Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.07.2011 at 15:22 #734035
Byrja á að taka fram að ég hef ekki komið þarna eftir að snjórinn hörfaði frá vegendanum svo ég hef ekki séð þessar umræddu skemmdir.
Það þýðir ekki að líta bara undan og vona hið besta heldur þarf að koma í veg fyrir frekari spjöll. Nú hlýtur sveitarfélagið að hafa þokkalegar tekjur af ferðum þarna upp og ætti að vera akkur í því að tæki kæmust að jöklinum án þess að valda spjöllum svo sátt væri um ferðirnar. Það eru ekki nema innan við 4 km frá slóðaendanum að jöklinum skv. kortasjá LMÍ. Ætli það væri ekki hagur í því fyrir sveitarfélagið að lengja slóðann/troðninginn svo hann nái að jökulsporðinum, þyrfti ekki að vera góður vegur heldur bara eitthvað sem væri nóg til að menn héldu sig allir á sömu slóðinni í stað þess að dreifa sér um svæðið?
Kv. Freyr
20.07.2011 at 13:43 #733979Fór út Flateyjardal fyrir rúmri viku síðan á óbreyttum terrano og það var ekkert mál. Nokkrir lækir/litlar ár á leiðinni en allt mjög auðvelt og mjög falleg leið. Yst í dalnum er hægt að keyra upp á höfða/hól við ströndina og þaðan er flott útsýni. Beint undir hólnum þarf að fara yfir litla á og það er hylur í henni ef farið er beint yfir en með því að fara í smá sveig niður á við en hún mjög grunn.
Freyr
19.07.2011 at 00:18 #733943Diskurinn er seldur hjá Bílabúð Benna, þ.e.a.s. túrinn þegar Commanchee var spilaður upp í WARN leiðangri
18.07.2011 at 23:38 #733887Tek undir þetta, það vantar millistig á vorin meðan vegirnir eru ekki heflaðir en gætu verið torfærir án þess að það valdi skemmdum.
Hinsvegar hef ég aldrei skilið af hverju það má ekki keyra á vegum á vorin þó það sé aurbleyta í þeim og einhver snjór svo lengi sem menn halda sig undantekningarlaust á veginum og fara aldrei útfyrir, þetta er hvort eð er heflað svo ég skil ekki af hverju einhver storknuð för í gamalli drullu skipta máli þegar hefillinn heflar leiðina.
Kv. Freyr
15.07.2011 at 02:57 #733419Sæl öll
Var að koma úr vikuferð og hef engar myndir eða video séð frá Múlakvísl. Getið þið bent mér á eitthvað áhugavert???
08.07.2011 at 01:08 #733207Ingi:
Ertu ekkert hræddur um að þessi grind að aftan muni skröllta rosalega með tilheyrandi hávaða og málmþreytu???
05.07.2011 at 23:48 #733187Fékkstu þakrennurnar nýjar að utan? Er ekki útilokað að ná þeim heilum af?
29.06.2011 at 17:01 #732883Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg nógu vel að mér í því hvar málin standa nákvæmlega í dag. Eru þessar umfangsmiklu lokanir gengnar í gegn? Ef svo er, hvar get ég nálgast kort sem sýnir nákvæmlega hvar má keyra?
Freyr
20.06.2011 at 00:31 #728573Var á svona bíl 2 sumur í vinnu hjá Landsvirkjun. Þetta var fínn vinnubíll en afleitir aksturseiginleikar á malarvegum og í torfærum, hann hoppaði og skoppaði á jafnvel litlum ójöfnum.
Kv. Freyr
20.06.2011 at 00:21 #732283[quote="AgnarBen":3eb4upfu]Getur of lítill vökvi á kassanum haft þessi áhrif ?[/quote:3eb4upfu]
Ég tel ekki að það geti verið ástæðan. Ekki nema kassinn sé orðinn skemmdur sem afleiðing af of litlum vökva.
Kv. Freyr
20.06.2011 at 00:04 #732279Er erfitt/stíft að hreyfa stöngina eða er hún lipur og kassinn vill bara ekki skipta sér?
Freyr
20.06.2011 at 00:01 #732123[quote="dagur":26blng5r]Þyrlan er komin á stjá og eru vegfarendur teknir á lokuðum vegum.
Fólki hefur verið hótað 2 ára fangelsi og 300Þkr. sekt.[/quote:26blng5r]Hefurðu þetta frá fyrstu hendi? Veistu hvar þetta gerðist? Þetta eru rosalega þung viðurlög og ég hef ekki heyrt neitt í líkingu við þetta áður í sambandi við akstur á bannsvæðum/utan vega.
Kv. Freyr
12.06.2011 at 01:58 #731841Hringdu í Inga í S: 864-6489. Topp maður með mjög mikla reynslu í þessum bransa…..
Kv. Freyr
24.05.2011 at 15:21 #730651Passaðu bara að hafa samt góða loftun, 20°C og góð loftun virkar margfalt betur heldur en 50°C og engin loftskipti (þá er teppið bara í gufubaði).
Freyr
23.05.2011 at 23:34 #730647Legðu teppið á hart undirlag sem hallar, jafnvel þó það sé bara lítill halli og láttu blautu hliðina snúa upp og hafðu blautari hluta teppisins neðst í hallanum. Taktu rörbút eða jafnvel bara kökukefli, þrýstu því eins fast niður í einagrunina og þú getur og rúllaðu því frá toppnum á teppinu niður brekkuna, það er ótrúlegt hvað það er hægt að kreista mikið vatn úr teppum með þessari aðferð (er svolítið bras samt þar sem teppin eru allt annað en slétt). Síðan hef ég bara hengt þau upp þar sem loftar vel um og látið þyngdaraflið um restina. Þessi aðferð hefur virkað hjá mér margoft, bæði fyrir jeppana mína eftir sundferðir í jökulám og eins fyrir bíla í vinnunni sem koma með vatnsleka.
EIns lýst mér vel á aðferðina hans Atla, mikill hiti og góð loftræsting.
Kv. Freyr
23.05.2011 at 23:17 #730659Sæll Guðni
Ég myndi veðja á að það sé sjálf mótstaðan sem er með vesen. Ég á út í skúr gamla mótstöðu með rörum og lokinu sem lokar tanknum að framanverðu, minnir að þetta sé allt unitið fyrir utan bensíndæluna sjálfa, kemur úr ’87 eða ’88 bíl. Ef þú vilt þá máttu eiga þetta, get sent það eins og demparana og pumpurnar um daginn.
Kv. Freyr
20.05.2011 at 12:12 #730499Fór inneftir um páskana á óbreyttum terrano og það var bara fínt. Var þarna líka um síðustu helgi, þá var ekki enn búið að fara með hefilinn og gera rennislétt en engu að síður fínt bara.
Freyr
17.05.2011 at 23:35 #730417Mér fannst eitthvað Geirsnefs-legt við þessa brekku. En fyrir forvitnisskakir, af hverju fær maður að vera í friði þarna???
17.05.2011 at 15:37 #730413Geirsnefi
16.05.2011 at 00:59 #730245Best að bæta við að þegar farið er á jökulinn upp frá sólheimahjáleigu er best að aka frá veginum austur að hryggnum sem er örfá hundruð metra austan við skálann og elta hann að jöklinum. Þannig liggur besta leiðin m.t.t. hæðarlína og þá skemmum við heldur ekki fyrir Benna sem rekur sleðaleiguna þarna uppfrá.
Kveðja, Freyr
-
AuthorReplies