Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.01.2011 at 00:33 #716912
Ég setti nýlega progressive gorma frá MOOG undir cherokeeinn að framan. Númerið á þeim er CC782, ég tók þá gegnum bílabúð benna og þeir kostuðu mig rétt rúml. 22.000 parið. Ég hef ekki enn farið í ferð með þá en tilraunir á hraðahindrunum borgarinnar lofa mjög góðu. Þetta er gormar með meiri burð en orginal en eiga ekki að lyfta bílnum. Gormarnir hjá mér voru orðnir 13 ára og eknir rúm 100.000 km og farnir að sligast eitthvað og við skiptin hækkaði bíllinn um 2 cm þó ég fjarlægði 2 cm klossa þegar ég skipti = 4 cm lyft sem þeir gefa, munu svo væntanlega siga smá til að byrja með. Fer í ferð um helgina og þá kemur betur í ljós hvernig þeir reynast en ég held að mér sé óhætt að mæla með þeim.
Kv. Freyr
21.01.2011 at 00:23 #714816Er með Skeljungs viðskiptakort (samt ekki gengum 4×4) og dældi áðan fyrir rúmlega 42.000 í einni lotu hjá Orkunni á seltjarnarnesi.
Kv. Freyr
06.01.2011 at 01:04 #715304Hefur bóndinn rétt á því að loka veginum uppeftir sem liggur jú að skálum, m.a. í eigu Útivistar? Spyr sá sem ekki veit…….
Kv. Freyr
05.01.2011 at 00:51 #715118Ég myndi veðja á sveifarásskynjarann. Þeir eru ekki nógu góðir í cherokee og grand cherokee (er þinn ekki ’95 grand með 5,2?) og klikka leiðinlega oft, geta valdið ýmsum undarlegheitum og gangtruflunum sem koma og fara, en versna smám saman þar til bíllinn verður óökuhæfur.
Ég myndi taka hann úr og þrífa hann vel, þrífa tengið vel með þar til gerðu hreinsiefni og setja í það "contact spray" fyrir samsetningu. Við þetta giska ég á að bíllinn verði betri/fullgóður í einhvern tíma en detti svo aftur í sama farið. Þá ertu 100% viss um að þetta sé málið en ekki e-ð annað.
Kv. Freyr
05.01.2011 at 00:31 #715066Bæði ég og frúin búin að skrifa undir auk þess að pósta þessu á facebook
Freyr
02.01.2011 at 13:54 #714424Hafðu bara samband við þá sem voru í leiðangrinum, þeir hljóta að eiga þetta til. Þekki svosem ekki mikið til þeirra en þarna var a.m.k. Fjalli ef ég man rétt.
Freyr
02.01.2011 at 13:51 #714890Legurnar kaupi ég hjá stál og stansar en pakkdósirnar sem þeir selja eru ekki góðar. Gúmmívörin á þeim sem þéttir við legustútinn er allt of þykk og mikil og myndar smá fyrirstöðu þegar hert er að legunum sem gerir að verkum að það er leiðinlegt að ná réttri herslu á legurnar, ég kaupi dósirnar hjá IH.
Kv. Freyr
30.12.2010 at 01:10 #216611Sæl öll
Mig langar í stýfari framgorma í Cherokee-inn hjá mér. Helst vildi ég sleppa við að kaupa mér nýja gorma frá t.d. OME og kaupa notaða gorma úr t.d. Grand Cherokee. Hefur einhver hérna prófað grand gorma og hvernig kom það út???
Kv. Freyr
29.12.2010 at 00:25 #713698Það eru frábærar fréttir! Mætti ég forvitnast um með hvaða hætti það hafðist? Gegnum lögguna, spjallþræði, Facebook eða hvað???
Kv. Freyr
26.12.2010 at 15:24 #713690Vona að dekkin rati í réttar hendur aftur, ömurlegt að lenda í svonalöguðu.
