Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.08.2008 at 18:39 #628422
Ef þú ætlar að gera þetta er auðveldast að nota dótið úr 4,3 bílnum. Sú vél er bara 350 með 2 færri strokkum og innspítingin er að ég held sú sama (fyrir utan stærðarmun) . Ég hef aldrei þurft að eiga við svona búnað en ég gæti trúað að það sé svolítið snúið að mixa hann í blazerinn.
24.08.2008 at 22:01 #627972Ef þú ert með aðgang að einhverri aðstöðu gæti ég kannski tekið þetta að mér, sláðu á þráðinn er þú hefur áhuga.
Freyr S: 661-2153
24.08.2008 at 04:13 #627966Bremsubúnað af, olíu af drifi, losa 4 rær sem halda öxlinum í hásingunni, draga öxulinn úr. Ef þú hefur ekki aðgang að pressu notarðu slípirokk eða borvél til að taka spennuna úr hringnum og legunni þar til þú getur slegið draslið burt með meilti. Svo kælirðu öxulinn eins og þú getur (ískalt vatn, frystir, kolsýruslökkvitæki……) en hitar leguna og hringinn. Hitunin verður að vera jöfn (Leggja á eldavélarhellu, stálplötu hitaða með gastækjum, sjóðandi vatn…….. alls ekki beina gasloga beint á leguna og hringinn og ekki rauðhita). Setur svo plötuna og pakkdósina upp á öxulinn og lætur leguna og hringinn detta niður öxulinn. Áður en þú setur leguna og hringinn á öxulinn hefurðu til rör sem rétt svo kemst upp á öxulinn, notar það til að reka á eftir ef þörf er á. Raðar svo dótinu í hásinguna, setur á hana olíu og brosir hringinn yfir því að hafa gert þetta sjálfur.
.
Freyr
21.08.2008 at 16:54 #627882Sæll Davíð, þú þarft ekki að hafa miklar áhyggjur af því að affelga á blazernum sem þú keyptir af mér. Djöflaðist mikið á honum í vetur og affelgaði bara einu sinni, það var vegna þess að felgan kengbognaði og loftið fór allt út. Þá tjakkaði ég hann upp, lagaði felguna, lét svo loftdæluna í húddinu blása í dekkið meðan við toguðum dekkið í átt að felgubrúninni, það gekk mjög vel.
Freyr
19.08.2008 at 15:38 #627684Þessi staðall er WV staðall, færð olíu við hæfi frá öllum framleiðendum, hekla verslar sínar nær eingöngu frá shell.
18.08.2008 at 13:03 #627604Það eru komnar myndir í albúmið "skúrinn" hjá mér. Ég er bara með venjulegt pústefni sem ég grunnaði með sinki og málaði svo með grillspray-i. Til að reyna að grunna það að innan úðaði ég fullt af sinki inn um endana á rörinu um leið og ég blés í gegn með þrýstilofti, vonast til að grunnurinn hafi náð að þekja sem mest.
.
Freyr
18.08.2008 at 02:57 #627598Kostnaðurinn við snorkelið hjá mér er þessi:
.
3" púströr, beygt í rétt form: 7000
Hattur af SAFARI- snorkel: 4000
Barki + hosuklemmur: 2000
.
Notaði svo grunn og smádrasl eins og bolta og rær úr vinnunni, segjum að það dót kosti 2000. Þá er efniskostnaðurinn = 15.000. Þannig að þetta er mjög ódýrt snorkel en ef maður reiknar vinnuna sem kostnað hækkar það slatta. Ef ég ætti að smíða snorkel í svipuðum dúr og hjá mér tæki ég sennilega um 25.000 fyrir það (vinnuna við að koma því á jeppann).
.
