Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.10.2011 at 23:32 #739865
Mæli með BFG Mud Terrain. Er sjálfur með svoleiðis undir Terrano í 31×10,5 r15 en var áður með BFG All Terrain. Það er sáralítill munur á þeim á malbiki en í ófærum er munurinn gríðarlegur, grófa dekkið kemur þér mun betur áfram og af meira öryggi. Mætti bæta við að Pabbi er á 35" 80 cruiser og er á sömu skoðun. Var fyrst á All Terrain, svo Mud Terrain og núna DC-FCII og hann er lang hrifnastur af Mud Terrain því þau grípa lang best af þessum dekkjum sem ég tel upp hérna. Vissulega eru til önnur spennandi dekk eins og t.d. Mickey Thompsson MTZ en málið er bara að BFG dekkin eru mikið ódýrari en flest hin dekkin og held ég þori að fullyrða að þau sem eru ódýrari eru eingöngu drasl dekk. Lang besta verðið sem ég fann í júní s.l. var hjá Dekkverk (http://www.dekkverk.is). Ég hef aldrei skilið af hverju svona margir jeppar eru á milligrófum dekkjum og jafnvel fínmynstruðum, þau virka svo mikið verr heldur en grófu dekkin við flestar aðstæður.
Kv. Freyr
20.10.2011 at 22:54 #739921Skemmtileg lesning Árni, takk fyrir mig.
Þetta á vel við mig um þessar mundir. 38", 200 hp, læsti, létti snjójeppinn mun lúra í skúrnum um helgina ekki á númerum meðan ég fer á fjöll á nær óbreyttum Terrano…..:-)
Kv. Freyr
19.10.2011 at 00:18 #700648Sæl öll
Ég er með Garmin 178 C (bátatæki). Er kominn lausn til að koma spungukortunum inn á það???
Kv. Freyr
10.10.2011 at 22:21 #739131Ég hef búist við þessu í 2-3 ár, er í raun hissa að þetta hafi tekið svona langann tíma. Þó er ég á þeirri skoðun að það ætti ekki að skattleggja hana heldur setja í hana lit, t.d. rauðan til aðgreiningar frá grænni litaðri dísilolíu.
Freyr
09.10.2011 at 23:44 #738905Já, var á svona bíl eina helgi í sumar sem er með ARB framlás.
Freyr
30.09.2011 at 23:45 #737059Ég hef nokkrum sinnum átt viðskipti við Benna. Í heildina litið er ég mjög ánægður með þau viðskipti, ég hringdi síðast í hann áðan til að athuga með frekari viðskipti. Að vísu hef ég lent í töfum en ég set ekki út á það á neinn hátt. Hann vinnur þetta í sjlalfboðavinnu og sparar okkur peninga, vesen og síðast en ekki síst áhættu sem mér þykir mikilvægt. Ég hef fengið vöru sem var gölluð og annað skipti var ekki alveg á hreinu hvort varan var gölluð eða hvort ég gerði eitthvað vitlaust eða jafnvel að bíllinn væri vandamálið en í bæði skiptin leysti hann málið 100%.
Kv. Freyr, ánægður viðskiptavinur.
02.09.2011 at 23:48 #736521Sumarið 2006 mætti ég grautfúlum skálaverði þegar ég kom akandi niður að skálanum, það var í fyrsta skipti sem skálaverðirnir þarna reyndu að banna mér að keyra þarna. S’iðan hefur þetta gerst tvisvar eða þrisvar. Þetta hafa verið allt frá "vinsamlegum ábendingum" í skammarræður. Ég hef alltaf passað mig á að vera bara kurteis en ákveðinn og þá gefast þeir fljótt upp enda hljóta þeir að vita að þeir hafa ekkert í höndunum.
Kveðja, Freyr
26.08.2011 at 12:53 #735933Shitt hvað ég var jarðaður af ykkur báðum, ykkar svör eru mikið betri en mitt!!!
