Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.02.2009 at 12:47 #640382
Ég keypti dælu hjá N1 á höfðanum, gat valið um tvær: Annarsvegar einhver með plasthúsi sem mér leist ekkert á og hinsvegar blikksívalingur sem ég tók, sú er víst orginal dæla f. 6,5 gm. Setja svo bara síu með glæru plasthúsi á lögnina frá aukatank að dælu og þá er hægt að sjá ef vatn eða drulla er á ferðinni. Og já, þessi dæla ræður við að sjúga upp (margar þurfa að hafa rennsli að sér), hjá mér er hún rétt ofan við efri brún tanksinns og ekkert vesen með það.
.
Freyr
09.02.2009 at 12:41 #640380Í sambandi við að yfirfylla aðaltank þá ætti það ekki að vera vandamál. Það er betra að hafa olíuna í aukatanknum (þyngdin framar) svo ég sé enga ástæðu til að tæma úr aukatank í aðaltank. Hjá mér t.d. eru um 20 l milli strika á mælinum f. aðaltankinn og 50 l aukatankur. Þegar lítið er eftir í tanknum (aðeins niður fyrir 1/4) þá dæli ég þar til hann er hálfur, geri svo það sama aftur og þá er aukatankurinn tómur og þyngdin er sem lengst framan við hásingu.
.
Með þessu móti dæli ég rúml. 20 l í hvort skifti og er aldrei að sjúga botnfallið úr aukatanknum = fæ ekki auka grugg í aðaltankinn og dælan gengur ekki þurr.
.
Freyr
07.02.2009 at 00:49 #640232Af hverju að skifta? Ég er fyllilega sammála því að 4,2 er álitlegri kostur en 4,5 en hvað með kostnað og vinnu, ertu það ósáttur við 4,5 að þú vilt leggja út 600.000 +/- 100.000 (bara varahlutaverð) og fullt af tíma í þetta?
.
Freyr
06.02.2009 at 01:51 #64015404.02.2009 at 19:21 #640022Fyrst jón heyrir í merkinu koma til baka frá endurvarpanum þýðir það að stöðin hjá sigga er í lagi (fær rafmagn, loftnet í lagi, nægur sendistyrkur o.s.frv.). Ég veðja á að þetta vandamál hjá sigga hafi e-ð með sítón að gera, hef reyndar ekki hugmynd um hvað sítónn er en hef lent í svipaðri aðstöðu (vorum að fikta með amatörstöð) og seinna fékk ég að vita að málið hafði með sítón að gera………
.
En fyrst ég minntist á sítón, væri einhver ykkar radíófræðinganna til í að útskýra fyrir mér hvað það er????
.
Freyr
30.01.2009 at 22:42 #639354Svolítið erfitt að átta sig á hvað verið er að tala um hérna þar sem ég er ekki kunnugur hverjum manni í þessari ferð. En ég skil þetta einhvernveginn svona:
.
Þungt færi og vont skyggni vegna hvassviðris
.
Bláa tacoman niður um ís og braut afturdrif
.
Brotin framrúða í patrol sem fór útaf í kjölfarið, hvað gerðist?????
.
Kannski er ég bara svona treggáfaður, en gaman væri að fá örlítið ítarlegri fréttir. Við förum í fyrramálið á tveimur jeppum úr rvk. og ætlum að enda í kerlingarfjöllum annað kvöld, þið vitið þá af því ef það þarf að koma varahlutum á svæðið……..
.
Freyr S: 661-2153
28.01.2009 at 00:42 #639152Það sem millitec getur gert ef það er sett á gírkassa er að það myndar húð á öllum flötum og þ.m.t. syncrome hringjunum sem þá getur valdið því að þeir ná ekki að samhæfa hraðann á gírhjólunum = hundleiðinlegt að skifta kassanum.
Freyr
19.01.2009 at 12:52 #638458Hversu sterkar þær eru samanborið við aðrar hásingar veit ég ekki, en þær hafa dugað vel undir 38" bílum fyrir utan liðina á framöxlunum, þeir eru viðkvæmir fyrir átökum ef bíllinn er í beygju. Svo veit ég ekki betur en það hafi verið glussalæsingar í þeim öllum en ekki barka, a.m.k. hef ég aldrei séð annað en glussa………
.
