Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.09.2015 at 22:09 #930770
Öngvar hugmyndir?
Hvert fer fólk í felgukaup ef það þarf að fara úr 15 t í 17 tommu?
11.09.2015 at 19:20 #928042upp með þetta. Ég hef verið að svipast um eftir vetrardekkjum á LC78, 35 tommur fyrir 15 tommu felgur. Þar er ekki um mjög auðugan garð að ræða. Fór og spurðist fyrir í Artic trucks, þar er til dekk framleitt í samvinnu við Nokian finnska dekkjaframleiðandann, vetrardekk, en fyrir 17 tommur. Gangurinn með nýjum felgum (frá AT ) gæti þá kostað 600.000 krónur. Eitthvað hlýtur að vera til ódýrara en það. Er meira að leita að vetrardekkjum en torfærudekkjum.
25.06.2014 at 19:40 #769597Dómadalur er sum sé merktur 4×4 og þó að ekki sé slíkt merki suður frá virkjuninni þá er oft bleyta þar svona snemma sumars. Frétti af því að Dómadalur hefði fyrir viku eða svo verið á floti. Var því að spyrja.
25.06.2014 at 18:53 #769595sæl öll, veit einhver um ástand vega í Friðlandi að Fjallabaki? Er í lagi að fara á Kia jeppling þar ?
14.05.2014 at 21:02 #768346noh 😉 Hvur gerði þetta?
Var að ræða þetta við bróður minn (minn sérlega bifreiðaráðunaut) og hann var að hafa áhyggjur af styrk í boddýinu.
14.05.2014 at 15:03 #768334Sæl þið,
á LC hzj 78 („landcruiser 70“ – langur) hvar á mætti gjarnan vera hurðir við aftursætin. Slíkt myndi auðvelda alla umgengni við aftursætin.
Er eitthvað sem mælir á móti slíkri breytingu? Lagalega eða annars?
Og hvaða aðilar hafa gert slikar breytingar?
06.05.2013 at 22:02 #226053Sæl öll, sá svona ansi laglegan rörastuðara með prófil tengi að framan á HZJ78 LC nýlega. Hvaða fyrirtæki hafa verið að smíða slíkt ?
24.03.2013 at 21:38 #764869Það er þá sum sé fært Sigöldumegin inn að Frostastaðavatni fyrir óbreytta bíla ef ég skil ykkur rétt?
24.03.2013 at 17:25 #225818Sæl þið öll. Veit einhver hvernig færð er á Landmannaleið-Dómadal núna? Er fært fyrir LC78 á 35 tommu dekkjum? Ekki er klaki farinn að fara úr jörð er það? Snjóalög?
12.08.2012 at 23:18 #756357Sæl aftur, vitið þið sem eigið hzj78 bíla frá 2000 hvort eitthv. mix hafi verið gert í rafmagnsmálunum? Í tenglsum við dagljósabúnað t.d.? Hvað segja björgunarsveitamenn og -konur?
03.08.2012 at 12:31 #224002Á einhver á rafrænu formi rafmagnsteikningar af HZJ78 bílum eða „skyldmennum“?
Varð fyrir því að háu ljósin duttu út (rofinn virkar ok, lágu ljósin ok), gaumljósið fyrir háu ljósin fór líka, trip meter fór, útvarpið líka. Einnig fór vinstra afturljós og vinstri stefnuljós. Allar perur í lagi. Öryggi í lagi. Loftljósið var farið fyrir löngu (það ku vera vel þekkt vandamál skildist mér). Þetta gerðist „allt í einu“, raunverulega allt i einu. Hafði verið á malbiksakstri og lagði bílnum yfir nótt og hann var svona á eftir.
Any thoughts.
12.06.2012 at 17:46 #755027til að hnykkja á: Grétar gerði sum sé fyrirvara með vatnsmagn í ánum þarna.