Kv. Freyr
26.08.2011 at 00:01 #735927Þetta með felgurþvermál og flot er öfugt. Við það að fara úr 15" felgu í 16" minnkar belgurinn á dekkinu og þ.a.l. flotið.
Freyr
23.08.2011 at 01:34 #735513Það að steinolía virki betur á common rail kerfi því þau þurfi ekki smurningu er ekki rétt. Háþrýstidælurnar, spíssarnir, fæðidæla (ef hún er til staðar), yfirþrýstiventlar í railinu sjálfu o.fl. þarf allt sína smurningu. Svo er það þannig að þegar eitthvað klikkar í common rail, t.d. háþrýstidæla skemmist þá myndast gjarnan svarf í kerfinu og þá er fjandinn laus. Það hefur þurft að skipta út heilu eldsneytirkerfunum vegna þess, skipta um spíssa, háþrýstidælu, tank, allar lagnir, síuhús, rail, háþrýstilagnir og jafnvel fleira. Þetta veit ég þar sem ég hef átt við svona tilfelli sjálfur þar sem ég vinn (er bifvélavirki). Ef ég ætti bíl með common rail vél þá myndi ég alls ekki þora að nota steinolíu á hann, tjónið getur orðið svo svakalegt.
Svo er eitt sem ég skil ekki fyllilega og leita að svörum við:
N1 gefur út að steinolían þeirra sé Jet A1 og margir tala um að hún smyrji svo vel, mig grunar að það eigi alltaf rætur að rekja til greinar sem LeóEmm skrifaði þar sem hann sagði að Jet A1 hefði góða smureiginleika vegna mikils brennisteinsinnihalds. Samt sem áður eru sumir díesel bílar ekki í boði hérna því það er of mikill brennisteinn í dieselolíunni til að framleiðendur vilji selja þá hér, þetta á t.d. við Toyota Auris með 170 hp. dieselvél. Það er eitthvað sem passar ekki við þetta og ég hallast að því að Toyota í Evrópu hafi frekar rétt fyrir sér heldur en Leó………..Kv. Freyr
20.08.2011 at 00:23 #735391Eitt enn. Það er einhver tölva aftarlega í þessum bílum sem er boltuð beint á grindina. Tölvan er með ál húsi sem vegna tæringar springur og þá fer vatn inn í heilann. Spurning hvort þessi tölva stýri bensíndælunni???? Væri gaman ef einhver gæti komið með ýtarlegri upplýsingar um þetta mál.
Freyr
18.08.2011 at 23:37 #735449áttu myndir af vélinni?
18.08.2011 at 23:34 #735379Bætiefnin væru væntanlega ekki frá þér kominn heldur okkar ástkæru olíufélögum. Síðasta sumar seldu þau lélegt bensín sem sem uppfyllti ekki 95 oktan staðla og því var reddað með íblöndun af "oktan booster" bætiefnum. Þau bætiefni mynduðu rauða útfellingu á kertum í MJÖG MÖRGUM bílum, í sumum urðu O2 skynjararnir rauðir og eins kom fyrir (sérstaklega í 4,6 og 5,4 ford v8) að spíssar skemmdust. Þessi rauða útfelling gerir neistanum kleyft að hlaupa eftir postulíninu beint upp í hedd í stað þess að hlaupa yfir í jarðskautið og mynda alvöru neista, þekki hinsvegar ekki hvað það er nákvæmlega sem klikkar í sambandi við spíssana.
Athugaðu að þessi pæling mín með að spíssarnir séu að hrekkja þig gæti samt verið röng, ættir að skoða málið aðeins betur áður en þú kaupir nýja spíssa.
Freyr
18.08.2011 at 00:33 #735375Fyrst það eru ný kerti og O2 skynjarar giska ég á að ástæðan sé að það hafi myndast á þeim rauð útfelling úr bensíni með "oktan boost" bætiefnum. Þessar vélar (bæði 4,6 og 5,4 l.) í ford voru sérstaklega viðkvæmar fyrir þessu og það kom fyrir að spíssar eyðilöggðust einnig vegna þessa svo ég veðja á þá.
