin og sneri við í miðri ánni með alltsaman, rölti upp þaðan sem hann kom, og tók krókinn uppfyrir.
Laglegt þetta….kv
Grímur
01.12.2007 at 18:19 #605188Það getur verið ágætt að saga eftir endilöngu, helst ca 3-4cm frá bretti, setja svo saman með blikkrenningum og sjálfborandi skrúfum til að "offsetja", ofan/utanfrá.
Svo tekur maður kantinn af og steypir innan í til að festa saman.
Síðan er blikkið tekið af, slípað niður með rokknum og plastað aftur, utanfrá.
Snyrta aftur með rokknum og sparsla allt saman, pússa, slípa o.s.frv.Vona að þetta skiljist…
kv
Grímur
27.10.2007 at 23:00 #600114VEÐURHELDA yfirbyggingu !!!
Alveg ótrúlega skemmtilega orðað
Á mínum vinnustað er nánast bannað að gera grín að breskum bílum, nema að hafa átt einn.
Ég átti RangeRover…Hvað er að þegar Rover lekur ekki olíu??
Sv: HANN ER OLÍULAUS!!!
27.10.2007 at 22:45 #600476Ég hef ekki nokkra trú á öðru en að það sé hægt að leysa svona mál eins og rætt er um hérna, án þess að neinn verði ósáttur eftir.
Það er nú bara alveg eðlilegt að nýliðun sé einna helst á haustin, er það ekki?
Kannski ætti að rukka hálft árgjald seinni helming ársins, sem næmi þá hálfu árgjaldi eða svo…en það flækir náttúrulega hlutina.Það er auðvitað ekki nema eðlilegt að fólk spyrji hvað er verið að greiða fyrir, og því er jú svarað hér að ofan.
Ég er einn þeirra sem hef ekki tekið beinan þátt í starfi klúbbsins nema þá helst á þessum miðli hér. Við það, og félagsgjaldið, er ég bara miklu meira en fyllilega sáttur.Sérstaklega vil ég benda á allt það starf sem fólk tekur að sér í sjálfboðavinnu í þágu sportsins.
Það er ekki nema sjálfsagt að þeir sem vilja, nenna og hafa tíma til, séu með einhverja fjármuni milli handanna við þær framkvæmdir sem ráðist er í á vegum klúbbsins. Svo geta legátar eins og ég notið þess að vild!Auðvitað er ég ekki að leggja til einhver himinhá félagsgjöld, ég er bara miklu frekar hissa á hvað er hægt að framkvæma fyrir þessa aura.
Kannski fáránlegur smanburður, en bensínlíterinn kostaði að mig minnir eitthvað um 70 krónur þegar ég fór að skrölta fyrst á eigin jeppa…hvað kostar hann núna? Hvernig hafa félagsgjöldin þróast? Sennilega hafa þau lækkað í þeim samanburði, þrátt fyrir óeðlilega hátt gengi krónunnar…
Bara pæling.
kv
Grímur
27.10.2007 at 21:51 #601114Fordinn hjá Erni Ingva er nú helvíti öflugur, annars er Econline-inn hans Gunna Egils ansi mikil græja… Er enginn kominn með 6-hjóla 49" bíl?
17.10.2007 at 18:03 #600208…startsveif já ! ! Það er LUCAS að þakka að ég notaði startsveifina á Range Rovernum mínum allavega tvisvar!!
Lada Sport kom líka með startsveif, en það þurfti að gata vatnskassann til að nota hana hehehe…annars giska ég á tjakk….eða kannski pumpu?
01.10.2007 at 23:45 #598386Ég varð nú að vera sammála Óskari með þetta. Það væri líka ansi gaman að sjá ALVÖRU breytingu á klafabíl, ekki bara eitthvað hálfkák, síkkanir, afskurð á sundursláttarpúðum o.s.frv.
