FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Freyr Þórsson

Freyr Þórsson

Profile picture of Freyr Þórsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 11 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 811 total)
← 1 … 11 12 13 … 41 →
  • Author
    Replies
  • 09.03.2010 at 00:34 #686402
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Á Olís smurstöðinni á Fosshálsi vinnur maður sem heitir Sveinn. Það er stutt síðan hann tók bilaða ssk. úr sínum pikkup sem er ’00 eða ’01 ef ég man rétt og setti gírkassa í staðinn, getur haft samand við hann og fengið upplýsingar.

    Freyr





    05.03.2010 at 00:35 #686060
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Er með eina sem þú mátt eiga ef þú nærð í hana. Hringdu í 661-2153 á morgun.

    Freyr





    23.02.2010 at 00:38 #684286
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæll

    Væri fróðlegt að fá að vita bílategund, dekkjastærð og hvaða loftþrýsting þurfti til að drífa, þá gerir maður sér betur grein fyrir því hvernig snjórinn var.

    Freyr





    18.02.2010 at 12:49 #683364
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það er til Bók sem heitir "Jeppa á fjöllum". Hún er þykk og mikil (um 400 bls. ef ég man rétt) og fjalla um allt milli himins og jarðar sem tengist jeppaferðum. Í henni eru kaflar um aksturstækni, hvernig á að losa bíla úr hinum ýmsu festum, hvernig á að aka yfir ár, veðurfræði, snjóflóð, tæknimál sem snerta jeppana, rötun og svona mætti lengi telja. Sú sem ég á er gefin út 1994 ef ég man rétt, hef samt aldrei séð hana í bókabúðum.

    Þessa bók las ég fram og til baka sem krakki og unglingur og það hefur nýst mér vel í mínum ferðum. Það er gaman að fletta henni fyrir þá sem hafa reynslu og hún er algjör "biblía" fyrir byrjendur í þessu sporti.

    Freyr Þórsson





    16.02.2010 at 10:38 #683522
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Öskju……….

    Pakkningin fór hjá mér í bensanum (5 cyl diesel) og ég talaði við nokkra staði. Keypti í Öskju slípisett (pakkningar á hedd, pústgrein, soggrein og e-ð fleira var í settinu), heddbolta og plastsleða fyrir tímakeðjuna. Allt saman kostaði þetta um 20.000 krónur og tók eitt kvöld eftir vinnu að skipta um heddpakkninguna. Ég er á þeirri skoðun að almennt séð séu orginal heddpakkningar betri en aftermarket og ég hef mun meiri trú á heddpakkningu frá Bens heldur en Ding Dong.

    Einnig var gott verð á varahlutunum hjá Kistufelli í Brautarholti (ekki verkstæðið á höfðanum).

    Freyr





    12.02.2010 at 00:42 #682684
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Neðra gúmmíið er óhreyft á sínum upphaflega stað, efra gúmmíið situr ofaná prófílnum sem soðinn er á gamla stað boddípúðans. Hækkunin er því á milli efra og neðra gúmmís og setja þarf lengri bolta/snitttein sem nemur hækkuninni milli gúmmíanna.

    Freyr





    11.02.2010 at 23:15 #682678
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæll

    Nei, ég hef ekki gert þetta ennþá sjálfur. En þessi aðferð er í raun sú sama og sú sem kom annarsstaðar í þræðinum með að nota rörbúta, og svo það sé alveg á hreinu þá notarðu orginal gúmmípúðana áfram ef þú setur búta úr prófíl.

    Freyr





    11.02.2010 at 19:54 #682658
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Kauptu frekar prófíl og sagaðu í búta og boraðu gat í gegnum bútana af réttri stærð. Leggur svo bútana ofaná grindina þar sem púðarnir eiga að vera, setur bolta í gegnum bútana og götin í grindinni og herðir fast. Sjóða síðan bútana fasta við grindina. Með þessu móti færðu margfallt sterkari og stöðugri festingar heldur en með nælonklossum. Ef þú notar nælon er yfirbyggingin stöðugt á smá hreyfingu ofaná grindinni og með tímanum fer boddíið að springa kringum festingarnar með tilheyrandi óhljóðum og ryðmyndun…………

    Freyr





    09.02.2010 at 01:54 #682212
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæl öll

    Ég er feginn að sjá þessa umræðu hérna. Mér hefur oft þótt óþægilegt að sjá hvernig fólk hegðar sér á jöklum með því að skoppa kringum sprungur án alls búnaðar og heilbrigðrar skynsemi. Ég er félagi í björgunarsveit og flokkast þar sem undanfari (hef samt verið lítið sem ekkert virkur í því starfi í tvö ár) og það eru mörg ár síðan ég hef farið á jökul án þess að vera með "sprungubúnað". Það er sá búnaður sem þarf til að koma sér ofaní sprungu og upp úr henni aftur hjálparlaust og með honum getur maður einnig bjargað upp einstaklingi að því gefnu að hann sé lítið eða ekkert slasaður og ekki skorðaður fastur.

