Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.08.2009 at 01:01 #205968
Ég var að velta fyrir mér hvað 38″ kantar á ’93 – ’98 Grand Cherokee kosta og hringdi í Formverk. Þar fékk ég verðið 240.000 kr. takk fyrir…….Kostar þetta virkilega svona mikið, hverjir aðrir selja svona kanta og á havð????
Freyr
27.07.2009 at 01:35 #652544Til í að lýsa þessu betur???
15.07.2009 at 23:52 #651658Hringdu í mig í S: 661-2153.
Freyr
11.07.2009 at 13:54 #651062Ég er til í að athuga með að skipta um vél…..
Freyr S: 661-2153
17.06.2009 at 23:20 #649962Sprauta nóg af ryðolíu niður með þeim. Gera það einu sinni á dag í 1-2 vikur og byrja svo á þessu, þá getur vel verið að þau renni úr vandræðalaust. Bara ekki gera það áður en þú ferð að keyra því þá gufar hún upp í hitanum, gott að gera t.d. fyrir nóttina.
Freyr
20.05.2009 at 20:13 #647956ath. hvort það sé nægur frostlögur á honum, ef það er farið að lækka e-ð þá er hitaskynjarinn bara að fá skettur á sig og getur einmitt lýst sér svona…..
12.05.2009 at 23:50 #646290Ég er innilega sammála því sem Ingi (Þorvarður Ingi) skrifar hér að ofan. Skiptir virkilega máli hvort það myndist einhver hjólför í vegum sem hvort eð er verða svo heflaðir áður en þeir eru opnaðir??? Get ekki séð að það skipti máli. Það sem getur verið mjög slæmt hinsvegar er þegar menn freistast til að aka út fyrir veg til að sleppa við drullu á honum – þá koma ljót sár í landið að óþörfu.
.
Freyr
24.04.2009 at 02:50 #646486Sæll Bjarni
Ég hef nýlega yfirfarið og gert við þennan búnað í mínum ’95 Patrol og skal skoða þetta fyrir þig.
Freyr S: 661-2153
10.04.2009 at 00:20 #645342best að benda á að þetta er bara mín reynsla af jöklinum og orðið kringum ár síðan síðast svo þetta er án allrar ábyrgðar………..
10.04.2009 at 00:17 #645340Förum á 3 bílum á laugardag yfir eyjafjallajökul, fimmvörðuháls, mýrdalsjökul og endum á fjallabaki. Ég hef farið nokkrum sinnum þarna yfir og það er í raun ekki flókið: Upp jökulinn eftir hryggnum endilöngum (þannig að hann lækki niður til beggja handa) og þá er maður kominn upp. Ef lengra er haldið er farið austur yfir skálina eins sunnarlega og hægt er (alls ekki aka niður á sléttuna sem er byrjunin á gígjökli – STÓRAR spungur þar) og ef á að fara alla leið á fimmvörðuháls gildir sama og á uppleiðinni – halda sig efst á hryggnum.
Það er þó sprunga á þessari leið sem hefur alltaf verið opin þegar ég hef farið þetta (eða lokuð með mjög þunnri snjóbrú). Hún er þar sem ekið er upp úr gígnum að austanverðu, rétt áður en fer að sjást yfir á fimmvörðuháls. Sjá þessa mynd:
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 6162/51917
Freyr
25.03.2009 at 00:54 #644320Já, heilmikið til í þessu. Ég hef gaman af því þegar menn eru að pæla í hlutunum sjálfir og velta stöðugt fyrir sér nýjum leiðum. Þannig verður sportið fjölbreyttara en þegar menn velja einhverjar tilbúnar pakkabreytingar. Og eiginlega hef ég mest gaman af bílum sem eru grófir og hráir – heimasmíðaðir stuðarar, brettakanntar o.s.frv……..
Freyr
24.03.2009 at 19:16 #644294Af hverju nota menn alltaf þessar nælonklossa??? Það kostar ekkert meira að nota t.d. 50 x 50 prófíl fyrir 2"hækkun. Og þá er hægt að sjóða prófílana við grindina og nota orginal púðana að ofan. Með því er enginn hreyfing á þessu, öfugt við boddý sem standa á nælonstultum og vagga þar fram og aftur þar til allt blikk kringur festingarnar er krosssprungið og ónýtt.
.
Freyr
23.03.2009 at 04:45 #644216Sæll, er þetta að breytast eða ertu að tala um það hvernig hann hefur verið síðan ég var á honum??? Ef þér finnst stýrið undarlegt og ekki viss um hvað er að skaltu ekki nota bílinn – gæti endað illa. Endilega hringdu í mig á morgun (mán) og tölum saman, best 9.30 – 9.45 eða 12.30 – 13.00.