Það þýðir voðalega lítið að elta kanann með þetta, nema hvað öxla og drifliði varðar, þar eru þeir oft að gera fína hluti. Rótendar eiga hins vegar ekki heima í farartækjum nema þar sem heyrnarhlífar eru staðalbúnaður.
Almennileg fjöðrun með ca 35 cm slaglengd er eitthvað sem gaman væri að sjá, annað en þetta 20+ sem virðist vera nærri lagi í dag….
01.10.2007 at 23:39 #598108Takk fyrir þetta, alveg stórfínt bara
…betra að hafa einhverjar traustari heimildir en misvísandi svör frá dekkjaköllum svo að ég vísi í ágætan mann….
kv
Grímur
29.09.2007 at 11:23 #200877Félagi minn er að fá græjaðan til F350 árg. 2008 fyrir sig. Hann kemur víst á 20″ felgum með einhverjum skurðarskífum á, spurningin er: Veit einhver hér alveg fyrir víst hvort að 18″ felgur komast fyrir utan um bremsubúnað og þessháttar á þessum bíl?
kv
Grímur
25.09.2007 at 00:25 #597724Ég stóð í þeirri meiningu að hjólastillingardæmið ætti einungis við ef um nýrri bíla en eitthvað x væri að ræða. Ég hef nú ekki haft tök á að fylgjast almennilega með umræðum hérna undanfarið, svo að leiðréttið mig ef annað er uppi á teningnum….
Annars hef ég nú engan áhuga á að láta einhverja dúdda fikta í hjólabúnaðinum hjá mér að framan ef draslið er orðið almennilega uppsett og bíllinn lætur vel á vegi. Alveg sjálfsagt að láta fagmenn um verkið ef menn vilja, en hvers vegna gildir þetta bara um breytta bíla?
Það er ekkert mál að skipta um stýrisenda í Corollu þannig að allt sé í drasli hvað hjólastillingu varðar, tala nú ekki um dempara í Legacy, en engum virðist koma það við. Undarlegt.
kv
Grímur
11.07.2007 at 19:28 #593500finnst mér vera fórnarlömb númer tvö í þessu máli, ef satt reynist.
Það er að líkindum mestmegnis skeytingarleysi foreldranna að kenna hversu langt þetta gekk.
Jafnframt eiga þessi börn eftir að komast að því seinna meir hversu rangt þetta var og þurfa að burðast með það.
Sveiattan bara!
10.07.2007 at 20:29 #591964[url=http://www.dieselservices.com/html/gm_diesel/6_2_Litre_Diesel/gm-diesel-special/stud_girdle_kit_p78.cfm?CFID=5225328&CFTOKEN=24939020:1f8vdqhr]Spurning um eitthvað svona til að hafa blokkina til friðs[/url:1f8vdqhr]
29.06.2007 at 00:13 #592966Ég öðlaðist algerlega nýja sýn á íslenska umferðarmenningu eftir 2 vikur í Tælandi núna í vor.
Villimennskan í umferðinni þar er alveg með ólíkindum, en t.d. í Bangkok kemst maður hraðast yfir á minni farartækjum!!!
Það þykir heldur ekkert tiltökumál að taka framúr á tvíbreiðum vegi þó svo að það sé bíll á móti….svo lengi sem vegurinn er nokkurn veginn nógu breiður fyrir 3.
Ég er ekki að segja að við séum fullkomin hérna á klakanum, langt því frá, en þetta gæti líka verið svo mikið verra!
23.06.2007 at 00:27 #592726…nú ekki öll vitleysan eins, sem betur fer
16.05.2007 at 22:21 #590940Þar sem við erum á mörkunum milli keppnis- og götu-, og eiginlega í performance-götu- flokknum, þá er loftkældur cooler trúlega málið hér.
