FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Freyr Þórsson

Freyr Þórsson

Profile picture of Freyr Þórsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 11 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 811 total)
← 1 … 13 14 15 … 41 →
  • Author
    Replies
  • 15.12.2009 at 01:54 #209137
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Hefur einhver lent í því að loftpúðar springi út í jeppa sem er í miklum átökum í torfærum þó svo að ekki sé um eiginlegan árekstur að ræða? Er að breyta ’97 cherokee og er að spá hvort maður eigi að fjarlægja kerfið úr honum…………?

    Freyr





    15.12.2009 at 01:00 #671614
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ættir að prófa leitarvélina. Þessi spurning kemur upp hérna mjög reglulega, nokkrum sinnum á ári svo það er haugur af lesefni um þetta á eldri þráðum. Menn nenna ekki að skrifa það sama aftur og aftur svo það er hætt við að hér verði ekki mikið um góð svör.

    Freyr





    14.12.2009 at 00:30 #671382
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Aftaná verkinu frekar ofarlega er magnskrúfan. Ef það hefur aldrei verið átt við hana er nokkurskonar innsigli yfir skrúfunni. Ef svo er þá tekurðu það bara og hendir því. Skrúfan sjálf stendur út úr verkinu og á henni er lásró. Ég er ekki 100% viss en mig minnir að þú skrúfir inn/réttsælis til að auka við magnið, fer samt ekkert framhjá þér ef þú skrúfar í vitlausa átt. Passaðu bara að merkja vel á skrúfuna stöðuna á henni áður en þú byrjar að fikta svo þú ratir aftur á byrjunarreit ef þú lendir í veseni. Þessi stilling er nákvæm/viðkvæm þannig að þú verður að gera bara lítið í einu, gott að miða við t.d. 1/4 úr hring í einu.

    Svo bara til að minnast á það, það að skrúfa upp í olíuverkinu er mjög áhrifarík leið til að auka afgashita og skemma vélar ef menn hafa áhuga á svoleiðis……….. Svo farðu þér hægt í þessu.

    Freyr





    12.12.2009 at 18:27 #671038
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sá að einhverjum brá við svarið mitt hér framar, "5-8 l. mótorolíu á hundraðið". Málið er að ég hef verið að gera tilraun með að nota úrgangs-mótorolíu sem eldsneyti á gamlan bens sem ég á, "so far so good………."

    Freyr





    11.12.2009 at 01:55 #671014
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Minn er að fara með 5-8 lítra af mótorolíu á hundraðið………………:-)





    07.12.2009 at 02:31 #670558
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Var með 12" breiðar 15" felgur með 38" undir litlum blazer. Talaði við smára í skerpu í hafnarfirði því ég vildi breikka þær en hann neitaði, jafnvel þó það væri án ábyrgðar. Hann sagði að þær þyldu það ekki og við myndum bara eyðileggja þær með því. Hinsvegar er hægt að stinga þessa tvöföldu botna úr og setja "alvöru" botna í staðinn. Þá er bara spurningin hvort það borgi sig, því sennilega er ódýrara að kaupa aðrar notaðar felgur og láta breikka þær.

    Freyr





    06.12.2009 at 19:56 #670142
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Hvað með kúta? Á næstunni mun ég smíða 2,5" púst undir 4.0 l cherokee sem ég er að breyta og er einmitt að spá í hvar sniðugt sé að versla kút sem kostar ekki of mikið en er ekki algjört drasl (geri enga kröfu um að hann sé einhver merkjavara eins og borla eða flowmaster).

    Hefur einhver smíðað eða heyrt um púst úr áli??? Verð reyndar að viðurkenna að mér þykir álið á margan hátt leiðinda efni (aðallega vegna þess að ég er hund-lélegur í að sjóða það ;-)…… En nú er ég að breyta þesusm cherokee mínum og ætla ekki að fylla hann af aukabúnaði heldur halda þyngdinni í lágmarki, datt þess vegna í hug að hafa það úr áli til að létta það. Eini gallinn sem ég sé við það er tæringin sem verður þar sem ál mætir járni sem yrði á 3 stöðum; Þar sem pústið mætir greininni og svo þar sem pústið kemur að og frá hljóðkútnum.

    Freyr





    06.12.2009 at 03:56 #670280
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Nú veit ég ekki hvort það er sama túrbína á þínum patrol og var á mínum sem var ’95 árg. Ég jók blásturinn á honum með því að auka forspennuna á framhjáhlaupsventlinum. Áður en ég byrjaði setti ég tímabundið boostmæli á þrýstilögnina rétt við túrbínu. Orginal var boostið 10 psi, þá bætti ég við u.þ.b. 3mm skinnum undir framhjáhlaupsventilinn og við það fór boostið í 18-19 psi. Fann töluverðan aflmun á bílnum, kláraði 3. gír og fór í 4. í sömu brekku og hann komst bara í 3. gír áður. Hinsvegar vældi eymdarlega í túrbínunni og greinilegt að henni leið ekki vel með þetta mikinn þrýsting. Þá trappaði ég mig niður þar til hún hljómaði eðlilega og var þá kominn niður í kringum 15 psi.

