Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.05.2011 at 12:08 #219182
Eru einhverjir hér á leið upp að Grímsfjalli á morgun ? Ég er á 38″ Patrol og stefni uppettir.
Kveðja
Georg
6915155
27.02.2009 at 19:06 #203927Hefur einhver ekið þarna nýlega. Hvernig er færðin ?
21.02.2009 at 17:21 #641570OK Friðrik ég verð í sambandi við ykkur á VHF 52 þegar ég nálgast Húsafell sem verður væntanlega um 11:00. Fer væntanlega Uxahryggi sökum krapa. Samúel: Gætum verið í sambandi ef þú ætlar að fara, t.d. hisst á N1 í Mosó rétt rúmlega 9 ? Verð með á rás 52 þegar ég legg í´an allavega.
21.02.2009 at 10:51 #641564?
20.02.2009 at 19:18 #203864Er einhver á flakki um Kaldadal á sunnudagsmorgun ? Hafa menn hugmynd um hvernig færið er þarna uppfrá ? Er á leiðinni á Langjökul á sunnudag með nokkra erlenda gesti á 38″ Patrol, væri til í að komast í samflot með öðrum jeppum ef þeir eru á ferðinni. Kveðja Georg 6915155
01.01.2009 at 13:37 #635838Sammála þessu..hef farið nokkrum sinnum með Patrolinn til þeirra. Alltaf gengið mjög vel og helypa manni ekki út fyrr en menn eru ánægðir. Veit ekki hvort þeir séu alltaf ódýrastir en eru allavega góðir.
02.11.2008 at 12:15 #203143Erum hópur 7 jeppa að fara inn í Landmannalaugar næstu helgi (8. -9. nóv). Hluti þessara jeppa eru óbreyttir á 29″ dekkjum. Langar að forvitnast hjá ykkur hvernig færið er þarna fyrir óbreytta ? Hefur einhver verið þarna nýlega ?
11.09.2008 at 01:01 #202895Gott fólk,
Erum fríður hópur að fara upp í Setur um helgina. Vitið þið hvar hægt er að leigja eins og 6 stk. VHF handstöðvar á viðráðanlegu verði ?
26.08.2008 at 12:54 #628184Hálsríg eftir 2,8 Patrol – hmmm…Það er ótrúlegt…hélt einmitt að Patrolinn væri góður í að þjálfa upp þolinmóða bílstjóra sem eru yfirleitt ekkert að flýta sér
En þetta er góð hugmynd að troða svona vél í húddið þó ég sé reyndar bara mjög sáttur við minn Patt – 3.0. Maður er þá ekki að missa´n í spól í óþarfa !
23.08.2008 at 20:55 #627942Svo má athuga Jeppaparta Funhöfða…
20.05.2008 at 00:35 #623128Fór upp í Skálpanes á föstudaginn. Smá drulla á köflum á Kjalvegi, ekkert alvarlegt, fært hvaða jeppa sem er. Vegurinn frá Kjalvegi inn að Skálpa er ekkert annað en blautur snjór og erfiður, þurfum að fara niður í 5 pund á 38" bílum en reddaðist alveg.
26.03.2008 at 20:17 #618528Sælt veri fólkið…Þetta fékk ég í pósthólfið mitt nokkrum sinnum í dag. Hef ekki hugmynd um hver stendur fyrir þessu enda finnst mér það ekki skipta máli. Það sem skiptir máli er að bifreiða eigendur sýni samstöðu og mótmæli, hér er tækifærið !
Georg
26.03.2008 at 10:12 #202182KOMA SVO!!
Mótmæli gegn bensínverði, fimmtudaginn 3 apríl kl 16:00 fyrir utan
Alþingishúsið!!!LÁTA BERAST…!!!
Hverjir mæta ?
18.03.2008 at 13:47 #617906Takk fyrir þetta kærlega. Förum á einum fullorðnum (ef 38" Patrol er enn kallaður fullorðinn) og svo óbreyttum Cruser, tökum þá góðan spotta með. Förum á föstudag og gistum í Básum.
17.03.2008 at 22:19 #202121Hefur einhver farið í Þórsmörk nýlega. Hvernig gengur að fara innettir á óbreyttum 31″ Crúser 120 ?
11.03.2008 at 21:33 #617340Já vá þetta er svakalegt…. ótrúlegt að engin hafi slasast
11.03.2008 at 21:27 #617274Það eru tveir menn sem eiga allt í Patrol. Hann Kiddi Bergs á Selfossi 8924030 og Siggi í Jeppapörtum Tangarhöfða 2 s. 587 5058. Tékkaðu á þeim.
19.01.2008 at 03:26 #610572Jú þetta var nokkuð fyndið með snorkel töffarana þarna í ferðinni stóru á þriðjudaginn. 40 bílar á fullu, askoti margir með snorkel. Svo heyrði maður í talstöðinni öðru hvoru "Ég þarf að stoppa því að vélin sofnaði" og smátt og smátt týndust töffararnir aftur úr á meðan við snorkel lausu héngum áfram akandi…..Svona þróast hlutirnir, það er kannski ekki alltaf gott að modifæa svona mikið ! En jú svo koma aðstæður þar sem gott er að hafa snorkel en greinilega ekki í blinda bil og snjókomu…..
05.01.2008 at 18:13 #609110Ég tek undir þessa umræðu. Við ættum öll að leggjast á sveif og fara í mótmæli. Fyrsta skref væri að formaður 4×4 og formaður FÍB rabbi saman, næst ræða þeir við leigubílsjóra, trukkabílstjóra og önnur bifreiðasamtök. Næsta skref er að smíða veflægan undirskriftalista, spurning hvort vefstóri f4x4 geti reddað því. Næst er að allir sendi fjöldapóst á sína tengiliði, fáum sem flestar undirskriftir. Svo að ákveða dag og tíma þar sem farið verður í fjölbíltúr þar sem menn geta dustað rykið af flautum sínum. Ég vil kvetja formann til að taka þennan bolta
Georg
04.01.2008 at 21:01 #201529Hef nú aldrei skilið þessa umræðu um latar Patrol bifreiðar. Rakst á þetta myndband þar sem glögglega má sjá 3.0 disel Patrol (með túrbínu) taka Lamborhini hressilega í nefið. Veit ekki hvort þið Toyota aðdáendir hafið svona staðfestar heimildir ritaðar á ljósvaka internetsins, en hér kemur amsk. ein sönnunin :
-
AuthorReplies