Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.07.2010 at 01:13 #697994
Er þetta eitthvað grín eða…………………….? Er verið að spá í að GPS-væða bílaflotann?
Það er alveg á hreinu að það fer enginn andskotans "big brother" búnaður í mína bíla (með einni undantekningu)!!! Það er ef það á að afnema vegtolla á eldsneyti og setja kílómetragjald í staðinn, þá hættum við að borga vegtolla sem nema mörghundruð km. malbikakstri fyrir að aka nokkra tugi km. í snjó.
Freyr
06.07.2010 at 23:59 #697828Gegnum stuðarann.
Það er sterkara að láta togið koma beint í endann á grindinni heldur en að láta það mynda snúningsvægi í dráttarbeislinu. Annar kostur við það er að þannig er hærra undir hann að framann.
Þegar ég smíðaði prófíl framaná minn ’95 patrol sauð ég bitann milli grindarendanna og styrkti svo með því að setja flatjárn sem lágu í 45" horni frá prófílnum aftur í grind, að lokum sauð ég flatjárn frá prófílnum beint aftur í fremsta þverbitann (sem er rör) í grindinni.
Freyr.
24.06.2010 at 20:33 #696992Góðan dag
Ég er mjög á móti því að takmarka umferð um þá vegi og svæði sem stendur til skv. verndaráætluninni. Mér þykir það ósanngjarnt og óréttlátt að meina almennum íslenskum ferðamönnum að aka vegi sem eru til staðar og eru skýrir og greinilegir en leyfa engu að síður ferðaþjónustuaðilum að aka þessa vegi, með því er verið að gefa fáum rétt til að gera eitthvað sem allir hafa getað gert hingað til og vegirnir verða þá hvort eð er áfram til staðar……………… Bara ekki fyrir allaheldur fáa útvalda.
Annað mál er síðan það að í dag eru þessi svæði nokkuð ósnortinn sbr. t.d. Vonarskarð og Vikrafellsleið. Þar er alla jafna ekki mikil umferð og álag á landinu því lítið og náttúruperlur njóta sín í sinni upprunalegu mynd ef frá eru taldir einstaka vegslóðar. Sú uppbygging sem stefnt er að veldur mun meiri skaða á náttúrunni en er í dag. Í dag höfum við nokkra slóða og það er allt og sumt. Hinsvegar er stefnt á landvarðahús, þjónustumiðstöðvar, fræðslusetur, gestastofur, upplýsingaskillti o.s.frv, einnig á ég von á að sumsstaðar verði gönguleiðir afmarkaðar með girðingum, köðlum eða tré-göngupöllum. Þetta allt er margfallt meira rask og inngrip heldur en er í dag og hætta er á að svæðið verði líkara Skaftafelli, Landmannalaugum og Geysi í stað þess að vera fáfarið og sæmilega ósnortið.
Annað mál er síðan akstur á sjálfum Vatnajökli. Mér þykir það út í hött að ætla að banna akstur vélknúinna ökutækja á vissum svæðum á jöklinum. Með því er verið að þjóna hagsmunum örfárra en skerða ferðafrelsi margra. Ég hef nokkuð oft ekið yfir Vatnajökul og á ferðum mínum hef ég undantekningarlaust hitt aðra jeppamenn og stundum sleðamenn. Hinsvegar héf ég aðeins einu sinni hitt fólk á gönguskíðum, það voru útlendingar sem voru um 10 km frá Grímsfjalli. Mér hefur sjaldan verið tekið jafn vel á fjöllum og af þessum mönnum, þeir voru örþreittir og báðu okkur um að taka meiginhluta farangurs síns í bílana og skilja eftir í skálanum á Grímsfjalli. Ég giska á að fyrir hvern einn sem gengur yfir jökulinn séu þeir nokkur hundruð sem aka yfir hann á vélknúnum ökutækjum.
Eftirfarandi er klippt út úr kafla 2.2. í verndaráætluninni (Lagarammi):
"Einnig eiga lögin að auðvelda umgengni og kynni þjóðarinnar af náttúru landsins og menningarminjum…."
Ég get ekki með nokkru móti séð hvernig það að loka þessum vegum/slóðum þjóni þeim tilgangi að auðvelda umgengni um svæðið. Ég get ekki séð betur en að þarna sé verið að brjóta lög sem síðast voru endurskoðuð á alþingi árið 1999!!!
Að lokum er best að taka fram að ég er ekki einhver gallharður jeppamaður sem skeytir ekkert um hagsmuni þeirra sem kjósa að ganga frekar en að sitja í bíl. Ég hef alla tíð stundað útivist af ýmsum toga og þar á meðal eru fjallgöngur og reiðhjólaferðir. Ég er félagi í Björgunarsvetinni Ársæli og tilheyri þar undanfarahóp/fjallabjörgunarhóp og sá hópur gengur út á göngur og klifur við allar mögulegar aðstæður.