    Ef þú ert með tölvukubb sem eykur olíumagnið verður afgasið heitara sem eykur álagið á túrbínuna og hún er að blása 21psi (hvort er það mælt við bínu eða soggrein?). Miðað við þetta álag er ég alls ekki undrandi þó túrbínan sé mikið slitinn, hvort sem hún er orginal eða verið gerð upp/skipt um áður.

    Freyr





    06.12.2009 at 00:49 #670274
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það er tvennskonar slag í túrbínu. Annarsvegar er það hliðarslag (öxullinn færður hægri – vinstri) og endaslag (öxullinn inn -út).

    Hliðarslagið er alltaf töluvert, meira að segja í nýjum túrbínum. Það er vegna þess að þegar túrbínurnar hitna um mörg hundruð °C þrengjast fóðringarnar vegna hitaþennslu og slagið minnkar, ef þær væru nær slaglausar kaldar myndu þær einfaldlega festast heitar. Annað atriði er að það verður alltaf að vera smá hliðarslag í þeim, líka þegar þær eru á fullum hita. Það er til að nægt flæði sé af mótorolíu gegnum þær sama hvað gengur á. Annars myndi olían brenna í hitanum og þá er túrbínan í raun ósmurð. Ef hinsvegar slagið verður mjög mikið (þannig að það sést greinilega að hjólið gengur mikið til hliðar) þarf að fara að skoða málið betur.

    Endaslagið hinsvegar má alls ekki vera mikið, ef það er eitthvað að ráði þá er það slæmt og verður að laga eða skipta um túrbínu því annars dælir hún mótorolíu inn á vél og jafnvel fara hjólin að rekast í húsin og þá er fjandinn laus.

    Hér eru nokkur ráð um eftirlit með túrbínu:
    -Er aflið í bílnum að minnka samfara auknum reyk = Túrbínan blæs minna en áður
    -Þarf að bæta óeðlilega oft á mótorolíu = Óþétt túrbína sem dælir mótorolíu inn á vél
    -Vél lengi að ná niður snúning = Óþétt túrbína sem dælir mótorolíu inn á vél, þá kemur smurolían að hluta í stað fyrir dieselolíuna og vélin getur gengið á henni. Í verstu tilvikum deyr ekki á vél þó svissað sé af eða ádrepari settur á heldur verður að nota kúplinguna og háan gír eða loka fyrir loftinntak.
    -Slag í túrbínu = Ef það er mikið hliðar- og eða svolítið endaslag og menn eru ekki vissir hvort það er í lagi skal fara á vélaverkstæði eða til einhvers sem kann til verka. Ef mikið slag er í túrbínu og ekkert gert í því getur það endað á því að hjólin rekast í húsin og það er mjög slæmt ef það gerist á blásturshliðinni. Þá geta brot úr túrbínunni farið inn á strokkana og þá fer vélin til andskotans, mun minni líkur á því ef vélin er með intercooler því þá stoppar hann sennilega brotin.

    Freyr





    04.12.2009 at 18:55 #669840
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Nú hva…… þá er ég hættur að kvarta og tauta eins og gömul kerling, ætli ég skelli mér ekki á staðinn og nái mér í tvö pör sjálfur til að setja undir cherokee-inn.

    Freyr





    04.12.2009 at 18:53 #669738
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Já, áður var það svoleiðis að startgasið þurrkaði vélarnar að innan en ekki lengur, í dag er allt startgas smurbætt eftir því sem ég best veit. Ég hef leitað mikið að startgasi sem er án smurefna en finn það hvergi svo ef einhver hérna veit um hreint gas án smurefna væri ég mjög þakklátur að fá að vita hvar það fæst.

    Freyr





    04.12.2009 at 12:58 #669836
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég fór í gúmmíseypuna fyrir um 3 árum síðan og ofbauð. Ég man ekki akkúrat hvað sokkarnir kostuðu en mynnir að það hafi nálgast 10.000 fyrir parið sem er fáránlegt fyrir gúmmímottu.

    Freyr





    04.12.2009 at 01:14 #669832
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Síðast þegar ég vissi var málmtækni að gefa sokka. Að vísu eru þeir úr frekar hörðu plasti og stendur á þeim Málmtækni en hvað með það – þeir gera sitt gagn.

