Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.03.2009 at 17:19 #642522
Sæll Hrannar.
Fórum suður Mýrdalsjökul frá Strút og niður hjá Sólheimajökli á sunnudaginn var. Færðin var mjög þung. Svona mestmegnis "lóló" færi á 44" – 46".
Kveðja – Gísli.
12.12.2008 at 15:04 #634438Smurstöðin í Garðabæ veitir 4×4 félögum góðan afslátt, var að láta smyrja hjá þeim áðan, mjög góð þjónusta hjá þeim.
Kveðja – Gísli
10.07.2008 at 16:07 #625560Ég var með þessi vandræði að slíta felgubolta en eftir að ég byrjaði að smyrja felguboltana með WD-40 þá hef ég ekki slitið þá síðan. Hef alltaf notað herslumæli með 147 Nm herslu. En það þarf alltaf að fylgjast með herslunni sérstaklega á 44".
Kveðja – Gísli
06.07.2008 at 23:19 #625514Var þarna í gær, laugardag. Allt á kafi í snjó ennþá.
Kveðja – Gísli
11.05.2008 at 18:25 #622680Hérna linkurinn á [url=http://www.4x4offroads.com/old-army-trucks.html:2b7axg4q][b:2b7axg4q]hertrukkamyndirnar úr Markarfljóti[/b:2b7axg4q][/url:2b7axg4q] sem Olgeir er að tala um. Skemmtilegar myndir þarna.
Kveðja – Gísli
15.03.2008 at 11:56 #608608Það sem skapar þetta vandamál er að öxullinn er að dragast inn við átak og dregst því úr lokunni og svíkur þá lokan. Á sumum bílum vantar stálskinnu fyrir innan splittið á öxlinum ( fyrir utan legustútinn) sem heldur þá öxlinum föstum lengra úti. Kunningi minn var með þetta vandamál og fékk þessar stálskinnur (eina í hvort hjól) hjá Kidda Bergssyni á Selfossi og vandamálið leyst. Skinnuna getið þið fengið úr bílum sem Kiddi hefur verið að rífa eða etv. hjá umboðinu.
Kveðja – Gísli
10.03.2008 at 10:25 #616454Ég er með.
Kveðja – Gísli R-2257
21.02.2008 at 20:29 #614584Vorum að koma úr Landmannalaugum. Fórum Valagjáarleið og þræddum allar hlíðar. Það tók okkur 11 klst að komast innúr á þremur 44" og einum 49" bíl. Krapinn hætii ekki fyrr en þegar við komum inn að Tjörvafelli. Hraunið er ófært, reyndum við það í bakaleiðinni. Heimferðin gekk mun betur þar sem við höfðum förin.
Kveðja – Gísli
18.02.2008 at 20:10 #201897Er að fara inn í Landmannalaugar, vantar upplýsingar um færið ef einhverjir voru þar á ferð um síðastliðna helgi.
Kveðja – Gísli.
18.10.2007 at 09:21 #600274Sælir
Keypti ballanstangarendana í Bílanaust en þeir endust ekki lengi. Það skiptir ekki miklu máli hvort það eru ballansstangir í Patrol. Endaði með því að taka ballansstangirnar úr hjá mér og sakna ég þeirra ekki.
Kveðja – Gísli
01.07.2007 at 21:32 #593054N1 (Bílanaust) er að selja Universal dælu (ég hef notað þessa ferköntuðu). Það er nauðsynlegt að festa hana við botninn á bílnum svo maður heyri vel þegar hún fer að dæla tóm, því ef hún gerir það er dælan fljót að bræða úr sér.
Kveðja – Gísli
04.06.2007 at 12:34 #591872Sælir
Sá hjá mér í gær að það flæddi olía út úr segulrofanum fyrir framdrifslæsinguna. Hvað slanga var stífluð hjá þér Kalli og hvernig lagfærðuð þið þetta?
Kveðja – Gísli
22.04.2007 at 16:01 #589110Hafa litlu einangrunarskinnurnar eitthvað misfarist hjá þér þegar þú varst að skipta um glóðakertin?
Kveðja – Gísli
01.04.2007 at 16:52 #586754Hafnfirðaingar voru að kjósa um breytingu á deiliskipulagi þ.e. stækkun lóðar ALCAN. Þótt tillagan hafi verið felld kemur það ekki í veg fyrir að ALCAN stækki og auki framleiðslugetu sína um helming á núverandi lóð með bættum búnaði og aukinni nýtingu lóðar.
Kveðja – Gísli
01.03.2007 at 20:50 #582930Leitt að heyra Óskar
Það er relay ásamt fleyrum relayum í boxi ofan á innra hægra brettinu í húddinu. Það gæti hafa skemst. Svo er talvan sem er innan farþegamegin þar sem öryggjaboxið er, hún gæti hafa skemst. Það er möguleiki að láta Rafstillingu í Dugguvogi 23 gera við þessa hluti. Gangi þér vel.
Kveðja – Gísli
02.02.2007 at 20:32 #578654Ég á varir handa þér sem er af WARN spili en hún er úr stáli. Er í GSM 822 2063.
Kveðja – Gísli
20.12.2006 at 20:23 #572032Ég var í vandræðum þarsíðasta vetur á 44", rærnar voru sífellt að losna og boltarnir að slitna. Byrjaði síðan að smyrja boltana með örlytlu af WD-40 og síðan hefur ekki borið á þessu. Ég hef alltaf notað herslumæli og herslan á Patrol er max. 147 nm sem er sama og 1300 lbf in.. Svo er líka ágæt regla að tékka á herslunni áður en farið er á fjöll.
Kveðja – Gísli
29.11.2006 at 19:01 #565418Er eitthvað að frétta af þessu máli ?
Kveðja – Gísli
04.11.2006 at 13:58 #566600Hnitin á Jaka eru N 64°38.760 og W 020°34.080
Kveðja – Gísli
31.10.2006 at 21:22 #565416DC 44" stendur einungis 42" þannig að vera með 38" breytingaskoðaðan bíl er innan við 10% regluna með 1% vikmörkum.
Kveðja – Gísli
-
AuthorReplies