Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.11.2005 at 22:11 #530802
Ég var í vandræðum síðasta vetur, rærnar voru sífellt að losna og boltarnir að slitna. Byrjaði síðan að smyrja boltana og síðan hefur ekki borið á þessu. Ég hef alltaf notað herslumæli og herslan á Patrol er max. 147 nm sem er sama og 1300 lbf in.
GG
28.10.2005 at 18:38 #530100Erum að fara í kvöld í Setrið sennilega um Kjalveg og Kerlingafjöll á 3 Patrol 44". Bergur, þú getur hringt í mig eða Setrið á morgun síminn hjá mér er 855 1857.
GG
28.10.2005 at 08:11 #530112Held að búið sé að koma í veg fyrir þessi vélavandræði frá og með árgerð 2002 eða 2003.
GG
08.10.2005 at 22:42 #528950Aukamillikassinn frá Ljónsstaðabræðrum er orginal Patrol kassi sem þeir hafa breytt og hefur reynst vel. Með Ægisaukamillikassanum sem er með hlutföllunum 1:2.7 og Ástralíuhlutföllin sem er 1:3.7 í millikassan hefurðu mjög mikla niðurgírun, því lægra því betra.
08.10.2005 at 12:12 #528946Þessi Patrol aukamillikassi gæti kosta 250 – 300.000.- með Ástralíuhlutföllunum.
Einnig hefur Renniverkstæði Ægis verið með aukamillikassa með hlutföllunum 1:2,7.
09.08.2005 at 22:48 #525576Kærar þakkir fyrir svörin. Það stendur til að fara þarna um á föstudaginn. Eruð þið nokkuð með hnitin við Gnapavað?
Kv. Gísli
09.08.2005 at 11:04 #196143Er einhver sem hefur farið nýlega yfir Tungnaá eða veit um ástand vaðsins til að komast frá Jökulheimum yfir á Breiðbak?
Gísli
13.06.2005 at 23:56 #524030Keypti fyrir 2 árum viftuspaðakúplinguna hjá Bílanaust á rúmar 10.000.- kr..
Varðandi miðjugatið í felgunum er mikilvægt að hún sé sú sama og náið og hafi þar stýringu ef þú ætlar í 44". Hef lent í vandræðum með að slíta felgubolta ef þetta fer ekki saman.Kv. Gísli
23.05.2005 at 14:46 #523316Ég undirritaður félagi í Ferðaklúbbnum 4×4 mótmæli 50 sm. ákvæðinu í 4. gr. reglugerðarinnar um Akstur utan vega.
Gísli Gíslason kt 1606574809
12.05.2005 at 11:24 #522478Samkvæmt Fréttabréfi Jöklarannsóknafélagsins frá apríl 2005 (sjá http://jorfi.is/frettabr/2005-04.pdf) er akstursbann sunnan Snæbreiðar frá 20. apríl til 15. september og má ekki fara sunnar en 64°.01′ N. Akstursbann á Hvannadalshnjúk er hins vegar allt árið.
GG
20.04.2005 at 16:27 #521496Þessi sigketill er í Grímsvatnaskarði að ég held (64°24,75’N, 17°13,85′) sjá á heimasíðu JÖRFÍ http://www.jorfi.is/04ggos.htm um Grímsvatnagosið 2004 og . Leiðin austur af Grímsfjalli frá Eystri Svíahnúk er hefðbundin eins og undanfarin ár. Ég fór þarna um 9. – 13. mars í ár. Svo er sigketillinn sem er búinn að vera í nokkur ár enn á sínum stað þegar ekið er austur frá Grímsfjalli en ég þekki ekki hnitin á honum.
Kveðja, Gísli.
13.04.2005 at 22:53 #195833Er einhver sem getur hjálpað mér með track af Þorskafjarðarheiði og Glámu. Ef svo er þá senda á mig á gisli.g@isl.is og gisli@ark.is hvort sem er fyrir Nobeltec eða MapSource.
Er með gsm 822 2063Kveðja, Gísli
28.03.2005 at 10:40 #520014KE-Málmsmíði smíðar svona kassa fyrir þig,sjá auglýsingu hér neðst vinstra meginn á síðunni.
Gísli
11.02.2005 at 22:18 #51663210.02.2005 at 09:22 #510804Sæll Benni
Hef áhuga á að vera með, en ég sé bara 18 bolta í 15" hringjunum?
Gísli.
09.12.2004 at 20:52 #510780Á heimasíðu Rockstomper geturðu sótt þér fróðleik varðandi Beatlocks eða hreinlega pantað þér kit á $80 á felgu auk flutnings- og gjalda:
http://www.rockstomper.com/catalog/wheels/beadlocks.htm
Lét Magga http://www.felgur.is/ smíða fyrir mig Beatlocks og reynist það vel í alla staði.Kv. Gísli
09.12.2004 at 18:35 #510554Sá svona Beadlock felgur á nýja Land Cruiser 120 44" bílnum sem Hjálparsveit Garðabæ voru að fá sér og sögðu þeir mér að þeir hefðu fengið þær hjá Arcti Trucks.
Kveðja, Gísli
08.12.2004 at 21:44 #510518Ég ætla að taka 4 stk. 44".
Kveðja, Gísli
01.12.2004 at 20:48 #510084Hvar og hvaða lokur keyptir þú Kalli.
Kveðja, Gísli.
21.11.2004 at 00:08 #509148Já það er rétt, drifhlutföll í 2.8 og 3.0 Patrol eru 1:4,625 en í 4.2 Patrol voru 1:4,11 hjá mér (áttu að vera 1:3.9 skv. kokkabókunum). Setti 1:4,625 þar sem gírkassinn er lægri hjá mér í 4.2 Patrol og það kemur hagstæðast út.
Kær kveðja, Gísli.
-
AuthorReplies