Í ljósi ofangreindra atriða vona ég innilega að þið endurskoðið verndaráætlunina með það að leiðarljósi að allir geti notið svæðisins. Það eiga ekki allir peninga til að borga ferðaþjónustuaðilum til að fara með sig um svæðið og eins er gríðarstór hópur fólks sem einfaldlega getur ekki gengið langar vegalengdir og ætti því ekki nokkurn kost á að skoða svæðið.
Kveðja;
Freyr Þórsson
Flyðrugrandi 12, 107 Reykjavík
210786-3849
r-3671 (félagsnúmer í 4×4 klúbbnum)
22.06.2010 at 00:57 #696760Hér er um að ræða mann sem er í meira lagi undarlegur, í mismunandi hæð yfir sjó og er stundum á höfuðborgarsvæðinu. Hvað heitir hann og hvar er hann staddur?
Kveðja, Freyr
16.06.2010 at 12:18 #696470[quote="Elías":18d1afmr]Sæll.
Þessar leiðir eru ennþá lokaðar frá Nýjadal í suðri.
Það eru hinsvegar góðar líkur á að opnað verði fljótlega þar sem að vegir eru orðnir nokkuð þurrir.
Mæli með að bíða eftir opnun vegagerðarinnar.Kveðja
Elli.[/quote:18d1afmr]Málið er bara að vegagerðin er yfirleitt 2-3 vikum eftirá í þessum málum, því var ég að athuga hvort einhver hér væri nýbúinn að fara þetta.
Kv. Freyr
16.06.2010 at 01:38 #213220Sæl öll
Þekkir einhver færðina á Sprengisandi norðan Nýjadals, annarsvegar niður í Bárðardal og hinsvegar í Laugafell og þaðan niður í Eyjafjörð? Veit af vef vegagerðarinnar en tek orðið lítið sem ekkert mark á þeim vegna þess hversu seinir þeir eru alltaf……………
Freyr
27.05.2010 at 23:01 #69458214,5 til 18 á langkeyrslu. Algengt er um 50 ltr./100 í snjóakstri eða um 50 – 80 ltr. á dag. Veit ekki um eyðslu innanbæjar en hún er töluverð, gæti trúað kringum 23 ltr.
Freyr
27.05.2010 at 00:48 #694576Renault vélarnar voru gjörsamlega 100% máttvana og það ætti ekki undir neinum kringumstæðum að setja þær í jeppa. Nissan Terrano hljómar vel. Ég ek um á ’98 Terrano og hann togar mjög vel og upptakið er alveg ágætt, svo er eyðslan lítil eða 10-11 lítrar í blönduðum akstri, orginal bíll á 31" dekkjum. Fjallabíllinn er svo ’97 XJ á 38" með 4.0 ltr. sexunni og ég verð nú að segja að það myndi seint hvarfla að mér að skipta vélinni í honum út fyrir þá úr Terrano……………
Freyr
27.05.2010 at 00:38 #694556Hjá Bogga vinnur (eða vann, ekki viss) náungi sem heitir Siggi. Hann gat svarað öllu sem ég spurði hann um þegar ég var í basli með 350 TBI og hann þurfti aldrei að opna til þess bók, var með þetta allt í kollinum.
Freyr
17.05.2010 at 23:30 #693598Æ, las ekki upphaflega póstinn nógu vel og því tók ég ekki eftir "Fossberg" í upptalningunni………
Freyr
16.05.2010 at 13:42 #693592Ég hef bara eitt um þetta mál að segja…….FOSSBERG! Þeir hafa aldrei klikkað þegar ég hef verið í vandræðum með bolta, gengjur, snitti o.s.frv. Mun öflugri í þessu en Wurth, eiga allann andsk. meðan Wurth er frekar bara með þetta staðlaða DIN dót.
Freyr
16.05.2010 at 00:42 #693732Sæll
Aðgengi að varahlutum er mjög gott, bæði nýtt og notað.
Éh hef átt nokkra XJ (gamli kassalaga) cherokee með þessari vél og hef eyðslumælt þá innanbæjar á 38". Þeir fara með 22-24 á 38" (aldrei undir 20) en óbreyttur ætti að fara með minna. Hinsvegar er grandinn sem þú ert að spá í nokkur hundruð kg. þyngri og eyðslan því meiri. Ég er mjög hrifin af cherokee og þá sérstaklega XJ en ég myndi aldrei nota svona jeppa í snattið vegna eyðslu.
Freyr
21.04.2010 at 20:10 #212271Erum að fara á einum 38″ Cherokee og hugsanlega öðrum 38″ bíl á Langjökul á morgun. Förum upp frá Jaka og verðum snemma á ferðinni. Ef þú ert með vit í kollinum og átt ágætis jeppa væri gaman að hafa þig með.
Verðum á rás 45
661-2153 Freyr
663-4383 Ívar
20.04.2010 at 01:31 #691174Það er tvennt sem ér er að velta fyrir mér í annars góðu og ítarlegu svari þínu hér að ofan Bragi. Væri ekki ráð að skrúfa kertin úr mikið fyrr og setja þau aftur í með koparslip? Þá ættu þau ekki að gróa föst með tilheyrandi kostnaði og höfuðverk. Hitt er þetta með handbremsuna. Ef þú notar hana aldrei eru allar líkur á að hún stirðni og þá þarf að rífa sundur og liðka á hverju ári fyrir skoðun, væri ekki betra að nota hana alltaf og halda henni þannig liðugri?
