FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Emil Borg

Emil Borg

Profile picture of Emil Borg
Virkur síðast fyrir 10 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 446 total)
← 1 … 8 9 10 … 23 →
  • Author
    Replies
  • 14.09.2004 at 09:35 #505674
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir strákar.

    Það er bara ekki mögulegt að nota snúningshraðamæli við díselvél. Það er grundvallarmunur á virkni þeirra.
    Mælirinn fyrir bensínvélina telur hversu oft háspennukefli hleypir af, en við díselvélina er mælirinn að mæla viðnám. Þær eru oftast með sendi á alternator eða olíuverki sem breytir viðnámi eftir snúningshraða. Því er eina lausnin að setja mæli úr díselbíl í bensínboddýið.

    Ég ætla ekki að hengja mig upp á þetta, en þetta er virknin eftir því sem ég kemst næst.

    Emil





    09.09.2004 at 12:40 #505552
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir strákar.

    Ég smíðaði í minn festingu úr járni sem var fest í gólfið með stuðning í innréttingu. Borðið sjálft var úr þykku plexí með stuðning við skjáinn. Hægt að snúa í allar áttir. vélin var fest við borðið með þremur teygjum úr bílslöngu.

    Þetta virkaði rosalega vel þangað til ég velti bílnum. Þá flaug tölvan af og endaði aftast í bílnum. Farþeginn lenti á borðinu og braut plexí plötuna í mask. Hann hlaut við það ljótar skrámur.

    Mín ráð eru að hugsa þetta nógu helv… vel áður en borðið er sett í bílinn. Auðvitað eru fæstir sem lenda í þeim andskota að velta bílunum, en það getur alltaf komið fyrir. En reynið að staðsetja þetta þannig að sem allra minnstar líkur séu á að einhver geti rekist í borðið, og endliega festið vélina með einhverju miklu öflugra en frönskum rennilás.

    Emil Borg





    03.08.2004 at 13:58 #486954
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Í fyrra fór hjá mér vatnsdæla með sömu einkennum, þ.e. leka. Til að spara mér nokkrar krónur keypti ég dælu í Bílanaust, en hún var meira en helmingi ódýrari en sú í umboðinu. (Toyota) Trúlega eru spaðarnir á dælunni ekki eins og á þeirri original, því mér þykir bíllinn þurfa meiri snúning til að dæla almennilega. Sérstaklega þarf meiri snúning til að miðstöðin hitni af viti. Ég er því ekki viss um að þetta hafi verið sparnaður eftir allt.

    Kv.
    Emil





    05.07.2004 at 12:19 #504602
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Her er minn gamli

    http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … 2&offset=0

    Emil





    24.06.2004 at 10:28 #503904
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ég bara verð að viðurkenna að hafa ekki haft tíma til að ganga frá þessum málum enn. Búinn að liggja í bælinu, og var svo að þvælast á Vatnajökli um síðustu helgi.
    Lofa samt bót og betrun.

    Emil





    18.06.2004 at 14:29 #503990
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ég var að tala við hýsingaraðilan, og þeir höfðu ekki hugmynd um að þetta væri niðri, en lofa bót og betrun.
    Vonandi stenst það.

    Emil





    16.06.2004 at 23:16 #503936
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir aftur.

    Þetta sem þú segir Sigurður er allt satt og rétt. Einmitt vegna þess hvað vefurinn er orðinn mikilvægur þáttur í félagsstarfinu er áríðandi að vandað sé til allra verka tengdum honum. Þ.á.m. vali á hýsingaraðila, því ekki viljum við eiga á hættu að lenda hjá öðrum jafn slöppum. Það gildir líka í þessum bransa eins og öðrum að þú færð það sem þú borgar fyrir, þannig að varhugavert getur verið að stökkva á lægsta tilboð. En ég lofa þér því að við erum að vinna í þessu og þetta verk er mjög ofarlega á topp 5 listanum.

    Emil

    P.s. takk fyrir tilboðið um vinnuframlag.





    16.06.2004 at 20:58 #503928
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Sigurður og þið hin öll.

    Það er augljóst að vefurinn okkar er ekki í því standi sem best væri kosið.

    Þrátt fyrir fjöldamargar hringingar og samtöl er hýsillinn okkar ekki að standa við gefin loforð um uppitíma og ástand vefins. Eins og einhver hefur kanski tekið eftir var t.d. um daginn greinilega keyrt af gamalli afritun, og öll netföng færðust nokkur ár aftur í tímann.

    Augljóslega þarf eitthvað að gera í þessum málum, en hafa verður varann á og vanda vel til verka. Undirbúningsvinna að nauðsynlegum endurbótum er hafin, en tekur nokkurn tíma. Vonandi verður þó fljótlega hægt að greina frá því hvaða stefna verður tekin í þessum málum. það verður auðvitað gert um leið og allar leiðir hafa verið kannaðar vandllega og ákvörðun tekin um framhaldið.

    Kv.
    Emil Borg





    16.06.2004 at 11:34 #503920
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Ágúst.

    Þú ert svo heppinn að það er ekkert mál að þétta díseltanka. Þú getur einfaldlega notað Sikaflex.

    Ég lenti í því að botn fór að leka í tanki hjá mér. Ég hreynsaði umhverfis gatið með sandpappír og smurði svo Sikaflex yfir. það svínvirkaði og hélt enn þegar ég tók tankinn undan ári seinna.

    Emil





    16.06.2004 at 11:29 #503894
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæl öll.