Freyr
06.12.2010 at 00:06 #712678"……það má reikna með að í vetrarnotkun þurfi ljósavél og kamína á bilinu 90 til 120 lítra af olíu á sólarhring……."
Setrið eyðir s.s. jafn miklu eða meira eldsneyti á dag heldur en jepparnir okkar á venjulegum degi í snjó, hvaða rugl er það???????????? Það er greinilega allt of stór/óhagkvæm ljósavél eða rafkerfið of umfangsmikið með öll sín raftæki, kastara o.fl.
Kv. Freyr
05.12.2010 at 23:53 #712676Húsið er allt of stórt og mikil heildareining. Það þyrfti að vera hægt að vera í og hita upp lítinn hluta þess. Sjálfur ferðast ég yfirleitt í 2-4 manna hóp á 1-2 bílum á veturna og einbíla á sumrin og hef því ekki gist í Setrinu í mörg ár nema aðrir hópar séu þar fyrir.
Vissulega er ekki gott að reka húsið með tapi en lágmarksgjald fyrir allt "skrímslið" er ekki rétta leiðin heldur þarf að haga hlutunum þannig að fáir geti gist í afmörkuðum hluta hússins.
Kveðja Freyr
13.11.2010 at 10:17 #215806Sæl öll
Við erum tveir að fara úr Reykjavík á eftir um kl. 13.00 og komum heim annað kvöld og þætti gaman ef einhver hefði áhuga á að koma með á öðrum jeppa. Ætlum að sofa í Dalakofa vestan við Laufafell og keyra e-ð skemmtilegt á morgun, t.d. fara í Hrafntinnusker.
Helst vildum við fá 38″+ bíl með okkur en 35″ bíll kemur til greina ef bíllinn er léttur. Verðum sjálfir á 38″ cherokee, læstum fr. + aft. VHF er kostur en ekki skilyrði.
Kveðja, Freyr S: 661-2153
03.11.2010 at 22:25 #708920Ég myndi hiklaust bara keyra með tappana í án þess að hafa nokkrar áhyggjur af því. Safety Seal (rauðu klessutapparnir) hafa reynst mér mun betur heldur en tappar þar sem límið er í sér dollu.
Freyr
28.10.2010 at 22:38 #708018Það er rétt þetta með að tipla á bremsuna, það virkar til að láta læsinguna taka á. Er með svona hjá mér í báðum hásingum og er mjög sáttur.
Freyr
26.10.2010 at 21:22 #707860Dælu úr 6,5 chevrolet diesel sem fæst hjá N1, hef notað svoleiðis með góðum árangri en hún kostar sitt, borgaði 11.000 fyrir mína og það eru tæp 3 ár síðan svo sennilega er það 20.000 í dag.
Varðandi uppsetningu þá er best að hafa dæluna ekki langt fyrir ofan tankinn því þær eiga flestar erfitt með að sjúga mikið upp. Tengja dæluna gegnum rofa og relay og hafa öryggi á öllum lögnum sem teknar eru frá geymi. Velja rofa með gaumljósi til að dælan gleymist ekki á því þær endast illa ef þær eru látnar ganga þurrar. Setja síu á lögnina frá aukatank að dælu til að dælan fyllist ekki af drullu. Það er sía framaná 6.5 dælunni en ég held að það sé ekki hægt að fá hana staka svo ekki sleppa því að setja auka síu.
Kv. Freyr
26.10.2010 at 21:14 #707660Var að setja AC dælu í Cherokee inn hjá mér og gekk svona frá loftkerfinu:
Dælan sýgur loft í gegnum síu og smurglas sem inniheldur loftpressuolíu. Hún dælir því út í gegnum rakaglas og frammhjá ARB rofa sem er ON@ 70 psi / OFF @100 psi og svo þaðan í gegnum einstefnuloka inn á 10 l. loftkút. Frá kútnum er plastlögn að þrýstimæli sem er frammí. Á kútnum er ventill til að hleypa vatni og olíu undann honum, yfirþrýstiventill sem ég stillti á 115 psi og svo liggur lögn frá honum afturí loftkúplingu sem er undir bensínlokinu. Allar slöngur eru 1/2" og íhlutir ýmist 1/2" eða 3/8".