Freyr
17.08.2008 at 19:51 #627580Ástæðan fyrir pælingunum um hvort einhver vissi til þess að vatn hefði endað inn á vél gegnum safari snorkel í gusugangi er sú að ég var að hugsa um hvort ég ætti að setja vatnsgildru á lögnina. Hef pláss í húddinu til að setja einhverskonar kút neðaná lögnina að loftsíunni og hafa svo botntappa á kútnum til að tappa undan ef vatn hefur safnast fyrir. En svo er hinsvegar leið loftsins að vélinni það löng að þetta eru sennilega óþarfa pælingar. Vatnið þyrfti að fara inn í snorkelið, fram í síuhús, gegnum síuna, inn á túrbínu, gegnum intercooler og þaðan inn á vél – mjög langsótt.
Freyr
17.08.2008 at 19:24 #627578Neðarlega á þessari síðu er mynd sem útskýrir hvernig vatn sem fer inn í hausinn á að fara út aftur: http://www.safarisnorkel.com/docs/product.htm
Er svo að setja inn myndir af smíðinni
Freyr
17.08.2008 at 14:19 #202791Ég smíðaði snorkel á jeppann hjá mér og notaði á það haus af SAFARI-snorkeli. Þekkið þið eitthvað dæmi um það að vatn rati inn á vél í gusugangi á jeppa með SAFARI- snorkel???
.
Freyr
14.08.2008 at 12:52 #627386Færð hana í 4×4 búðinni
14.08.2008 at 02:06 #627338Wranglerinn kemur vissulega mjög sterkur inn því hann er svo einfaldur og hrár og auðvitað landroverinn líka (defender).
Freyr
13.08.2008 at 17:50 #627328Farðu með bílinn á viðurkennt verkstæði eða jafnvel bara á smurstöðina sem skipti um hjá þér. Þar skaltu tappa undan drifinu og sjá magnið sem kemur út, ef það var engin/lítil olía á því (og engir alvarlegir lekar á hásingunni) þá klúðraði smurstöðin olíuskiftunum og er bótaskyld.
Freyr
11.08.2008 at 16:22 #627154Síðast þegar ég athugaði var hámarkið 100mm á yfirbyggingu og 150mm á undirvagni.
Freyr
11.08.2008 at 09:54 #627148Ég myndi ná mér í 50x50x4 prófíl og nota búta úr honum til þess að hækka upp sætin á grindinni og nota áfram orginal boddýpúðanna, stöðugra heldur en að nota 10 cm langa nylonkubba.
Freyr
06.08.2008 at 19:35 #626896Athugaðu spindilkúlurnar vel, geta gefið frá sér marr/brak hljóð ef þær ná að þorna of mikið. Ef það hefur gerst er gott að setja í þær sjálfskiftiolíu (lagar að sjálfsögðu ekki slag en stoppar þessi óhljóð). Besta leiðin er að setja ssk. olíunna í sprautu með nál (eins og hvítslopparnir nota- fást í apótekum) og stinga á gúmmípokan utanum kúluna og sprauta inn eins mikilli olíu og hægt er.
Freyr
06.08.2008 at 19:27 #626906Er eitthvað sem bendir til þess að skemmdirnar megi rekja beint til steinolíunnar??? Vélar geta líka skemmst þó þær fái venjulega dísilolíu.
04.08.2008 at 20:34 #626292Ef mér skjátlast ekki eru þessi göng við Sultartangavirkjun, stutt frá stöðvarhúsinu sjálfu.
Freyr
22.07.2008 at 21:31 #626300Ég setti MSD kefli í XJ Cherokee sem ég átti. Tengir + vírinn sem fer inn á orginal keflið á + pólinn á nýja keflinu (þarft að notast áfram við sökkulinn sem háspennukeflið er á, í honum er stýringin ef ég man þetta rétt) og – pólinn í góða jörð. Ekki búast samt við neinum aflmun þó þú setjir eitthvað "fancy" kefli, a.m.k. fann ég engann mun.
.
Freyr
22.07.2008 at 01:34 #626246Ef mér skjátlast ekki eru þessi göng við Sultartangavirkjun, stutt frá stöðvarhúsinu sjálfu.
Freyr
-
AuthorReplies