    Ég vil biðja ykkur sem hafið sent inn umsókn og ekki fengið greiðsluseðil, og einnig þá sem hafa greitt, en ekki fengið sent Setrið að senda mér línu. Ég reyni að koma þessum málum á hreynt sem allra fyrst.

    Emil Borg
    emil@lol.is





    10.06.2004 at 19:26 #503746
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæl öll.

    Vegna samnings klúbbsins við Skeljung ber að hefja allar skipulagðar ferðir á vegum klúbbsins frá stöðvum Skeljungs.
    það er mjög áríðandi að við stöndum við þann samning, því Skeljungur er stór stirktaraðili.

    Fyrir hönd stjórnar,
    Emil Borg





    28.05.2004 at 17:28 #503321
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæl öll.

    Ég var svo óheppinn að missa af Skúla í útvarpinu.
    Veit einhver hvort hægt er að hlusta á þetta eftirá á netinu?

    Emil





    27.05.2004 at 15:19 #503258
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Jú, Jón, það er rétt munað hjá þér.
    Og það er Bílanaust sem sér um málið.

    Emil





    26.05.2004 at 14:07 #503142
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir strákar.

    Ég man ekki betur en þetta hafi verið svona í reglugerðinni í mörg ár. Ég hef allavega farið eftir þessari reglu sjálfur lengi.

    Það sem flestir hafa flaskað á er að lesa klausuna um kastara almennt, en hafa ekki skoðað undantekninguna fyrir jeppana.

    Emil





    25.05.2004 at 23:48 #503131
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Athugaðu Arnór að þetta á við um þokuljós.
    Ég er ekki með þessar upplýsingar um kastara hjá mér, en eitthvað svipað er gefið upp með þá.

    Emil





    25.05.2004 at 17:59 #503121
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Þetta er ekki alveg rétt hjá þér Bjarni.

    Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja er tekið fram í lið 07,01 (10) að kastarar skuli tengdir gegnum sérstakan rofa með gaumljósi, og megi eingöngu loga með háum ljósum.

    Síðar, eða í kafla 07,203 er svo undnantekning sem er hér fyrir néðan.

    [b:279c47gz]07.203 Breytt bifreið[/b:279c47gz]
    Breytt torfærubifreið má vera búin tveimur ljóskösturum sem mega vera tengdir stöðuljóskerum um eigin rofa og samtengdir gaumljósi í mælaborði.

    Í þessari sömu reglugerð er þessi klausa um þokuljós

    Þokuljós.
    Litur: Skal vera hvítur eða gulur.
    Dreifing: Ljósið skal dreifast vel til hliðanna og hafa greinileg lárétt birtumörk.
    Staðsetning: Ljósker skulu vera framan á ökutækinu. Hæð skal vera a.m.k. 250 mm en ekki meiri en hæð lágljóskera. Fjarlægð frá ystu brún má ekki vera meiri en 400 mm.
    Stilling og ljósstyrkur: Ljóskerin skal vera hægt að stilla nákvæmlega á auðveldan hátt. Ljós skal ekki lýsa lengra fram á veginn en lágljós viðkomandi ökutækis. Mesta afl peru sem nota má í hvort ljósker er 70 W.
    Tenging: Ljósker skulu tengd stöðuljóskerum um eigin rofa.

    Kveja,
    Emil





    25.05.2004 at 16:23 #503112
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Borgþór.

    Það eru nokkur atriði sem þú verður að hafa í huga. Ég tel engar líkur á að þeir vírar sem þú nefnir komi þér að gagni.

    1. kastararnir verða að tengjast í gegnum relay. það er vegna þess að hæpið er að rofinn sem þú notar geti flutt þann straum sem þeir taka.

    2. Rofinn sem þú notar verður að vera með ljósi. Reyndar máttu einnig setja ljós annars staðar, en allavega þarf að kvikna gaumljós þegar kastararnir eru kveiktir.

    3. Þú mátt ekki geta kveikt á kösturum nema kveikt sé á parkljósum. Þetta þíðir að þú þarft að finna straum frá parkljósi, (getur verið frá ljósarofa, parkljósi eða bara frá mælaborðsljósi en þá framan við dimmer) og taka þann straum inn á rofann sem þú notar til að stjórna relayinu.

    4. Ef þú tekur straum frá rafgeymi inn á relayið máttu alls ekki gleyma að setja öryggi á þann vír. Ef það er ekki gert, er allur straumur rafgeymisins inn á relayið. Því verður öryggið að vera sem næst geyminum.

    kveðja,
    Emil Borg





    25.05.2004 at 12:10 #503041
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Birkir.

    Ég held það sé ráð fyrir þig að byrja á því að skrúfa ventlalokið af vélinni. það er hugsanlegt að ventill standi hálf opinn, eða eitthvað því um líkt.
    En þú ættir í öllu falli að fá góða hugmynd um hvað er að ef þú kippir lokinu af.

    Emil

    P.s.
    Skoðaðu knástásinn vel í leiðinni. þeir hafa átt það til að slitna óeðlilega.





    19.05.2004 at 14:53 #502595
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Laugi

    Ég er bara að mynna þig á textana sem þú ætlaðir að senda mér.

    Emil





    17.05.2004 at 12:19 #502442
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ég er með til sölu hjá mér afgashitamæla á kr. 15.500.-
    Þeir eru ekki með ljósi.

    Lagnir og leiga
    Borgartúni 33
    569-7400

    http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … 4&offset=0





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 446 total)
← 1 … 8 9 10 … 23 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.