Freyr
16.08.2011 at 00:30 #735175Sælir
Fagna þessum fréttum að stika eigi frá Botna suður að F910. Hef farið þetta 2x og bæði skiptin ekið í norðurátt og bæði skiptin fór töluverður tími í að velja rétta leið gegnum hraunið.
Með ánægjukveðju úr Reykjavík, Freyr
03.08.2011 at 23:37 #734597Er ekki viss en ætla að giska á að þetta sé hjólabúnaður ætlaður í kvartmílubíl.
Freyr
03.08.2011 at 22:48 #734083Ég er virkilega ánægður með þennan spjallþráð. Umræðan fer um víðan völl en er málefnaleg og mjög fróðlegt að lesa þetta, höldum áfram á þessari braut.
Freyr
03.08.2011 at 15:39 #734069Ég hef oft raðað steinum til að "loka" villuslóðum sem klárlega eiga engann rétt á sér. Þetta hafa s.s. ekki verið slóðar inn í einhverja dali eða þvíumlíkt heldur slóð framhjá snjóskafli að vori, slóð sem liggur stuttan hring og aftur inn á veg o.s.frv… Í einstaka tilvikum hef ég reynt að má út slóðina (bara rétt fyrstu metrana) með því að ganga niður hryggina sem myndast sitt hvoru megin við dekkin. Steinarnir sem ég nota eru ekki stærri en svo að hver sem vill getur ekið yfir þá og farið slóðina.
Einnig hef ég einstaka sinnum hlaðið litlar vörður sem leiðarvísa, t.d. í hraunum þar sem slóðin hverfur jafnvel alveg á köflum og birtist svo aftur.
Hef svosem aldrei hugsað út í það hvort þetta væri eitthvað sem ég mætti gera eða ekki, hef litið á þetta annarsvegar sem landvernd og hinsvegar leiðbeiningar fyrir þá sem á eftir koma.
Kv. Freyr
29.07.2011 at 00:53 #734043[quote="jakinn":16gex1xg]Góðan daginn,
halló halló ég held að menn verði nú aðeins að róa sig fá sér jafnvel eina Dísapan.
Er verið að brjóta lög og fremja landspjöll?? Ja nema menn séu að aka þarna um allt.
Er ekki rétt að skoða málið aðeins, ef menn hafa getað ekið að jökli fram að þessu og jökullinn hörfar er þá ekki eðlilegasta mál að framlengja slóðann að jöklinum.
Alla vega er það mín skoðun að ekki fari fram nein lögbrot það sé bara hið eðlilegasta mál að framlengja slóðanum að jöklinum. Einhvern tímann þá stækkar jökullinn aftur og þá er málið dautt.
Annars ætla þessir umræddu menn JEPPAVINIR einungis að senda inn erindi þar sem óskað verði eftir því að slóði á Hamragarðaheiði verði framlengdur þannig að hægt verði að komast á jeppum upp á jökul að sumri til.
Þeir sem að senda frá sér svoleiðis erindi eru tæplega að fremja einhver lögbrot.
Kveðja [url=http://www.jakinn.is/skrar/Eg_i_islenska_buningnum_01.JPG:16gex1xg]Hjörtur[/url:16gex1xg] og [url=http://www.jakinn.is/skrar/01JAKINN_Stor.jpg:16gex1xg]JAKINN[/url:16gex1xg].is[/quote:16gex1xg]Sammála því að það er hárrétt að framlengja slóðann/troðninginn að jöklinum svo hægt sé að komast að honum, hinsvegar er ekki í lagi ef menn eru að aka þarna margar mismunandi leiðir og spora út svæðið (tek aftur fram að ég hef ekki sé umrædd landspjöll).
Kv. Freyr
28.07.2011 at 01:11 #734283Skálanefndin á hrós skilið fyrir óeigingjarnt starf í þágu Setursins og þ.a.l. klúbbsins og okkar allra.
Takk fyrir mig
Kv. Freyr
-
AuthorReplies