Kv. Freyr
10.03.2009 at 23:45 #642846Ég veit ekki hvernig snjór, ís, krapi er þarna núna (vonlaust að segja, getur breyst mjög hratt). En það er alveg pottþétt að leiðin er mjög gróf og grafin eftir árnar í allan vetur. Svo lágir bílar með síðan kvið eiga erfitt með þetta núna – a.m.k. miklar líkur á vandræðum.
.
Freyr
10.03.2009 at 18:54 #642910"Maður hringir á björgunarsveitina og þeir eru 12 tíma að koma sér á staðinn sem 5 manna fjölskylda fór á einbíla"
.
Er þetta ekki smá fljótfærni hjá þér gunnar? Hvað var fjölskyldan lengi að fara þessa leið? hvernig hefur veðrið breyst? er ekki komin nótt? Hvernig hefur færið breyst o.s.frv……….?
10.03.2009 at 18:50 #642908Það gengi aldrei upp að vera með svona litla og létta jeppa sem björgunartæki. Jeppar sveitanna þurfa að bera nokkra menn + þeirra búnað og allrahelst geta tekið sjúkrabörur. Hlutverk sveitanna er nr. 1, 2, og 3 að bjarga fólki – langt þar á eftir koma verðmæti. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa pláss, hita, ýmiskonar björgunarbúnað, fyrstuhjálpargögn – allt frá plástrum upp í börur og súrefnistæki. Þannig að það að gera út nokkra litla jeppa hefur nær ekkert notagildi fyrir sveitirnar – og um leið gera þeir okkur ekki mikið gagn (nema ef eina erindið er að þiggja spotta). Nær öll okkar notkun á jeppum er að koma björgunarmönnum á vettvang en ekki þannig að jepparnir séu sjálfir það sem bjargar málunum.
.
Vissulega væri gott ef einhverjar sveitir (þær sem eru svo stórar að þær eiga nokkra bíla) ættu létta jeppa sem fara hratt yfir en notagildið er bara svo takmarkað að það er mjög erfitt að réttlæta svoleiðis fjárfestingar.
.
Kveðja Freyr, félagi í Björgunarsveitinni Ársæl
25.02.2009 at 23:38 #568224Sæl öll sömul.
.
Eftirfarandi 38" dekk hef ég sjálfur notað í snjó og röðin er þessi best – verst…..
.
MTZ: Mjög gott flot, fráfært grip og kringlótt. Veldi þau undir flesta bíla.
.
Mudder/ground hawk, Legg þessi tvö að jöfnu; gott flot, mjúk = lítið viðnám, ágætt grip en ekki alveg kringlótt. veldi þessi undir létta bíla -1800 kg.
.
Super svamper; Gott grip, frekar stíf = stela afli og lítrum, kringlótt. Veldi þau sem sumardekk undir þunga jeppa.
.
AT; Kringlótt og hljóðlát en með vitavonlausu munstri sem alltaf fyllist. Ég myndi aldrei kaupa þessi dekk, henta einungis undir stöðutákn sem aldrei fara í alvöru torfærur.
.
DC fun country; Gott flot en þar með er það upp talið, griplítið munstur og ekki kringlótt, hef samt heyrt góðar sögur af FC2 sem er selt í dag.
.
Freyr
25.02.2009 at 23:25 #641848Sæll Lalli, sjálfsagt að koma með rökin (sjálfur tek ég ekki oft mark á svörum hérna nema þau séu rökstudd…..) Ég er sammála því að það er auðveldara að sjúga upp vökva með 13mm röri en 8 mm, en hvað ef það er smá þrýstingur sem myndar rennsli upp í mann? Það er enn auðveldara og þá fer málið að snúast um hversu hratt þú kemur vökvanum niður en ekki hversu erfitt/auðvelt er að sjúga hann upp.
.
Önnur rök eru þau að vinur minn setti dælu á lögnina frá tank að verki í L200 og það fannst greinilega munur. Eitthvað voru tengingarnar óvandaðar því rafmagnið var tekið beint út úr ljósunum (man ekki hvort það var frá háa eða lága geislanum) og það fannst greinilega aflmunur þegar maður fiktaði í ljósarofanum.
.
Hvað varðar rafmagn og áreiðanleika; það versta sem myndi gerast er að dælan hættir að dæla og þú missir auka prósentin…. Ef þú vilt vera tryggður fyrir því að dælan myndi ekki tregðu þegar/ef hún klikkar er hægt að vera með framhjáhlaup framhjá henni með einstefnuloka.
.
Freyr
24.02.2009 at 20:30 #641830Settu bara rafmagns-fæðidælu annað hvort í tankinn eða á lögnina alveg upp við tankinn og þú færð pottþétt næga olíu fram að vél, mikið betri leið en að setja sverari lögn.
.
Freyr
14.02.2009 at 19:23 #640878Pústin frá stuðlaberg eru virkilega léleg, hverfa úr ryði á mettíma – myndi aldrei kaupa frá þeim aftur nema undir bíl sem ætti að henda eftir ár eða svo.
.
Freyr
-
AuthorReplies