Freyr
08.04.2010 at 01:09 #689326Sæl öll
Fyrst menn eru að koma með eyðslutölur úr stóru 4×4 hópferðinni ætla ég að deila minni eyðslu þá helgi með ykkur til samanburðar. Ég er á 38" ’97 Cherokee (ekki grand) með 4.0 lítra vélinni, ssk. Þegar við fórum frá Hrauneyjum hefur bíllinn viktað kringum 2150 kg með 235 lítrum af bensíni innanorðs (75 í tank og 160 á brúsum). Hrauneyjar – Sylgjuskáli – Vatnajökull endilangur frá Sylgju í Snæfell – Shell bensínstöðin rétt hjá Atlavík við Hallormsstað. Á þessari leið notaði hann 135 lítra. Ég man ekki nákvæmlega km tölurnar en man að eyðslan var um 50 l./100km í sjálfum snjóakstrinum.
Freyr
05.04.2010 at 16:24 #689270Flott samantekt hjá þér. Það er hinsvegar eitt sem þú gerir ekki ráð fyrir í töflunni, það er þyngdin á jeppunum eftir breitingar.
Sem dæmi er minn ’97 Cherokee skráður 1530 kg. frá framleiðanda.
-Meiri þyngd vegna breytinga:
-38" dekk og 13" stálfelgur
-Dráttarbiti að framan
-Ford 9" afturhásing
-Lítil grind að framan fyrir kastara
-Aukaljós-Minni þyngd vegna breytinga:
-Varadekk og festingar úr
-Jafnvægisstangir fr. + aft. úr
-Rúðupisskútur úr (á eftir að finna annann í staðinn sem kemst fyrir)
-Upphalarar í afturhurðum úr
-Rúðuþurrkubúnaður í afturhlera úr
-Hvarfakútur úrFyrir breytingaskoðun fór hann á vigt og var þá 1780 kg. með um 50 l. af bensíni á tanknum og örlítið af dóti í sér, s.s. u.þ.b. 1720 kg. galtómur. Af þessu má sjá að 38" breyting á jeppa kostar a.m.k. 200 kg. þyngingu nema farið sé í heilmiklar breytingar til að létta hann meira (meira en ég gerði).
Freyr
04.04.2010 at 23:01 #689248Sýnist hann vera staddur á Hveravöllum og þurfa að komast inn í hús en nái ekki sambandi við staðarhaldara.
21.03.2010 at 23:20 #687492Skiljanlegt að menn séu með svona vangaveltur vegna þeirra upphæða sem fara í bensínkaup þessa dagana. En áður en þú ferð útí svona verkefni ættir þú að gera kostnaðaráætlun sem tekur bæði á peninga- og vinnuhliðinni, þetta kostar töluvert og er mikil vinna. Svo er eitt sem þú þarft að hafa í huga. Einn af stóru kostunum við grandinn hjá þér er aflið, þar hefurðu eitthvað umfram flesta aðra bíla í þessum stærðarflokki. Ef þú setur í hann diesel vél í þeim dúr sem er talað um hér að ofan verður bíllinn hjá þér skuggalega líkur LC90, Pajero, Musso o.s.frv. Hann er álíka þungur og yrði jafn máttlaus, ertu til í að fórna forskotinu sem þú hefur í dag á þessa bíla???????
Hvet þig til að hætta þessum pælingum og hafa bílinn áfram jafn öflugan og hann er í dag.
kv. Freyr (sem fer á fjöll á bensín Cherokee 😉
10.03.2010 at 02:12 #686558Eitt í viðbót……………
Athugaðu hvort wastegate lokinn í afgashúsinu sé ekki liðugur áður en þú setur hana í bílinn.
Freyr
10.03.2010 at 02:07 #686556Væri sniðugt að hreinsa hana eins og hægt er til að ná sem mestu af þessu úr henni. Ná þér svo í sprautu (litla eins og læknar nota) og fylla hana af nýrri mótorolíu, setja slöngu á hana og reyna að láta slönguna vera sæmilega þétta við smurgatið á túrbínunni og setja fingurgóm yfir slefgatið á henni. Sprauta svo olíunni gegnum hana undir smá þrýstingi (sem þú myndar með fingurgómnum) og snúa henni svo slatta af hringjum bæði rétt- og rangsælis, getur endurtekið með nýrri olíu ef hún kemur drullug út. Þetta ætti að losa um skítinn í henni og skola honum út ásamt því að koma nýrri olíu í fóðringarnar.
Síðan myndi ég setja hana í bílinn og tengja afgashliðina eins og á að gera en sleppa því að tengja lögnina frá túrbínu inn á vél. Setja svo í gang og hlusta og horfa, ef ekkert óeðlilegt kemur í ljós er bara að tengja hana og fara að keyra.
Best að taka það fram að ég hef ekki lent í þessu sjálfur en svona færi ég að.
Freyr
-
AuthorReplies