12.06.2012 at 17:45 #755025Sælir, jú þetta ku vera fært Heiðarvatn – Þakgil. Ég var þarna á ferð um síðustu helgi, en sum sé fann ekki nein för eftir að út á Flárnar var komið, nema sem lágu nánast beint norður, og ég dröslaðist það, nánast alveg inn að Heiðargilsfossi ;), sum sé einu gili vestar en rétta leiðin liggur um. Það er lítið í ánum núna þarna (amk. enn sem komið var). Var búin að hafa samband við hann Grétar í Þórisholti sem þekkir þetta landslag eins og hendina á sér og hann telur þetta fært í þessa átt, reyndar svo farið sé rétt með þá sagði hann að þetta væri fært mínum bíl (sem er Landcruiser 70 á 35 " dekkjum) og geri þá ráð fyrir að flestir jeppar kæmust þetta. Það væri fínt að fá track af þessu, það eru nk. punktar í Ekið um óbyggðir reyndar.
11.06.2012 at 07:44 #755019fann reyndar upplýsingar í Ekið um óbyggðir. Er þar á bls. 176.
11.06.2012 at 01:00 #223687Á einhver track af leiðinni frá Heiðarvatni (norðan Víkur) í Þakgil?
25.08.2011 at 23:21 #735403Vilhelm minn, fer bara ekki að verða ódýrara að fara aftur á Togogýta? Liggur vandinn ekki í því að þetta er Ford? 😉
23.05.2011 at 22:26 #730625Pavarotti og Demis Roussos.
19.09.2010 at 21:48 #703316Er enginn afsláttur lengur ef viðskiptakortið er notað? Kort sem gefið var út tengt F4x4?
18.08.2009 at 22:15 #654254Vaðilfjöll,
Reykhólar-Reykhólasveit
Þingmannaheiði, óbrúuð og verulega gróf (allt nema klappirnar) en ekkert mál fyrir 38”
(en þá missirðu að nk. fallegum fjörðum)
Það eru vegir/slóðar út á mörg annes við firðina við norðanverðan Breiðafjörð sem skemmtilegt er að fara og kíkja á fyrrum byggð
Hörgsnes (á milli Kjálkafjarðar og Vatnsfjarðar, skúti Gísla Súrssonar)
Vatnsfjörður
Rauðisandur, og jafnvel ganga um Sjöundá og Söðul í Skor, eða um Sjöundárdal og niður Ölduskarð í Námur. Eða fara í hina áttina á Sandinum og ganga út að Brekku. Sýnið bændum á bæjunum þá virðingu að aka ekki yfir tún og slægjur nema að fengnu leyfi. Muna að vera á bæði flæði og fjöru, mikill munur á Sandinum eftir hvort er. Hægt er að ganga út á rifshausana og “tala við selina”. Kunnugir geta ekið yfir flæðurnar á fjöru út á sandana en hætt við sandbleytu. Og passa sig á að láta sig ekki flæða á sandinum!
Hvallátrar-Látrabjarg
Kollsvík og verbúðarústir
Tálknafjörður, fara út með honum sunnanverðum út á Suðureyri og skoða rústir af hvalstöð
Verdalir við sunnanverðan Arnarfjörð (utan við Bíldudal), m.a. Selárdalur og heimkynni Gísla á Uppsölum og Samúels.
Læt norður Vestfirðingum að telja upp athyglisverða staði á norðanverðum Vestfjöðrum.
21.07.2009 at 22:44 #652018Fyrir þau ykkar sem nenna að lesa líffræðilegar skýringar á þessari hækkun bílprófsaldursins (og reyndar líka af hverju ungir ökumenn, sérl. strákar, eru mun hættulegri ökumenn en aðrir hópar, og skýrir líka af hverju talið var rétt að hækka lögræðisaldurinn, júbb, það var á því líffræðileg skýring meðal annars).
http://images.google.is/imgres?imgurl=h … X%26um%3D1
Svona í stuttu máli: heili eðlilegra einstaklinga er ekki fullþroska fyrr en um 18-20 ára, nær 20 reyndar. Og það sem meira er, framheilinn verður síðast fullþroska, en þar eru einmitt m.a. persónuleikastjórnun og hvatastjórnun staðsettar. Framheilaskemmdir einstaklingar eru einmitt oft með erfiðleika með að hafa hemil á sér og nú eru komnar vísbendingar um að t.d. einstaklingar með ofvirkniröskun séu með mun seinni þroska á sínum framheila en þeir sem ekki eru með ofvirkniröskun.
Þannig að: Aldurstakmarkið hækkað er á grunni líffræði og tölfræðinnar úr umferðaslysum.
-
AuthorReplies