FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Freyr Þórsson

Freyr Þórsson

Profile picture of Freyr Þórsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 10 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 811 total)
← 1 … 7 8 9 … 41 →
  • Author
    Replies
  • 16.05.2011 at 00:47 #730243
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Nei, en skyggnið var líka ekki neitt, stærstan hluta leiðarinnar á jöklinum báðar leiðir sá ég bara kastarana framaná bílnum hjá mér en annars ekki neitt, algjör snjóblinda. Það á að aka rétt norðan við goðabungu en ekki beint fram af henni eða sunnar (einu sprungurnar sem ég hef orðið var við eða heyrt af almennt á þessu svæði eru kringum bunguna. Síðan er ekið í nær hávestur eftir hryggnum vestur úr bungunni. Niðri við hálsinn eru tvær leiðir í boði. Að fara í smá sveig til norðurs og slást þá við hliðarhalla dágóðann spotta eða fara í smá sveig í suður og sleppa nær alveg við hliðarhalla en aka upp býsna bratta brekku til norðurs til að komast á flatlendið upp á hálsinum. Ég fer nær alltaf syðri leiðina og gerði það síðustu helgi og varð s.s. ekki var við neinar sprungur. Það eina sem ég varð var við á jöklinum annað en "sléttan" snjó voru smá íshryggir/íspollar í á að giska kringum 1.000 m. hæð ofan við Sólheimahjáleigu.

    Tek það fram að þessar upplýsingar birti ég algjörlega án allrar ábyrgðar…………………..

    Kv. Freyr





    15.05.2011 at 11:40 #730237
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    [quote="lilli":2u57k166]Sæll Freyr.

    Hvernig er að komast upp, gátuð þið farið upp hjá Skógum eða er allt þar "lok lok og læs" ennþá?

    Kv. Sigurþór[/quote:2u57k166]

    Við keyrðum yfir mýrdalsjökul. Það er nægur snjór bæði á jöklinum og hálsinum.





    14.05.2011 at 20:56 #219020
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæl öll

    Var að koma af Fimmvöðruhálsi. Núna er hryggurinn sem liggur í vestur frá Útivistarskálanum varasamur. Snjóhengjan sem myndast alltaf N-megin á hryggnum er að skríða fram og það er sprunga í snjónum allt að 10 metra frá brúninni. Sprungan er eiginlega akkúrat í hefðbundnu akstursleiðinni svo við keyrðum aðeins sunnar en vant er. Mætti bæta við að í kringum nýja hraunið er töluvert af holum og göngum í snjónum undir yfirborðinu.

    Freyr





    11.05.2011 at 11:58 #729965
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    [quote="Atli":2uk5aoty][quote="freyr":2uk5aoty]ég er með eina spurningu: Af hverju var ekki mokað frá vinstri hliðinni og einnig framan við bílinn til að losa um hann og minnka skemmdir og draga úr átökunum við að ná honum upp, jafnvel að moka líka undan hægri hliðinni til að minnka hallann (að því gefnu að hann hafi ekki verið á ís og vatn undir)?Freyr[/quote:2uk5aoty]

    Það var ekkert vinstramegin nema fljótandi krapi og þar fyrir neðan um 2m djúpt vatn. ef við hefðum brotið ís undan bílnum, þá hefði hann farið ofan í, á bóla kaf og lílega á hliðina eða toppinn.
    Enda var gatið á ísnum akkurat passlegt fyrir 1stk Overland.

    Ástæðan fyrir því að þetta gerist er sú að á fimmtudegi fyrir páska þá er einmitt hvíti snjóbíllinn (sem dregur Overland upp síðar) á leið inn í Laugar.
    Hann keyrir út á ísinn og fer niður. Bjsv. menn ná snjóbílinum upp með sínu dóti og mannskap.

    Þegar við förum innúr, þá lítur þetta ekkert ílla út, þannig lagað.
    Ég er t.d. nokkuð viss um að ég hafi bara ekið yfir þetta á stóru-ferðinni á leiðinni innúr, enda leit þetta bara út eins og smá krapi á miðjum vegi.
    Linda sagðist líka vera nánast 100% viss um að gamli Wrangler hefði farið þarna yfir líka.

    Enn Birkir tekst með einstökum dugnaði að setja Overland á hlið þarna ofan í.
    Þá höfum við sem vorum á undan, líklega ferið búin að brjóta þetta upp aftur þannig að enginn burður var í ísnum.