Freyr
08.01.2009 at 23:23 #636800Þetta er 60 l. tunna undan 75/90 gírolíu frá N1, getur líka fengið tunnu undan 80/90 ef þú vilt frekar rauða. Margar smurstöðvar eru bara fegnar að losna við þetta.
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/6162/51651:y3jsgpo8][b:y3jsgpo8]Svona var þetta framaná Blazernum hjá mér síðasta vetur.[/b:y3jsgpo8][/url:y3jsgpo8]
Freyr
01.01.2009 at 22:12 #635454"Hraðinn er kominn niður í 15-20 km á klukkustund og vélarnar í bílunum eru verulega máttlausar vegna kuldans". Hvað með þynnra loft? Þegar þetta var skrifað voru þeir í um 3000 m hæð og einnig kemur fram í blogginu að loftþrýstingur þarna sé lægri en víðast hvar. Fyrst loftið er það þunnt (súrefnissnautt) að menn finna til hæðarveiki, er þá ekki eðlilegt að áætla að vélarnar vinni illa sökum súrefnisskorts? Lausnin væri því að láta túrbínuna blása meira……. Svo er hinsvegar annað mál hversu gott það er á þessum vélum, er nóg að eiga við framhjáhlaypsventilinn eða kallar það bara á önnur vandamál (tölvuvesen)???
.
Freyr
01.01.2009 at 21:58 #635770"Lýsir sér 100 % eins og loft sé á kerfinu, myndi lofttæma aftur til að útiloka það – ekki á sama stað og síðast". Það sem ég átti við var að fara ekki með bílinn á sama verstæði aftur (þessi fíni búnaður gæti verið bilaður eða óvönduð vinnubrögð).
Freyr
31.12.2008 at 02:05 #635910Sæll Haffi, ertu til í að útskýra fyrir mér hvað baksnerturelay er???
Freyr
30.12.2008 at 01:10 #635702Hef 2 sinnum farið yfir Skaftá og þaðan suður í Lakagíga. Við fórum norður Breiðbak og austur fyrir Langasjó, þar fórum við yfir Skaftá. Þaðan minnir mig að við höfum farið nær beint til suðurs og komist á veg við Fremri/Innri Eyrar. Best að láta fljóta með að það eru mörg ár síðan ég fór þetta og ég var ekki sjálfur á bíl svo ég er ekki með þetta 100%.
.
Freyr
30.12.2008 at 00:51 #635752Lýsir sér 100 % eins og loft sé á kerfinu, myndi lofttæma aftur til að útiloka það – ekki á sama stað og síðast.
.
Freyr
22.12.2008 at 11:39 #635152Nú eru þessar spurningar komnar út í tómt rugl. Svona þráður gæti orðið upphafið að heilmiklum leiðindum og særindum og á alls ekki rétt á sér.
Freyr
21.12.2008 at 00:30 #6350686000 kr er gjald sem ég er tilbúinn að borga fyrir VHF kerfið og baráttu við lög og reglugerðir. Hinsvegar þykir mér tímabært að hætta að eyða peningum í útgáfu fréttablaðsins, nota frekar þessar krónur í þarfari hluti.
Freyr
14.12.2008 at 20:44 #634488Var búinn að spá hvort það væri sniðugt að vera með tengingu milli röra og hafa skynjarann þar en ég held að það virki illa. Flæðið á gasinu er mun minna í svoleiðis þverpípu heldur en í rörinu sjálfu sem þýðir að skynjarinn myndi sýna breytingar seint og illa.
Freyr
13.12.2008 at 15:26 #634480Myndi byrja á að hafa bara skynjara á öðru rörinu og sleppa öllu veseni, ef það virkar illa (meiri eyðsla / minni kraftur / gangtruflanir) er hægt að spá í það seinna.
Freyr
11.12.2008 at 01:54 #634426Mobil super 3000 er nákv. sama olían og gamla Ultron 5/40.
Freyr
11.12.2008 at 01:52 #634414Þetta var Patrol á 38"
-
AuthorReplies