Ég hef áður lýst vantrú minni á hlutverki vatnskerfis [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/9796:13cbckcg]hér[/url:13cbckcg] sem millilið í þessu samhengi, og ítreka það hér með. Þetta er í mínum haus bara lausn á vandamálum, ekki aukning á afköstum….kv
Grímur
16.05.2007 at 22:03 #591166Mjög breið 36" dekk hafa ekki haft orð á sér fyrir að koma vel út í snjó. Svo virðist sem að þau myndi full mikla mótstöðu vegna þess að þau vantar hæð, miðað við breiddina.
Ég var einmitt að versla 35×12.5×15 DC-II, og varð það á að mæla þau, og það sem mér kom mest á óvart var að þau standa mál alveg ótrúlega vel. Bjóst einhvern veginn við að þetta væri lítillega stærra en einhver 33" dekk, en málbandið bendir til að þau séu mikið nær 38" GH (sem er undir öðrum bíl við hliðina á Valhopparanum í bílskúrnum) heldur en ég bjóst við.
Hins vegar vil ég taka það fram, að ég er ekki búinn að prófa þessi dekk ennþá, og get ekki dæmt um þau að öðru leyti en því að þau eru verkleg miðað við 35".
Jafnframt benti Freysi mér á að þau væru rúm á felgunum, sem er gott að hafa í huga. Ég held að það sé ekki galið að líma þau á felgurnar ef það eru ekki sæmilegar brúnir….kv
Grímur
16.05.2007 at 21:47 #591236Góðuuur
Við megum náttúrulega ekki vera dónalegir við pólverjana vini okkar, en þetta er bara sniðugt
05.05.2007 at 11:53 #590364það getur nú verið nokkuð seigt í þessum herpihólkum, auðvitað er það ekki nein eilífðarlausn þannig lagað.
Það besta er náttúrulega svona nælonslíf(kannski ekki nælon endilega).
04.05.2007 at 17:34 #590352Kraftur
^
|+—————————————*——————————o
|+———————————*—————————o
|+—————————-*———————-o
|+———————-*——————o
|+—————-*————–o
|+———-*———o
|+—-*— o
|*o_____________________________
Vegalengd >Þetta mjög svo frumstæða graf sýnir að ég held nokkurn veginn það sem er að gerast hjá "óteygjanlegum spotta", merkt með "+", sverari eða styttri spotta merkt með *, og lengri/grennri spotta merkt með o.
Í raun er þetta að öllum líkindum ekki línulegt, en við gefum okkur það til einföldunar.
Orkan sem safnað er upp, er flöturinn undir ferlunum. Þar af leiðandi er orkan=(vegalengd x lokakraftur) / 2.
Þetta segir okkur að lokakrafturinn er mikilvæg breyta, en það er einmitt að hluta háð tog-getu bíls sem aftur ræðst af þyngd, færi, dekkjum o.s.frv.
Þetta er hins vegar breyta sem við fáum litlu um ráðið þegar á hólminn er komið. Hins vegar getum við notað grennri kaðal, sem aftur takmarkar lokakraft vegna hættu á að slíta.Það sem eftir stendur er að ná að auka ,,virka orkusöfnunarvegalengd" ef svo má að orði komast, með því að hafa lengri spotta. Of langur spotti hefur samt mjög takmarkað notagildi, þar sem hann þarf jafnframt lengri vegalengd til að skila orkunni til baka með því að draga hið farlama ökutæki úr festunni….
Hvernig ætli það kæmi út að splæsa lykkjur inn á ca. 25 metra kaðal í t.d. 15 og 20 metrum?
Þá væri hægt að nota 25metrana þegar léttur bíll dregur(mýkra og lengra átak, minni hætta á slitum og djöfulgangi), en t.d. 15 metrana þegar þyngri bíll tekur í, sem þarf ekki eins mikinn hraða til að ná fullnægjandi krafti…?…bara svona vangaveltur úr sófanum…hvað finnst ykkur? Er þetta kannski bara algert bull?
kv
Grímur
-
AuthorReplies