    Þegar við vorum búin að brasa þarna innfrá í nokkrar mínútur, þá kemur einmitt hvíti snjóbíllinn að, og út úr honum stekkur vasklegur drengur og segist vera réttur til að aðstoða okkur, því hann hefa búið til gatið á fimmtudag.

    Þegar búið var að spenna snjóbílinn framan við Overland, og 4Runner´anna þvert á til að halda overland á réttum kili, þá gekk þetta bara furðu vel, Sérstaklega þegar búið var að tjakka hann upp og reka planka undir.

    Bílstjórinn á snjóbílnum og annar félagi hann voru ótrúlega vaskir að hjálpa, nærgætnir við bíl og menn.
    Það er engin spurning, að án þeirra þá hefði þetta verið stór mál að ná bílnum upp, því aðstæður voru mun verri enn þær líta út fyrir að vera á mynd.

    Kv. Atli E.[/quote:2uk5aoty]

    Þakka þér fyrir flott svar Atli. Hvernig er Overlandinn eftir volkið???





    11.05.2011 at 01:28 #729955
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæll Gísli, hér eru myndir úr nokkrum minna ferða, flestar skipulagðar af mér og mér leiðist í förum………. Fer líka stundum einbíla á fjöll á veturna, t.d. í vetur í Dalakofa/Krakatind, að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og hringinn kringum Mýrdalsjökul.

    https://old.f4x4.is/index.php?option=com … temId=6746

    http://www.facebook.com/photos.php?id=100000570254985

    Mætti svosem bæta við að ég vann við Vatnamælingar eitt sumar, var mjög virkur í björgunarsveit í nokkur ár og keyri túrista einstaka sinnum.

    Sjáumst hressir á fjöllum, kveðja Freyr (sem var á Langjökli þarsíðustu helgi, fer á Eyjafjallajökul á fimmtudag og ef fer sem horfir verður farið á Mýrdalsjökul-Torfajökul um helgina).





    10.05.2011 at 23:59 #729951
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Nú var ég vissulega ekki á staðnum og því ekki með aðstæður á hreinu en ég er með eina spurningu: Af hverju var ekki mokað frá vinstri hliðinni og einnig framan við bílinn til að losa um hann og minnka skemmdir og draga úr átökunum við að ná honum upp, jafnvel að moka líka undan hægri hliðinni til að minnka hallann (að því gefnu að hann hafi ekki verið á ís og vatn undir)?

    Annars er þetta mjög skemmtilegt video, takk fyrir mig:-)

    Freyr





    01.05.2011 at 00:53 #729379
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég er fyrst og fremst að leita að svörum frá eigendum svona bíla sem hafa beina reynslu af þessu. Gæti vel trúað að niðurstaðan verði Koni eins og mhn bendir á enda er ég sjálfur hrifinn af þeim og hef notað þá með góðum árangri, m.a. í núverandi jeppa. Einnig hef ég ágætis reynslu af Gabriel dempurum, þeir eru lítið síðri en Koni en kosta næstum helmingi minna.

    Freyr





    30.04.2011 at 17:16 #218515
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Vinur minn er með ’05 F350 og framdempararnir eru of mjúkir, bíllinn er með gormafjöðrun orginal og er á 37″ dekkjum. Hvaða dempurum mælið þið með til að fá stífari og skemmtilegri fjöðrun?????

    Kv. Freyr





    27.04.2011 at 01:00 #728991
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Tek undir með Heiðari að þetta er orðið gott.

    Væri ekki ráð að stofna sér línu á forsíðunni fyrir spurningaflóðið hans mhn og slá með því tvær flugur í einu höggi? Þá hætta spurningarnar hans að kæfa spjallþræðina og hann fær útrás fyrir þessa þörf sína.

    Kv. Freyr Þórsson





    25.04.2011 at 16:43 #727975
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Takk fyrir þessa ábendingu Samúel, þetta vissi ég ekki. Oft hef ég nú bara slegið geymasamböndunum sjálfum saman. Hef nú samt aldrei lent í að skemma tölvu (svo ég viti til) með þessu þó ég hafi gert þetta mjög oft.

    Ég held barasta að ég nái mér í viðnám í Íhluti og útbúi vír með ákjósanlegu viðnámi, hvaða viðnámi mælir þú með Samúel?

    Freyr





    22.04.2011 at 22:55 #728383
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Jæja Magnús, eiga menn s.s. bara að halda sig heima ef þeir eru ekki vel að sér um hvað er í einhverjum 4×4 myndböndum hér á síðunni? Það er s.s. mikilvægara að hanga hér á síðunni en að þekkja landið af eigin reynslu, gott að vita það……. Verð að segja fyrir mína parta að það er ekki nokkur vitglóra í þessu hjá þér í þetta sinn.