    Ef fólk fer að vera í beltum og bundið við bílana á hættusvæðum er það til mikilla bóta því það kæmi í veg fyrir flest alvarleg slys. Hinsvegar er rétt að minna á að í mörgum tilfellum þyrfti engu að síður sérþjálfað fólk með meiri búnað til þess að ná fólki upp með öruggum hætti. Eitt að lokum sem vert er að minnast á. Undir engum kringumstæðum er í lagi að nota jeppana okkar eða spil á þeim til að hífa fólk upp (þó svo það hafi verið gert örsjaldan en þá eftir mjög vandlega umhugsun og undirbúning af hálfu fólks sem kann til verka í spungubjörgun og línuvinnu). Kraftarnir sem eru í gangi með svoleiðis vinnubrögðum eru svo miklir að það tekur enga stund að slíta fólk í sundur ef eitthvað fer úrskeiðis……..

    Freyr





    31.01.2010 at 23:00 #680500
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Hvað vantar þig stóra geyma? Ég keypti rafgeyma í vetur hjá Renault varahlutaverslun IH/B&L sem er staðsett á Fosshálsi 1 og þeir kostuðu rétt rúmar 10.000 kr. sem var um 5.000 kr. ódýrara en aðrir staðir sem ég skoðaði. Best að taka það fram að ég vinn á Renault verkstæði IH/B&L en besta verðið var engu að síður hjá okkur……………….;-)

    Freyr





    31.01.2010 at 22:40 #680514
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Lét sandblása og mála felgur í zinkstöðinni í hafnarfirði í haust. Þeir voru mjög sanngjarnir og tóku um 30 þús fyrir pakkann. Hinsvegar voru þeir einmitt á þeim tíma að skipta um eigendur og töluverðar verðhækkanir á dagskrá sökum hærra innkaupaverðs á efnum.

    Freyr





    31.01.2010 at 02:20 #679968
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Smá viðbót við innleggið hér að ofan. Ég hef keyrt bílinn hjá Berg og þótti kassinn frekar stirður og óþjáll en honum þykir bara ljómandi fínt að skipta honum……. Kassinn er klárlega stirðari en margir/flestir nýrri kassar en það venst örugglega mjög fljótt. Hinsvegar er þetta mjög sterkur kassi og gírunin þannig að hægt er að notast við til þess að gera há drifhlutföll, og þ.a.l. sterkari.

    Freyr





    29.01.2010 at 10:31 #679912
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæll

    Ég myndi hafa samband við Kidda í Rafstillingu. Ég hef skipt mikið við hann bæði fyrir sjálfan mig og í gegnum vinnuna (er bifvélavirki) og hef bara gott um hann að segja, efast ekki um að hann verði sanngjarn við þig.

    Freyr





    25.01.2010 at 12:30 #678586
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Hertu felgurnar hjá henni eins og þú ert vanur og er passlegt, notaðu svo mælinn til að finna hvaða hersla það er (auka Nm þar til hann hreyfir rærnar og dragðu svo 10 Nm frá)…………………..;-)

    Freyr





    24.01.2010 at 19:28 #678580
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    "Er ekki hersla á felguboltum á 15" álfelgum (6 bolta) svona 100-110 Nm? Bara svona af því að þið voruð að ræða þetta, :-)"

    Þetta er spurningin sem ég var að svara (að sjálfsögðu eru mjög mismunandi herslur eftir bílum) og auk þess er maðurinn með mynd af hilux hjá sér. 6 gata álfelgur undir svona hilux á að herða í 120 Nm.

    Freyr





    24.01.2010 at 02:04 #678576
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    120 Nm





    24.01.2010 at 01:59 #679056
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    38 undir þennan bíl er algjört lágmark til að ferðast á honum í snjó, samt þannig að þú værir sjaldnast fyrsti bíll og værir oft í basli. 35 er fínt í allt annað en snjó.

    Freyr





    22.01.2010 at 20:15 #678570
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæll

    Ég hef aldrei séð mæli með svið frá 20 – 350 Nm. Svo eru þessir mælar þannig að þeir eru nákvæmastir á miðju sviðinu en verða ónákvæmari við efri og neðri mörk. Að lokum þá eru ódýrir mælar oft ónákvæmari, sérstaklega þegar þeir eldast. Þá er reyndar hægt að fara með þá í prufutæki hjá Ísól í ármúla.

    Freyr





    21.01.2010 at 10:29 #678210
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Dick Cepek Mud Country





    21.01.2010 at 01:51 #210089
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Sæl öll

    Er að setja eitt stykki cherokee á 38 og set reglulega inn myndir á facebook (tekur 10x styttri tíma en hérna), hér er linkur á myndirnar:

    http://www.facebook.com/album.php?page=2&aid=5749&id=100000570254985#/album.php?aid=5749&id=100000570254985

    Freyr





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 811 total)
← 1 … 11 12 13 … 41 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.