    Freyr





    04.12.2009 at 01:09 #669726
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Gleymdi einu

    Þetta með að startspray og glóðakerti fari ekki vel saman, hefur einhver lent í því að sprengja soggrein eða hedd út af þessu??? Ég hef notað startgas á marga mismunandi bíla með glóðakertum og aldrei hefur komið KABÚMMM. Meðal þeirra eru 7,3 ford, 2,8 patrol, 2,5 bens, 2,4 hilux, renault traffic o.fl.

    Freyr





    04.12.2009 at 01:04 #669724
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæl öll

    Ég á gamlan bens 250d sem er 2,5 lítra 5 cyl túrbólaus diesel. Forhitunin í honum var orðin það léleg að ég átti oft erfitt með að koma honum í gang í lok sumars. Þá setti ég granna slöngu gegnum hvalbakinn og inn í síuhúsið fyrir innan lofthreinsarann og festi hana þannig að hún væri þétt á stútnum á gasbrúsa. Þennan búnað notaði ég þar til fyrir nokkrum dögum síðan (samtals 4-5 brúsar). Ég lagaði forhitunina (skipti um kerti og lagaði sambandsleysi). Núna dettur bíllinn í gang vandræðalaust og það hefur ekki haft slæm áhrif á hann á neinn hátt að vera gangsettur nokkrum sinnum á dag með eter í u.þ.b. 3 mánuði. Málið er að sá eter sem seldur er í dag er með einhverjum smurbætiefnum sem voru ekki í gasinu í "gamla daga". Þau smurefni sjá um að vernda strokkveggina og ventlafóðringarnar.

    Hinsvegar hefur mér sýnst þessi smurefni hafa neikvæð áhrif á brunahraðann í gasinu því þessar smurbættu gerðir brenna töluvert hægar heldur en eldri gerðir sem voru bara hreinn eter. Það fundum við út eftir að hafa lent í vandræðum með að sprengja dekk á felgu. Þá gerðum við tilraun sem var þannig að við sprautuðum mismunandi startgasi í ákv. langan tíma í svarta ruslapoka og lokuðum þeim svo þeir væru þéttir. Síðan hentum við logandi rokeldspýtu á pokana og það var ekki nema einn poki sem "sprakk" mðe hvelli, í honum var startgas sem heitir (minnir mig) HEAT og er í gulum/bláum brúsa selt hjá N1. Einhverntíman gerði ég svipaða tilraun með startgas sem var bara hreinn eter og í minningunni var sá hvellur enn hærri sem þýðir meiri brunahraði sem kemur sér vel til að koma dekki á felgu.

    Freyr





    01.12.2009 at 23:45 #669632
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Þetta er algjörlega óþolandi, hvernig kemur þetta út í sambandi við tryggingar? Bæta þær dekkin og felgurnar?

    Þið félagar sem hafið tapað dekkjunum ykkar, eru einhver sérkenni á þeim eða felgunum sem hægt er að þekkja?

    Freyr





    01.12.2009 at 23:42 #668900
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það er eitt sem ekki hefur komið fram en er nauðsynlegt að spá í ef þú ferð út í þetta. Í bensínvélum hækkar brunahitinn þegar blandan veikist (öfugt miðað við diesel) og það að þjappa lofti inn á bensínvél án þess að gera umtalsverðar breytingar á bensínkerfinu endar sennilega bara á einn veg – stimplarnir bráðna. Það eru ekki svo margir að fikta með túrbínur á bensínjeppum en marfallt fleiri eru að því á sportbílum og þá sérstaklega japönskum. Þar er alþekkt að stimplar bráðna þegar blandan verður of veik. Vinur minn var t.d. með 323 mazda orginal túrbóbíl en lét hann blása meira og það kostaði hann stimpil/stimpla oftar en einu sinni. Gott dæmi um það hversu viðkvæmt þetta getur verið eru impreza turbo. Þar er spíssinn á strokk númer 2 sá aftasti í bensínrail-inu (lögnin sem spíssarnir ganga inn í) og við mikið álag er flæðið/þrýstingurinn sem nær aftast í rail-ið of lítið/lítill og þá bræða þeir úr sér á 2. strokk.

    Freyr





    23.10.2009 at 00:14 #663282
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Hafa bara í huga að ARB lásar vinna á 70 – 100 psi, man ég ekki rétt að það verður svoleiðis að framan?





    13.10.2009 at 10:33 #207315
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæl öll

    Afa vantar heilsársdekk undir Kia Sorento sem hann á. Dekkin undir honum eru 245/75 R16 sem er 30-31″. Hvaða dekkjum mælið þið með þar sem verð og gæði fara saman???

    Freyr





    23.08.2009 at 16:34 #655122
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Jú, stefnan er sett á XJ, en það vakna samt alltaf ýmsar hugmyndir………………;-)

    Freyr





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 811 total)
← 1 … 13 14 15 … 41 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.