    Kv. Freyr

    P.S. Verð að viðurkenna að ég hef gaman af þessu spurningum eftir að þær hétu "spurning nr.x" en hataði þær áður þegar titlarnir gáfu eittvað allt annað til kynna og maður bjóst við einhverjum tæknilegum vangaveltum t.d. 😉





    18.04.2011 at 00:02 #727969
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    1. Taktu pólana úr sambandi og það er alveg óþarfi að bíða í einhvern x tíma. Taktu bara – sambandið af geyminum og settu svo vír, fastan lykil eða e-ð leiðandi milli – geymasambandsins og + geymasambandsins, það tæmir út af þéttum í stað þess að þurfa að bíða.
    2. Læstu/opnaðu bílinn með fjarstýringunni með allar hurðir + húdd lokað en bílstjórarúðuna niðri (ef það skyldi vera læsingavesen samhliða ræðivarnarveseninu).
    3. Prófa að setja í gang.

    Freyr





    17.04.2011 at 00:35 #727821
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Höldum þessu á forsíðunni.

    Vona að þessir aumingjar finnist sem fyrst og hlutirnir skili sér í heilu lagi til baka.

    Freyr





    17.04.2011 at 00:33 #727871
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Þetta er gott að heyra, ánægður með að hugmyndir ykkar og ábendingar falli í góðann jarðveg og vonandi á þetta sinn hlut í að málin endi farsællega fyrir alla aðila.

    Kv. Freyr





    15.04.2011 at 00:06 #727447
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    http://www.youtube.com/watch?v=NNYQidFEutw

    Njóttu





    12.04.2011 at 00:23 #727173
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Af hverju í ósköpunum á að loka á menn sem hafa ekki virkt e-mail skráð hjá sér? Nú hef ég verið félagi í klúbbnum og virkur hér á síðunni í þónokkur ár og hef eingöngu notast við mailið þegar ég er að kaupa/selja dót gegnum auglýsingar hérna. Því skil ég ekki af hverju e-mail er skilyrði til að geta verið með hérna á spjallinu?????

    Mér þótti slæmt þegar lokað var á skrif utanfélagsmanna hér á síðunni því hún datt alveg rosalega mikið niður við það, í guðanna bænum ekki gera enn meira í því að fækka spjallverjum og draga spjallið þannig enn meira niður.

    Kv. Freyr Þórsson





    03.03.2011 at 16:27 #722030
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Nú hef ég ekki kynnt mér nákvæmlega hvernig búnaðurinn vinnur sem fjallað er um. En er þetta ekki bara venjulegur HHO/"brown gas" búnaður sem skilar súrefni og vetni inn á vél með því að rafgreina vatn, svo er bara búið að krydda þetta með krómi og blárri ljósdíóðu?

    Svipað og þetta hér:

    http://cgi.ebay.com/ebaymotors/HYDROGEN … ccessories

    http://www.hhogaskitwizard.com/blog/hho … arts-list/

    Freyr





    02.03.2011 at 14:49 #721850
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Lýst ágætlega á skotið með Patreksfjörð, þá er þetta örlítið utar en flugvöllurinn og nokkurnveginn á móti byggðinni. Annars dettur mér líka í hug að sneiðingurinn utan í hlíðinni sé leiðin út á Látrabjarg og ef svo er þá er á sandinum sjávermegin við veginn steinvala í stærri kanntinum sem vegfarendur reyna oft að lyfta.

    Neðri myndinm ekki hugmynd.





    01.03.2011 at 12:25 #717802
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Lenti í veseni með Vís í sambandi við fornbílatryggingar á jeppa. Þeir vildu ekki gefa aflsáttinn fyrr en eftirá þegar sannað væri að aksturinn væri lítill, minnir að mörkin hafi verið 2.000 km á ári.





    19.02.2011 at 12:06 #720506
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Þetta er satt og rétt að hluta til a.m.k. Það bar mikið á þessu í júlí, ágúst og september, mun minna eftir það. Í stuttu máli þá var flutt inn ómerkilegt bensín með lága oktan tölu sem var leiðrétt með oktan booster (bætiefni sem sett er út í bensínið). þetta bætiefni myndaði rauða útfellingu á kertum og súrefnisskynjurum og í einhverjum tilfellum skemmdi það spíssa. Er í tímaþröng núna en skal lýsa þessu betur seinna.

    Freyr Þórsson, bifvélavirki hjá B&L-Ingvar Helgason





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 811 total)
← 1 … 7 8 9 … 41 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.