Þegar ég tengdi 8 mm loftslönguna (sem er slanga eins og allir eru með) við þetta kerfi byggði það upp 20 psi þrýsting vegna viðnámsins í slöngunni sem er ekki nógu gott. Því græjaði ég 10 mm slöngu með kúluloka rétt við endann sem fer upp á ventilinn á felgunni og lét kveikja 10 mm slöngustút á stykkið sem fer upp á felguventilinn og boraði stykkið út eins og hægt var og tók úr því litla tittinn og gorminn til að opna sem mest fyrir flæðið (virkar þá bara á pílulausa ventla).
Rafmagnið fyrir segulkúplinguna kemur frá rofanum gegnum ARB rofann inn á 85 á relay, 86 til jarðar, 12 V gegnum öryggi inn á 30 á relayinu og út á 87 til segulkúplingarinnar.
Kv. Freyr
16.10.2010 at 10:59 #706602[quote="Þorsteinn":1msqo7vc]Þegar þú smíðar tankinn úr svörtu, hvað ertu með þykkt efni í honum? var tankurinn húðaður að innan hjá pabba þínum?
kv. Þorsteinn[/quote:1msqo7vc]
Tankurinn var með botn, fram og afturhlið úr einni plötu sem var beygð. Minnir að ég hafi haft hana 1,5 mm því tankurinn skagaði svolítið niður undann grindinni en restin úr 1 mm.
Tankurinn hjá pabba var ekki húðaður að innan eftir því sem ég best veit, það var ekki ég sem skar hann upp og sauð upp á nýtt.
Kv. Freyr
16.10.2010 at 10:55 #706600"En að sjálfsögður er bara best að tala við fagaðila og þau verkstæði sem þekkja þetta."
Það er nú ekki víst að það hjálpi. Tankurinn hjá pabba (aftast undir 80 cruiser) er smíðaður hjá Prófílstál og hann var s.s. úr áli og með fjórum ásoðnum eyrum sem voru boltuð föst við fjögur eyru sem soðin voru á grindina. Þetta er auðvitað handónýtur frágangur á festingum og auk þess var ekkert skilrúm í tanknum þó hann væri 140 lítrar sem er auðvitað ekki nógu gott heldur.
Freyr
15.10.2010 at 19:06 #706594Í mínum huga er ál vont efni í aukatanka. Hef slæma reynslu af því sjálfur og pabbi minn líka. Vandamálið er að þeir fara nákvæmlega eins og þú ert að lýsa, springa á suðum. Gerði einu sinni við tankinn sem ég var með og það entist tvær fjallaferðir, þá var hann enn verri en í fyrra skiptið. Smíðaði þá eins tank úr svörtu stáli og hann hefur verið vandamálafrír í nokkur ár. Um daginn var gert við tankinn hjá pabba og það entist í tvær vikur í innanbæjarakstri, aftur farin að smita gegnum suður. Sá tankur er nú kominn út á gólf og ég mun smíða annan svipaðann úr svörtu.
Það að vera með ásoðin eyru og bolta fast við grind er alveg bannað, sama þótt þau séu bara þrjú. Þú endar alltaf í sprunguveseni og þá sérstaklega ef tankurinn er úr áli. Það er ástæða fyrir því að ekki einn einasti bílaframleiðandi boltar tankana fasta mér vitanlega heldur hanga þeir alltaf í einhverskonar gjörðum. Þú verður annaðhvort að hengja hann upp eða setja gúmmífóðringu á eyrun sem eru á tanknum hjá þér til að minnka spennuna sem verður í tanknum.
Freyr
-
AuthorReplies